Morgunblaðið - 22.06.1995, Side 11

Morgunblaðið - 22.06.1995, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JLINÍ 1995 11 FRÉTTIR Prestastefna ræðir frumvarp um stjórn og starfshætti kirkjunnar Ábendingar ræddar nánar á kirkjuþingi UMRÆÐUR á prestastefnu í gær um frumvarp til laga um stöðu, stjórn og starfshætti íslensku þjóðkirkjunn- ar einkenndust að nokkru af mismun- andi skoðunum dreifbýlis og þéttbýl- is. Niðurstaðan varð sú að vísa frum- varpinu til kirkjuþings, sem haldið verður í haust, „þar sem. einstakar ábendingar og athugasemdir, sem fram hafa komið á stefnunni verði teknar til nánari athugunar“. í frumvarpinu er landinu skipt í Hóiastifti, með 32 prestsembætti og Skálholtsstifti, með 100 prestsemb- ætti, þar af Kjalarness og Reykjavík- urprófastsdæmi, með 44 prestsemb- ætti. Þótti sumum halla á dreifbýlið í þessum tölum. Það sama var upp á teningnum þegar tekist var á um skipan fulltrúa til kirkjuþings, en þar fær dreifbýlið hlutfallslega fleiri fulltrúa en þéttbýlið. Auk þess var deilt um atriði í fyrstu grein frumvarpsins, þar sem segir: „Skírn í nafni heilagrar þrenn- ingar eða skráning í þjóðskrá veitir aðild að þjóðkirkjunni." Hér er stuðst við núgildandi fyrirkomulag þar sem skráning í trúfélag fer eftir trúfélagi móður þegar um óskírð börn er að ræða. Margir vildu að skírnin væri alveg eindregið skilyrði til að vera skráður í þjóðkirkjuna, enda væri skírnin að kristnum skilningi inn- ganga í kristna kirkju.. Eftir ítarlegar umræður náðist sátt um að áskilja kirkjuþingi rétt til efnislegrar umfjöllunar um frum- varpið, en mælst var til þess að það tæki tillit til þeirra ábendinga og umræðna sem fram fóru á presta- stefnunni. Búist er við að frumvarpið verði afgreitt á kirkjuþingi í haust og á svipuðum tíma muni nefnd sem dóms- og kirkjumálaráðherra skip- aði til að endurskoða lög um veitingu prestakalla líklega skila af sér áliti. Umhverfisráðherra í Brasilíu Brýnt að stöðva mengun sjávar GUÐMUNDUR Bjarnason umhverf- isráðherra hvatti tii þess á alþjóð- legri ráðstefnu að þjóðir heims sam- þykktu aðgerðir gegn mengun sjávar vegna starfsemi í landi og byggðu á þeim árangri sem náðist á alþjóð- legum fundi í Reykjavík fyrr á ár- inu. Sú samstaða sem þar hefði náðst væri mikilvægt skref í átt til sam- þykktar alþjóðlegrar framkvæmdaá- ætlunar á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um mengun sjávar frá landstöðvum, en hún verður haldin í Washington í október. Umhverfisráðherra hélt ræðu sína við opnun ráðstefnu um samvinnu iðnríkja og þróunarríkja gegn meng- un sjávar, sem haldin var í Rio de Janeiro í Brasilíu dagana 18.-20. júní. Honum var boðið sem einum af heiðursgestum ráðstefnunnar vegna starfs íslands að undirbúningi Was- hingtonráðstefnunnar, en lokaundir- búningsfundur hennar var haldinn í Reykjavík í mars. Þar náðist sam- staða meðal fulltrúa 68 ríkja um að grípa til aðgerða til að stöðva losun þrávirkra lífrænna efna út í um- hverfið. Mikilvægt að hjálpa þróunarríkjum Guðmundur sagði það mikilvægt að alþjóðleg framkvæmdaáætlun hefði skýr ákvæði um hvernig hægt væri að hjálpa þróunarríkjum að draga úr mengun, bæði með fjár- stuðningi og tækniaðstoð. Sérstak- lega þyrfti að huga að endurbótum í frárennslismálum og aðgerðum til að stemma stigu við losun þrávirkra efna í hafið. Þróunarríki nota mikið magn slíkra efna. Þó rannsóknir sýni að magn þrá- virkra lífrænna efna í hafinu um- hverfis ísland sé - enn sem komið er - með því lægsta sem þekkist á nálægum hafsvæðum telja íslensk stjórnvöld þessi efni eitt alvarlegasta mengunarvandamál sem við er að glíma f höfunum. Fíkniefnalögregl- an fær stuðning UNDIR yfirskriftinni „Þjóðarátak gegn fíkniefnum" hefur verið efnt til átaks til eflingar baráttunni gegn útbreiðslu fíkniefna