Morgunblaðið - 22.06.1995, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 22.06.1995, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1995 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Reglugerð um lyfjaauglýsingar Lagabreyting vegna auglýsinga tafði útgáfu HEILBRIGÐIS- og tryggingamála- ráðuneytið birti reglugerð um lyfja- auglýsingar í Stjórnartíðindum 2. júní og tók reglugerðin þegar gildi. Einar Magnússon, skrifstofustjóri lyfjamálaskrifstofu heilbrigðisráðu- neytisins, segir að reglugerðin taki við af tilmælum í tengslum við gild- istöku ákvæða EES-samningsins 1. júlí í fyrra. Hann segir að auglýs- endur hafi virt mjög vel tilmæli ráðuneytisins og reglugerðin breyti í sjálfu sér engu fyrir neytendur. Reglugerðin er hins vegar mun ítar- legri en tilmælin. Einar sagði að ein af ástæðunum fyrir því að dregist hefði að gefa reglugerðina út fælist í því að skort hefði lagaákvæði til að banna lyfja- auglýsingar í sjónvarpi. EES-samn- ingurinn gerði ráð fyrir að stjórn- völd í hveiju landi tækju ákvörðun um hvort leyfa bæri lyfjaauglýsing- ar í sjónvarpi eða ekki. Hér á landi hefði verið ákveðið að fara að dæmi t.d. Dana og Norðmanna og banna auglýsingarnar, en því hefði verið komið á framfæri, m.a. af Sam- bandi auglýsingastofa, að laga- breytingu þyrfti til að heimila bann við auglýsingum í ákveðnum miðii. Eftir að gengið hefði verið frá laga- breytingunni siðastliðinn vetur hefði svo verið hægt að ganga frá regiugerðinni. Lausasölulyf auglýst með skilyrðum Reglugerðin gerir ráð fyrir að auglýsa megi og kynna lausasölu- lyf, þ.e. lyf sem ekki eru lyfseðils- skyld, fyrir almenningi. Lyfjaaug- lýsing skal a.m.k. veita upplýsingar um heiti lyfs ásamt samheiti ef lyf- ið inniheldur aðeins eitt virkt efni, heiti virkra innihaldsefna, nauðsyn- legar upplýsingar fyrir rétta notkun lyfsins og skýra, auðlæsilega hvatn- ingu til að lesa vandlega leiðbein- ingar á fylgiseðli eða ytri umbúðum lyfsins, eftir því sem við á. Sérstak- lega er tekið fram að setja eigi lyfja- auglýsinguna fram með þeim hætti að ljóst sé að um auglýsingu sé að ræða og varan sé lyf. Undir yfirskriftinni „Auglýsingar sem beint er til heilbrigðisstétta og dýralækna" kemur fram að auglýsa megi og kynna lyfseðilsskyld lyf læknum, tannlæknum, lyfjafræð- ingum, lyfjatæknum og hjúkrunar- fræðingum, svo og dýralæknum og nemum í þessum greinum. Auglýs- ingin skal vera með þeim hætti að ekki sé líklegt að hún komi almenn- ingi fyrir sjónir. Lyfjaeftirlit ríkisins hefur eftirlit með lyfjaauglýsingum og getur bannað birtingu tiltekinnar auglýs- ingar, bijóti hún í bága við ákvæði reglugerðarinnar. Lyfjaeftirlitið getur og krafist þess að auglýsandi birti leiðréttingar eða viðbótarskýr- ingar með sama hætti og áður. Allir vita að það er leikur einn að grilla lambakjöt. Og nú færist enn meira fjör í leikinn því nú getur þú unnið þér inn glæsilegt gasgrill í skemmtilegum safnleik. Safnaðu 3 rauðum miðum sem finna má á öllum grillkjötspökkum þátttökuseðli sem fæst í næstu matvöruverslun. Þar með ertu með í potti og átt möguleika á að vinna glæsilegt Sunbeam gasgrill. Dregið er tvisvar sinnum, 10 gasgrill í hvort sinn. f fyrra skiptið þann 7. júlí og í seinna skiptið þann 11. ágúst. með lambakjöti og sendu í pósthólf 7300, 127 Reykjavík ásamt t ' rsS I * ' ] Morgunblaðið/Sigrún Davíðsdóttir LIÐ íslands í Norrænu málflutningskeppninni ásamt aðstoðar- mönum fyrir utan dómhús hæstaréttar í Kaupmannahöfn. Norræn málflutningskeppni laganema Islenska liðið í þriðja sæti Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. TÓLF lið norrænna laganema, þar á meðal íslenskt lið, tóku um helg- ina þátt í norrænni málflutnings- keppni. íslenska liðið lenti í þriðja sæti, en sænskt lið fór með sigur af hólmi. Keppt er í málflutningi um deilu- efni er varðar mannréttindasátt- mála Evrópu. Dómaramir eru