Morgunblaðið - 22.06.1995, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 22.06.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1995 21 ERLEIUT Fyrsta för Bildts til fyrrverandi Júgóslavíu Væntir ekki áþreif- anlegs árangurs Zagreb, Pale. Reuter. Reuter HNEFALEIKARINN Mike Tyson stendur hér á milli blökku- mannaleiðtogans og prestsins Als Sharptons (t.v.) og Dons Kings, umtalaðasta umboðsmanns og mótshaldara í hnefaleikaheimin- um. Tilefni þessa fundar var að Tyson var að snúa aftur til New York eftir að hafa verið látinn laus úr fangelsi. Tyson snýr aftur til Harlem Móttökurnar risminni en ráð hafði verið fyrir gert New York. Daily Telegxaph. CARL Bildt, nýskipaður sáttasemj- ari Evrópusambandsins í Bosníu- deilunni, sagði í gær að fyrsta ferð sín til fyrrum Júgóslavíu væri rann- sóknarleiðangur og líklega yrði lítið um áþreifanlegan árangur af henni. Bildt er á ferð með Thorvald Stoltenberg, sáttasemjara Samein- uðu þjóðanna (SÞ), og sagði við fréttamenn að hann ætlaði sér nokkra daga til þess að hlusta frem- ur en tala til þess að meta stöðuna. Ætlar ekki til Pale Á þriðjudag fundaði Bildt með Hassan Muratovic, ráðherra í stjórn múslima í Bosníu, og næst lá leiðin til Belgrad til fundar við Slobodan Milosevic, forseta Serbíu. Bildt sagðist ekki ætla til höfuðstöðva Bosníu-Serba í Pale að hitta leið- toga þeirra. Vestrænir stjórnarerin- drekar sögðu þó, að ekki væri úti- lokað að fundur yrði með leiðtogum Bosníu-Serba. Bildt sagði um ástandið í Bosníu að hvorugir deiluaðila væru viljugir til málamiðlana til að ná sáttum. „Við höfum á borðinu áætlun tengslahópsins frá því í fyrrasum- ar. Hún þarf að fást samþykkt sem byrjunarstaða í samningaviðræð- um. Fáist það getum við hafist handa á friðsamlegum nótum. Ef ekki, þá er staðan næsta erfið,“ sagði Bildt. Hann sagði að þótt gæsluliðar SÞ hefðu hörfað frá svæðum sem Bosníu-Serbar halda umhverfís Sarajevo og sérþjálfaðir, vestrænir hraðliðar væru væntanlegir til Bos- níu væri ekki þar með sagt að brott- för SÞ frá fyrrum Júgóslavíu væri í sjónmáli. Bosníu-Serbar hafa hafnað áætl- uninni um að skipta Bosníu um það bil til helminga milli þeirra sjálfra og ríkjasambands múslima og Kró- ata, að tillögu fimmveldanna í tengslahópnum. Fréttastofa Reuters hafði eftir ónafngreindum heimildarmönnum úr röðum Bosníu-Serba að þeir væntu þess að Bildt hitti þá nú í vikunni, og að þeir myndu fyrtast við ef svo færi ekki. Þeir halda fast við þær kröfur sínar, sem ætíð hefur verið hafnað, að sjálfskipað lýðveldi Bosníu- Serbíu verði viðurkennt á alþjóða- vettvangi og að horfið verði frá áætlun fimmveldanna, sem gerir ráð fyrir að þeir láti af hendi það land sem þeir hafa náð á sitt vald í stríðinu. Segja gæsluliða í haldi Talsmaður kanadíska hersins sagði í gær, að múslimskir hermenn héldu um 600 kanadískum gæslu- liðum SÞ í búðum þeirra nærri bænum Visoko. Yfirmaður þeirra liti svo á að þeir væru í haldi vegna þess að þeir fengju ekki að yfirgefa búðirnar. N-Kórea fær matvæli frá S-Kóreu Seoul. Reuter. STJÓRNVÖLD í Norður-Kóreu hafa ákveðið að taka við 150.000 tonnum af hrísgijónum, sem stjórnin í Suður- Kóreu vill ggfa þeim. Náðust samn- ingar um þetta í gær. Viðræður um matargjöfina hófust í Peking sl. laugardag og munu samningamenn ríkjanna koma sam- an aftur um miðjan júlí til að ræða frekari aðstoð. Suður-kóresk skip verða notuð til að flytja matvælin til N-Kóreu og fer það fyrsta nú í vikunni. Hér er um að ræða mikil pólitísk tíðindi því að það hefur allt- af verið stefna stjórnvalda í N-Kóreu að hafa ekkert saman við stjórnina í Seoul að