Morgunblaðið - 22.06.1995, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
FIMMTUDAGUR 22.JÚNÍ 1995 15
Mikið tjón á Dalvík vegna leysinganna
Björgunarlið
sogar upp vatn
Mesta tjónið í kjallara ráðhússins
Dalvík. Morgunblaðið.
TJÓN hefur orðið víða á Dalvík
sökum leysinganna sem verið hafa
í hlýindunum að undanförnu.
Grunnvatnsstaða er óvenju há og
hefur vatn víða náð að brjóta sér
leið inn í húsakjallara í bænum.
Mest hefur tjónið orðið á kjallara
ráðhúss bæjarins þar sem Bókasafn
Dalvíkur og Héraðsskjalasafn eru
til húsa svo og geymslur Sparisjóðs
Svarfdæla.
Vatn inn um kjallaraveggi
um kjallaraveggi eða gólf á nokkr-
um húsum.
Mest hefur tjónið orðið í kjallara
ráðhúss en þar er Bókasafn Dalvík-
ur og Hérðasskjalasafn Svarfdæla
til húsa. Vatn hefur streymt inn
um sprungur á gólfplötu og á plötu-
skilum. Björgunarlið var ræst út til
að soga vatn upp af gólfum og
freista þess að þurrka upp. Hefur
mannskapurinn staðið sleitulaust í
nokkra sólarhringa við þennan
starfa.
Morgunblaðið/Trausti
UNNIÐ hefur verið að því
sleitulaust síðustu daga að
soga vatn upp af gólfum í
Bókasafni Dalvíkur.
í hlýviðrinu að undanförnu hafa
orðið miklar leysingar eins og víðar
um Norðurland. Gríðarlegir vatna-
vextir hafa valdið skemmdum á
samgöngumannvirkjum og m.a.
gróf Brimnesá undan öðrum enda
gömlu brúarinnar svo hún brotnaði
niður. Jarðvegur er gegnsósa og
hafa framræslulagnir við hús ekki
haft undan að flytja leysingavatn
úr jarðvegi. Vatn hefur því flætt inn
Söfnin ekki opnuð
á næstunni
Á föstudag voru bækur og skjöl
safnanna flutt upp á efstu hæð
ráðhússins til að forða þeim frá
skemmdum af vatni og raka. Ljóst
er að ekki verður hægt að opna
söfnin á næstunni en vinna þarf
að því að endurnýja gólfefni og
þurrka upp.
Göt voru boruð á gólfplötu kjall-
arans nú um helgina og hefur tek-
ist að dæla upp vatni úr grunni
hússins. Það hefur orðið til að létta
á innrennsli. Reikna má þó með að
nokkur tími líði enn þar til grunn-
vatnsstaðan lækki svo að fram-
ræslulagnir hafi undan en enn er
mikill snjór í íjöllum og hlýindi
framundan samkvæmt veðurspá.
Öperutón-
leikar Páls
og Lenu
PÁLL Jóhannesson, tenór og Lena
Tivelind, mezzósópran, efna til
óperutónleika í Glerárkirkju í kvöld,
fimmtudagskvöldið 22. júní kl.
20.30 og annað kvöld koma þau
fram í Safnahúsinu á Dalvík einnig
kl. 20.30. Undirleikari er Ólafur
Vignir Albertsson.
Á efnisskránni eru aríur, óperur,
dúettar og ljóð m.a. eftir Grieg,
Kaldalóns og Rangström. Þau fluttu
þessa sömu efnisská á tónleikum í
Hafnarborg í Hafnarfirði í síðustu
viku.
Páll er Akureyringur og lærði
söng hjá Sigurði Demetz en síðan
lá leiðin í Söngskóla Reykjavíkur
og þaðan í framhaldsnám á Ítalíu.
Hann starfaði í þijú ár sem söng-
kennari við Tónlistarskólann á Ak-
ureyri en fluttist til Svíþjóðar árið
1989. Þar starfaði hann við Stora
Teatern í Gautaborg þar sem hann
söng m.a. aðalhlutverkið í Vínar-
blóði eftir Johann Strauss sem sýnt
var á 176 sýningum um 7 mánaða
skeið.
