Morgunblaðið - 17.06.1995, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995 19
Tap Hotels
Stykkishólms
um 14 milljónir
Morgunblaðið. Stykkishólmi.
TAP Þórs hf. sem rekur Hótel
Stykkishólm nam um 14 milljónum
króna á síðasta ári samanborið við
21,1 milljónar tap árið áður. Þetta
kom fram á aðalfundi félagsins
sem haldinn var fimmtudaginn 8.
júní.
Rekstrartekjur námu alls 54
milljónum króna og jukust um 3,6%
milli ára. í skýrslu Sturlu Böðvars-
sonar, stjórnarformanns, kom fram
að reksturinn hefur verið mjög erf-
iður og félagið safnað miklum
skuldum á undanförnum árum. Þær
námu tæplega 75 milljónum í árslok
og jukust um 6 milljónir milli ára.
Eigið fé nam 34 milíjónum saman-
borið við tæpar 48 milljónir árið
áður.
í ræðu Sigurðar Skúla Bárðar-
sonar, hótelstjóra, kom fram að
unnið hefur verið að því að efla
markaðsstarfið og reynt að koma á
samstarfi við ferðaskrifstofur, inn-
lendar og erlendar. Árangur þess
hefur þegar komið í ljós. Margt
hefur verið reynt til að auka að-
sóknina að hótelinu en eins og hjá
fleiri hótelum á landsbyggðinni eru
umsvifin langmest yfir sumarið.
Sumartekjurnar standa hins vegar
ekki undir rekstrinum á öðrum árs-
tímum og þarf að snúa þessu við.
Til greina kemur að loka
hótelinu yfir veturinn
Sturla greindi frá því að nefnd á
vegum samgöngumálaráðuneytis-
ins sem móta átti tillögur um að-
gerðir til styrktar ársreknum hótel-
um á landsbyggðinni hefði lokið
störfum. Sturla átti von á að þegar
tillögur nefndarinnar væru komnar
til framkvæmda myndi það styrkja
stöðu þessara hótela.
Stjóm hótelsins lagði fram tillög-
ur í 5 liðum til að styrkja rekstur-
inn og bæta afkomuna. Til greina
kemur að loka hótelinu yfir erfíð-
ustu vetrarmánuðina en það yrði
neyðarúrræði.
Sturla sem hefur verið stjórnar-
formaður um árabil gaf ekíri kost
á sér til endurkjörs. I stjóm voru
kjömir þeir Rúnar Gíslason, Stykk-
ishólmi, Kristján Vigfússon,
Reykjavík og Gissur Tryggvason,
Stykkishólmi.
Verð á gulli heldur
áfram að hækka
London. Reuter.
VERÐ á gulli var skráð 391,30
dollara únsan í gær, sama verði
og um morguninn og hæsta verði
í vikunni. Verðið í gær hækkaði
um þijár dollara frá lokun á
fimmtudag.
Vera má að gullverð hækki í
næstu viku vegna uggs fjárfesta
um hugsanlegan afturkipp í heims-
búskapnum að sögn sérfræðinga,
en þeir vöruðu við of mikilli bjart-
sýni í gær. Þeir sögðu að útlitið
væri jákvætt meðan verðið væri
meira en 390 dollarar únsan og
óvíst var hvernig staðan yrði við
lokun í New York.
Næst kunna menn að bíða eftir
því hvort verðið fer yfir 395 dollara
únsan, en búast má við fyrirstöðu
þegar það nálgast 400 dollara. Þijár
tilraunir til þess að koma verðinu
yfir 396-400 dollara únsan hafa
farið út um þúfur á síðustu tveimur
árum.
Staða gulls hefur styrkzt vegna
uggs um ókyrrð í gengismálum
meðan á fundi sjö helztu iðnríkja í
Halifax stendur, titrings á skulda-
og hlutabréfamarkaði og hugsan-
legrar röskunar á námagrefti í Suð-
ur-Afríku.
