Morgunblaðið - 22.06.1995, Qupperneq 52
Thn%HEWLETT
mLHM PACKARD
HP Vcctra
OPIN KERFI HF
Siml:7>67ÍÖÖ0
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100. SÍMBRÉF 560 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL<S>CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Sáttasemjari um álversdeiluna
Þrátefli og
staðan föst
AUKINNAR svartsýni gætir nú hjá
viðsemjendum í álversdeilunni en
enginn árangur varð á viðræðufundi
sem lauk kl. 3 í fyrrinótt.
Um miðjan dag í gær ræddi ríkis-
sáttasemjari við forsvarsmenn
samninganefndanna á stuttum
fundi og ákvað síðdegis að boða
fullskipaðar samninganefndir til
nýs viðræðufundar kl. 15 í dag.
Einn viðmælenda úr hópi samninga-
manna sagði að samningaviðræð-
urnar væru aftur komnar á byrjun-
arreit. Starfsemi álversins stöðvast
á miðnætti annað kvöld hafi samn-
ingar ekki náðst.
Að sögn Þóris Einarssonar ríkis-
sáttasemjara hefur engin hreyfing
orðið í viðræðunum að undanfömu.
„Það er þrátefli komið upp og föst
staða,“ sagði hann. Aðspurður sagði
Þórir að ekki stæði til á þessari
stundu að leggja fram formlega
miðlunartillögu til lausnar deilunni.
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri. VSÍ, sagði að
ágreiningur um launamálin stæði
óbreyttur. „Þessu verður að ljúka
með samningi," sagði hann.
Deilt er um skipulagsmál og um
kröfu stéttarfélaganna um hækkun
launaflokka vegna hlutdeiidar
starfsmanna í hagræðingu, sem átt
hefur sér stað í fyrirtækinu.
Gylfi Ingvarsson, aðaltrúnaðar-
maður starfsmanna, átti í gær fund
með starfsmönnum í álverinu og
sagði þá hafa lýst yfir að þeir stæðu
heilshugar að baki samninganefnd-
inni og ætluðu að fjölmenna í hús-
næði sáttasemjara síðdegis í dag.
Hann sagði að starfsmenn væru
mjög ákveðnir í þessari deilu því
þeir teldu að ekki hefði verið staðið
við fyrirheit sem stjórnendur ÍSAL
hefðu gefið um greiðslur fýrir aukna
hagkvæmni í rekstri.
Verkfall stöðvað með lögum
20 mín. fyrir lokun 1988
í kjaradeilum í álverinu á undan-
förnum árum hefur verkfalli starfs-
manna tvívegis verið aflétt innan
sólarhrings áður en koma átti til lok-
unar álversins. Árið 1988 hófst verk-
fall í álverinu 7. maí og átti fram-
leiðsla að stöðvast á miðnætti 20.
maí. Ríkisstjómin aflétti verkfallinu
með setningu bráðabirgðalaga sem
tóku gildi laust fyrir miðnætti 20.
maí. Þá höfðu viðræður deiluaðila
staðið yfir hjá sáttasemjara til ki.
23.40.
Árið 1984 hófst verkfall í álVerinu
27. janúar en þá tókust samningar
rúmlega hálfum sólarhring áður en
til lokunar átti að koma. Þá var
undirbúningstíminn fyrir stöðvun
framleiðslunnar 4 vikur í stað
tveggja vikna nú.
I verkfalli sem hófst 31. mars
1990 lagði sáttassemjari fram miðl-
unartillögu fjórum dögum fyrir lok-
un álversins og var hún samþykkt
10. apríl, þremur sólarhringum áður
en álframleiðsla átti að stöðvast.
Morgunblaðið/Þorkell
BJÖRGUNARSVEITARMENN frá Fiskakletti unnu fram eftir
kvöldi að því að ná skútunni upp. Það tókst á endanum.
Skútu og
níu skip-
veijum
bjargað
SEGLSKÚTA á vegum siglinga-
klúbbsins Þyts með níu manns inn-
anborðs sökk í Hafnarfjarðarhöfn
um kl. 19 í gær. Engan sakaði þar
sem trilla kom fljótt að skútunni og
náði mönnunum um borð. Nokkuð
hvasst var í gær, 6-7 vindstig og
ókyrrð í höfninni.
Allir sem voru um borð lentu í
sjónum þegar skútan sökk. Þeir voru
í björgunarvestum. Margir horfðu á
skútuna sökkva og því barst hjálp
fljótt. Ekki er talið að siglingamenn-
irnir hafi verið í mikilli hættu.
í gærkvöldi tókst að ná skútunni
á flot á ný, en hún er 26 feta löng.
Um helgina strandaði sama skúta
úti fýrir Álftanesi og varð að kalla
menn úr björgunarsveitinni Fiska-
kletti henni til aðstoðar. í gær strand-
aði trilla á þessum sömu slóðum.
■ Trilla strandaði/5
-----*—*—*----
Hærri í ensku
en íslensku
MEÐALEINKUNN lækkaði talsvert
í íslensku á samræmdu prófunum
miðað við síðustu ár, en hins vegar
hækkaði einkunnin í ensku.
