Morgunblaðið - 17.06.1995, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 17.06.1995, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ -1 WHfif ^ 4^-ossvogsstddio hf ____íi_ _ .£• «pi___ •k Einstakt tilboð (meðan birgðir endast) Alaskavíðir, þróttmiklar gæðaplöntur með þéttum rótarhnaus, 20 kr. stk. Bakki m/35 stk., kr. 690 Þrautreýnt, íslenskt birki í bústaðinn 35 kr. plantan. Geislasópur kr. 570 Blómstrandi runnar & rósir Veítum þjónustu og ráðgjöf Gerum tilboð og bjóðum skógræktarfólki afslátt. Opið kl. 8-19, um helgar kl. 9-17, sími 564-1777 Fossvogsbletti 1, fyrir neðan Borgarspítala. AÐSENDAR GREINAR Dylgjur og ósannindi í TVIGANG hefur Knútur Bruun í Hvera- gerði viðhaft dylgjur og ósannindi í minn garð í blaði yðar. í fyrra sinnið 3.6. og í seinna sinnið 14.6. Í greinum sínum fer maðurinn vel út fyrir þau mörk sem tíðkast núorðið í málefnalegri umræðu hérlendis. Mér ber hann á brýn að hafa andæft gegn sam- þykkt stéttarbræðra minna í stjórn Pre- stafélags íslands um köllunarmálið í Hvera- gerði. Þetta er einfald- lega ekki rétt. í sérbókun lýsti ég yfir stuðningi við meginefni álykt- unar félaga minna að undantekn- ingarlaust bæri að auglýsa laus prestaköll og hvatti til þess að lög- in um prestskosningar yrðu endur- skoðuð hið fyrsta. Eg gat hins veg- ar ekki tekið undir það að köllun án auglýsingar væri ólögleg, enda er hún það ekki. í lögum um prests- kosningar er skýrt tekið fram að köllun án auglýsingar sé lögmætur Baldur Kristjánsson valkostur. Hjalti Zoph- óníasson deildarstjóri Dóms- og kirkjumála- ráðuneytinu hefur um- beðinn staðfest þann skilning í álitsgerð. Niðurstaða hans er sú að ákvörðun kjör- manna í Hveragerði „styðjist við gildandi lög og rétt“. Þessar staðreyndir breytast ekkert þó að formgalli hafi verið á kölluninni í hið fyrra sinnið. Enn ómaklegri eru dylgjur hans (Undir fororðinu: Ýmsir í Hveragerði...) þær, að undiritaður hafi fengið biskups- ritaraembættið að launum fyrir af- stöðu sína. Dylgjar þessi maður gegn betri vitund eða er þetta virki- lega sá heimur sem hann þekkir? Vitaskuld á ráðning mín í starf bisk- upsritara sér lengri aðdraganda og bauðst mér þetta starf vegna reynslu minnar, menntunar og al- mennrar hæfni. Það er sorglegt þegar maður úr viðskiptalífi og bæjarstjómarlífi ger- Vitaskuld á ráðning í starf biskupsritara sér lengri afdraganda, segir Baldur Kristjánsson, o g bauðst mér þetta starf vegna reynslu minnar, menntunar og hæfni. ir sig beran að ósannindum -og ómerkilegum dylgjum. Alltaf er al- varlegt og verður ekki þolað þegar menn vega að starfsheiðri annarra með ósönnum aðdróttunum. Það er ósigur fyrir málefnalega umræðu ef menn komast upp með það að ganga þannig á skítugum skónum yfir ann- að fólk. Þess vegna bið ég Morgun- blaðið fyrir þessa athugasemd. Höfundur er sóknarprestur í Hornafirði og varaformaður Prestafélags íslands. Messur á morgun Ríki maðurinn og Lasarus Guðspjall dagsins: (Lúk 16.) ÁSKIRKJA: Vegna sumarleyfa starfsfólks er bent á messu í Laug- arneskirkju kl. 11. Árni Bergur Sig- urbjörnsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Guðni Þ. Guð- mundsson. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN: Laugardaginn 17. júní: Þjóðhátíðarguðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Guðlaug Helga Ás- geirsdóttir. Einsöngur Sigrún Blab allra landsmanna! IBorgimÍJlaMh - kjarni málsins! vaskleg og hljóðlát ] Electrolux uppþvottavel Hljóðlát. • Tekur leirtau eftir 14 manns. • Þrjár þvottagrindur. • Þreföld lekavörn. Þriggja ára ábyrgð. Hjálmtýsdóttir. Dómkórinn syngur. Organleikari Marteinn H. Friðriks- son. Sunnudagur: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. María Ágústsdóttir prédik- ar. Sr. Hjalti Guðmundsson þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur. Org- anleikari Marteinn H. Friðriksson. Anglikönsk messa kl. 14- Prestur sr. Steven Mason. Organleikari Marteinn H. Friðriksson. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón- usta kl. 14. Sr. Fjalar Sigurjónsson messar. Organisti Kjartan Ólafs- son. Félag fyrrverandi sóknar- presta. GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Org- anisti Árni Arinbjarnarson. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörnsson. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Karl Sigurbjörnsson. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Organisti Pavel Manasek. Sr. Tóm- as Sveinsson. Safnaðarferð laugar- daginn 24. júní. Lagt af stað frá Háteigskirkju kl. 9. Þátttaka tilkynnt í síma 5512407 miðvikudag og föstudag kl. 11-17. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð- brands biskups. Messa kl. 11. Les- messa. Sr. Flóki Kristinsson. Kaffi- sopi eftir messu. LAUGARNESKIRKJA: Fermingar- messa kl. 11 í umsjá sr. Jóns Dalbú Hróbjartssonar. Fermd verða Aron Hilmarsson, Elís Ingi Benediktsson, Fannar Snær Harðarson, Tómas Hilmarsson og Unnur Karen Guð- mundsdóttir. Kór Laugarneskjrkju syngur. Organisti Jónas Þórir. Ólaf- ur Jóhannsson. NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Guðmundur Óskar Ölafsson. SELTJARNARNESKIRKJA: Helgi- stund kl. 11 í umsjá sóknarnefndar. Organisti Vera Gulasciova. KVENNAKIRKJAN: Guðsþjónusta í Neskirkju mánudagskvöld kl. 20.30. Kvennadagsins minnst. Prestarnir Agnes M. Sigurðardóttir, Dalla Þórðardóttir, Hulda Hrönn M. Helgadóttir og Yrsa Þórðardóttir prédika. Karlakórinn Silfur Egils syngur. Aðalheiður Þorsteinsdóttir stjórnar kirkjusöng. Kirkjukaffi. Kvennakirkjan. ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Kjartan Sigurjóns- son. Gunnar Gunnarsson leikur á flautu. Guðmundur Þorsteinsson. BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Organisti Daníel Jónas- son. Samkoma Ungs fólks með hlutverk kl. 20. Gísli Jónasson. DIGRANESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Þorbergur Kristjánsson. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs- þjónusta - helgistund kl. 20.30. Prestur sr. Guðmundur Karl Ag- ústsson. Organisti Peter Maté. Prestarnir. GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Organisti Bjarni Þór Jónatansson. Vigfús Þór Árnason. HJALLAKIRKJA: Messa kl. 11. Alt- arisganga. Organisti Oddný J. Þor- steinsdóttir. Kristján Einar Þorvarð- arson. KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Kór Kópavogskirkju syngur. Organisti Örn Falkner. Ægir Fr. Sig- urgeirsson. SEUAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 20. Altarisganga. Sr. Gunnar Sigur- jónsson prédikar. Ástríður Jóns- dóttir og Kristjana Margrét Þóris- dóttir syngja tvísöng. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Sóknarprest- ur. SAFNKIRKJAN Árbæjarsafni: Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. Þór Hauksson. FRÍKIRKJAN, Rvík: Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Peter Maté. Cecil Haraldsson. KRISTSKIRKJA, Landakoti: Há- messa kl. 10.30. Messa kl. 14. Ensk messa kl. 20. Laugardaga messa kl. 14 og ensk messa kl. 20. Aðra rúmhelga daga messur kl. 8 og kl. 18. MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa kl. 11. HVÍTASUNNUKIRKJAN Filadelfía: Almenn samkoma kl. 20. Ræðu- maður Dögg Harðardóttir. Allir hjartanlega velkomnir. Athugið breyttan samkomutíma. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Göngu- messa kl. 11 sunnudaginn 18. júní. Eftir messu verður farið í rútu frá Óháðu kirkjunni inn í Grafning og gengið yfir Grafningsháls og Ing- ólfsfjall. Endað í veitingahúsinu Básnum í Ölfusi og lambalæri snætt. 5-6 tíma ganga. Verð 2.000 kr. með fari og mat. Mætið í gönguskóm og galla til kirkju. HJÁLPRÆÐISHERINN: Hjálpræð- issamkoma kl. 20. Elsabet Daníels- dóttir talar. FÆR. sjómannaheimilið: Sam- koma sunnudag kl. 17. KAPELLA St. Jósefssystra, Garðabæ: Þýsk messa kl. 10. JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði: Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga messa kl. 18. KARMELKLAUSTUR: Messa sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl. 8. Allir velkomnir. KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík: Messur falla niður fyrst um sinn. EYRARBAKKAKIRKJA: Messa 17. júní kl. 13. VÍDALÍNSKIRKJA: Helgistund kl. 13. Bragi Friðriksson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.