Morgunblaðið - 17.06.1995, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Hvað kostar
að búa sig
til útilegu ?
TJÖLP
(4'
SVEFNPOKAR
-3 manna tjöld 2-3 m. göngutjöld 4 manna hústjöld
-r> . Svefnpokar, Svefnpokar,
4 m. göngutjöld kuldaþol D til -9°C kuldaþol > -10°
DÝNUR
Svampdýnur
Loftdýnur og
vindsængur
Skátabúðin* Lichfield 3.8 kg, 13.840 kr Lichfield 2,9 kg, 11.990 kr Prago Export 28 kg, 32.890 kr Lichiield 5,1 kg, 19.990 kr Kojak Jötunheim -5*C, 4.950 kr Ajungilak -10°C, 10.435 kr Ajungilak 800 kr Metzeler, standard Loftd., 6.990 kr
Sportleigan Highpeak Texel 2 4,0 kg, 6.900 kr Trecker 2,5 kg, 4.990 kr Highpeak Colorado 7,6 kg, 14.790 kr Highpeak Texel 3 4,5 kg, 7.900 kr Highpeak Redwood -5°C, 5.500 kr Snowfox -10°C, 7.900 kr 1.980 kr Highpeak Vinds., 2.500 kr
Rúmfatalagerinn 2,1 kg, 1.990 kr 4,5 kg, 5.990 kr -3°C, 2.990 kr -10°C, 4.990 kr 490 kr Vinds,, 1.490 kr
Bílanaust Trigano 4,8 kg, 6.743 kr Trigano 1,9 kg, 5.727 kr Trigano 19,2 kg, 19.796 kr Trigano 4,0 kg, 16.536 kr 628 kr Loftd., 1.633 kr
Hagkaup Toronto 12 kg, 14.995 kr PSL Grafik -5°C, 2.495 kr Trail 350 -15°C, 4.890 kr 499 kr Frank Loftd., 3.995 kr
Bónus Outwell 8,0 kg, 4.500 kr Outwell 9,6 kg, 17.950 kr
Fálkinn* Vango MK 2 Favorit Comfort Big Pack Railway Big Pack Atlas
1 * 5% staðQreiðsluafsláttur ekki innifalinn | 1,8 kg, 28.990 kr ?kg, 27.990 kr -10°C, 7.990 kr 3.300 kr Vinds., 1.800 kr
Verð og gæði
útilegubúnaðar
mjög mismunandi
„THÁW Master“-þíðingarbakkann“ má þvo í uppþvottavél
og nota til að bera fram mat.
Fljótleg þíðing án raf-
magns og rafhlaðna
BÚNAÐUR í tjaldútilegur er mjög
misjafn og erfítt er að bera saman
verð og gæði. Upplýsingar frá
framleiðendum eru ekki alltaf
sambærilegar og sumt er erfítt að
mæla.
Meiri áhersla en áður er nú lögð
á það að búnaðurinn sé léttur svo
að auðvelt sé að bera hann eða
hafa með sér á hjóli. í töflunni
hér að ofan er því sérstakur flokk-
ur sem nefndur er göngutjöld.
Tveggja til þriggja manna
göngutjöldin eru öll minna en þrjú
kíló að þyngd en fjögurra manna
göngutjöldin eru undir sex kílóum.
Létt tjöld eru að jafnaði veik-
byggðari, bæði eru þau efnisminni
og stengumar ekki eins sterkar.
Nær öll tjöldin eru úr næloni og
því vatnsþétt. Sum hústjöld eru
þó úr bómull og það þarf að bera
silikon á þau til að þau verði vatns-
þétt.
A svefnpokum er yfirleitt gefíð
upp einhvers konar „kuldaþol".
Þar er átt við hvað hægt sé að
nota þá í miklu frosti. Þessi mæli-
kvarði hefur takmarkað gildi. Oft
gefur framleiðandinn einnig upp
aðra og lægri tölu.sem er „þæg-
indahitastig". Verði kuldinn meiri
er óþægilegt að sofa í pokanum
en að mati framleiðandans er
hægt að lifa það af. Enginn alls-
heijar staðall er til um kuldaþol
svefnpoka og því gagnast mæli-
kvarðinn varla nema til að bera
saman ólíka poka frá sama fram-
leiðanda. Sagt er að sumir þeirra
hiki reyndar ekki við að gefa upp
mismunandi kuldaþol á nákvæm-
lega eins svefnpokum.
Stærð tjalda getur verið mjög
mismunandi þó að þau séu gefin
upp fyrir sama fjölda fólks.
Göngutjöldin eru að jafnaði lítil
en fjögurra manna hústjöldin eru
sum mjög stór.
Flestir svefnpokar eru með ein-
angrun úr fíbertrefjum. Dúnpokar
eru léttari og fyrirferðarminni en
þeir eru jafnframt dýrari og þola
illa að blotna. Fíberpokarnir glata
ekki nema 10-15% af einangrun
sinni við að blotna. Miklar
framfarir hafa orðið í gerð svefn-
poka á síðustu árum, þeir hafa
lést og einangrunin hefur batnað.
Fjórar gerðir til
af tjalddýnum
Tjalddýnur eru til í fjórum gerð-
um: svampdýnur, einangrunar-
dýnur, loftdýnur og vindsængur.
Einangrunardýnumar era ódýrar
en þær eru veita aðeins vöm gegn
kuldahum og enga mýkt. Svamp-
dýnurnar era algengastar en þær
eru mismunandi að þykkt, breidd
og lengd þannig að verðmunur
milli verslana segir ekki alla sög-
una. Vindsængur era sömuleiðis
mismunandi að stærð og gerð.
