Morgunblaðið - 22.06.1995, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
17. júní há-
tíðarhöldin
á Húsavík
Húsavík - Hátíðarhöldin 17. júní á
Húsavík fóru fram að hefðbundn-
um hætti að því undanskildu að
kvenþjóðin setti sérstakan svip á
hátíðarhöldin með ræðuhöldúm og
söng.
Messu söng sr. Sighvatur Karls-
son kl. 13.30 og kl. 15 var safn-
aðst saman í íþróttahöllinni og þar
flutti Kolbrún Þorkelsdóttir nýstúd-
ent hátíðarræðu dagsins og Elsa
Árnadóttir flutti ávarp fjallkonunn-
ar. Stúlknakór Húsavíkur skemmti
með söng undir stjórn Hólmfríðar
Benediktsdóttur og ungt fólk,
stúlkur í meirihluta, fluttu ýmis
tónverk og sýndar voru íþróttir.
Skátar settu svip sinn á daginn og
stóðu heiðursvörð í Höllinni. Um
morguninn og síðdegis fóru fram
Heklumið-
stöð opnuð í
Brúarlundi
Hellu - Hekluminjasafn hefur verið
opnað í félagsheimilinu Brúarlundi
í Holta- og Landsveit. Hefur húsið
nú fengið nýtt hlutverk en staðar-
haldarar vonast með því eftir auk-
inni viðkomu ferðamanna í upp-
sveitir héraðsins. í Heklumiðstöð-
inni verður auk sýningaratriða
minjagripa- og kaffisala. A safninu
verður á tímakvarða hægt að sjá
sögu Heklu síðustu 7 þúsund árin,
saga fjallsins er rakin í máli og
myndum á stórum spjöldum, boðið
er upp á litskyggnusýningu og auk
þess verður sýnd 15 mínútná kvik-
mynd sem sérstaklega var fram-
leidd fyrir safnið. Einnig verða
sýndir gamlir munir tengdir fyrstu
ferðum til fjalla og sýnishorn af
hrauni og vikri úr gossögu Heklu.
Heklumiðstöðinni er hleypt af
stokkUTium fyrir tilstilli heima-
manna, þ.e. Ástu B. Ólafsdóttur og
Gísla Sveinssonar á Leirubakka,
Engilberts Olgeirssonar, Nefsholti
og Jóns Þórðarsonar, Fosshólum.
Helstu samstarfsaðilar þeirra við
uppsetningu safnsins eru Björn G.
Björnsson, Ieikmyndahönnuður,
Haukur Jóhannesson, jarðfræðing-
ur og Hrönn Kristinsdóttir, kvik-
myndagerðarmaður.
Heklumiðstöðin er við þjóðveg
nr. 26, Landveg, um 20 km frá
hringveginum og verður safnið opið
alla daga i sumar kl. 10-18.
Morgunblaðið/Bernharð
Lamb dmkknaði
í sundlaug
Sólbyrgl, Borgarfirði - Mikil
umræða hefur farið fram um
lausagöngu búfjár og skoða-
namunur verið milli búfjáreigenda
og garðyrkjubænda í Reykholtsd-
al. Dalurinn er grösugur og bú-
sældarlegur, hefðbundnir bændur
í minnihluta en garðyrkjubændur
margir.
Aðsókn búfjár að spildum garð-
yrkjubændanna er mikil og oft
veldur búféð tjóni. Hjónin á Klöpp
voru að heiman eina viku á dögun-
um og er þau komu heim á ný var
búið að éta allt kál úr garði þeirra.
Auk þess vildi ekki betur til en
svo að einn sökudólganna lá
drukknaður í sundlaug þeirra
hjóna þegar að var komið. Ýmsum
ráðum hefur verið beitt til þess að
stemma stigu við áganginum og
hafa sumir piprað í kringum þær
jurtir sem þeim eru kærastar en
án árangurs.
Bæjarstjórn Akraness
Gunnar tekur við forystu
Akranesi-Á síðasta fundi bæjar-
stjórnar Akraness tók Gunnar Sig-
urðsson oddviti sjálfstæðismanna
við sem forseti bæjarstjómar af
Guðbjarti Hannessyni oddvita al-
þýðubandalagsmanna. Gunnar var
áður formaður bæjarráðs, og tekur
Guðbjartur nú við því embætti. Hér
takast þeir félagar í hendur, en við
borðið situr bæjarstjórinn, Gísli
Gíslason.
SLATTUORF
... sem^lá í gegn!
Vá .
