Morgunblaðið - 17.06.1995, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 17.06.1995, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995 57 FRÉTTIR Tólf kandídatar útskrifaðir frá Bændaskólanum á Hvanneyri NÝIR búfræðingar á Hvanneyri. Morgunblaðið/Davíð Pétursson Glímukappinn sópaði til sín verðlaunum Grund. Morgunblaðið. GLÍMUKAPPINN og Grettisbeltis- hafinn Jóhannes Sveinbjömsson varð dúx og sópaði til sín öllum verðlaunum sem veitt voru á út- skriftardaginn í Bændaskólanum á Hvanneyri. Búvísindadeild var slitið og brautskráðir 12 búfræðikandídatar við hátíðlega athöfn í matsal Bændaskólans á Hvanneyri að við- stöddu margmenni, þar á meðal landbúnaðarráðherra, Guðmundi Bjarnasyni, þingmönnum Vestur- lands, framkvæmdastjóra Bænda- samtaka íslands og fleiri forystu- mönnum íslenska landbúnaðarins. Skólastjórinn, Magnús B. Jóns- son, flutti skólaslitaræðu og sagði þar m.a að hlutverk Bændaskólans á Hvanneyri í samfélagi landbúnað- arstofnana væri öðru fremur miðlun búfræðilegrar þekkingar. Leitast væri við að veita þeim sem hyggj- ast stunda búskap starfsmenntun. Einnig væri boðin fram fræði- menntun sem ætti að geta nýst sem grunnur að kennslu, leiðbeiningu, rannsóknum og öðrum sérfræði- störfum innan landbúnaðarins og í dreifbýli. Á þessu skólaári hafa alls 92 nemendur innritast í bændadeildir skólans og 25 í búvísindadeildir, þar af tveir í BS-120 nám og einn nem- andi sem stundar óreglulegt nám við deildina. Tíu nemendur voru innritaðir á I. hluta og eru átta þeirra að þreyta próf um þessar mundir. Tólf voru innritaðir í III. hluta og voru brautskráðir nú. Þá lýkur einn nemandi fjórða árs námi. Bestum árangri á kandidatsprófi náði Jóhannes Sveinbjörnsson með 8,6 f aðaleinkunn, Lárus Pétursson 7,9 og Guðni Ágústsson 7,7. Af þessum tólf kandídötum voru fjórir með I. einkunn en átta með II. ein- kunn. Hafnfirskir víking- ar áforma innrás „HAFNFIRSKIR víkingar hafa verið að æfa vopnaburð og árás- artækni í hrauninu við Straums- vík að undanförnu og mun það vera liður í undirbúningi að væntanlegri innrás þeirra í Reykjavík 17. júní, segir í fréttatilkynningu sem Mbl. hef- ur borist. Ennfremur segir: „Að venju er það Jóhannes í Fjöru- kránni sem er fremstur í hópi hafnfirskra víkinga. „Við höf- um lengi stefnt að því að gera Hafnarfjörð að höfuðborg ís- lands og mér sýnir það fljótvirk- asta leiðin að innlima Reykjavik í Hafnarfjörð“, segir Jóhannes. „Laugardaginn 17. júní áform- um við fyrstu innrásina í Reykjavík. Þá munum við freista þess að hernema Kola- portið sem er nú helsta vígi Reykvíkinga og þá teljum við eftirleikinn auðveldan.“ Lögmaður greiði fjórar milljónir vegna vanrækslu HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt lög- mann í Reykjavík til að greiða um fjórar milljónir króna í skaðabætur vegna tjóns, sem útgerðarfyrirtæki varð fyrir vegna kvótaviðskipta. Taldi rétturinn að hegðun lög- mannsins hafi ekki verið í samræmi við þær kröfur, sem gera verði al- mennt til lögmanna, sem annist verkefni í tengslum við sölu skipa. Lögmaðurinn rak fasteigna- og skipasölu og tók að sér að annast gerð skriflegs samnings, þar sem tilgangur samningsins var framsal aflaheimildar. Utgerðarfyrirtæki ætlaði að kaupa kvóta, en ekki var ætlunin að skipið, sem aflaheimild- ina hafði, skipti í raun um eigend- ur, þótt samningurinn væri um skipakaup, enda óheimilt á þessum tíma að framselja varanlegan kvóta. Fleiri stúdentar braut- skráðir Vestmarmacyjum. Morgunblaðið. Framhaldsskólanum í Vest- jnannaeyjum var slitið síðastlið- inn laugardag og nemendur brautskráðir. 