Morgunblaðið - 17.06.1995, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 17.06.1995, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995 49 AT VINIMUA UGL YSINGAR HEILSUGÆSLUSTÖÐIN Á ÍSAFIRÐI Læknaritari Heilsugæslustöðin á ísafirði óskar eftir að ráða læknaritara í fullt starf frá 1. september nk. eða skv. nánara samkomulagi. Sóst er eindregið eftir löggiltum læknaritara, en þó kemur til greina að ráða í starfið ritara með staðgóða reynslu og þekkingu. Nánari upplýsingar gefur Ólöf Jónsdóttir, læknafulltrúi, eða Guðjón S. Brjánsson, fram- kvæmdastjóri, í vinnusíma 456 4500. Leikskólakennarar Leikskólakennari óskast í 100% starf á leik- skólann Heiðarborg sem rekin er af Sjúkra- húsi Akraness. Heiðarborg er einnar deildar leikskóli með u.þ.b. 15 barngildi. Ráðningartími er frá 28. ágúst nk. Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 431 2311. IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK Tölvuumsjón Iðnskólinn í Reykjavík óskar að ráða starfs- mann til þéss að sjá um daglegan rekstur á tölvukerfi skólans. Tölvukerfið samanstendur af Novell NetWare og ýmsum DOS og Windows hugbúnaði. Upplýsingar um starfið gefur Marteinn Sverr- isson milli kl. 9.00 og 14.00. Umsóknum skal skilað til skólans fyrir 30. júní 1995. AKUREYRARBÆR Starfsmannadeild Akureyrarbær - reynslusveitarfélag Akureyrarbær hefur verið valinn til að taka þátt í reynslusveitarfélagsverkefninu á árun- um 1995-2000 og auglýsir eftir starfsmanni í fullt starf við verkefnið. Verkefnið er tíma- bundið og ráðið verður í starfið til eins árs, en framlenging er hugsanleg. Starfið felst annars vegar í að annast heild- arsamræmingu á einstökum þáttum reynslu- sveitarfélagsverkefnisins, safna upplýsing- um og dreifa, annast fundi og vera tengiliður milli aðilanna sem vinna að því. Hinsvegar felst starfið í framkvæmdastjórn þess þáttar verkefnisins, sem veit að breyt- ingum á stjórnsýslu og fræðsluátaki innan bæjarkerfisins. Starfsmaðurinn mun vinna undir stjórn reynslusveitarfélaganefndar og fræðslu- nefndar Akureyrarbæjar. Umsækjandi þarf að hafa háskólamenntun á sviði samfélagsfræða, reynslu af stjórnun, skipulagningu, félagsmálum og staðgóða þekkingu á sveitarstjórnarmálum. Laun samkvæmt kjarasamningi STAK og Akureyrarbæjar. Upplýsingar um starfið veitir bæjarstjóri og starfsmannastjóri Akureyrarbæjar í síma 462 1000. Umsóknarfrestur er til 1. júlí nk. Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akureyrarbæjar í. Geislagötu 9. Bæjarstjórinn á Akureyri. Bifvélavirkjar Óskum eftir að ráða tvo bifvélavirkja til starfa. Annar mun bera ábyrgð á stillingardeild fyrir- tækisins og eiga samskipti við viðskiptavini. Þjónustulipurð og þægilegt viðmót eru kost- ir, sem skipta miklu. Þjálfun erlendis verður boðin. Störfin gætu hentað tveimur samhentum mönnum, sem hafa reynslu af að vinna sam- an. Störfin eru hjá traustu fyrirtæki, sem býður framtíðarstarf og öryggi fyrir rétta menn. Starfstími hefst eftir samkomulagi. Umsóknir skilist til afgreiðslu Mbl., merktar: „A-1312“, fyrir 23. júní. Öllum umsóknum verður svarað. Kaupfélagsstjóri Óskum eftir að ráða kaupfélagsstjóra til starfa hjá Kaupfélagi Langnesinga á Þórshöfn. Stafssvið: 1. Dagleg framkvæmdastjórn fyrirtækisins og dótturfyrirtækis. 2. Kaupfélagsstjóri annast hagsmuni fyrir- tækisins og samningagerð fyrir þess hönd. 3. Kaupfélagsstjóri hefur frumkvæði að stefnumörkun og mótun framtíðarmark- miða í samvinnu við stjórn og aðra stjórn- endur fyrirtækisins. Við leitum að manni, sem hefur haldgóða þekkingu og reynslu af stjórnunarstörfum. Þekking á samvinnurekstri er æskileg. Viðkomandi þarf að vera atorkusamur og drífandi og hafa lifandi áhuga á stjórnun og fyrirtækjarekstri, Viðskiptamenntun æskileg. Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar: - „Kf. Rangæinga 244“, fyrir 27. júní nk. Akranes - lifandi bær! Við auglýsum lausar til umsóknar eftirtaldar stöður á leikskólum bæjarins: • Stöðu leikskólastjóra við leikskólann Akrasel. • Stöðu forstöðumanns skóladagvistar. • Stöður leikskólakennara við leikskólana. í dag eru starfandi á vegum Akraneskaup- staðar 4 leikskólar fyrir börn á aldrinum tveggja til 6 ára, þar sem dveljast á degi hverjum 256 börn. Tveir leikskólar eru þriggja deilda þar sem boðið er upp á sveigjanlegan vistunartíma. Yfirumsjón með faglegu starfi leikskóla hefur leikskólafulltrúi samkvæmt lögum um leikskóla nr. 78/1994. Skóladagvist er rekin fyrir báða grunnskólana á Akranesi fyrir börn í 1., 2. og 3. bekk grunn- skóla frá september til loka maí. Boðið er upp á sveigjanlegan vistunartíma auk hádeg- isverðar og hressingar í kaffitímum. Ef þú hefur áhuga á að búa í blómlegum bæ og starfa með börnunum okkar á Akranesi, þá veitir Sigrún Gísladóttir, leikskólafulltrúi, þér allar nánari upplýsingar í síma 431 1211. Umsóknarfrestur um ofangreind störf er til miðvikudagsins 28. júní nk. Félagsmálastjórinn á Akranesi. Rafsuða - málmsmíði Maður, vanur rafsuðu og almennri járn- smíði, óskast til fjölbreyttra starfa. Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist afgreiðslu Mbl., merktar: „M - 5801 “, fyrir 22. júní nk. „Au pair“ - Baltimore „Au pair“, sem ekki reykir, óskast á íslenskt heimili í Baltimore til eins árs frá og með 10. júlí nk. Starfið er fólgið í gæslu tveggja barna (2 og 6 ára) og hjálp við heimilisrekst- ur. Umsækjandi þarf að vera orðinn 20 ára og hafa bílpróf. Stúdentspróf er æskilegt. Upplýsingar eru veittar í síma 568 0012. Framkvæmdastjóri óskast fyrir heilbrigðiseftirlit Austurlandssvæðis Starfið felur í sér auk framkvæmdastjórnar fyrir Austurlandskjördæmi, heilbrigðiseftirlit á starfssvæði heilbrigðisnefnda Neskaup- staðar, Eskifjarðar, Reyðarfjarðar og Fljóts- dalshéraðs og Borgarfjarðar eystri. Menntunarkröfur: Umsækjandi þarf að hafa réttindi til að starfa sem heilbrigðisfulltrúi hér á landi. Starfið er laust frá 1. september nk. Gert er ráð fyrir aðstöðu og búsetu á Reyðarfirði Umsóknir berist til sveitarstjóra Reyðarfjarð- ar, Búðareyri 7, 730 Reyðarfirði, í síðasta lagi 10. júlí 1995. Upplýsingar veita: ísak J. Ólafsson, sveitar- stjóri Reyðarfjarðar, í síma 474-1245, Helga Hreinsdóttir, setturframkvstj., ísíma414-1235 og Stefán Þórarinsson, héraðslæknir á Egils- stöðum, í síma 471-1400. Kaupfélag Rangsinga Hvolsvelli Kaupfélagsstjóri Óskum eftir að ráða kaupfélagsstjóra til starfa hjá Kaupfélagi Rangæinga á Hvolsvelli. Stafssvið: 1. Dagleg framkvæmdastjórn fyrirtækisins. 2. Yfirstjórn markaðs- og fjármála. 3. Kaupfélagsstjóri annast hagsmuni fyrir- tækisins og samningagerð fyrir þess hönd. 4. Kaupfélagsstjóri hefur frumkvæði að stefnumörkun og mótun framtíðarmark- miða í samvinnu við stjórn og aðra stjórn- endur fyrirtækisins. Við leitum að manni, sem hefur haldgóða þekkingu og reynslu af stjórnunarstörfum. Þekking á samvinnurekstri er æskileg. Við- komandi þarf að vera atorkusamur og dríf- andi og hafa lifandi áhuga á stjórnun og fyrir- tækjarekstri. Viðskiptamenntun er æskileg. Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar „Kf. Rangæinga 244“, fyrir 27. júní nk. Hagvangur hf Skeifunni 19 Reykjavík Sími 581 3666 Róðningarþjónusta Rekstrarróðgjöf Skoðanakannanir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.