Morgunblaðið - 17.06.1995, Page 4

Morgunblaðið - 17.06.1995, Page 4
4 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Nýtt og endurskoðað Aðalskipulag Reykjavíkur verður gefið út í haust Geldinga- nes verði athafnasvæði Staðahverfi við Korpúlfsstaði til úthlutunar AÐALSKIPULAG Reykjavíkur er til endurskoðunar hjá Borgarskipu- lagi Reykjavíkur. Eru þar meðal annars uppi hugmyndir um að breyta landnotkun í Geldinganesi og að fyrirhugaðri íbúðabyggð verði breytt í athafnasvæði, að sögn Þor- valdar S. Þorvaldssonar, forstöðu- manns Borgarskipulags. Staða- hverfi við Korpúlfsstaði er það íbúðahverfi sem kemur til úthlutun- ar á næsta ári en síðan tekur Graf- arholt við. 450 íbúðir í Staðahverfi Þorvaldur sagði að nýtt endur- skoðað Aðalskipulag fyrir Reykja- vík yrði gefíð út í haust. Nokkrum lóðum er enn óráðstafað í borginni en næsta hverfí sem kemur til út- hlutunar er Staðahverfi við Korp- úlfsstaði og má búast við að úthlut- un hefjist fljótlega. Skipulag hverf- isins hefur verið samþykkt í megin- atriðum að sögn Þorvaldar og er þar gert ráð fyrir 450 íbúðum í lágri byggð. Stór hluti hverfísins er ætlaður fyrir einbýlis- og raðhús auk nokkurra fjölbýlishúsa. „Þetta hverfi hefur þá sérstöðu að það er byggt inn í golfvöll," sagði Þorvald- ur. Grafarholt næsta byggingarsvæði Hverfíð sem ráðist verður í á eftir Staðahverfi verður í Grafar- holti og hefur verið ákveðið að efna til hugmyndasamkeppni um skipu- lag þess. Svæðið er rúmlega 100 hektarar og teygir sig í átt að Reyn- isvatni. Mun dómnefndin ganga frá forsögn samkeppninnar í ágúst. Sagði Þorvaldur að hugsanlega yrðu fyrstu lóðirnar tilbúnar til út- hlutunar hapstið 1996. Eftir Grafarholt taka við Hamra- hlíðarlönd undir Úlfarsfelli en þar er fyrirhuguð íbúðabyggð. Sagði Þorvaldur að eftirspurn eftir lóðum í borginni réði hvenær svæðið yrði tekið til skipulags en gert er ráð fyrir að þessi þijú hverfí, Staða- hverfi, Grafarholt og Hamrahlíðar- lönd anni eftirspurn eftir lóðum fram til aldamóta. Þorvaldur sagði sérfræðingar hefðu kannað sprungur á fyrirhug- uðu byggingasvæði í Grafarholti. Úifarsfell GUR Ibúabyggð framtíðar- innar í Reykjavík Leirvogur Viðey Geldinganes Staða- ... MOSFELLSBÆR Haltirar Hús • ---— Hafta- (n Grafan/pgur " Úlfarsá m&- ~ yEsr^^y. p ; ; v ’ vjjo^íy ' Árbær \'/ • .. ' Lamamtn Arbær -Breiðhoit Selás f\c / T \t /“v / } Hólmsheiði ' ---------- Se l .x 2 km „Það er vitað um stærstu sprung- urnar og menn reyna að byggja ekki yfír þær,“ sagði hann. Samvinna við Mosfellsbæ Hverfín sem skipulögð verða eft- ir aldamót liggja upp að Reynis- vatni og sagðist Þorvaldur vonast til að samvinna yrði við Mosfellsbæ um skipulag í Úlfarsárda! upp að Reynisvatni. „Það er langbesta byggingarlandið á öllu höfuðborg- arsvæðinu, sjálfur Úlfarsárdalurinn upp með Ulfarsá,“ sagði hann. „Dalurinn er eins og Elliðaárdalur eða Fossvogsdalur þar sem á renn- ur um dalbotninn.“ Næst eftir Úlfarsárdal taka við byggingarsvæði í Norðlingaholti og á Hólmsheiði. Fjárhagsstaöa Reykjavíkurborgar er neikvæð um rúma 8,7 milljarða króna 96,4% af skattatekjum fór í rekstur málaflokka Fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar breyttist um tíu milljarða króna til hins verra frá ársbyijun 1991 til ársbyijunar 1995. Á þessum tíma drógust skatttekjur saman og rekstur málaflokka tók á síðasta ári 96,4% af nettóskatttekjum, en áríð 1991 64,2%. Ragnhildur Sverrisdóttir leit á fleiri tölur úr bókhaldi borgarinnar. ÞEGAR rætt er um fjárhagsstöðu sveitarfélaga er átt við peningalega eign þess, að frádregnum öllum skuldum. Fasteignir sveitarfélags- ins reiknast ekki því til tekna í þessu samhengi, en áhvílandi skuld- ir