Morgunblaðið - 22.06.1995, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.06.1995, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1995 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ 1- r Farþegaþotu rænt í Japan Flugfreyju ógnað með skrúfjárni Tókýó. Reuter. BOEING 747 flugvél japanska flug- félagsins All Nippon Airways (ANA), með 15 manna áhöfn og 350 farþega innanborðs, var rænt í innanlandsflugi í Japan í gær. Vélin var á leið frá Tókýó til Hakod- ate, syðst á Hokkaido-eyju, og er það um 90 mínútna flug. Eftir lend- ingu í Hakodate um klukkan 12.40 í gær (3.40 að íslenskum tíma) krafðist ræninginn þess að sett yrði eldsneyti á vélina og henni flogið aftur til Tókýó, þar sem samninga- viðræður gætu farið fram. Um kvöldmatarleytið í gær að ísl. tíma, í dagrenningu í Japan, réðist jap- anska lögreglan gegn ræningjanum og yfirbugaði hann. Enginn lét lífið en ein kona særðist lítillega. Flugstjóri vélarinnar, Hironobu Kiyohara, hafði í gær milligöngu um samskipti ræningjans og flug- umsjónarmanna. Ræninginn neitaði að tala við lögreglu í Hakodate. Talsmaður samgönguráðuneytisins sagði að svo virtist sem ræninginn hefði samverkamenn um borð, en það hefði ekki fengist staðfest. Ógnaði með skrúfjárni Samkvæmt fréttaskeytum í gær náði ræninginn vélinni á sitt vald eftir um 50 mínútna flug með því að ógna flugfreyju með skrúfjámi. Japanska ríkissjónvarpið, NHK, átti síðar símtal við flugfreyju um borð í vélinni, og hafði eftir henni að ræninginn segðist hafa sprengjur „og aðrar aðferðir“ til þess að valda skaða ef kröfum hans yrði ekki sinnt. Meðal farþega voru sjö ung börn. Ræninginn neitaði öllum beiðnum um að farþegar yrðu látnir lausir. Flugfreyjan tjáði NHK síðdegis í gær að gamalt fólk í vélinni hefði margt verið orðið veikt. Einn and- aði með aðstoð súrefnisgrímu. Frameftir degi í gær hermdu fregnir að ræninginn krefðist þess að yfirvöld létu lausan Shoko Asa- hara, leiðtoga dómsdagssöfnuðar- ins sem ákærður er fyrir taugagas- árásina í neðanjarðarlestum Tókýó- FLUGRANIJAPAN borgar í mars síðastliðnum. Tals- menn söfnuðarins neituðu hins veg- ar að kanuast við að ræninginn til- heyrði söfnuðinum eða væri á hans snærum. NHK hafði síðan eftir flugfreyjunni, að ræninginn segðist aldrei hafa sagt að hann væri með- limur í söfnuðinum, og hann hefði heldur ekki krafist þess að Asahara yrði látinn laus. „Eg geri þá einu kröfu að flogið verði aftur til Tókýó,“ hafði flugfreyjan eftir ræn- ingjanum, sem mun einnig hafa neitað því að hann hefði komið með ísnál um borð eins og fullyrt var. Þolinmæðin á þrotum Síðdegis í gær sagði ræninginn þolinmæði sína á þrotum og gaf frest til að verða mætti við kröfum hans, en sagðist myndu meiða flug- freyju ella. En fresturinn rann út án þess kröfum hans væri sinnt, og svo virtist sem hann hefði ekki gert alvöru úr hótunum sínum. Talsmaður ANA sagði að enginn matur væri um borð í vélinni og ræninginn hefði ekki leyft að matur yrði borinn um borð. Hins vegar væru tæpir 400 lítrar af drykkjar- vatni um borð og ætti það að duga í um níu vatnsglös á mann. , Reuter RUSSNESK fjölskylda í bænum Búdennovsk syrgir ættingja, sem lét lífið í árás tsjetsjenskra skæruliða undir forystu Shamils Basajevs. Eitrað andrúmsloft í rússnesku borginni Búdennovsk Gíslar snúa aftur við fögnuð og svikabrigsl