Morgunblaðið - 22.06.1995, Page 52

Morgunblaðið - 22.06.1995, Page 52
Thn%HEWLETT mLHM PACKARD HP Vcctra OPIN KERFI HF Siml:7>67ÍÖÖ0 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100. SÍMBRÉF 560 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL<S>CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Sáttasemjari um álversdeiluna Þrátefli og staðan föst AUKINNAR svartsýni gætir nú hjá viðsemjendum í álversdeilunni en enginn árangur varð á viðræðufundi sem lauk kl. 3 í fyrrinótt. Um miðjan dag í gær ræddi ríkis- sáttasemjari við forsvarsmenn samninganefndanna á stuttum fundi og ákvað síðdegis að boða fullskipaðar samninganefndir til nýs viðræðufundar kl. 15 í dag. Einn viðmælenda úr hópi samninga- manna sagði að samningaviðræð- urnar væru aftur komnar á byrjun- arreit. Starfsemi álversins stöðvast á miðnætti annað kvöld hafi samn- ingar ekki náðst. Að sögn Þóris Einarssonar ríkis- sáttasemjara hefur engin hreyfing orðið í viðræðunum að undanfömu. „Það er þrátefli komið upp og föst staða,“ sagði hann. Aðspurður sagði Þórir að ekki stæði til á þessari stundu að leggja fram formlega miðlunartillögu til lausnar deilunni. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri. VSÍ, sagði að ágreiningur um launamálin stæði óbreyttur. „Þessu verður að ljúka með samningi," sagði hann. Deilt er um skipulagsmál og um kröfu stéttarfélaganna um hækkun launaflokka vegna hlutdeiidar starfsmanna í hagræðingu, sem átt hefur sér stað í fyrirtækinu. Gylfi Ingvarsson, aðaltrúnaðar- maður starfsmanna, átti í gær fund með starfsmönnum í álverinu og sagði þá hafa lýst yfir að þeir stæðu heilshugar að baki samninganefnd- inni og ætluðu að fjölmenna í hús- næði sáttasemjara síðdegis í dag. Hann sagði að starfsmenn væru mjög ákveðnir í þessari deilu því þeir teldu að ekki hefði verið staðið við fyrirheit sem stjórnendur ÍSAL hefðu gefið um greiðslur fýrir aukna hagkvæmni í rekstri. Verkfall stöðvað með lögum 20 mín. fyrir lokun 1988 í kjaradeilum í álverinu á undan- förnum árum hefur verkfalli starfs- manna tvívegis verið aflétt innan sólarhrings áður en koma átti til lok- unar álversins. Árið 1988 hófst verk- fall í álverinu 7. maí og átti fram- leiðsla að stöðvast á miðnætti 20. maí. Ríkisstjómin aflétti verkfallinu með setningu bráðabirgðalaga sem tóku gildi laust fyrir miðnætti 20. maí. Þá höfðu viðræður deiluaðila staðið yfir hjá sáttasemjara til ki. 23.40. Árið 1984 hófst verkfall í álVerinu 27. janúar en þá tókust samningar rúmlega hálfum sólarhring áður en til lokunar átti að koma. Þá var undirbúningstíminn fyrir stöðvun framleiðslunnar 4 vikur í stað tveggja vikna nú. I verkfalli sem hófst 31. mars 1990 lagði sáttassemjari fram miðl- unartillögu fjórum dögum fyrir lok- un álversins og var hún samþykkt 10. apríl, þremur sólarhringum áður en álframleiðsla átti að stöðvast. Morgunblaðið/Þorkell BJÖRGUNARSVEITARMENN frá Fiskakletti unnu fram eftir kvöldi að því að ná skútunni upp. Það tókst á endanum. Skútu og níu skip- veijum bjargað SEGLSKÚTA á vegum siglinga- klúbbsins Þyts með níu manns inn- anborðs sökk í Hafnarfjarðarhöfn um kl. 19 í gær. Engan sakaði þar sem trilla kom fljótt að skútunni og náði mönnunum um borð. Nokkuð hvasst var í gær, 6-7 vindstig og ókyrrð í höfninni. Allir sem voru um borð lentu í sjónum þegar skútan sökk. Þeir voru í björgunarvestum. Margir horfðu á skútuna sökkva og því barst hjálp fljótt. Ekki er talið að siglingamenn- irnir hafi verið í mikilli hættu. í gærkvöldi tókst að ná skútunni á flot á ný, en hún er 26 feta löng. Um helgina strandaði sama skúta úti fýrir Álftanesi og varð að kalla menn úr björgunarsveitinni Fiska- kletti henni til aðstoðar. í gær strand- aði trilla á þessum sömu slóðum. ■ Trilla strandaði/5 -----*—*—*---- Hærri í ensku en íslensku MEÐALEINKUNN lækkaði talsvert í íslensku á samræmdu prófunum miðað við síðustu ár, en hins vegar hækkaði