Morgunblaðið - 22.06.1995, Síða 22
22 FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
-
LISTIR
Á óperutónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands í kvöld mun Ólafur Ami Bjamason
flytja þekktar óperuaríur undir stjóm hins kunna hljómsveitarstjóra Nicola Rescigno.
Þóroddur Bjamason fór í Háskólabíó og tók þá tali.
HINN
FAGRI
SÖNGUR
Nicola Rescigno hijómsveitarstjóri og
Ólafur Árni Bjamason tenórsöngvari
verða í aðalhlutverkum á tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar íslands í kvöld,
fimmtudagskvöld kl.20. Efnisskrá
tónleikanna er samsett úr aríum úr
þekktum óperum eftir Verdi, Puccini
og Donizetti auk þess sem forleikir
eftir Rossini, Mendehlson og Puccini
verða fluttir.
Nicola Rescigno er fæddur árið
1916. Hann er mjög þekktur stjóm-
andi og á að baki 52 ára feril í ópem-
heiminum. Hann hefur unnið með
mestu söngvumm sem hafa stigið á
stokk síðustu 50 ár, og unnið í öllum
helstu óperahúsum í heims. Hann
er nú að mestu hættur störfum en
segist taka tilboðum ef u’m spenn-
andi land er að ræða eða ef honum
gefst kostur á að vinna með áhuga-
verðum söngvuram og segir hann
hvorutveggja eiga við um veru hans
hér á landi núna.
Unnið með þeim bestu
„Ég kem úr tónlistarfjölskyldu.
Pabbi var trompetleikari í hljómsveit
Metropolitan óperannar og ég byij-
aði sex ára að nema tónlist. Ég lærði
á píanó og seinna á ýmis hljóðfæri
úr öllum fjölskyldum hljóðfæra sem
kom sér vel fyrir framtíðarstarf mitt
við hljómsveitarstjóm.“ Hann hóf
feril sinn árið 1943 í New York í
óperanni La traviata eftir Verdi, en
fór svo til Chicaco árið 1954 þar sem
hann átti þátt í endurreisn óperannar
en flutti sig um set árið 1957 til
Dallas og var þar listrænn stjómandi
til ársins 1990. Frægt er samstarf
hans með hinni þekktu söngkonu
Mariu Callas en hún steig sín fyrstu
spor í Ameríku undir hans stjórn í
Chicaco og var þeirra samstarf mjög
náið eftir það.
Ég hef unnið með öllum stærstu
nöfnum óperaheimsins síðustu 50
árin. Þar sem ég var listrænn stjórn-
andi í Dallas fór ég með ráðningar-
mál, m.a. og tókst að fá alla stór-
söngvara til liðs við okkur sem í
boði vora hverju sinni.“ Aðspurður
sagðist hann þekkja til Kristjáns
Jóhannssonar en hann vann með
honum í Dalias í Don Carlo eftir
ÓLAFUR Árni
Verdi en aðra íslenska söngvara
kannaðist hann ekki við en vissi þó
að mikið af góðum söngvurum væri
til hér á landi af báðum kynjum.
Guð dreifir hæfileikum
„Það koma margir frábærir söngv-
arar frá Norðurlöndunum og einnig
frá Ástralíu þannig að Guð dreifir
hæfíleikunum greinilega um alla
jörð.“
„Uppáhaldstónlistin mín er Don
Giovanni og Brúðkaup Fígarós eftir
Mozart. Ég hef sérhæft mig í „hinum
fagra söng“ og þá á ég helst við
Bellini, Donizetti, Rossini og Mozart
að sjálfsögðu þó ég hafi stjórnað
tónlist af öllu tagi.“
Tónleikarnir á morgun leggjast vel
í hann. Hann er mjög ánægður með
hljómsveitina og finnst geysilega
gott að vinna með henni enda greini-
legt að meðlimir hennar njóta þess
sem þeir eru að gera. Honum fínnst
gott að vera á Islandi og ætlar að
reyna að sjá eitthvað af landinu eft-
ir tónleikana en hann ætlar að dvelja
Morgunblaðið/Kristinn
og Nieola Rescigno.
hér til 25. júní
Ólafur Ámi Bjamason hefur kom-
ið víða fram bæði hérlendis sem er-
lendis. Hann hefur verið fastráðinn
við óperuhús í Þýskalandi síðan 1990
og sungið aðaltenórhlutverk í mörg-
um þekktum óperam. Hér á íslandi
hefur hann m.a. sungið í La Bo;
heme, Rigoletto og La Traviata. í
október síðastliðnum komst hann í
úrslit Jussi Björling söngkeppninnar
og Metropolitan óperan veitti honum
námsstyrk árið 1994 til að vinna
með framangreindum Nicola Resc-
igno og eru tónleikar þeirra hér,
ávöxtur þess samstarfs. .