Um leið hefur verð á silfri hækk-
að um rúmlega 10 sent í 545,50
dollara únsan. Tormerki eru talin á
því að verðið fari yfir 550 sent.
Verð á platínum hefur hækkað í
444' dollara. Sérfræðingar hafa
spáð því að verðið fari ekki yfir 445
dollara og útiloka ekki að það lækki
aftur í 440 dollara.
20 árn íýmœti Nonwna nátnsþingsins í lHmaferð
TÍUNDA NORRÆNA NÁMSÞINGIÐ
í LISTMEÐFERÐ
Fyrirlestrar:
MaxPaterson írá Skotlandi
''Vppruni ofbeldis".
Ikuku Acosta frá Bandaríkjunym
"Greining á ofbeldi í myndverkum".
Shcila McClelland frá Englandi
"Ferlisbundin lislmeðferð".
RagnaSylwan fráSvíþjóð
"Mytidir barna sem sönnunargögn fyrir rétti".
Ann-Sophie Lang frá Svíþjóð
"Kynning á myndum eftir kynferðislega misnotuð böm".
Hcidi Greenfield frá Kanada
"Ofbeldi á heimilum".
Colin Tcasdale fráEnglandi
"Þráin að umbreyta...."
Upplýsingar og skráning í sttna: 569 9300 (Helga Lára)
UNDIRBÚNINGSNEFND: ANNA MARÍA HARÐARDÓTTIR, IIALIDÓRA HALLDÓRSDÓTTIR,
SiURlDUR liJÖRNSDÓTTIR, UNNUR GUÐRÚN ÓTTARSDÓTTIR, USTMEÐFERDARFRÆÐINGAR
LISTMEÐFERÐ Á ÍSLANDI í SAMVINNU VIÐ NORRÆNA HÚSIÐ
VIÐSKIPTI
Jón Guðmundsson formaður Félags fasteignasala um lán Handsals
Skapa ný viðhorf
á fasteignamarkaði
TILBOÐ Handsals um lán til 25 ára
munu hafa jákvæð áhrif á fasteigna-
markaðinn, einkum þegar fram í
sækir og auka eftirspurn eftir stærri
og dýrari húseignum og atvinnuhús-
næði. Kom þetta fram í viðtali við
Jón Guðmundsson, formann Félags
fasteignasala. — Þessi langtímalán
eru nýmæli á fjármagsmarkaði og
skapa ný viðhorf á fasteignamark-
aðnum, en fram að þessu hafa verð-
bréfafyrirtæki og aðrar lánastofnan-
ir einungis boðið lán til 10-15 ára
til fasteignakaupa, sagði Jón. —
Vextirnir þyrftu þó að vera aðeins
lægri. Ég tel samt víst, að margir
þeirra, sem hyggja á fasteignakaup,
muni íhuga þennan nýja valkost
rækilega.
— Húsbréfakerfið dugar ekki til
kaupa á stærri og dýrari húseignum
nema að litlu leyti, sagði Jón enn-
fremur. — Fólk, sem hyggst kaupa
myndarlegt einbýlishús á bilinu
20-30 millj. kr., fær ekki hærra lán
í húsbréfakerfinu en þeir, sem kaupa
8 millj. kr. eign. Með þessum nýju
langtímalánum verður hins vegar
hægt að fá mun hærri lán eða allt
að 55% út á stærri eignimar.
Vextir á þessum nýju lánum em
vissulega í hærra lagi eða 7- 8,25%,
eftir því hvað eignin er verðmæt og
greiðandinn er traustur, á meðan
vextir í húsbréfakerfinu nú em 5,1%.
Mér þykir þó líklegt, að þessi nýju
langtímalán muni þrýsta vöxtum á
fjármagnsmarkaði niður og hvetja
banka og aðrar lánastofnanir til
þess að lána meira til
fasteignakaupa, en
hingað til hafa þessir
aðilar sinnt slíkum við-
skiptum mjög lítið.