á þessum sömu fasteignum reikn- ast hins vegar til frádráttar. Þessi reikningsskilaaðferð er viðhöfð þar sem hún sýnir þá stöðu, sem sveit: arfélögin verða að taka mið af. í flestum tilfellum getur sveitarfélag ekki losað um fé með sölu eigna sinna, enda kemur til dæmis seint til greina að selja skólabyggingar á almennum markaði. Reykjavíkur- borg hefur að vísu þá sérstöðu að eiga um 1.000 íbúðir, sem geta haft markaðsgildi, en pólitíska ákvörðun þarf til að losa þær eignir. Ríkið axli ábyrgð Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, sagði í ræðu sinni á fundi borgarstjórnar á fimmtudag, þegar ársreikningur var lagður fram, að fjárhagsstaðan hlyti að vera öllum borgarfulltrúum áhyggjuefni. Hún benti á að meiri- hluti sjálfstæðismanna í borgar- stjórn á síðasta tímabili bæri að sjálfsögðu ábyrgð á íjárhagsáætl- uninni fyrir síðasta ár í öllum meg- inatriðum, því á fyrri hluta fjár- hagsárs væri búið að taka bindandi ákvarðanir um flest sem máli skipti varðandi rekstur og fjárfestingar. Ingibjörg Sólrún vísaði einnig til ábyrgðar ríkisvaldsins og sagði að sparnaðaraðgerðir þess á síðustu árum hefðu bitnað harkalega á sveitarfélögunum, ekki síst Reykja- vík. Nægði þar að nefna kostnað af margvíslegum úrræðum í at- vinnumálum, aukinni fjárhagsað- stoð og annarri félagslegri þjón- ustu. „Það er að mínum dómi rétt- mætt og sjálfsagt að gera þá kröfu af hálfu sveitarfélaganna, að ríkis- valdið taki að jöfnu við sveitarfélög- in þátt í glímunni við atvinnuleysis- vandann og afleiðingar hans, í stað þess að standa álengdar og víkja sér þannig undan sameiginlegri ábyrgð," sagði borgarstjóri. Málaflokkar taka 96,4% af skatttekjum í árslok 1990 átti Reykjavíkur- borg 1.289 milljónir króna umfram skuldir. Þróunin hefur verið sú, að í árslok 1991 var fjárhagsstaðan neikvæð um 460 milljónir, um 2.740 milljónir í árslok 1992, 5.492 mill- jónir 1993 og um síðustu áramót voru skuldimar 8.759 milljónum hærri en peningaleg staða. Allar þessar tölur eru framreiknaðar á verðlagi í árslok 1994. Á ofangreindu tímabili eykst kostnaður við rekstur málaflokka úr 61% af brúttóskatttekjum árið 1991 í 93,5% árið 1994. Þá er litið á almenn rekstrargjöld að frádregn- um tekjum málaflokkanna. Ef litið er á þennan kostnað eftir afskriftir af skatttekjum, þ.e. tapaðar kröfur eru teknar með í reikninginn, var hlutfallið árið 1991 64,2% og á síð- asta ári 96,4%. Kostnaður við rekst- ur málaflokka var samtals þremur milljörðum hærri á síðasta ári en 1991. Sem dæmi um hækkun á rekstri málaflokka má nefna að æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamál taka nú 10,7% af skatttekjum borgarinnar, eða 1.098 milljónir, en tóku árið 1991 6,6%, eða 719 milljónir. Þá jókst kostnaður við Dagvist bama úr 1.071 milljón árið 1991 í 1.259 milljónir í fyrra og til menn- ingarmála fóru árið 1991 455 millj- ónir, árið 1992 520 milljónir, árið 1993 563 milljónir og í fyrra 569 milljónir. Skólamál kostuðu borgina 1.355 milljónir árið 1991, árið 1992 1.533 milljónir, 1.689 milljónir árið 1993 og í fyrra 1.675 milljónir. Tölur miðast allar við verðlag í árslok 1994. Lægri skatttekjur Útsvar í Reykjavík var 6,7% árin 1991, 1992 og 1993, en í fyrra var það hækkað í 8,4% og námu tekjur borgarinnar af því þá 7,7 milljörð- um, en um 6,3 milljörðum næstu þijú ár á undan. Aðstöðugjald nam um 2,7 milljörðum árið 1991, 2,9 árið 1992 og 2,1 árið 1993, en var þá fellt niður. Til að mæta tekju- tapi vegna þess var útsvarið hækk- að og skilaði sú hækkun 1,4 mill- jarði og sérstakur skattur á skrif- stofu- og verslunarhúsnæði skilaði 330 milljónum. Brúttóskatttekjur borgarinnar voru tæpir 11 milljarð- ar 