Breyttir tímar
„Ég kom til landsins á mánudag-
inn beint frá Karlsrahe þar sem ég
söng aðaltenórhlutverkið í La Tra-
viata í forföllum þess sem það hafði.
Ég hafði sungið eina sýningu fyrir
þá þannig að þeir þekktu til mín og
gátu kallað í mig daginn áður. Ég
er líka nýbúinn að gera samning um
að syngja aðalhlutverkið í Don Car-
los í 8-10 sýningum þar og á sama
tíma verð ég í Madame Butterfly
eftir Puccini í Köln þannig að það er
í nógu að snúast.“
Ólafur segir að í Karlsruhe starfi
leikstjóri sem er þekktur um allt
Þýskaland fyrir starf sitt og segir
Ólafur það vera í takt við breytta
tíma í óperuheiminum þar sem nú
er sífellt meiri áhersla lögð á leik-
hæfíleika óperasöngvaranna og um-
gjörð sýningarinnar.
„í dag þýðir ekkert annað en að
líta vel út og leika vel. Nú er leik-
stjómin númer eitt. Þetta sést best
ef þú lest gagnrýni í blöðum en þar
er jafnan mestu púðri eytt í að fjalla
um leik söngvaranna, hönnun sviðs-
búnaðar og uppsetninguna s§m slíka.
Hljómsveitarinnar er svo oft getið í
lokin og frammistöðu söngvaranna."
Ólafí fínnst þetta slæm þróun í gagn-
rýni en segir þó að það sé gaman
að vinna við þessar uppfærslur þar
sem ekki sé eingöngu rýnt í nóturnar.
Það verður allt
að tónlist
Ólafur segir að tónleikarnir í dag
leggist vel í hann þó æfmgatími
mætti vera aðeins meiri.,, Aríurnar
á tónleikunum eru allt glæsiaríur sem
ég á eftir að syngja mikið í framtíð-
inni og ég ákvað bara að spila öllum
spilunum út og sérstaklega útaf
Rescigno þar sem það er ekki á hveij-
um degi sem það gefst færi á að
vinna með slíkum snillingi."
„Þetta kemur í framhaldi af góðri
samvinnu okkar í milli, hann er að
fylgja mér aðeins eftir. Hann þekkir
verkin á efnisskránni út' og inn og
það virðist alveg sama hve oft hann
heyrir þau og flytur það er ný reynsla
í hvert skipti. Það er stórkostlegt að
vinna með honufn því hann er svo
„músikalskur" hann er svo samofínn
tónlistinni og ef þú lendir á spjalli
við hann þá er sama hversu hvers-
dagslegt umræðuefnið er, það verður
allt að tónlist. Þetta era fyrstu ein-
söngstónleikar mínir með hljómsveit-
inni og þeir eru stórt skref fyrir
mig. Hljómsveitin er stórkostleg og
að vera hér með Nicola er alveg him-
neskt.“
FYRIRLESARAR á námsþinginu í listmeðferð, sem haldið
verður í Norræna húsinu.
Norrænt námsþing
í listmeðferð
TÍUNDA norræna námsþingið verð-
ur haldið í Norræna húsinu 24.-27.
júní. Áhyggjur samfélagsins af of-
beldi hafa farið vaxandi undanfarið,
samkvæmt því sem segir í frétt frá
þinginu. Á þinginu verður flallað um
orsakir og afleiðingar ofbeldis og
greiningu og meðferð gerenda og
þolenda. Námsþingið er þverfaglegt
en einnig er þeim sem áhuga hafa á
listmeðferð og vilja fræðast meira
um ofbeldi og meðferð tengda því,
velkomið að sækja þingið. Þá eru
einnig umræður um norræna og al-
þjóðlega menntun í listmeðferð.
I sumar verður haldið upp á tíunda
námsþingið. Fyrsta norræna náms-
þingið var haldið á íslandi árið 1975.
Undirbúningur og framkvæmd var á
vegum Sérkennarafélags íslands,
Norræna hússins og Sigríðar Bjöms-
dóttur, sem ‘var upphafsmaður þings-
ins. Síðan þá hefur það verið haldið
annað hvert ár í einu Norðurlandanna.
Fyrirlesarar og fyrirlestrar verða
eftirfarandi:
Upprani ofbeldis, Max Peterson,
Extemal Examiner of Psychology &
Psychotherapy við School of Art
Therapy, Caiedonian University í
Skotlandi.