Búdennovsk. Reuter. HVER höndin er nú upp á móti ann- arri meðal íbúa bæjarins Búdennovsk í Suður-Rússlandi. Ættingjar gísl- anna, sem tsjetsjenskir skæruliðar létu lausa á þriðjudag, fögnuðu ák- aft þegar þeir sneru aftur til bæjar- ins í gær. Fjöldi annarra íbúa sakaði hina sjálfviljugu gísla hins vegar um sviksemi fyrir að sýna málstað skær- uliðanna samúð. Um 150 gíslar, sem gáfu sig fram til að fara með skæruliðunum frá Búdennovsk til Tsjetsjníju, sneru aft- ur í fimm langferðabifreiðum og tóku ættingjar þeirra á móti þeim opnum örmum og tárvotum kinnum. Skæruliðamir, undir forystu Shamíis Basajevs, héldu um þúsund gíslum í Búdennovsk og tóku með sér sjálfboðaliða til tryggingar gegn rússneska hernum á leið sinni til Tsjetsjníju. Þrýst á gísla Þegar gíslamir sneru aftur sýndu þeir blaðamönnum hvíta miða, sem rússneskir embættismenn höfðu beð- ið þá um að undirrita og á stóð: „Ég geng af 'fúsum og fijálsum vilja í þennan glæpaflokk og axla ábyrgð og afleiðingar af þessum gjörðum mínum." Margir gíslanna höfðu samúð með málstað skæruliðanna og svo var um flesta sjálfboðaliðanna. „Ég get skilið það, sem þeir gerðu," sagði Pavel Júbov, miðaldra læknir, þegar hann sté úr einni lang- ferðabifreiðanna. „Ég talaði við einn skæmliða, sem hefur misst alla nema þrjá úr stórfjölskyldu sinni. Rússamir eyðilögðu allt, sem hún átti. Þeir sprengdu hús hennar úr lofti.“ Fjöldi fólks gerði hróp að læknin- um. „Og hvað eigum við að gera,“ sagði kona ein. „Það á að refsa þess- um morðingjum. Þeir myrtu sak- laust fólk.“ „Svínin myrtu syni okkar og nú er okkur sagt að það sé okkur að kenna,“ hrópaði einn. Annar gekk - enn iengra og sagði: „Þeir ættu að drepa alla Tsjetsjena, hvern einn og einasta. Ef ég fengi vopn myndi ég fara og skjóta þá alla.“ 100 manns féllu þegar skærulið- arnir réðust inn í Búdennovsk, 100 þúsund manna bæ skammt frá Tsjetsjníju, og hefur árásin staðfest í huga almennings þá ímynd, sem rússnesk stjórnvöld hafa dregið upp af Tsjetsjenum, að þeir séu morð- ingjar. I Búdennovsk ganga borgarar nú um með vopn í hendi og stöðva hvern þann, sem er dökkur á hörund og gæti verið Tsjetsjeni. Flestir Tsjetsj- enar í Búdennovsk eru nú á braut og þeir fáu, sem eftir eru, halda sig innan dyra. Margir bæjarbúa era þeirrar hyggju að skæruliðarnir hafi notið aðstoðar innanbæjarmanna þegar þeir létu til skarar skríða vegna þess hve vel árásin tókst og hefur það enn magnað hið lævi blandna andrúmsloft í Búdennovsk. Steikar- og grillkrydd "original". Ekta blanda á steikina, ekki síst grillað lamba- og svínakjöt. Laumaðu líka nokkrum kornum í kartöflusalatið, grænmetis- réttina og fars- og kjúklinga- rétti. Steikar- og grillkiydd "barbeque". Bragðmikil blanda undir áhrifum frá amerísku cajunmatargerðinni. Prófaðu hana einu sinni á hvaða grillkjöt sem er - og hún verður ómissandi. Knorr kryddblöndur Provence krydd Þessi kryddblanda gefur þér frábært og franskt bragð af grillaða lambakjötinu og kjúkl- ingunum. Og ekki er hún síðri á fisk, í paté og salatsósur. Pasta- og pizzukiydd Blandan sem setur punktinn yfir i-ið í ítalska matnum, ómissandi þegar þú eldar pasta, bakar pizzu og býrð til salat. Mexíkóskt krydd Kröftug kryddblanda á steikina og grillið. Prófaðu þig líka áfram með hana í pott-, pasta- og kartöflurétti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.