Jón kvað ekki
ósennilegt, að sumir
myndu strax notfæra
sér þessi langtímalán,
ættu þeir kost á þeim.
Nokkrir aðilar hefðu
þegar leitað til sín með
fyrirspurnir um, hvort
þeir gætu notfært sér
þau til fasteigna-
kaupa, bæði á atvinnu-
húsnæði og íbúðarhús-
næði. — Að mínu mati
þyrftu vextirnir þó að
lækka eitthvað, sagði
Jón. — Ef svo færi, tel ég, að það
yrði mikil eftirspurn eftir þessum
lánum til 25 ára. Þau gætu þá orðið
til þess að blása nýju lífi í atvinnu-
húsamarkaðinn og leitt til mun meiri
FINNAIR segir að rekstrarhagnaður
félagsins 1994/95 hafí aukizt meir
en bjartsýnustu menn hafí þorað að
vona og það sé bjartsýnt á horfum-
ar, þar sem eftirspurn aukist enn
jafnt og þétt.
Rekstrarhagnaður til marzloka
jókst í 522 milljónir fínnskra marka
hreyfíngar á stærri og
dýrari íbúðarhúsum.
Þau lán, sem fólk
hefur átt kost á hjá
bönkunum, hafa yfir-
leitt verið til svo
skamms tíma, að þau
eru oft eins og bjarnar-
greiði, sökum þess hve
lánstíminn er stuttur.
Greiðslubyrðin er það
þung, að margir ráða
ekki við hana og kom-
ast í þrot af þeim sök-
um.
— Ég leyfi mér að
vona, að þetta framtak
Handsals muni ýta við
öðrum til þess að gera
slíkt hið sama, sagði
Jón Guðmundsson að lokum. — Þeg-
ar það hefur tekizt, verður stjórn-
völdum ekki stætt á öðru en að lyfta
þakinu á húsbréfakerfínu eða af-
nema það með öllu.
eða jafnvirði 121 milljónar dollara
úr 189 milljónum marka. Lagt er til
að greiddur verði 0,50 marka á
hlutabréf.
Farþegum Finnair sem ríkið á 61%
í fjölgaði um 10,4% og frakt jókst
um 14.7%.
Jón Guðmundsson
Finnair treystir stöðuna
Helsinki. Reuter.
Stofnlánadeild
landbúnaðarins
Skuldabréfaútboð
2. flokkur 1995
*
Utgáfudagur, útboðstími og nafnverð skuldabréfa
✓ B
Utgáfudagur og fyrsti söludagur skuldabréfanna er 19. júní 1995.
Útboðstími er til 19. desember 1995.
Heildarverðmæti útboðsins er 500 milljónir króna að nafnvirði.
Lánstími og einingar
Skuldabréf í flokki 2/1995A eru til 15 ára
Skuldabréf í flokki 2/1995B eru til 25 ára
Bréfin eru gefin út í 1, 5 og 10 milljón króna einingum.
Gjalddagar, vextir, ávöxtunarkrafa og sölugengi.
Gjalddagar bréfanna eru 1. desember ár hvert, fyrst árið 1996.
Af skuldabréfunum reiknast 5,50% vextir. Bréfin eru bundin
vísitölu neysluverðs með grunnvísitölu í júní, sem er 172,1 stig.
Ávöxtunarkrafa á útgáfudegi er 6,0% . Sölugengi flokks 2/1995A
á útgáfudegi er 0,96824843 og flokks 2/1995B 0,95719631.
Útboðsgögn, söluaðili og umsjón með útboði
Útboðslýsing og önnur gögn um útboðið og Stofnlánadeild landbúnaðarins
liggja frammi hjá Kaupþingi hf. sem hefur umsjón með útboðinu.
Sala bréfanna fer fram hjá Kaupþingi hf., Kaupþingi Norðurlands
og hjá Búnaðarbanka íslands.
Kaupþing hf.
löggilt verðbréfafyrirtœki
Kringlunni 5
Sími: 515-1500