Morgunblaðið - 21.06.1995, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Til sölu
Faxafen 10 - lagerhúsnæði
Gott 335 fm lagerhúsnæði með innkeyrsluaðstöðu.
Mögulegt að skipta í smærri einingar. Laust nú þegar.
Áhvílandi 5 millj. Verð 10,3 millj.
Faste ig n a sa la n
KJÖRBÝLI
NÝBÝLAVEQUR 14
F« ««oToou" ‘S‘564 1400
Öldugata 4
Vorum að fá í sölu neðri hæðina í þessu virðulega og glæsilega steinhúsi í hjarta borg-
arinnar. Um er aö ræða um 166 fm eign í einu af fallegri húsum borgarinnar. 4596.
Hamraborg. Falleg og vel umgengin um 77 fm íb. á 3. hæð í lyftuhúsi. Stórar
svalir. Bílgeymsla í kj. Húsiö er nýmálaö. Stutt í alla þjónustu. 3320.
Stóragerði. Vorum aö fá í sölu glæsilega 2ja herb. íb. á jaröhæö í þríbhúsi.
Sérinng. Ib. hefur öll veriö standsett. Parket. V. 5,6 m. 4597.
Timburhús í Hafnarfirði
Nýkomið í einkasölu húsið nr. 6B við Hverfisgötu með
tveimur 5 herb. íbúðum, alls 140 fm, auk rúmgóðs kjall-
ara undir öllu húsinu. Þarfnast endurbóta. Sérinngang-
ur fyrir hvora íbúð. Byggt 1908, en stækkað 1960.
Ekkert áhvílandi. Laust strax. Rólegur staður.
Árni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, sími 555-0764.
ÍÍ9 llíll ÍÍ9 19711 l-ÁRUS VALDIMARSSON, framkvæmdasuori
l)l)b I luU'UUb lu/U KRISTJÁN KRISTJANSSON, tOGGIlTUR FASItlGNASAtl
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Álfheimar - þríbýli - allt sér
Neðri hæð, 5 herb., um 125 fm. Sólrík. Nýtt gler. Sér þvottahús við
eldhús. Nýl. sér hitalögn. Vinsæll staður. Góð lán fylgja. Skipti mögul.
Tilboð óskast.
í Suðurhlíðum Kópavogs
Með frábæru útsýni einbýlish., hæð og kj. að hluta, um 140 fm með
5 herb. endurn. íbúð. Nýtt þak og nýklætt utanhúss. Lóð um 1000 fm
með háum trjám. Tilboö óskast.
Grafarvogur - austurborgin
Einbýlish. eða gott raðh. með rúmg. bílsk. óskast í skiptum fyrir sérh.
( austurborginni. Nánar á skrifstofunni.
Á lækkuðu verði í Vogunum
Góð 2ja herb. kjíb. á vinsælum stað í þríbýli. Tilboð óskast.
Skammt frá Landspítalanum
3ja herb. jarðh. Öll eins og ný. 40 ára húsnæöislán kr. 3,1 millj. Tilboð
óskást.
Góðar eignir í vesturborginni
Höfum á skrá sólríkar 4ra herb. íbúöir með útsýni á vinsælum stöðum.
Góð lán. Hagkvæm skipti. Vinsaml. leitið nánari upplýsinga.
Á söluskrá óskast m.a.:
Einbýlish. eða raðh. í Seljahverfi með rúmg. bílsk.
Góð sérh. eða raðh. í vesturborginni.
2ja herb. íbúð í Seljahverfi í skiptum fyrir 4ra herb. úrvalsíb. í hverfinu.
Opið á laugardaginn.
Munið laugardagsaugl.
Almenna fasteignasalan sf.
var stofnuð 14. júlí1944. LftUBflVEB118 S. 552 115B-552 1370
ALMENMA
FASTEIGNASALAN
FRÉTTIR
HÓPURINN sem lauk nýlega prófi frá Endurmenntunarstofnun HÍ í rekstrar- og viðskiptagrein-
um, en námið hófst í ársbyrjun 1994. Fremst fyrir miðju sitja Sveinbjörn Björnsson, rektor Há-
skóla íslands, Margrét S. Björnsdóttir, endurmenntunarstjóri og Valdimar K. Jónsson
stj órnarformaður Endurmenntunarstofnunar.
Endurmenntunarstofnun Háskóla Islands
Tuttugn og einn lauk prófi í
rekstrar- og viðskiptagreinum
ENDURMENNTUNARSTOFNUN
Háskóla íslands brautskráði 10. júní
sl. tuttugu og einn nemanda úr
þriggja missera námi í rekstrar- og
viðskiptagreinum.
Endurmenntunarstofnunin hefur
frá áramótum 1990 boðið upp á
þriggja missera nám í rekstrar- og
viðskiptagreinum, og þegar hafa á
þriðja hundrað stjórnendur úr einka-
fyrirtækjum og stofnunum lokið
prófi. Námið er skipulagt þannig að
hægt er að stunda það með vinnu
og samsvarar það 18 eininga námi
á háskólastigi.
Helstu þættir námsins eru rekstr-
arhagfræði, reikningshald og skatt-
skil, fjármálastjórn, stjórnun og
skipulag, starfsmannastjómun, upp-
lýsingatækni í rekstri og stjómun,
framleiðslustjómun, markaðs- og
sölufræði, réttarreglur og viðskipta-
réttur, þjóðhagfræði, haglýsing og
stefnumótun. Tveggja missera fram-
haldsnám stendur til boða annað
hvert ár.
