Morgunblaðið - 22.06.1995, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ____________________________________________________________FIMMTUDAGUR22. JÚNÍ 1995 25
AÐSENDAR GREINAR
Getur prófastofnun bætt
framhaldsskólann og nýtt
skattpeningana betur?
ÞAÐ er ákaflega mikilvægt að
leita stöðugt nýrra leiða sem geta
aukið hagkvæmni, stuðlað að fram-
förum, bætt gæði og nýtt betur fjár-
muni skattborgaranna. Þetta á við
hvort heldur viðfangsefnið er fram-
leiðsla eða þjónusta. Vissulega getur
aukið fjármagn sem varið er til
kennslumála bætt menntunina sé
fjármagninu ráðstafað yfirvegað og
með framleiðniaukandi markmiðum.
Það er hinsvegar mikiil misskilning-
ur að unnt sé að setja jafnaðarmerki
í milli aukins fjármagns til kennslu
og gæða kennslunnar ef annað kem-
ur ekki til.
Nýting kennsluársins í framhalds-
skóla er eitt af því sem almennur
skattborgari veltir fyrir sér og það
er erfitt að skýra út fyrir honum að
ekki skuli nýtast nema 25 til 26 vik-
ur til kennslu á kennsluári sem talið
er 9 mánuðir. Vissulega eru kennar-
ar og stjórnendur skólanna að störf-
um að ýmsum málum svo sem margs
konar undirbúnings- og skiplags-
vinnu í skólum, prófahaldi og úr-
vinnslu prófa en sú skýring er ekki
fullnægjandi, því það svarar ekki því
hvort annað og betra skipulag sé til
sem getur skilað meiri framleiðni
en núverandi fyirkomulag. Þróun
tekur aldrei enda og því hlýtur að
vera til leið sem skilar betri ár-
angri. Sú leið þarf ekki endilega að
vera í sama farvegi og frændþjóðir
okkar hafa fetað enda ástæðulaust
að þjást svo af minnimáttarkend
gagnvart þeim að verða frumkvæðis-
laus í eigin umhverfi.
Þetta fyrirkomulag hefur haldist
nokkuð lengi og lítið breyst, þrátt
fyrir að hvarvetna í þjóðlífinu hefur
þróunin verið á stöðugu framskriði.
Kröfur til arðsemi fyrirtækja hefur
aukist og um leið hefur viðhorf
þeirra til skammtíma óþjálfaðs
vinnuafls breyst og heldur áfram að
breytast. Nýjum leiðum til að til-
einka sér þekkingu og hæfni fjölgar
stöðugt með vaxandi upplýsinga-
tækni. Sjálfsnám er auðveldara en
nokkru sinni fyrr fyrir agaða ein-
staklinga og í slíku námi er unnt
með takmarkaðri leiðsögn, t.d.
einkaaðila, að afla þekkingar og
hæfni á víðtækum sviðum, sem er
síst lakari en skólar veita. Þessir
möguleikar eru ekki hvað síst mikil-
vægir fyrir það fólk sem býr í dreifð-
um byggðum og hefur
þurft að kosta miklu til
við að sækja skóla í fjar-
lægar sveitir.
Það er vissulega
ástæða til að setja fram
hugmyndir og að skoða
rækilega hvort unnt sé að
auka kennslunýtinguna,
að veita virkara aðhald
að traustu þekkingar- og
hæfnismati og að opna
leið tii að virkja kosti upp-
lýsingatækninnar sem
kennslumiðils.
Námsmati á þekkingu
og hæfni má skipta í tvo
meginflokka. í fyrsta lagi
er það mat á þekkingu
nemanda til að flytjast á
milli áfanga og í öðru lagi mat á
þekkingu sem telst lokaáfangi til
starfs eða framhaldsnáms. Mat á
þekkingu til að flytjast á milli áfanga
má framkvæma með símati, í stað
prófa, á námsönnini og nái nemana-
inn tilskildu námsmati flyst hann á
milli áfanga, Mat á lokaáfanga má
hinsvegar fela prófastofnun, sem
vinnur prófagerðina í samvinnu við
aðila atvinnulífsins þegar um starfs-
nám er að ræða og í samvinnu við
háskóla og aðra viðtökuskóla þegar
um er að ræða almennt framhalds-
skólanám eða listnám sem telst und-
irbúningsnám í öðrum skólum svo
sem á háskólastigi.
Til þess að nýta skólaárið til
kennslu má fela sjálfstæðri prófa-
stofnun að semja próf, skipuleggja
prófatíma utan við kennsluárið og
annast úrvinnslu úrlausna. Ávinn-
ingur af því fyrirkomulagi að fela
sjálfstæðri prófastofnun að annast
mat á lokaáföngum er margvíslegur
og skulu hér rakin nokkur ávinnings-
atriði sem vert væri að skoða:
1. Kennsluárið mun nýtast mun
betur og unnt að færa það úr
25 kenndum vikum í 33 kenndar
vikur miðað við níumánaða skóla.