íi
ÞÓR HF
Reykjavík - Akureyri
Reykjavík: Armúla 11 - Sími 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - Sfmi 461-1070
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Kvennahlaupið
á Þórshöfn
K VENN AHL AUPIÐ var þreytt
hér á Þórshöfn í fyrsta sinn sl.
sunnudag og var þátttakan
mjög góð. Fimmtíu og fjórar
konur á öllum aldri tóku þátt í
hlaupinu sem var skipulagt af
hjúkrunarfræðingunum á
staðnum og höfðu allir gaman
af útivistinni og félagsskapn-
um.
FJALLKONAN Elsa Árnadóttir flutti ávarp.
ýmsar íþróttakeppnir og hátíðinni
lauk svo með dansleik í félagsheim-
ilinu undir dynjandi tónlist Greif-
anna sem nú létu til sín heyra í
fyrsta skipti eftir langt hlé.
Kynnir dagsins var Guðrún
Kristinsdóttir en íþróttafélagið
Völsungur sá um skipulag að þessu
sinni undir stjórn formannsins Ing-
ólfs Freyssonar.
Það er orðin föst venja að flytja
aðaldagskrá hátíðarhaldanna í húsi
og fiytja hana út ef veður býður
sérstaklega upp á það.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
VIÐ hátíðarhöld í íþróttahúsinu á Egilsstöðum.
Egiisstaðir
Veður setti strik
í hátíðarhöldin
Egilsstöðum - Hátíðahöld á Egils-
stöðum fóru á annan veg en áætl-
að var, vegna veðurs. Til stóð að
vígja nýja sundlaug, en heiðurs-
gestur samkomunnar, Sigrún
Huld Hrafnsdóttir, komst ekki til
Egilsstaða og var því vígslunni
frestað.
Hátíðadagskrá var flutt í
íþróttahús og mætti þar fjöl-
menni. Hátíðarræðu flutti Sigur-
borg Kr. Hannesdóttir, fjallkona
var Margrét Ólöf Sveinsdóttir, kór
Egilsstaðakirkju flutti lög og farið
var í leiki og þrautir.
Mikið vatnsveður var aðfaranótt
17. júní og af þeim sökum var
útidagskrá slegin af við íþrótta-
völlinn svo og kvöldskemmtun sem
átti að vera í Selskógi.
Reykjahlíð í Mývatnssveit
100 ára búsetu-
afmælis minnst
ÆTTARMÓT var haldið í Bamaskól-
anum í Reykjahlíð 16. júní sl.. Þess
var minnst að 100 ár eru Iiðin frá
því hjónin Einar Friðriksson og Guð-
rún Jónsdóttir fluttu frá Svartárkoti
í Reykjahlíð ásamt 9 börnum sínum
og vinnufólki.
Alls mættu á þriðja hundrað
manns á mótið. Undir borðhaldi há-
tíðardagskrár var rakin saga Reykja-
hlíðar, upplestur, söngur og leikið á
hljóðfæri.
Laugardaginn 17. júní var afhjúp-
aður minnisvarði á vatnsbakkanum
í Reykjahlíð, hann var haganlega
hlaðinn úr hraungijóti áfest dökk
plata frá Álfasteini, norskt grafít,
áletruð: 1995 búsetuafmæli Einars-
ættar, innkomin í Reykjahlíð 1895,
frá Svartárkoti, hjónin Einar Frið-
riksson 55 ára og Guðrún Jónsdóttir
49 ára. Böm, Jón Frímann, 24 ára,
Illugi Arinbjörn 22, Guðrún Friðrika
19, Ingólfur ísfeld, 16, Þuríður 12,
Sigurður 11, Anna Sigríður 8, María
6, og Jónas 4 ára. Vinnufólk, Björg
Júlíana Friðriksdóttir 47 ára, Gerður
Jónsdóttir, 12, Guðfinna Þorláksdótt-
ir 26 og Sigurður Jónsson 20.
Frá minnisvarðanum var haldið í
Barnaskólann, þar var snæddur
kvöldverður, haldnar ræður, upplest-
ur og fleira. Einnig var ættarkynning
afkomenda barna Einars og Guðrún-
ar.
Sunnudaginn 18. júní kl. 11.00 var
minningarathöfn í Reykjahlíð-
arkirkju. Þar minntist sóknarprest-
urinn séra Örn Friðriksson Einars
og Guðrúnar, barna þeirra og ætt-
ingja. Að lokinni athöfninni sleit
Hólmfríður Pétursdóttir ættarmótinu
og þakkaði sérstaklega þeim sem
aðstoðað höfðu og unnið við móts-
haldið.
í tilefni þessara tímamóta var gef-
ið út niðjatal Einarsættar.