Morgunblaðið - 22.06.1995, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUK 22. JÚNÍ 1995
TÓNLIST
Dómkirkjan
ORGELTÓNLEIKAK
Marteinn H. Friðriksson dómorgan-
isti flutti orgelverk eftir Jón Þórar-
insson, Jón Nordal, Buxtehude,
Petr Eben og J. S. Bach. Þriðjudag-
ur 20.júní 1995
KIRKJUTÓNLISTARMENN
hafa á undanfömum árum staðið
fyrir miklum tónlistarflutningi og
jafnvel fyrir meiri háttar tónlistar-
viðburðum, þar sem flutt hafa ver-
ið stórverk kirkjutónlistarsögunn-
ar. Það má vera að hreintrúar-
mönnum þyki nóg um og vilji jafn-
vel hverfa aftur til íhugunarmess-
unar, sem margir lútherskir sértrú-
arhópar iðka. Hætt er við að kirkju-
sagan hefði orðið æði mögur á
sviði listsköpunar er varðar bók-
menntir, tónlist, byggingarlist og
myndlist ef heilagur Ambrósíus
kirkjufaðir hefði orðið undir í þeim
deilum við upphaf kristinnar kirkju,
hvort nota ætti t.d. tónlist og jafn-
vel söng við trúarathafnir. Mar-
teinn Lúther lagði grunninn að ein-
hverri merkustu undirstöðu vest-
rænnar tónlistar, með því m.a. að
leggja áherslu á iðkun tónlistar við
Opið hús í
Norræna
húsinu
UNDANFARIN sumur hefur
Norræna húsið sett saman fyr-
irlestraröð um Iand og þjóð,
menningu og listir, sögu, nátt-
úru og fleira. Fyrirlestrar þess-
ir verða öll fimmtudagskvöld
kl. 20.
I kvöld hefst fyrirlestraröðin
Opið hús í Norræna húsinu.
Ari Trausti Guðmundsson jarð-
fræðingur ríður á vaðið með
fyrirlesturinn „Islandske vulk-
aner, breer og varme kilder“
og mun hann flytja hann á
norsku. Að loknum fyrirlestri
gefst fólki tækifæri á að koma
með fyrirspumir.
Huimaus - Yrsel - Órar
Norræna rannsóknarleik-
smiðjan stendur fyrir fyrirlestr-
um í Norræna húsinu í dag kl.
16 í tengslum við finnsk-
íslensku uppfærsluna Órar-
Huimaus sem flutt er í Þjóðleik-
húsinu í kvöld og á laugardag.
Dan Henriksson aðstoðar-
leikstjóri verksins flytur fyrir-
lesturinn „Skádespelaren och
tragedin", brot úr sögu forn-
grískra harmleikja og verður
hann fluttur á sænsku.
Seppo Parkkinen, höfundur
handritsins, mun flytja fyrir-
lesturinn „Myterna i tiden (My-
ytit tássá ajassa)“. Samljómur
- niðurbrot - fyrirgefning.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
finnsku og þýddur yfir á
sænsku jafnóðum.
Bókasafn og kaffistofa verða
opin til kl. 22 á fimmtudags-
kvöldum í sumar.
Allir eru velkomnir og að-
gangur er ókeypis.
Póst Neó Geó
KRISTJÁN Bjöm Þórðarson,
Gunnar Þór Víglundsson og
Ulfur Grönvold hafa opnað sýn-
ingu á verkum sínum á Mokka-
kaffi Skólavörðustíg.
Þeir eru allir nýútskrifaðir úr
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands. Haraldur Jónsson mynd-
listarmaður skrifar m.a. þetta
um myndlistarmennina í frétta-
tilkynningu,: „Þremenningamir
eru í raun og veru gott dæmi
um þá kynslóð sem stundum er
kennd við bókstafinn X.
Óþekktu stærðina."
Sýningin er opin alla daga
og stendur til 9. júlí.
LISTIR
í litlu hljómrými
Dómkirkj unnar
trúarathafnir og samdi sjálfur
sálmalög. Lútherski sálmurinn
(kórallinn) blómstraði í þeim trúar-
bókmenntum sem við þekkjum feg-
urstar í sálmversum Hallgríms Pét-
urssonar. Trúartilbeiðslan birtist
og í glæsilegri myndlist og kirkjum
er teygðu tuma sína til himins...
Öll þessi listsköpun er í raun bæn
og samtímis lofsöngur Guði til
dýrðar. Trú án fegurðar og fegurð
án trúar getur leitt manninn á villi-
götur, því fegurð er samstofna hinu
góða, og er einstofna undirstaða
kristinnar siðfræði.
Krkjulistahátíð Hallgrímskirkju
er varla lokið er taka við sumar-
tónleikar í Dómkirkjunni, en þeir
hófust sl. sunnudag með orgeltón-
leikum Kjartans Siguijónssonar,
sem undirritaður gat ekki sótt.