2. Á þremur skólaárum vinnast
við þetta fyrirkomulag 24 kennd-
ar vikur og því mögulegt að
breyta fjögurra ára námsbraut-
um í þriggja ára námsbrautir og
er það mikill ávinningur fyrir
nemendur og skattborgara.
3. Ljóst er að mikill sparnaður
hlytist af þessari framkvæmd og
yrði þá unnt að beina
fjármagni til van-
ræktra áhersluatriða
svo sem skólabóka-
safna á sviði tækni,
hönnunar og mark-
aðsmála, hagnýtingu
á boð- og upplýs-
ingatækni, arðsamri
endur- og eftir-
menntun svo og til
annarra framleiðni-
aukandi aðgerða í
skólakerfinu.
4. Auðvelt væri að
halda uppi virku
gæðaeftirliti og
hæfnismati bæði
hvað varðar nem-
endur og kennslu-
stofnanir.
5. Samkeppni milli kennslu-
stofnana myndi aukast og svig-
rúm myndast fyrir einkaskóla og
sjálfstæða leiðbeinendur á
kennslumarkaðnum. Þetta myndi
skapa aðhald fyrir ríkisreknar
stofnanir og hvatningu til að
halda uppi þjónustu, gæðum og
famleiðni sem að mati neytend-
anna, það er nemendanna og
atvinnutífs, væri talin arðsöm
fyrir þá.
6. Fjarkennsla og upplýsingar-
tækni fengju aukið vægi og sjálf-
stæðir og agaðir einstaklingar
gætu nýtt sér þá tækni og feng-
ið viðurkenningu á tileinkaðri
þekkingu og hæfni með því að
gangast undir próf hjá prófa-
stofnun.
7. Verkaskipting milli skilgrein-
ingaraðila, framkvæmdaraðila
og eftirlitsaðila kennslumála yrði
skýrari og eðlileg þrískipting
verkefnisins kæmist á sem gæti
örvað samkeppni, sem ávalt er
nauðsynleg til að efla framfarir.
Þannig myndu:
8. Aðilar atvinnulífsins einbeita
sér að skilgreinu á þekkingar-
og hæfnisþáttum starfsgreina
sinna og gæðastaðli sem prófa-
stofnanir ynnu úr og beina orku
sinni að stöðugri endurskoðun
þekkingarþátta og aðlöguii að
breytingum og þróun,
9. Kennslustofnanir einbeita sér
Steinar
Steinsson
Helgi Hálfdánarson
Kvenfrelsi
NÝLEGA setti ég á flot
greinarstúf þar sem ég mælti
eindregið gegn þeirri kenningu
sumra kvenna, að í sem flest
störf skuli skipað sem næst að
jöfnu konum og körlum. Þessa
stefnu kallaði ég firru, enda
virtist hún andstæð viðhorfi
flestra kvenna.
Hins vegar tel ég þjóðfélags-
lega nauðsyn að skapa konum
skilyrði til að ráða því sjálfar,
án tillits til efnahags eða fjölda-
kvóta, að hve miklu leyti þær
kjósa að starfa utan heimilis.
Það kallað ég heilbrigt kven-
eðli, enda í samræmi við náttúr-
legar staðreyndir, að láta um-
hyggju fyrir börnum og búi
ganga fyrir öðru eftir aðstæð-
um.
Tvær ungar og vaskar kon-
ur, Jóhanna Vilhjálmsdóttir og
Kolfinna Baldvinsdóttir, svör-
uðu þessu og þótti mér þar ráða
ferðinni sá misskilningur, að ég
væri andvígur jafnrétti kvenna
og karla, enda virtist Kolfinna
sjá í mér dágott efni í fasista.
Þennan fráleita misskilning
leiðrétti ég, og ráðlagði þeim
stöllum að lesa grein mína aftur
og þá betur, og skrifa síðan
aðra svargrein, þar sem mér
yrði að líkindum þakkað vel
fyrir að leggja lið sönnu kven-
frelsi.
Þetta hafa þær góðu heilli
gert, skrifað nýja grein í Morg-
unblaðið 20. þ.m. þar sem allar
grunsemdir um fasisma eru úr
sögunni. Og þó að þær hafi
ekki enn sagt skilið við þau
sjónarmið sem ég kallaði öfgar,
þá er grein þeirra skrifuð af
þeirri góðu háttvísi að vitna
rækilega í flest af því sem
mestu varðar í mínum skrifum,
svo að til þess get ég enn leyft
mér að vísa. Þennan drengilega
málflutning þakka ég mjög vel;
og enda þótt þakklætið sé ekki
svo gagnkvæmt sem skyldi,
ætti enginn að láta sér bregða
þó að „laun heimsins“ séu löng-
um söm við sig.