250 nemendur hófu nám á vorönn en um 10% þeirra hættu námi í kennara- verkfallinu í vetur. 17 stúdent- ar voru brautskráðir frá skól- anum en einnig voru braut- skráðir nemendur frá ýmsum öðrum brautum skólans. Ólafur Hreinn Sigurjónsson, skólameistari, rakti starf skól- ans í vetur í skólaslitaræðu. í niáli hans kom fram, að eftir að búið yrði að útskrifa stúdent- ana 17 væri búið að útskrifa Hæstiréttur sagði að lögmaðurinn hafi léð atbeina sinn til málamynda- gerninga, sem þannig hafi verið gengið frá, að hætta var á að a.m.k. annar samningsaðilinn yrði fyrir verulegu fjártjóni. Sú varð og raun- in hjá kaupanda kvótans þegar skipið var selt á nauðungarupp- boði, en áhvílandi veðskuldir voru 40 stúdenta frá skólanum á skólaárinu sem væri mesti fjöldi á einum vetri frá því skól- mun hærri en eldra veðbókarvott- orð, sem lá frammi við söluna, sýndi. Kynnti sér ekki lagareglur Hæstiréttur segir lögmanninn hafa vanrækt að kynna sér laga- reglur um sölu kvóta, en óheimilt sé að framselja hann án þess að inn hóf starfsemi. Að loknu ávarpi skólameist- ara flutti Eyrún Sigþórsdóttir, skip hverfi varanlega úr rekstri og sé afmáð af skipaskrá, nema fyrir liggi samþykki þeirra, sem eigi samningsveð í skipinu. „Ef stefndi hefði kynnt sér lagaákvæði þessi hefði honum mátt vera ljóst, að vegna vanskila eiganda skipsins voru miklir annmarkar á að unnt væri að ná markmiðum samnings- aðila með þeirri aðferð sem valin var,“ segir í dóminum. Lögmaðurinn var dæmdur til að greiða kaupanda skipsins rúmar 3,5 milljónir með dráttarvöxtum, auk 400 þúsund króna í málskostnað fyrir héraði og í Hæstarétti. Dóm- inn kváðu upp Markús Sigurbjöms- son, hæstaréttardómari, Amljótur Bjömsson, settur hæstaréttardóm- ari og Bjarni K. Bjarnason, fyrrr- verandi hæstaréttardómari. fulltrúi 10 ára stúdenta, ávarp og færði skólanum bókargjöf frá 10 ára stúdentunum. Oddahátíð 1995 ODDAHÁTÍÐ verður að venju hald- in í Odda á Rangárvöllum 18. júní nk. og hefst hún með messu í Odda- kirkju kl. 11 f.h. Staðarprestur, sr. Sigurður Jónsson, þjónar fyrir altari og predikar, kór Oddakirkju leiðir sönginn og Halldór Óskarsson leikur á orgel. Að messu lokinni gefst fólki tóm til að snæða nestisbita og kaffi verð- ur á könnunni í safnaðarheimilinu. Að loknu hádégishléi kl. 13 verða lesin prósaljóð eftir sr. Jónas Gísla- son fv. vígslubiskup um sköpunar- verkið og umhverfismál. Þá verður kynntur nýr bæklingur um Oddastað og sögu hans, ætlaður gestum og gangandi, er Elsa G. Vilmundardótt- ir og Freysteinn Sigurðsson hafa tekið saman. Síðan verður litast um i nýplöntuðum tijálundi í Odda sem Prentsmiðjan Oddi hefur gefið til staðarins í tilefni 50 ára afmælis síns árið 1993 og að endingu verða gróðursett tré við Oddaveg. Dag- skráinni verður lokið í síðasta lagi kl. 16 og eru allir hjartanlega vel- komnir, segir í fréttatilkynningu. ---------» ♦ ♦--- Aðalsafnað- arfundur AÐALSAFNAÐARFUNDUR í Nes- kirkju verður haldinn sunnudaginn 25. júní að lokinni guðsþjónustu klukkan 11. Sóknarnefndin. ----♦■■♦ ♦-- Ferming FERMING í Kollafjarðarnes- kirkju 18. júni. Fermdur verður: Fannar Guðbjömsson, Broddanesi 3b, Broddaneshreppi. Ferming í Búðakirkju í lngjalds- hólaprestakalli 18. júní kl. 14. Fermdur verður: Georg Kristján Guðmundsson, Ytri-Knarratungu. Skólaslit Framhaldsskólans í Yestmannaeyjum síðastliðinn laugardag # _ Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson NÝSTÚDENTAR frá Framhaldsskólanum í Eyjum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.