I íslensku lækkaði einkunnin úr
6,4 á síðasta ári í 5,3, en í ensku
hækkaði einkunnin úr 6,5 í 7,4.
■ Lægri meðaleinkunn/6
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna íhugar kaup á stóru fyrirtæki í Færeyjum
SH ræðir við lánardrottna
Föroya Fiskasölunnar
Staða lektors í HÍ
auglýst á Interneti
Héldu að
prentvilla
væri í
launataxta
BORIÐ hefur á því að um-
sækjendur um stöðu lektors í
enskri nútímatungu, þar af
nokkrir útlendingar, hafi
dregið umsóknir sínar til baka
þegar þeim varð ljóst hver
byijunarlaun lektors í heim-
spekideild eru. Að sögn Péturs
Knútssonar, formanns ensku-
skorar í.HÍ, verða greidd at-
kvæði um umsækjendur á
mánudag.
Alls sóttu 24 um stöðuna
og þar af voru fjónr taldir vel
hæfir og koma til greina í stöð-
una. 12 umsækjendur voru
taldir hæfír með fyrirvara. Af
þeim sem dómnefndin taldi
hæfasta hafa þrír dregið um-
sóknir sínar til baka.
Auglýsing um stöðuna var
m.a. send í gegnum Intemetið
í nóvember sl. á svokallaðan
málfræðingalista. „Það komu
strax til baka athugasemdir,
frá tveimur aðilum að minnsta
kosti, um að það hlyti að vera
prentvilla í launataxtanum.
Þeir trúðu því ekki að þetta
væru launin," sagði Pétur.
STJÓRNENDUR Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna, Friðrik Pálsson
forstjóri og Jón Ingvarsson stjórnar-
formaður, áttu í fyrradag viðræður
í Kaupmannahöfn við lánardrottna
Föroya Fiskasölunnar um kaup SH
á fyrirtækinu.
Engin niðurstaða varð á fundin-
um, en það mun ráðast fljótlega
hvort framhald verður á viðræðun-
um.
Friðrik Pálsson vildi ekkert segja
um málið að öðru leyti en því að
hann hefði verið í Kaupmannahöfn
í viðskiptaerindum. Morgunblaðið
hefur öruggar heimildir fyrir því að
viðræður SH og lánardrottna
Föroya Fiskasölunnar hafí farið
fram að frumkvæði viðskiptabanka
Fiskasölunnar og að rætt hafi verið
um kaup SH á fyrirtækinu í heild
eða að hluta. Náið samstarf fyrir-
tækjanna var einnig til skoðunar.
Gjaldþrot vofir yfir
Föroya Fiskasalan á í miklum
rekstrarerfiðleikum. Helstu lánar-
drottnar fyrirtækisins, Den Danske
Bank, Hambros Bank í Englandi og
Föroya Banki, tilkynntu fyrir
skömmu að þeir treystu sér ekki til
að ijármagna reksturinn lengur.
Undanfarið hafa stjómendur fyrir-
tækisins, lánardrottnar þess og
stjómmálamenn í Færeyjum leitað
allra leiða til að bjarga fyrirtækinu
frá gjaldþroti, en gjaldþrot þess yrði
gífurlegt áfall fyrir færeyskt at-
vinnulíf. í því er saman komin nær
öll sölustarfsemi og markaðsþekk-
ing sem Færeyingar búa yfir.
SH hefur í gegnum árin átt gott
samstarf við Föroya Fiskasöluna.
SH seldi um tíma allan físk fyrir
Færeyinga á Bandaríkjamarkaði og
selur enn mikinn físk fyrir þá í
Bandaríkjunum. Það selur einnig
fisk fyrir færeysk frystiskip til Asíu.
Föroya Fiskasalan á dótturfyrir-
tæki í Grimsby, sem er með um
300 manns í vinnu. Meðal þess sem
rætt hefur verið til lausnar fjár-
hagsvanda fyrirtækisins er að selja
dótturfyrirtækið, en við það mun
Föroya Fiskasalan missa mikil-
væga tengingu við Evrópusam-
bandið. Lengi hefur verið rætt um
samstarf dótturfyrirtækis SH í
Grimsby og dótturfyrirtækis
Föroya Fiskasölunnar.
TVIBURARNIR
sem nú starfa í
Gullvík í Grinda-
vík. Talið f.v.
Heimir Hafsteins-
son, Hrund Ottós-
dóttir, Marylin
Schade, Ólöf og
Margrét Péturs-
dætur, Rakel og
Hrefna Sigurðar-
dætur, Hulda og
Eygló Péturs-
dætur.
Morgvnblaðið/Frímann Óiafsson
Þrennir tvíburar
Grindavík, Morgunbiaðið
ÞAÐ ER sjálfsagt algengt að tvíburar
vinni á sama vinnustað og jafnvel tvenn-
ir tvíburar. f Gullvík í Grindavík gera
þeir gott betur því þar vinna þrennir
tvíburar í humri á vertíðinni og eru
allir búsettir í Grindavík! Þar að auki
eru þrír starfsmenn sem allir eiga tví-
burasystkin og eru búsettir í Grindavík.
Fyrir nokkrum árum voru 16 tvíburar
í bænum og ekki er vitað til þess að
þeir séu færri núna. .