QPG^7*elfH
GÖTURENNUR
Göturennur eru nauðsyn þar
sem vatnselgs er von, t.d. á
bflastæðum, við bflskúra, á
^ VA TNSVIRKINN HF
SSS Ármúla 21 S.533-2020
að kennslunni og því verkefni að
þróa betri aðferðir til kennslu og
þjálfunar sem skila betri árangri
á skemmri tíma en stæðust samt
strangt mat prófastofnunar,
10. Prófastofnanir skipuleggja
próf sem væru tímasett minnst
tvö ár fram í tímann. Með próf-
unum er sannreynd þekking og
hæfni nemenda í samræmi við
uppgefna staðla og forskriftir og
lagt mat á árangur bæði nem-
enda og kennslustofnana. Mat á
kennslustofnunum er ákaflega
mikilvægt því það gefur vísbend-
ingu um hæfni stjórnenda.
11. Viðtökuskólar nemenda
framhaldsskólans þyrftu að skil-
greina og rökstyðja betur en nú
er gert þá undirbúningsþekkingu
sem eðlilegt væri að nýnemar
hefðu vald á við upphaf náms.
Við vandaða skoðun slíkra þátta
Ávinningnr af því að
fela sjálfstæðri prófa-
stofnun að annast
mat á lokaáföngum
er margvíslegur, segir
Steinar Steinsson,
sem hér ræðir nýjar
leiðir til hagkvæmni
og framfara.
er öruggt að núverandi aldagam-
alt fyrirkomulag myndi riðlast,
enda kominn tími til, og verkleg-
ir námsþættir fengju hærri sess
en nú er og kæmu til með að
vega þungt í grunni að inntöku-
skilyrðum fjölda skóla og náms-
brauta.
12. Nemendur eru í flestum til-
vikum víðsýnni en grónir borg-
arar sem æði margir hafa
íhaldssamar og úreltar hug-
myndir um stéttaskipun. Það er
því fengur að því að veita nem-
endunum meira valfrelsi við sam-
setningu námseininga sem myndi
vafalaust í auknum mæli móta
þverfaglegt starfsnám sem mikil
þörf er fyrir í nútíma samfélögum
og er líklegt til að leiða til nýrra
atvinnutækifæra og öflugri sókn-
ar í nýsköpun í atvinnulífinu.
13. Fækka mætti stórlega
starfsfólki í ráðuneyti kennslu-
mála þar sem í skynsamlegu og
þrískiptu skipulagi felst virkt og
vandað eftirlit með virkni og
gæðum skólastarfsins.
Sjálfstæði prófastofnana og
fjármögnun
Nauðsynlegt er að prófastofnun
sé sjálfstæð og því ekki ríkisrekin
og ennfremur að prófstofnanir væru
að minnsta kosti tvær svo unnt
væri að tryggja eðlilega samkeppni
í rekstrar- og gæðamálum. Tengsl
prófastofnana við avinnulíf og skóla
myndu byggjast á verksamningum
'varðandi prófagerð sem væri byggð
á verklýsingum og stöðlum svo og
verktöku við framkvæmd og úr-
vinnslu prófa.
Fjármögnun prófastofnanna væri
fengin með prófgjöldum sem skólar,
fyrirtæki og einstaklingar greiddu
eftir ákveðnum reglum t.d. eftirfar-
andi:
1. Sé það mat skóla að nemandi
sé tilbúinn að ganga undir próf
innritar skólinn nemandann og
greiðir gjald fyrir. Ákvörðunin
er byggð á þekkingarmati óháð
lengd skólagöngu.
2. Sé það mat skóla að nemandi
hafi ekki fullnægjandi kunnáttu
til að standast próf og neitar af
þeirri ástæðu að innrita hann
getur nemandi, telji hann mat
skólans rangt, innritað sig sjálfur
og greiðir þá sjálfur prófgjöldin.
3. Atvinnurekendur sem hafa
nemendur á sínum vegum innrita
þá til prófs er þeir meta þekkingu
og hæfni nemandans fullnægj-
andi til að standast prófið og er
matið óháð tímalengd og greiða
þá tilskilin prófgjöld.
4. Einstaklingur sem hefur aflað
sér þekkingar með reynslu og
sjálfsnámi getur innritað sig til
prófs og greiðir sjálfur prófgjöld.
5. Prófgjöld skal hafa það há
að próftakar innriti sig ekki til
prófs nema þeim sé ljóst að þeir
séu vel undir prófið búnir.
6. Helmingur prófgjalda allra
þeirra nemenda sem standast
próf verða endurgreidd viðkom-
andi greiðendum en prófgjöld
þeirra sem ekki stóðust prófið
verða hinsvegar ekki endur-
greidd.
7. Nemandi í skóla sem neitaði
að innrita hann en stóðst hins-
vegar prófið fær endurgreiddan
helming prófgjaldsins frá skól-
anum.
Höfundur er fyrverandi
skólameistari Iðnskólans í
Hafnarfirði.
ÞESSAR GRÆNU GOÐU
GARÐSLATTUVELAR
Reykjavík: Armúla 11 - Símí 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - Sími 461-1070