einkunnin í ensku. I íslensku lækkaði einkunnin úr 6,4 á síðasta ári í 5,3, en í ensku hækkaði einkunnin úr 6,5 í 7,4. ■ Lægri meðaleinkunn/6 Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna íhugar kaup á stóru fyrirtæki í Færeyjum SH ræðir við lánardrottna Föroya Fiskasölunnar Staða lektors í HÍ auglýst á Interneti Héldu að prentvilla væri í launataxta BORIÐ hefur á því að um- sækjendur um stöðu lektors í enskri nútímatungu, þar af nokkrir útlendingar, hafi dregið umsóknir sínar til baka þegar þeim varð ljóst hver byijunarlaun lektors í heim- spekideild eru. Að sögn Péturs Knútssonar, formanns ensku- skorar í.HÍ, verða greidd at- kvæði um umsækjendur á mánudag. Alls sóttu 24 um stöðuna og þar af voru fjónr taldir vel hæfir og koma til greina í stöð- una. 12 umsækjendur voru taldir hæfír með fyrirvara. Af þeim sem dómnefndin taldi hæfasta hafa þrír dregið um- sóknir sínar til baka. Auglýsing um stöðuna var m.a. send í gegnum Intemetið í nóvember sl. á svokallaðan málfræðingalista. „Það komu strax til baka athugasemdir, frá tveimur aðilum að minnsta kosti, um að það hlyti að vera prentvilla í launataxtanum. Þeir trúðu því ekki að þetta væru launin," sagði Pétur. STJÓRNENDUR Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, Friðrik Pálsson forstjóri og Jón Ingvarsson stjórnar- formaður, áttu í fyrradag viðræður í Kaupmannahöfn við lánardrottna Föroya Fiskasölunnar um kaup SH á fyrirtækinu. Engin niðurstaða varð á fundin- um, en það mun ráðast fljótlega hvort framhald verður á viðræðun- um. Friðrik Pálsson vildi ekkert segja um málið að öðru leyti en því að hann hefði verið í Kaupmannahöfn í viðskiptaerindum. Morgunblaðið hefur öruggar heimildir fyrir því að viðræður SH og lánardrottna Föroya Fiskasölunnar hafí farið fram að frumkvæði viðskiptabanka Fiskasölunnar og að rætt hafi verið um kaup SH á fyrirtækinu í heild eða að hluta. Náið samstarf fyrir- tækjanna var einnig til skoðunar. Gjaldþrot vofir yfir Föroya Fiskasalan á í miklum rekstrarerfiðleikum. Helstu lánar- drottnar fyrirtækisins, Den Danske Bank, Hambros Bank í Englandi og Föroya Banki, tilkynntu fyrir skömmu að þeir treystu sér ekki til að ijármagna reksturinn lengur. Undanfarið hafa stjómendur fyrir- tækisins, lánardrottnar þess og stjómmálamenn í Færeyjum leitað allra leiða til að bjarga fyrirtækinu frá gjaldþroti, en gjaldþrot þess yrði gífurlegt áfall fyrir færeyskt at- vinnulíf. í því er saman komin nær öll sölustarfsemi og markaðsþekk- ing sem Færeyingar búa yfir. SH hefur í gegnum árin átt gott samstarf við Föroya Fiskasöluna. SH seldi um tíma allan físk fyrir Færeyinga á Bandaríkjamarkaði og selur enn mikinn físk fyrir þá í Bandaríkjunum. Það selur einnig fisk fyrir færeysk frystiskip til Asíu. Föroya Fiskasalan á dótturfyrir- tæki í Grimsby, sem er með um 300 manns í vinnu. Meðal þess sem rætt hefur verið til lausnar fjár- hagsvanda fyrirtækisins er að selja dótturfyrirtækið, en við það mun Föroya Fiskasalan missa mikil- væga tengingu við Evrópusam- bandið. Lengi hefur verið rætt um samstarf dótturfyrirtækis SH í Grimsby og dótturfyrirtækis Föroya Fiskasölunnar. TVIBURARNIR sem nú starfa í Gullvík í Grinda- vík. Talið f.v. Heimir Hafsteins- son, Hrund Ottós- dóttir, Marylin Schade, Ólöf og Margrét Péturs- dætur, Rakel og Hrefna Sigurðar- dætur, Hulda og Eygló Péturs- dætur. Morgvnblaðið/Frímann Óiafsson Þrennir tvíburar Grindavík, Morgunbiaðið ÞAÐ ER sjálfsagt algengt að tvíburar vinni á sama vinnustað og jafnvel tvenn- ir tvíburar. f Gullvík í Grindavík gera þeir gott betur því þar vinna þrennir tvíburar í humri á vertíðinni og eru allir búsettir í Grindavík! Þar að auki eru þrír starfsmenn sem allir eiga tví- burasystkin og eru búsettir í Grindavík. Fyrir nokkrum árum voru 16 tvíburar í bænum og ekki er vitað til þess að þeir séu færri núna. .

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.