hér á landi. Sva- var Sigurðsson er framkvæmdastjóri átaksins, sem hefur opnað skrifstofu að Kleppsmýrarvegi 8 í Reykjavík. Átakið hóf Svavar með því að gefa fíkniefnalögreglunni í Reykja- vík farsíma, tölvu og prentara, þar sem honum finnst fíkniefnalögregl- una hafa skort ýmsan búnað til að geta brugðizt sem skyldi við um- fangi fíkniefnasölu á landinu. Einnig færði hann Tollgæzlunni á Keflavík- urflugvelli farsíma í sama augna- miði. Að mati Svavars er baráttunni gegn fíkniefnabölinu á Islandi gert mest gagn með því að styrkja lög- regluna. Svavar sagði starfið núna beinast að því að gefa út áróðursefni sem dreift yrði í skóla og víðar. Þýddur hefur verið bæklingur frá brezka heilbrigðisráðuneytinu, sem stendur til að prenta í þessum tilgangi. Framundan væi-i að safna fé fyrir sérhæfðum talstöðvabúnaði til efl- ingar starfsemi fíkniefnalögreglunn- ar. Fíkniefnasalar væru nú orðnir svo ve! tækjum búnir að ekkert dyggði minna en nýjustu tæki til að lögreglunni auðnaðist að halda starf- semi þeirra í skefjum. Morgunblaðið/Golli Mót veðri og vindum FÁTT minnti höfuðborgarbúa á að í gær voru sumarsólstöður og því lengsti dagur ársins. Þessir ferðamenn, sem voru á gangi á Laugaveginum, mættu veðri og vindum vel útbúnir í hlífðarföt- um og stígvélum, enda ekki van- þörf á. Mjög hvasst var og rign- ing síðdegis og minnti veðrið meira á haustið en að nú væri mitt sumar. Höfðu sumir jafnvel á orði að ef til vill væri sumarið búið. Búist er við svipuðu veðri á næstu dögum hér sunnanlands, suðlægar áttir verða ríkjandi, hvasst verður og vætusamt áfram. IDEBOX Sænsku fjaðradýnurnar sem þúsundir íslendinga hafa kosið að treysta fyrir daglegri vellíðan sinni. Síðan er bara að velja lappir eða meiða(boga) undir dýnuna allt eins og hver vill hafa það. Mismunandi verð eftir vali. Vertu kóngur í ríki þínu ipt Box KOMF om Dýfii-j inixl ciiiifÉilOu ciöiiiiflkhlfi: l ml-.u |)tip iiij iieniíir •/•'! lóflu lólKi bfjinuiii 'i'j uiiQliuuuifci Ylirtlyníi fýlcjii i vútðl, an / ;•()!! I*i ip (!i;i) U!) h 200 ki )i’ mi tu', / :•()() i-i )i Sö!). 12Ö X 2Ö0 ki 10.500. I4U / ;>óö i-.i i /Mi. IDE BOX MEDIO Dýiiii mi.xi ivölöldu ()öiinnkuiti fyrlr utlöju <>ij moö böitiiillnidúk Milllttff dýnri <>íj þykk yfítcJýnn ftö /, ;•()() i-i ;’;• mbo. ðö / ;•()!) kr ;•;■ ino. t()(. / moo kr toó, 1 ;•>() / moo kr Mi' /OD, 140 x U00 kr 41,!)’,(). 100 / ;•()() ki 48,000,- IIDE BOX SUPER |)/IIÍI ITÍUÖ IVðföklll (Jöliíiukðffi Uillfið iiiykii '-m Múdiö 'i'j rfíofi injriki) knulu Þykk yfird'/nu fyklir I voröi 90 / I'ÓO k.i 93.280.> 1Ó5x20()kr M9i!0O. )?() / ;*()() ki 4/ /00. 140 / MOO ki 53.400, IDE BOX ULTRAFLEX t'ODUi rjýnri ‘ir (ill tvófölcl. orklu i oii'in úi/íiiTip'ityrkfir kuiitiir Tik/filin rlýiifi fyrir bnkvoikfi ocj þunyt tólk vönduð rjýnn t’ykk yflnlýnu tylglr i vmöi 90 / 200 ki 42 900. 105 / 200 kr §2.950,- 120 x 200 kr. 00.300, 140 / 200 ki. 68.550, 100 x 200 ki /0.800,- IDE BOX SOFTYFLEX l"!r/.i (Jýri.i or 'ill tvölöld "(| or rnuö tiökfifjaðrli r.nm rjörfi rjýiv una mjúku Vönduö dýrin •;utri fjyður öórloyfi völ viö bokið l>ykk yfírdýriíi fylgir 90 x 200 kr 45 120, 105 / 200 ki oo 150. 120 / 200 ki. 00 850, 140 / 200 ki 0,1 450. 100 / 200 kr. 92 850, IDE BOX NATUR Ifc'i.'i'ii dýrifi nr öll urtnin iir riáttúrulcKjum otnum og Hóiitar vöI fyrir ofrikoiriiúsjúKii ri'ifin tJýrin ')(\ vónduð 0(\ þykk ytirdyna tyirju 80 x 200 kr. 04.500 00 / 2í)() kr. 04 590 105 x 200 kr /0 I50. 120 x 200 kr. 02 590, 140 x 200 kr 92,010, “TKedco- 'Tlatun ATH: Það skiptir engu máli hvort hjón velja sömu gerðina eða sitthvora. Dýnurnar eru einfaldlega festar saman svo úr verði hjónarúm! IDEmœb ler ISLANDI Danskur smekkur er “dejlig" Húsgagnahöllinni S:587 1199 - Bíldshöfði 20-112 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.