Marteinn H. Friðriksson hóf sína
tónleika með fallegum sálmforleik,
eftir Jón Þórarinsson, yfír sálma-
lagið Jésú mín morgunstjarna.
Þetta er falleg hugleiðing, sem var
vel flutt af Marteini. Ekki síðri var
flutningur Marteins á verki Jóns
Nordals, sem hann nefn.ir „Forleik
um sálm sem aldrei var sunginn“,
fallegt verk, sem flumflutt var í
Skálholti af Ragnari Björnssyni,
við drunuundirleik Heklu, þá hún
síðast gaus en nú voru það mótor-
þrumur umferðarinnar kringum
Dómkirkjuna, sem léku sinn óróa-
konsert, undir ágætum flutningi
Marteins.
Dietrich Buxtehude átti næsta
verk er nefnist Práludium, Fuge
und Ciacona, skemmtilegt verk,
svolítið laust í reipunum, þó vel
mætti heyra að J.S. Bach hafi
lært mikið af þessum snillingi,
meðan hann dvaldi í Liibeck um
nærri þriggja mánaða skeið.
Næsta verk, Tokkata, eftir Peter
Eben, tengist Buxtehude, enda
samið honum „til heiðurs“ og
byggt á nokkrum tónhugmyndum
úr orgelverki því er Marteinn lék
á undan. Þetta er glæsilegt og
rismikið tónverk, ágætlega samið,
töluvert erfitt í flutningi og voru
bæði verkin flutt af öryggi og festu
af Marteini H. Friðrikssyni.
Síðast verkið, Es-dúr prelúdían
og fúgan (BWV 552) eftir J.S.
Bach, er, ásamt c-moll passakagl-
íunni, eitt af stórbrotnustu orgel-
verkum meistarans, prelúdían þre-
föld að formi til og fúgan fimm-
radda og þriggjastefja en öllum
stefjunum er svo slegið saman í lok
fúgunnar. Þetta glæsiverk var
mjög vel flutt og eftir að hafa hlust-
að mikið á orgel Hallgrímskirkju,
yfírþyrmandi hljómstyrk þess og
yfirmáta mikla enduróman kirkj-
unnar, var eins og að skipta frá
fflharmonískum hljómsveitarkon-
sert yfir í kammertónleika, þar sem
allt kom greinlega fram og tærleiki
í raddskipan naut sín til fulls í litlu
hljómrými Dómkirkjunnar.
Næstu sumartónleikar Dóm-
kirkjunnar verða á föstudaginn og
þá mun Dómkórinn halda Jóns-
messutónleika kl. 22 og á eftir
munu tónleikagestir trúlega vera
vel undir það búnir að meðtaka
miðnæturhelgi Jónsmessunnar.
Jón Ásgeirsson
Verðlaun veitt í ljóða- og ritgerðasamkeppni
•I
« ttfl^ §‘ i,
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
VERÐLAUNAHAFARNIR komu víða að af landinu. Efri röð f.v.: Sólveig M. Kristinsdóttir, Þinghóls-
skóla, Bjarney Sigurðardóttir, Reykhólaskóla, Katrín Högnadóttir, Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar, Álf-
heiður Sigurðardóttir, Hólabrekkuskóla og Ólafía G. Erlendsdóttir, Hólabrekkuskóla. Neðri röð f.v.:
Kraki Ásmundsson og Rúnar Árdal, Brúarásskóla, Sigfús Harðarson, Gnúpverjaskóla, Styrmir Grét-
arsson og Björgvin R. Helgason, Grunnskólanum Hellu og Atli Þór Gunnarsson, Kirkjubæjarskóla.
Landgræðsla
erlífsnauðsyn
Ilellu. Morgunblaðið.
LANDGRÆÐSLA ríkisins í sam-
ráði við menntamálaráðuneytið
gekkst í vetur fyrir ljóða- og rit-
gerðasamkeppni meðal nemenda
í 7. bekk grunnskóla en Olís
styrkti samkeppnina fjárhags-
lega. SI. föstudag voru viðurkenn-
ingar veittar 11 nemendum í aðal-
stöðvum Landgræðslunnar í
Gunnarsholti á Rangárvöllum.
