Morgunblaðið - 21.06.1995, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1995 41
FÓLK í FRÉTTUM
►ÞRÁTT fyrir að vera kvæntur fimm barna
faðir er hinn rámi Rod Stewart langt frá því
að vera hættur í tónlistinni. Hann segir orðróm
þar að lútandi vera fjarstæðu. Langur ferill
hans ætti þess vegna að verða enn þá
lengri en hann hefur ekki alltaf ver-
ið dans á rósum.
Rod segir að tímabilið frá 1979
til 1987 hafi verið sérstaklega
slæmt, þar sem hann hafi verið á
kafi í eiturlyfjum. Til dæmis hafi
hann, árið 1985, gert plötuna
Dulargervi, eða „Camouflage",
með hangandi hendi. „Ég fór
bara í hljóðver og gaf framleið-
andanum fijálsar hendur. Ég
bara söng. Ég vildi sem minnst vita
af sjálfri tónlistinni. Ég hafði algjör-
lega misst áhugann. En nokkrum
árum seinna fékk ég áhugann aft-
ur,“ segir Stewart.
Hann neitar alfarið orðrómi um
að hann sé nískur, en segist yfir-
leitt biðja einhvern annan um
að versla fyrir sig. „Af einhveij-
um vöidum hækka allir hlutir
í verði þegar ég kem inn um
verslunardyrnar “.
Stewart segist geyma
alla gömlu búningana sina
sem hann klæddist á svið-
inu í gamla daga. „Dóttir
mín klæðist þeim í skól-
anum. Þetta er allt að komast
í tísku aftur. Hún fer í skól-
ann í fötum sem ég klæddist
á áttunda áratugnum".
Rod spilar knattspyrnu
með félögum sínum í það
minnsta klukkutíma á dag.
Hann á sinn eigin knatt-
spyrnuvöll í löglegri
stærð í Essex, og spilar
þar þegar hann er stadd-
ur í Englandi, en hann
á annars heima í
Bandarikjunum. Hann
segir að það komi aldr-
ei til greina að flytja
aftur til Englands,
þrátt fyrir aðdráttar-
all knattspyrnunnar.
„Ég á fjögur börn
sem ganga í skóla í
Bandarikjunum og
þess vegna mun ég
ekki flytjast þang-
að aftur,“ segir
Stewart, sem er
ánægður með
hiutina eins
og þeir eru.
Tarantino
sniðgengur
verkalýðs-
félögin
QUENTIN Tarantino, sem
leikstýrði myndunum
Reyfara, eða „Pulp Ficti-
on“ og „Reservoir Dogs“,
er byijaður á nýrri mynd.
Sú mun heita „From Dusk
Till Dawn“. Tökur á
myndinni hófust þann 12.
júní í Los Angeles og er
allt upptökuliðið utan
verkalýðsfélaga, sem fer
talsvert í taugamar á
forystumönnum þeirra
í Bandaríkjunum. Qu-
entin lætur það ekki á
sig fá og tökur hafa
hingað til gengið
samkvæmt áætlun.
Aðalfundur 1 Viðey
FYRIR nokkru héldu Advoc, samtök
sjálfstætt starfandi lögfræðinga í
Evrópu, ráðstefnu og aðalfund sinn
í Reykjavík. Af því tilefni var veg-
legt hóf haldið í Viðey og þar var
margt um manninn og mikið um
dýrðir.
Jón Baldvin Hannibalsson, formað-
ur Alþýðuflokksins, var heiðursgestur
og Sigrún „Diddú“ Hjálmtýsdóttir,
Egill Olafsson og Bergþór Pálsson
sungu fýrir gesti. Almenna málflutn-
ingsstofan hf. er íslenski aðili samtak-
anna, en aðaleigendur hennar eru
Jónatan Sveinsson, Reynir Karlsson
og Hróþjartur Jónatansson.
Á LEIÐ út í Viðey. Jón Baldvin Hannibalsson, formaður
Alþýðuflokksins, Jónatan Sveinsson, hæstaréttarlögmaður
ogeinn af eigendum Almennu málflutningsstofunnar og
Garðar Gíslason, hæstaréttardómari.
BRETINN Richard van Oppen, fyrrverandi formaður
Advoc, afhendir eftirmanni sínum, Paul Boels frá
Hollandi, lukkutröll í veganesti.
SIGRÚN „Diddú“ Hjálmtýsdóttir, Bergþór Pálsson
og Egill Ólafsson taka lagið.
Flóðin í No
Miklar náttúruhamfarir hafa orðið í austurhluta Noregs á undanförnum vikum
einum mestu flóðum sem orðið hafa frá árinu 1789. Blaðamaður og Ijósmyndari
Morgunblaðsins fóru til Noregs fyrir skömmu og ferðuðust um flóðasvæðið.
í anddyri Morgunblaðshússins í Kringlunni 1 hefur verið komið upp yfirlits-
sýningu á 18 sérvöldum myndum sem Ijósmyndari Morgunblaðsins tók
í þessari ferð.
Morgunblaðið hefur ávallt lagt ríka áherslu á myndbirtingar í blaðinu og er þessi
sýning liður í því að kynna Myndasafn Morgunblaðsins sem hefur að geyma fjöldann allan
af Ijósmyndum sem birst hafa í blaðinu. Myndir sem teknar hafa verið af Ijósmyndurum blaðsins
eru seldar til einstaklinga og fyrirtækja og hefur þessi þjónusta farið vaxandi með hverju árinu enda
mikið af myndum sem birtast í Morgunblaðinu hvern útgáfudag. Allar myndirnar sem eru á sýningunni eru
því til sölu.
Sýningin stendur til föstudagsins 30. júní og er opin kl. 8.00-18.00
alla virka daga og laugardaga kl. 8.00-12.00.
Ljósmyndasýning Morgunblaðsins
MYNDASAFN