sælda. BANDARISKI hnefaleikarinn Mike Tyson er nú laus úr fang- elsi og á þriðjudagskvöld sneri hann aftur á heimaslóðirnar í Harlem í New York. Hann fékk hins vegar öllu risminni móttök- ur, en ráðgert hafði verið í upp- hafi. Reggae tónlist og fyrirheit um iðrun og yfirbót komu í stað feikn- legrar skrúðgöngu, sem halda. átti til að fagna heimkomu heims- meistarans fyrrverandi. Ástæðan fyrir því að ákveðið var að hafa fagnaðarlætin í lágmarki var kröftug mótmæli svartra frammámanna og skrif svartra dálkahöfunda. Þótti þeim heldur ósmekklegt að fagna manni, sem verið væri að láta lausan eftir að hafa afplánað þriggja ára fang- elsisdóm fyrir að nauðga þátttak- anda í fegurðarsamkeppni. Skrúðgangan varð því að máls- verði á veitingastað, en fyrir utan safnaðist hins vegar fjöldi manns og barði krepptum hnefum út í loftið þegar Tyson bar að garði. „Tyson er maðurinn,“ hrópaði einn viðstaddra. Fámáll Tyson sagði fátt um hinar umdejldu móttökur sínar: „Ég geri ekki annað en að biðja og slást.“ Hann hefur haft nægan tíma til að biðja undanfarið, en brátt kemur í ljós hvort hann kann enn þá að slást. Umboðs- maður hans og mótshaldari, hinn hárprúði Don King, lýsti yfir því að Tyson myndi næst stíga í hringinn í Las Vegas 19. ágúst. Tyson var ekki heldur marg- máll þegar hann var spurður hvort hann hefði breyst í fangels- inu: „Ef svo er, þá vona ég að það sé til hins betra.“ Golden Gate-brúin í San Francisco Hátt í 1000 sjálfsmorð Los Angeles. The Daily Telegraph. NÁKVÆMRI tölu þeirra sem hafa fyrirfarið sér með því að stökkva af Golden Gate brúnni í San Francisco er haldið leyndri nú þegar fjöldinn nálgast 1000, Embættismenn óttast að frægðin sem talan myndi veita gæti orðið til þess að hvetja enn frekar þá sem hugleiða að stökkva. „Ef maður ætlar að deyja en langar til að orðspor manns lifi áfram, hvað myndi tryggja slíkt betur en það að verða númer þúsund?" sagði Jerome Motto, prófessor í sálarfræði við Kalifor- níuháskóla í San Francisco. Það var 35 ára gömul kona sem síðast framdi sjálfsmorð með því að stökkva af brúnni 5. júní. Síðan þá hefur lögregla í Kalifor- níu neitað að láta uppi hversu margir hafa fargað sér með þess- um hætti, og einungis sagt að talan væri „hátt í þúsund." Fyrsta skráða sjálfsmorðið var framið einungis þrem mánuðum eftir að brúin var opnuð árið 1937. Eve Meyer, félagi í sam- tökum sem beijast gegn sjálfs- morðum í San Francisco, sagði það „grimmilegt“ að einblína á þau tilvik er fólk fyrirfæri sér á brúnni frægu, því einungis væri um að ræða lítið brot af 1,5 millj- ónum sjálfsmorðstilfella í Banda- ríkjunum frá 1937. í tilveruna atoydderi, de» tcwhæversfe ssiiíge. gode sm^ i sáws -medenbfandiog^ í og udvaJgle kryddfe’>“' Aromat Þessi gamla og góða blanda sem laðar fram rétta bragðið af fisk- og grænmetisréttum, sósum, súpum og salatsósum. Fiskikrydd Klassísk kryddblanda með sítrónubragði, sú rétta á steiktan og soðinn fisk. Gleymdu henni ekki næst þégar þú býrð til fiski- eða grænmetisgratín. Grænmetiskrydd Kryddjurtablanda sem kitlar bragð- laukana. Ómissandi í kaldar sósur, græn- metissalöt og gratín. Prófaðu hana líka í fiskrétti. Ásbjöm Ólafsson hf. Grískt hvítlaukskrydd Ekta hvítlauksbragð sem svíkur engan. Prófaðu það á grillað lambalæri, humarinn og heita brauðið og þér finnst þú vera á Grikklandi. Skútuvogi 11A Sími: 588 7900 íoydderí Kjöt- og grillkrydd Kryddblanda sem kallar fram rétta bragðið af öllu grilluðu og steiktu kjöti. Nokkur korn gera kraftaverk fyrir túnfisk- og rækjusalatið og kokteilsósuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.