Við verðlaunaafhendinguna
kom fram að verkefninu var
hleypt af stokkunum í janúar und-
ir slagorðinu „Landgræðsla er
lífsnauðsyn“ en öllum grunnskól-
um á landinu var sent kynningar-
efni ásamt myndbandi. Þrátt fyrir
kennaraverkfall tóku um 200
nemendurfrá 40 grunnskólum
þátt í samkeppninni. í dómnefnd
áttu sæti Guðni Olgeirsson frá
menntamálaráðuneytinu, Andrés
Arnalds og Guðjón Magnússon frá
Landgræðslunni og Þórir Sig-
urðsson frá Olís. Að sögn Þóris
var dómnefndinni vandi á hönd-
um því nemendur höfðu margir
hverjir lagt á sig mikla vinnu
þegar þeir skrifuðu ljóð sín og
ritgerðir. Sagði hann það áber-
andi að bestu verkin hefðu já-
kvæðan boðskap sem sýndi von
þeirra og trú á framtíðina, land-
græðslu og landvernd og vissu
fyrir því að landgræðsla er lífs-
nauðsyn. Mörg ljóðin sýndu mikla
tilfinningu fyrir viðfangsefninu
og víða dregnar upp myndrænar
lýsingar tengdar eigin upplifun.
Einkenni á ritgerðunum hafi ver-
ið almenn góð þekking á land-
græðslu og umhverfisvernd og
að margir hafi mikinn áhuga fyr-
ir umbótum, en jafnframt lýst
áhyggjum sínum vegna gróður-
eyðingar og mengunar.
Við athöfnina á föstudag voru
verðlaun veitt fyrir sex ritgerðir
og fimm (jóð og fengu allir verð-
launahafarnir innrammað skjal
og bókina „Ströndin“ sem Mál og
menning gefur út. Tveir skólar
fengu sérstakar viðurkenningar
fyrir framúrskarandi þátttöku,
þ.e. Brúarásskóli að Brúarási og
Hólabrekkuskóli í Reykjavík.
„The green
tourist“
Sýning fyrir er-
lenda ferðamenn
NU standa yfir sýningar á
ensku á nýjum leikþætti með
tónlist fyrir erlenda ferða-
menn í Kaffileikhúsinu, Hlað-
varpanum.
Höfundar og flytjendur
eru tveir, þeir Guðni Franz-
son tónlistarmaður og Þór
Túliníus leikari. Leikurinn
fjallar um tvo karlmenn á
besta aldri sem voru nánir
vinir í æsku, en hafa farið
ólíkar leiðir í lífinu. Eftir 25
ár hittast þeir fyrir tilviljun
og taka tal saman og rifja
upp það sem á daga þeirra
hefur drifið.
Lifandi tónlist
Inn í samræðurnar fléttast
lifandi tónlist úr fortíð og
nútíð og hljóðfærasláttur.
Leikurinn verður sýndur alla
daga kl. 16 og stendur í tæp-
an klukkutíma.
MORGUNBLAÐIÐ
MYNDIN er úr bók Caspars
Bartholin (1585-1629), Inst-
itvtiones Anntomicæ, sem
prentuð var í Leiden árið 1645.
Sýning
helguð Jóni
Steffensen
í TILEFNI af 15. norræna þinginu
um sögu læknisfræðinnar, sem
fram fer í Reykjavík dagana
21.-24. júní, eru nú til sýnis í Þjóð-
arbókhlöðu bækur og aðrir munir
úr fórum Jóns Steffensen, prófess-
ors í læknisfræði, en hann lést
árið 1991.
Eins og kunnugt er arfleiddi Jón
Steffensen Háskólabókasafn að
bókum sínum ásamt húseign að
Aragötu 3. Öðrum eigum sínum
ráðstafaði Jón til lækningaminja-
safnsins í Nesstofu. Bækur Jóns
Steffensen hafa_ nú verið fluttar í
Landsbókasafn íslands - Háskóla-
bókasafn í Þjóðarbókhlöðu og í
virðingarskyni við gefandann er
nú efnt til sýningar á ritum úr
safni hans, svo og nokkrum lækn-
ingatækjum sem fengin eru úr
Nesstofusafni.
Sýningin er opin á sama tíma
og bókasafnið, virka daga kl. 9-17
og laugardaga kl. 13-17. Veitinga-
stofa safnsins er opin á sama tíma.
VERK eftlr Pirkko
Finnsk
listakona
sýnir í Úmbru
FINNSKA listakonan Pirkko Rant-
atorikka opnar málverkasýningu í
Gallerí Úmbru í Bernhöftstorfu í
dag fimmtudag kl. 15-17.
Pirkko er fædd árið 1956 en býr
nú og starfar í Helsinki. Hún nam
við listaakademíuna í Helsinki og
hefur haldið fjölda einkasýninga og
tekið þátt í mörgum samsýningum.
Verkin á sýningunni eru unnin
á handgerðan pappír. Listakonan
hefur eftirfarandi um þau að segja:
„Myndröð mín er byggð á miðalda-
tréristum annars vegar og hins
vegar á tækjum og tólum frá þess-
ari öld. Þemað er handverkið og
hin daglegu störf.“
Sýningin verður opin þriðjudaga
til laugardaga kl. 13-18 og sunnu-
daga kl. 14-18. Henni lýkur 11.
júlí.