Loftdýnur era ein útgáfa þeirra
en þær blása sig sjálfar út og eru
því yfírleitt dýrari en aðrar.
NYKOMINN er á markaðinn þíðing-
arbakkinn „Tháw Master", sem
hvorki gengur fyrir rafmagni né raf-
hlöðum. Bakkinn erþeim eiginleikum
gæddur að taka til sín hitabylgjur
úr andrúmsloftinu og leiða þær í
matinn sem á honum er.
Að sögn innflytjandans, Heimis
Karlssonar hjá H. Karlsson hf., er
bakkinn framleiddur úr ákveðinni
málmblöndu, sem framleiðendur
ljóstra ekki upp.
Kjúklingur þiðnar á 75 mín.
„Við þíðingu er engin hætta á
bakteríumyndun, málmblandan er án
blýs og hættulaus, enda er fram-
leiðslan undir ströngu eftirliti og
merkt þannig, gagnstætt ýmsum
eftirlíkingum, sem komið hafa á
markaðinn frá því „Tháw Master“
var kynntur fyrir rúmu ári í Banda-
ríkjunum."
Þíðing á „Tháw Master" er yfir-
leitt sögð taka svipaðan tíma og í
örbylgjuofni, t.d. eru svínakótilettur
13-16 mín. að þiðna, kjúklingabitar
25-30 mín og heill kjúklingur fimm
stundarfjórðunga. Ekki er nauðsyn-
legt að snúa kjötinu við á bakkanum,
þó slíkt megi gera til að flýta fyrir
þíðingu og óhætt er að setja kjöt á
bakkann að morgni og hafa það á
honum til kvölds.
Heimir segir bakkann hentugan
fyrir heimili, í útilegur, sumarbústaði
og fyrir veitingahús. Við þíðingu
haldi maturinn náttúrugæðum,
hvorki soðni né brenni, bakkann
megi þvo í uppþvottavél og nota
hann til að bera fram mat. Eina sem
þurfi að varast sé að skera á honum
og þá sé endingin ótakmörkuð.
„Tháw Master“-bakkinn er 40x24,
fæst fyrst um sinn í Byggt og búið
á 3.900 kr. en verður víðar til sölu
síðar.
r
LlI
cr
<
NAVSGARl
Frábær útivistar- og
regnfatnaður
NAVIGARE er mjög vandaður norskur
útivistarfatnaður með frábæra
„öndunareiginleika" þannig að þér
líður alltaf vel hvernig sem viðrar.
Það sakar ekki að hann er
á mjög góðu verði.
Berið saman verð og gæði!
ENOK HF
Hamraborg 14 • 200 Kópavogi
sími 554 0097 • fax 554 0067
Utsölustaðir fyrír
NAVIGARE eru eftirfarandi:
Reykjavík
Boltamaöurinn, Laugavegi 23
Markiö, Ármúla 40
Sportmaöurinn, Hólagaröi
Akranesi
Verslunin Óöinn
Akureyrí
Sporthúsiö
Keflavík
Sportbúö Óskars
Selfoss
Sportlíf
Egilsstaöir
Versl. Skógar
Seyöisfjörður
Versl. Aldan
ísafjörður
Sporthlaöan
Sendum í póstkröfu!!
Tónlistin
yfirgnæfi
gestina
HÁVÆR tónlist á veitingahúsinu
Hard Rock í Kringlunni hefur
angrað ýmsa sem annars kunna
að meta staðinn.
Ef spurt er hvort hægt sé að
lækka svolítið er gjarna svarað
vingjarnlega að það verði athugað,
svo er ef til vili lækkað, en yfir-
leitt einungis í stutta stund.
Starfsfólk segir skýringuna að
Hard Rock sé alþjóðleg keðja veit-
ingahúsa sem gangi meðal annars
á tónlistinni. Eigendurnir vilji hafa
þetta svona.
Neytendasíðan spurði Braga
Sigurðsson, framkvæmdastjóra
veitingahússins, hvort alþjóðlegir
staðlar stjórnuðu desibelafjölda
eða hávaðamörkum á Hard Rock.
Hann sagði að svo væri ekki og
raunar væri tónlistin stillt lægra
en víðast á þessum stöðum erlend-
is. Hér væri miðað við hávaða í
salnum og tónlistin ávallt höfð
hærri en kliður gestanna.
Gulrótarsafi
fyrir flug
GÓÐAR fréttir fyrir þá sem eru
fyrir gulrótarsafa og ætla að
fljúga á næstunni!
Farrol Kahn er höfundur hand-
bókar fyrir ferðalanga sem heitir
- Á áfangastað í góðu formi. f bók
sinni mælir hann með að þeir sem
ætla að fljúga á næstunni verði
sér úti um nokkra lítra af umrædd-
um safa. Hann telur að gulrótar-
safi hjálpi líkamanum að verða
ekki fyrir súrefnisskorti í flugi og
mælir með að hann sé drukkinn
nokkrum sinnum á dag þijá síð-
ustu dagana áður en flogið er.
Farrol Kahn segir að ein af
ástæðunum fyrir því að þreyta
geri vart við sig eftir nokkurra
stunda flug sé að loftþrýstingurinn
er minni en venjulega. Farþegar
fá því ekki eins mikið súrefni og
þeir eru vanir, sem þýðir aukið
álag á hjartað við að flýtja súrefni
um líkamann.
Hann mælir einnig með að ökkl-
arnir séu nuddaðir í flugi og ráð-
leggur síðan fólki að halda sig frá
áfengi en úða vatni við og við upp
í nasaholurnar.