Morgunblaðið - 17.06.1995, Side 30
30 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
-
AÐSENDAR GREINAR
Brýnt að kanna áhrif
sumarlokana sjúkrahúsa
Á SUMARÞINGI því sem nú er
nýlokið hefur verið nokkur umræða
um það alvarlega ástand sem skap-
ast vegna sumarlokana á sjúkra-
húsunum. í kjölfar utandag-
skrárumræðu um málið 23. mai
skrifaði Svanfríður Jónasdóttir fyrir
hönd þingflokks Þjóðvaka bréf til
stjórna Ríkisspítalanna og Borgar-
spítala og óskaði eftir mati þeirra
á áhrifum sparnaðarráðstafana
undanfarinna ára og lokana deilda
í sumar.
í svörum þeirra kemur fram að
þær telja erfitt að meta og svara
spumingum um árifin vegna þess
að upplýsingar skorti og ekki hafí
verið gerðar kannanir á þeim.
Ríkisspítalar og Borgarspítali
vilja mat á raunverulegum
sparnaði
í svari frá framkvæmdastjóm
Ríkisspítala, sem Þorvaldur Veigar
Guðmundsson framkvæmdastjóri
lækninga undirritar segir: „Þó að
Það er ljóst að við erum
komin á ystu nöf í
sparnaðaraðgerðum,
segir Asta R. Jóhann-
esdóttir, og bendir á
fa^legar athug-anir á
afleiðingum þeirra.
lokanir leiði til sparn-
aðar fyrir Ríkisspítala
þá eru miklar efasemd-
ir um að þær spari
þegar til lengri tíma
og á heildina sé litið,
en við höfum ekki gögn
í höndum þvi til sönn-
unar.“ Þar segir einnig
að það væri mjög æski-
legt að t.d. heilbrigðis-
og tryggingaráðuneyt
ið eða landlæknir
kannaði áhrif lokana á
heilsufar og gerði til-
raun til að meta raun-
veralegan spamað.
I samantekt þeirra
Sigríðar Snæbjöms-
dóttur hjúkranarforstjóra og Hann-
esar Péturssonar lækningaforstjóra
á Borgarspítalanum er niðurstaðan
svipuð. Þau telja erfitt
að sanna nokkuð um
áhrif og afleiðingar
sumarlokana, aukins
álags og minnkaðra
fjárveitinga. Ástæðan
sé skortur á eigin rann-
sóknum og tölulegum
upplýsingum, þó svo
að mikil reynsla og vís-
bendingar liggi fyrir.
Þau ásamt Kristín
Á. Ólafsdóttur for-
manni stjórnar sjúkra-
stofnana Reykjavíkur
lögðu ríka áherslu á
mikilvægi óháðrar
athugunar á þessum
málum á fundi hjá heil-
brigðis- og trygginganefnd Álþing-
is.
Sjúkrahúsþjónustan á
hættumörkum
Ásta R.
Jóhannesdóttir
Alltaf á laugardösum!
SÖLUKERFID LOKflfí KL. 20.20
Er roðin komin að þer?
Spurningu um hvort rekstur
Ríkisspítalanna sé á hættumörkum
fyrir sjúklinga svarar Þorvaldur
þannig að húsakostur, tæki og
mannafli sé á ýmsum sviðum ná-
lægt eða jafnvel neðan við þær lág-
markskröfur sem gerðar eru til
slíkra stofnana.
í greinargerð frá forsvarsmönn-
um Borgarspítalans er tekið í svip-
aðan streng. Þar segir að aðbúnað-
ur sjúklinga og starfsfólks sé alltaf
verri á sumrin en á öðram árstím-
um. Þá sé meira um vistun sjúkl-
inga á göngum, salernum og víðar.
Það sé ekki eingöngu óþægilegt
heldur beinlínis hættulegt, erfiðara
sé að koma við nákvæmu eftirliti
með mikið veikum sjúklingum, öll
tæknivinna og tækjanotkun sé erf-
iðari og stundum ekki hægt að
koma henni við.
Samkvæmt þessu er því ljóst að
við erum komin á ystu nöf í sparn-
aðaraðgerðum.
Aukið álag
eykur kostnað
Hinn aukni þrýstingur á að þjóna
sífellt fleirum hefur þau áhrif að
sjúklingar sem fá þjópustu eru veik-
ari. Það þýðir að kostnaður við
hvern sjúkling eykst stöðugt, hann
þarf meira eftirlit, dýrari lyf og
meira af lyfjum, flóknari rannsókn-
ir, meðferð og umönnun. Hjúkrun-
arálag eykst og allt þetta gerir það
að verkum að hver legudagur verð-
ur dýrari. Þetta kemur fram í grein-
argerð frá Borgarspítalanum.
Sumarlokanir geðdeilda
afdrifaríkar
Heilbrigðis- og trygginganefnd
Alþingis tók sumarlokanirnar og
áhrif þeirra til umfjöllunar í sl. viku
að frumkvæði undirritaðrar og full-
trúa Alþýðubandalags og óháðara
í nefndinni. Þar komu þessar upp-
lýsingar einnig fram. Lárus Helga-
son yfirlæknir á geðdeild Landspít-
alans kvað lokanir á geðdeildum
afdrifaríkar. Hann sagði spamað-
inn aldrei hafa komið jafn illa niður
á þeim og það þekktist ekki nokkur
staðar í Evrópu að loka geðdeildum
á þennan hátt. Margir sjúklingar á
þessum deildum væra ungt fólk í
samfelldri meðferð sem ekki mætti
ijúfa. Með því að ijúfa hana á þenn-
an hátt gæti hún verið unnin fyrir
gýg. Láras sagði lokanirnar hefðu
nú þegar haft afdrifaríkar afleiðing-
ar og nefndi dæmi um það.
Heilbrigðisráðherra láti
gera athugun
Fulltrúar stjórnarandstöðunnar í
heilbrigðis- og trygginganefnd hafa
riltað heilbrigðisráðherra bréf, þar
sem þeir óska eftir því að hún láti
þegar í stað fara fram athugun á
áhrifum sumarlokana sjúkrahúsa
og hvort um raunverulegan heildar-
sparnað sé að ræða. Þeir óska eftir
því að heilbrigðisnefnd þingsins
verði kynntar niðurstöðurnar svo
fljótt sem verða má.
Undirrituð hefur einnig óskað
eftir þvi að nefndarmeníi heimsæki
Landspítalann og Borgarspítalann
í sumar til að kynna sér ástandið
af eigin raun.
Höfundur er nlþingisnmöur fyrir
Þjóðvaka.
I
í
:
>
i
í
i
i