Lena lauk söngkennaraprófi frá
Tónlistarháskólanum í Malmö með
sérstakri áherslu á barokktónlist
auk þess sem hún stundaði nám
við Óperuháskólann í Vín og Gauta-
borg. Hún hefur víða komið fram,
lék m.a. aðalhlutverk í Óperu-
draugnum í Oskarsteatern í Stokk-
hólmi, en síðustu ár hefur hún starf-
að við Konunglegu óperuna í Stokk-
hólmi. Hún er á leið til náms og
starfa á Italíu.
------» ♦ ♦-----
Góð aðsókn
að sýningu
SÝNINGU á málverkum eftir Hauk
Stefánsson lýkur í Listasafninu á
Akureyri næstkomandi sunnudag,
25. júní.
Aðsókn hefur verið með ágætum
og hafa á annað þúsund manns séð
sýninguna.
Sérstök listaverkabók var gefin
út um Hauk Stefánsson í tengslum
við sýninguna og er hún einungis
til sölu í Listasafninu, á sérstöku
kynningarverði út sýningartímann.
Listasafnið er opið frá kl. 14.00
til 18.00 alla daga nema mánudaga.
Þing norrænna bankalögfræðinga
Rætt um bankaþjónustu
og Evrópusambandið
ÞING norrænna bankalögfræðinga
stendur nú yfir á Akureyri, það
hófst á þriðjudag og því lýkur í
dag, fimmtudag. Þátttakendur á
þinginu eru um 180 talsins.
Á þinginu er m.a. rætt um banka-
þjónustu og stöðu bankakerfisins á
Norðurlöndum í ljósi samskipta við
Evrópusambandið. Fyrirlesarar eru
Jón Sigurðsson aðalbankastjóri
Fjárfestingabankans, Olli
Hármánmaa, bankastjóri Postbank-
en Ab í Helsingfors og Ole Bus
Henriksen fyrrverandi aðalfram-
kvæmdastjóri í Evropakommission-
en. Þá var rætt um samkeppnismál
á fjárfestingamarkaði, vernd við-
skiptavina á fjármagnsmarkaði,
ábyrgð lánveitenda gagnvart við-
skiptavinum og fjármagnsflutninga
og viðskiptasamninga á milli landa
í sérstökum umræðuhópum með
fyrirlesurum og stjórnendum úr
hópi norrænna bankalögfræðinga.
Norrænir bankalögfræðingar
hafa í yfir 60 ára staðið fyrir
fræðsluráðstefnum annað hvert ár
um þau málefni sem efst eru á
baugi hveiju sinni á fjármagns-
markaði og hafa íslenskir bankalög-
fræðingar tekið þátt frá árinu 1977.
Ráðstefnan er haldin hér á landi í
annað sinn, en í fyrra skiptið var
hún í Reykjavík árið 1985.
40 ára MA stúdentar
Hjartanlegar þakkir fyrir afmæliskveðju og tryggð
við minningu Sigurðar Óskars Jóhannssonar.
Brynhildur Kristinsdóttir,
Jóhann Sigurðsson.
AKUREYRARBÆR,
DEILISKIPULAG
Furuvellir 17, deiliskipulagstillaga
Með vísan til greinar 4.4 og 4.4.1 í skipulagsreglugerð
auglýsir Akureyrarbær tillögu að deiliskipulagi lóðarinnar
Furuvöllum 17, verslunarlóð Hagkaups. í tillögunni er
gert ráð fyrir að sett verði upp bensínafgreiðsla á
bílastæði austan verslunarhússins.
Skipulagsuppdráttur liggur frammi almenningi til sýnis
á skipulagsdeild Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð,
næstu 4 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. til
íimmtudagsins 20. júlí, þannig að þeir sem þess óska
geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.
Athugasemdafrestur er til 20. júlí 1995. Þeir, sem telja
sig verða fyrir bótaskyldu tjóni vegna framkvæmdar
deiliskipulagsins er bent á að gera við þær athugasemdir
innan tilgreinds frests, ella teljast þeir samþykkir skipu-
lagstillögunni.
Skipulagsstjórí Akureyrar.
ikr. 1
skjrlurfráki'.IMI
ákr. 4
KRINGLUNNI
Á KRI NGLUKASTI
SÍMi: 568 9995