Greining á ofbeldi í listaverkum,
Ikuko Acosta, listmeðferðarfræðing-
ur, ATR, Bandaríkjunum.
Ferlisbundin listmeðferð, Sheila
McClelIand, Iistmeðferðarfræðingur,
R.Ath., Englandi.
Myndir um kynferðislega misnot-
uð böm, sem sönnunargögn í réttar-
höldum, Ragna Sylwan, listmeðferð-
arfræðingur, Svíþjóð.
Ofbeldi á heimilum, Heidi Gteenfi-
eld, félagsráðgjafi MSW, Kanada.
Þrá eftir breytingu, eða banvænt
aðdráttarafl. Hvers vegna ættu list-
meðferðarfræðingar að vinna með
ofbeldishneigðum afbrotamönnum?
Colin Teasdale, listmeðferðarfræð-
ingur, DFA, Dip.Ath., MA (RCA),
RATh., Englandi.
Myndir um kynferðislega misnot-
uð börn unnar á bamageðdeild. Ann-,
Sophie Lang listmeðferðarfræðingur,
myndlistarmaður og iðjuþjálfi, Sví-
þjóð.
Undirbúningsnefnd skipa Anna
Maria Harðardóttir, Halldóra Hall-
dórsdóttir, Sigríður Bjömsdóttir og
Unnur Guðrún Óttarsdóttir listmeð-
ferðarfræðingar.
Upplýsingar og skráning eru hjá
Helgu Láru í Úrval-Útsýn.
Rit um dans- og leiklistarsamstarf á Norðurlöndunum
Dans í norðri
ÞAÐ er dansað á Norðurlöndunum og hefur
verið gert frá aldaöðji. Svo segir í það minnsta
í nýjum ritlingi sem ber heitið „Dans í norðri“.
Hann er gefinn út af „Leikhús og dans á Norð-
urlöndunum" sem er nefnd, starfrækt af Nor-
rænu ráðherranefndinni og er ætlað að styrkja
Norrænt dans- og leiklistarsamstarf í löndun-
um.
Ritlingnum er ætlað að svara þeim spurning-
um um danslist áNorðurlöndunum sem upp
kunna að koma. Ýmsir höfundar frá hveiju
landi um sig gera úttekt á sögu listformsins,
stöðu, þróun og tengslum við aðra listmiðla.
Forsíðan skartar íslenska dansaranum, Láru
Stefánsdóttur, og íslenski hluti ritlingsins hef-
ur að geyma viðtal Árna Ibsens við hana og
Sveinn Einarsson talar um danslist á íslandi.
Frá sígildum dansi til nútímadanslistar
í grein sinni segir Sveinn Einarsson m.a.
þetta um íslenska dansflokkinn:„íslenski dans-
flokkurinn hefur það að stefnu að móta dans-
ara sína á þann hátt að þeir verði eins fjölhæf-
ir og kostur er sem gefur þeim kost á há-
marks möguleikum í danstjáningu, allt frá sí-
gildum dansi til nútímadanslistar."
I lok greinarinnar talar Sveinn um dans á
íslandi fyrr á öldum og segir uppsetningu ís-
lenska dansflokksins á Jörfagleði árið 1994
hafa minnt fólk á arfinn. „Með leikurum,
söngvurum og dönsurum, minnti Jörfagleði á
gamla íslenska gleðskaparhefð þar sem fólk
kom saman og dansáði vikivaka."
Dansinn er mér allt
Árni Ibsen fer fögrum orðum um Láru Stef-
ánsdóttur í viðtali í ritinuog Lára talar m.a.
um hvernig það sé að vera dansari á íslandi
og segir frá væntingum sínum til listgreinar-
innar í framtíðinni. „Auðvitað er það ekki
auðvelt að vera dansari á íslandi. Að sjálf-
sögðu fylgja þessu erfiðleikar, en þeir eru nú
bara hluti af listinni hvar og hvenær sem er.
Ef þú veltir þér endalaust upp úr þeim þá er
Lára Stefánsdóttir prýðir forsiðu
‘ Dans í norðri.
eins gott að gefast upp strax, finna sér eitt-
hvað annað að gera eða bara gefa upp önd-
ina. Dansinn er mér allt og er því fyrirhafnar-
innar virði.“
Síðar segir Lára þetta um viðhorf fólks til
nútímadanslistar: „Sumir þeir sem aðhyllast
sígildar hefðir sjá ekkert sameiginlegt með
nútíma dansleikhúsi og ballett. Eg lít þannig
á að dans sé einfaldlega hreyfing með enda-
lausum möguleikum og ótakmarkaðri vídd.“