Þeir sem luku prófi nú eru Auður
Eir Guðmundsdóttir, Ágústa H.
Lárusdóttir, Brynjólfur Gíslason,
Garðar Garðarsson, Guðmundur
Búason, Guðrún Jórisdóttir, Hallur
Páll Jónsson, Hanna Þórunn Skúla-
dóttir, Ingibjörg Þorsteinsdóttir,
Júlíana Sigurveig Guðjónsdóttir,
Karl Jensson, Magnús Jónsson,
Magnús Waage, Oddur Fjalldal,
Ríkharð Sigurðsson, Rósa Björg
Ólafsdóttir, Snorri S. Konráðsson,
Steingrímur Gunnarsson, Sveinn
Ólafsson, Vala Hauksdóttir og Þor-
geir Einarsson.
Bestum námsárangri náði Oddur
Fjalldal læknir en hann hlaut ágæt-
iseinkunn, 9,19.
Nýr veltubíll notaður til að
vekja athygli á bílbeltanotkun
Morgunblaðið/ Sverrir
VERÐLAUNAHAFAR í slagorðasamkeppni í tilefni bílbelta-
átaksins stilltu sér upp ásamt fulltrúum Umferðarráðs fyrir
framan veltubílinn nýja.
BINDINDISFÉLAG ökumanna og
Umferðarráð hafa hrundið af stað
átaki fyrir aukinni bílbeltanotkun.
Tilefni þess er dvínandi notkun bíl-
belta á síðustu misserum, en sú þró-
un hefur valdið áhyggjum, þar sem
beltin þykja hafa margsannað gildi
sitt.
Til bílbeltaátaksins nú er því efnt
í nafni bætts umferðaröryggis. Nú
hefur aðstandendum átaksins, Bind-
indisfélagi ökumanna og Umferðar-
ráði, áskotnast í samvinnu við Heklu
hf. splunkunýr veltubíll, sem frum-
sýndur var fyrir helgina. Til stendur
að nota hann til að vekja athygli
landsmanna á mikilvægi bílbelta-
notkunar. Farið verður með bílinn
um allt land í sumar og hann sýnd-
ur meðal annars samhliða öllum
Ökuleiknikeppnunum, sem haldnar
eru af sömu aðilum og standa að
átakinu.
í fréttatilkynningu kemur fram,
að auk þess að sýna fólki fram á
nauðsyn notkunar bílbelta og barna-
bílstóla, verði lögð áherzla á að sýna
fólki hvernig eigi að losa sig úr bíl-
belti í bíl sem hafnað hefur á hvolfí.
Einnig mun björgunarsveitum og
fleirum bjóðast að æfa björgun úr
oltnum bíl með fulltingi veltubílsins.
í tilefni af bílbeltaátakinu var efnt
til slagorðasamkeppni, sem vekja
skyldi athygli á öryggi barna. Við
sama tækifæri og veltubíllinn nýi var
kynntur og fyrsta ökuleiknikeppni
sumarsins hófst, voru verðlaun af-
hent í samkeppninni.
Fyrstu verðlaun hlaut Hörður Jón-
asson, Reykjavík, fyrir tillögu sína
„B = Barnið - Beltið - Bíllinn" (3B).
Önnur verðlaun hlaut Hulda Björk
Halldórsdóttir, Reykjavík, en hennar
tillaga hljómaði svo: „Börnin fest -
það er best“. Þriðju verðlaun féllu 'V-
skaut Jens Gunnarssonar, Kópavogi,
fyrir tillöguna „Brýndu raust ef barn-
ið er Iaust - Állir í beltum!“ Fjórðu
verðlaun fékk Atli Sturluson, Reykja-
vík, fyrir tillöguna „Bjargarlaust er
óbundið barn“. Guðmundur Gunn-
laugsson, Reykjavík, var fimmti
verðlaunahafinn. Tillaga hans var
„Bam í bílstól situr traust, sem tíma-
sprengja sé það laust.“
Ökuleikni ’95
Ökuleiknikeppnir verða haldnar á
34 stöðum á landinu í sumar. Er
þetta 17. árið í röð, sem þessar vin-
sælu keppnir eru haldnar. Að jafnaði
hafa 1200-1500 manns tekið þátt í
þeim hvetju sinni.
Fyrsta- keppnin var haldin í
Reykjavík á föstudaginn, en næst
kemur röðin að Kirkjubæjarklaustri.
Þaðan verður svo áfram haldið hring-
inn rangsælis i kring um landið; síð-
asta undankeppnin fer fram um
verzlunarmannahelgina í Galtalæk.
Úrslitakeppni ársins fer síðan fram
á athafnasvæði Heklu í Reykjavík
þann 26. ágúst næstkomandi.
Borgarfjörður
Til sölu er jörðin Eyri í Flókadal, Borgarfirði. Jörðin er án full-
virðisréttar. Veiðihlunnindi í Flókadalsá. Jörðin er ca 800 hekt-
arar að stærð. Verð: Tilboð.
Tilboð óskast send undirrituðum sem gefur allar nánari
upplýsingar.
Ennfremur er til sölu 4 ha af kjarri vöxnu landi úr jörðinni Gufá
í Borgarfirði (ca 10 mín. akstur frá Borgarnesi) og sumarbú-
staðir í landi Stóra-Fjalls, Ferjubakka I, Fitja og Munaðarness
í Borgarfirði og Brjánslækjar í Vatnsfirði.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Gísli Kjartansson hdl.
lögg. fasteigna- og skipasali,
Borgarbraut 61, Borgarnesi,
sími 437 1700, fax 437 1017.