Morgunblaðið - 22.06.1995, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1995 13
FRÉTTIR
Norrænir rithandarsérfræðingar funduðu í Reykjavík
Rithönd sem rannsóknarefni
NÝLEGA var haldin í Reykjavík
ráðstefnu norrænna rithandarsér-
fræðinga. Rithandarsérfræðingar
gegna mikilvægu hlutverki við
rannsókn ýmissa lögreglumála.
Þeir sem sérhæfa sig í þessu sér-
stæða fagi á Norðurlöndum koma
saman á tveggja ára fresti og bera
saman bækur sínar.
Að þessu sinni tóku - auk full-
trúa Norðurlandanna fimm - tveir
rithandarsérfræðingar frá Eystra-
saltslöndunum þátt í ráðstefnunni,
einn frá Eistlandi og annar frá
Lettlandi.
Samtals voru 15 erlendir sér-
fræðingar á ráðstefnunni. Þeirra á
meðal var Bretinn Mike Hall, sem
er einn af þekktustu rithandarsér-
fræðingum heimsins, en hann var
fenginn til að halda fyrirlestra yfir
norrænum starfsbræðrum sínum.
Hann rekur nú einkafyrirtæki
sem sérhæfir sig í skjalarannsókn-
um en þar til fyrir tveimur árum
veitti hann forstöðu skjalarann-
sóknastofnun innanríkisráðu-
neytisins brezka í Birmingham,
sem hefur m.a. með höndum rann-
sókn ýmissa lögreglumála.
Eini íslendingurinn í hópnum
var. Haraldur Arnason hjá tækni-
deild Rannsóknarlögreglu ríkisins,
en hann er eini íslenzki sérfræð-
ingurinn á þessu sviði, sem jafn-
framt er í fullu starfi sem slíkur.
Hann átti mestan veg og vanda
að skipulagningu ráðstefnunnar
að þessu sinni.
Morgunblaðið/Golli
NORRÆNIR rithandarsérfræðingar að aflokinni velheppnaðri
ráðstefnu í Rúgbrauðsgerðinni.
„Þeir
stóru“ farn-
ir að slíta
og sleppa
Fremur dauft er í laxaverstöðvun-
um um þessar mundir. Góðu frétt-
irnar eru hins vegar þær að árnar
eru að verða sjálfum sér líkar á
ný eftir síðbúnar vorleysingar og
að minnsta kosti sunnan heiða er
talsvert af vænni laxinum á ferð-
inni. Enn er ógerningur að segja
til um gang mála norðan heiða. í
gær og fyrradag opnuðu sunn-
lensku stórárnar, Sogið, Stóra
Laxá í Hreppum og Rangárnar. í
Rangánum voru menn að fá’ann,
en lítið var um að vera í hinum
ánum tveimur.
Líf i Haffjarðará
„Það eru komnir um 20 laxar á
land og við erum ánægðir með
það, því áin hefur verið erfið til
veiða og álagið auk þess lítið svona
fyrstu daganna. Auk þess vitum
við að lax er kominnn víða um
ána, gallinn er bara sá að hann
hefur tekið grannt og margir slopp-
ið. Einn var greinilega mjög stór,
því hann fór af eftir langa glímu
og sleit þá baklínu veiðimannsins,“
sagði Páll G. Jónsson í samtali við
Morgunblaðið í gærdag.
170 úr Norðurá
„Það er frekar rólegt í bili, holl-
ið er bara með 15 laxa eftir tvo
daga. Hollið á undan var hins veg-
ar með 44 laxa. Áin er hins vegar
að verða afar falleg til veiða og sá
lax sem er að veiðast er allur grálú-
sugur. Það vekur athygli að lítið
veiðist á Eyrinni og Brotinu. Þetta
er mest að fást á Stokkhyls- og
Hvararhylsbrotum. Það eru komnir
127 laxar af aðalsvæðinu og rúm-
lega 40 til viðbótar í Stekknum og
á Munaðarnesveiðum," sagði Hall-
dór Ásgeirsson kokkur í veiðihús-
inu við Norðurá í fyrradag. Tveggja
ára fiskur úr sjó er algengastur að
sögn Halldórs 8 til 10 pund og
þeir stærstu 15 pund.
Dauft í Laxá í Leir.
Aðeins 19 laxar hafa veiðst í Laxá
í Leirársveit síðan 11. júní. Vilborg
Helgadóttir í veiðihúsinu sagði eitt
og annað hafa valdið veiðimönnum
erfiðleikum, svo sem mikið vatn og
skolað. Það sem meira máli skipti
væri þó að það hefði verið lítið af
fiski.
Sá fyrsti „stóri“ sloppinn!
Á hveiju ári sleppur sá stóri.
Þegar upp er staðið eru þeir orðnir
margir, þeir stóru sem höfðu bet-
ur. Nú hefur fyrsta frásögnin bor-
Morgunblaðið/Atli Vigfússon.
Veiði gengur enn heldur stirðlega í Laxá í Aðaldal, aðeins rúm-
lega 20 laxar komnir á land, allir úr Kistukvísl. Hér eru þeir
sem opnuðu ána með fyrstu laxana, f.v. Jón Helgi Vigfússon,
Viktor Hlynsson, Halldór Blöndal, Halla B. Björnsdóttir og Jón
Helgi Björnsson.
ist ofan úr Kjós, þar sem veiðimað-
ur setti í „risafisk" eins og Axel
Jóhannsson veiðivörður lýsti hon-
um, í Kvíslafossi að sunnanverðu.
Laxinn tók stóra túpuflugu og er
tekist hafði verið á af öllum kröft-
um og vel það í rúmar fjörtíu mínút-
ur, var vígstaða veiðimanns orðin
mjög erfið, laxinn kominn alveg
upp að norðurlandinu og þess albú-
inn að steypa sér niður með nyrsta
brúarstólpanum.
Þá á veiðimaður aðeins tvo kosti
og eru báðir afarkostir. Sá fyrri
er að viðurkenna ósigur, taka í lín-
una og slíta, ellegar að hætta lífi
og limum við að vaða ána rétt ofan
brúar. Freista þess síðan að elta
laxinn niður fyrir. Þetta gekk ekki
úpp í þetta sinn, átökin voru slík
að önglarnir á flugunni réttust upp
og. laxinn synti frjáls til félaga
sinna.
Molar
Fyrstu laxarnir veiddust í Ytri
Rangá í fyrramorgun er áin var
opnuð, tveir laxar 8 og 12 punda
fyrir neðan Ægissíðufoss. Bæði þa_r
og víðar sú menn fleiri fiska. Á
hádegi í gær voru komnir tveir á
land til viðbótar. Það veiddust einn-
ig nokkrar vænar bleikjur og sjó-
birtingar á niðurleið.
^úgardag
1
G’ ^ostij^>4q
20%
AFSL. AF
BOLUM
30%
sf AFSL. AF
PEYSUM
KRINGLUKASTS
TILBOÐ
NY SPENNANÐ
LEYNITILBOÐ
kr. 990
ÞESSA TILB0ÐSDAGA
n
95, s. 552-1444 & Krmglunni
s. 568-6244.