1991, 11,5 milljarðar 1992, 10,5 milljarðar 1993 og 10,3 milljarðar í fyrra. Fjárfestingar borgarinnar dróg- ust saman á þessu tímabili, úr 5.285 milljónum árið 1991 í 3.067 milljón- ir árið 1994. Ef litið er á einstaka liði til samanburðar er nærtækt að benda á, að á tímabilinu frá ársbyij- un 1991 þar til ráðhúsið var opnað árið 1992 nam kostnaður við fram- kvæmdir um 1.200 milljónum, eða sem samsvarar jákvæðri fjárhags- stöðu borgarinnar í ársbyijun 1991. Bókað verð ráðhússins er rúmir 2,6 milljarðar. Ný stjórn Landsvirkj- unar tekur við 1. júlí Ovíst með sljórnar- formann EKKI hefur tekist samkomulag milli eigenda Landsvirkjunar, þ.e. ríkisins, Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæj- ar, um stjómarformann Landsvirkj- unar til næstu fjögurra ára, en ný stjóm fyrirtækisins tekur við 1. júlí næstkomandi. Samkomulag eigenda fyrirtækisins þarf að liggja fyrir um hver verður stjómarformaður, ella kemur til kasta Hæstaréttar að skipa hann. Jóhánnes Nordal, fyrrv. seðla- bankastjóri, hefur verið stjómarfor- maður Landsvirkjunar frá upphafi, eða frá 1965, en eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu hafa fram- sóknarmenn lagt á það mikla áherslu að Valdimar K. Jónsson, prófessor, verði næsti stjómarformaður, og einn- ig hefur Guðmundur G. Þórarinsson, fyrrv. alþingismaður, verið nefndur til sögunnar. Mikil andstaða Samkvæmt heimildum Morgun- blaðisns mætir þetta mikilli andstöðu, þar sem framsóknarmaður í stjórnar- formannssætinu myndi setja of mikla „framsóknarslagsíðu“ á stjómina, eins og einn viðmælenda blaðsins tók til orða. Hefur Sigmundur Guðbjama- son, fyrrv. háskólarektor, verið nefnd- ur sem hugsanleg málamiðlun. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að ekkert slíkt væri þó í kortunum enn- þá. „Það var kannað hvort mitt nafn mætti koma meðal annarra og ég sagði að ef það kæmi upp þá myndi ég skoða það,“ sagði hann. Fulltrúar ríkisins í stjóm Lands- virkjunar verða þeir Ámi Grétar Fins- son, hæstaréttarlögmaður, Sturla Böðvarsson, alþingismaður, Svavar Gestsson, aíþingismaður og Jóhannes Geir Sigurgeirsson, fyrrv. alþingis- maður. Fulltrúar Reykjavíkurborgar verða Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi, Pétur Jónsson, borgar- fulltrúi, og Kristín Einarsdóttir, fyrrv. alþingismaður, og fulltrúi Akureyrar- bæjar verður Jakob Bjömsson, bæjar- stjóri. -----♦ ♦ ♦---- Prestastefna hefst á þriðjudag PRESTASTEFNA 1995 hefst þriðju- daginn 20. júní nk. og stendur hún í tvo daga. Hún er að þessu sinni hald- in í Háteigskirkju. Prestastefnan hefst með messu í Dómkirkjunni á þriðjudag kl. 10.30. Setningarathöfn prestastefnunnar verður í Háteigskirkju og hefst kl. 14. Þar flytur biskup íslands, herra Olafur Skúlason, yfírlitsræðu sína og Þorsteinn Pálsson, dóms- og kirkju- málaráðherra, ávarpar stefnuna. At- höfninni verður útvarpað á rás 1. Á prestastefnunni verður fjallað um fmmvarp til laga um stöðu, stjóm og starfshætti þjóðkirkjunnar, er kirkjuþing samþykkti sl. haust og lagt var fram til kynningar á Alþingi í vetur. Framsögumaður verður dr. Gunnar Kristjánsson. Þá verður lagt fram til umflöllunar sk. Porvoo-samkomulag er felur í sér gagnkvæma viðurkenningu anglík- önsku kirknanna á Bretlandseyjum annars vegar og lúthersku kirknanna á Norðurlöndum og í Eystrarsalt- slöndunum hins vegar. Dr. Hjalti Hugason hefur framsögu. Biblíuþýðingar kynntar Dr. Guðrún Kvaran hefur framsögu um biblíuþýðingar sem unnið að er að um þessar mundir. Þá mun sr. Halldór Gunnarsson hafa framsögu um tillögur synodalnefndar um vörslu kirkjueigna varðandi málefni Sól- heima í Grímsnesi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.