hæstaréttardómarar, dómarar við mannréttindadómstólinn í Strass- borg og þekktir fræðimenn á sviði mannréttindalöggjafar. íslensku dómararnir voru hæstaréttardóm- ararnir Garðar Gíslason og Guðrún Erlendsdóttir. Undanriðlar keppninnar fóru fram í Eystri landsrétti og úrslitin í sjálfum Hæstarétti. Uppbygging málanna er einstaklingur gegn rík- inu, rétt eins og fyrir mannréttinda- dómstólnum, en í keppninni heitir ríkið Kalmarríkið eftir hinu forna Kalmarsambandi, sem Norðurlönd- in voru sameinuð undir 1397-1523. Tekið var fyrir mál er varðaði launamisrétti kynjanna. Ólafur Axelsson lögmaður var í forsvari fyrir íslenska hópnum og var Gunnar Helgason lögmaður honum til aðstoðar, en Gunnar hef- ur verið viðloðandi keppnina þau ellefu ár, sem hún hefur verið hald- in. íslenska liðið var skipað átta laganemum, þeim Bjarna Bene- diktssyni, Gísla Tryggvasyni, Guð- mundi Ragnarssyni, Gunnari Jak- obssyni, Haraldi Erni Ólafssyni, Jónasi Þór Guðmundssyni, Jónínu Lárusdóttur og Ragnari Tómasi Arnasyni. Liðið naut fræðilegrar ráðgjafar Bjargar Thorarensen, Elínar Blöndal, Einars Pájs Taminis og Erlendar Gíslasonar. Ýmsir lög- menn og fyrirtæki styrktu ferðina. Keppt í ellefta skipti. Keppnin var nú haldin í ellefta sinn og hefur tvisvar verið haldin á íslandi, síðast í fyrra. Öll hin lið- in tengjast háskólum og kennslu þar í mannréttindamálum, en slík tengsl eru ekki fyrir hendi í íslenska liðinu og sögðu íslensku liðsmenn- irnir að þeir söknuðu stuðnings og áhuga úr þeirri átt heima fyrir. íslenska liðið er einnig í sér- stöðu, þar sem allir tala sitt móður- mál í keppninni nema íslendingar. Nýsköpunarsmiðja stofnuð í Tæknigarði Fj ögur verkefni verðlaunuð TÆKNIÞRÓUN hf. hefur stofnað til verkefnis um sk. nýsköpunar- smiðju í Tæknigarði HÍ í samvinnu við Nýsköpunarsmiðju námsmanna og Útflutningsráð Islands. Fjögur verkefni hafa verið valin til þátttöku í nýsköpunarsmiðjunni, og var mið- að við nýnæmi, markaðsmöguleika, tæknilega útfærslu, og gagnsemi fyrir íslenskt atvinnulíf við val á hugmyndum. Allár þær umsóknir sem bárust Nýsköpunarsjóði námsmanna urðu sjálfkrafa þátttakendur í nýsköpun- arsmiðjunni, auk þess sem hægt var að senda hugmyndir sérstak- lega til keppninnar. Fjöldi umsókna var um 260 talsins. Hvert þeirra verkefna sem varð fyrir valinu fær 350 þúsund króna framlag til að greiða laun við tæknilega útfærslu, könnun á hagkvæmni og markaðs- möguleikum. Ráðgjöf verður veitt við gerð viðskiptaáætlana til nánari skilgreiningar á viðkomandi hug- mynd og ýmis aðstaða látin í té. Fiskur og þrívítt landslag Þær fjórar hugmyndir sem voru verðlaunaðar, miða m.a. að því að búa til forrit sem bæti nýtingu hrá- efnis við fískvinnslu, teikniforrit til að hanna einingahús í þrívídd, finna leið til að koma íslandssögunni á geisladisk og tölvukort og aðferð við að búa til þrívíddarmyndir af landslagi í tölvum. Dagur B. Eggertsson hjá Ný- sköpunarsjóði námsmanna segir að með tilkomu nýsköpunarsmiðjunnar rætist ákveðinn draumur þeirra sem hafa starfað að sjóðnum undanfarin ár, enda skapi hún vettvang til að styðja við einfaldar en snjallar hug- myndir. „Hugvitsmönnum og frumkvöðl- um í íslensku atvinnulífi er þarna gefið tækifæri á að koma hugmynd- um sínum í framleiðslu og á mark- að og stofna eigið fyrirtæki um hana eða selja til starfandi fyrir- tækja, auk aðstöðu og ráðgjafar. Verkefnin sem við völdum endur- spegla að mörgu leyti að geyslegur vaxtabroddur er í tölvuheiminum, en samt vísa verkefnin inn á ólík sviði sem tengjast til dæmis fagur- fræði, sögu, landinu og fiskinum." í haust mun dómnefnd meta verkefnin að nýju og gera tillögu um hvert þeirra fái framhaldsstyrk. Tækniþróun hf. aðstoðar þá við- komandi við að koma vörunni í framleiðslu hjá starfandi fyrirtæki eða stofna til nýs fyrirtækis um hugmyndina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.