Morgunblaðið - 01.07.1995, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 01.07.1995, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995 5 FRÉTTIR ’■ : v /áv' i . v' / yjta * - /l': ffl Björk á „topp 40“ BREIÐSKÍFA Bjarkar Guðmunds- dóttur, Post, fór beint í 32. sæti bandaríska vinsældalistans sem bii-tur er í Billboard tímaritinu, 1. júlí útgáfunni. Þetta er það hæsta sem íslenskur listamaður hefur náð. Plata Bjarkar hefur fengið góða dóma í bandarískum blöðum og þannig er í þessu sama hefti Bill- board dómur þar sem segir meðal annars að lög plötunnar séu ævin- týraleg, en um leið aðgengileg. í lok dómsins segir að Björk sé listamað- ur „með að því er virðist óþjótandi sköpunargáfu“. Billboard er helsta tímarit bandaríska tónlistariðnaðar- ins og þar birtast jafnan allir vin- sældalistar vestan hafs. Fyrsta breiðskífa Sykurmolanna, Life’s too Good, náði inn á „topp 60“ á bandaríska listanum á sínum tíma, en þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur iistamaður nær inn á „topp 40“ vestan hafs og töluvert betri árangur en Björk náði með fyrstu plötu sinni, Debut. Ekki er ljóst hve mikið sala hefur fleytt plötunni þetta hátt á lista, en sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins skiptir hún tugþúsundum eintaka. Gróðursett í Vinaskógi AÐALFUNDI Norræna garð- yrkju sambandsins sem haldinn var hér á landi lauk í gær. For- menn aðildarfélaganna á Norð- urlöndum ásamt nokkrum full- trúum komu við í Vinaskógi og gróðursettu formennirnir eitt tré fyrir hönd síns félags. Esko Murto frá Finnlandi, Bengt Hen- riksson frá Svíþjóð, Harald Olav Aksnes frá Noregi, Kjartan 01- afsson formaður Sambands garð- yrkjubænda, Hulda Valtýsdóttir formaður Skógræktarfélags ís- lands, sem tók á móti gestunum og Otto Koch frá Danmörku. Tónlist Páls Pampichlers Heitavatns- skortur trufi- aði hljóðritun Sinfóníunnar HLJÓÐRITUN á þremur tónsmíð- um Páls Pampichlers Pálssonar í flutningi Sinfóníuhljómsveitar ís- lands lauk í gær. Verkin koma út á geisladiski með haustinu. Það er austurríska útgáfufyrirtækið Lotus sem gefur diskinn út og dreifir honum á alþjóðlegum markaði. Um miðja vikuna leit út fyrir að hitaveituframkvæmdir í vesturbæn- um kæmu í veg fyrir að hljóðritun- inni yrði lokið samkvæmt áætlun. Að sögn Rúnars Birgis Leifssonar var heita vatnið tekið af Háskóla- bíói á miðvikudagsmorgun, en þar fór upptakan fram. Það láðist að tilkynna hljómsveitinni eða forráða- mönnum bíósins um lokunina, þótt aðilar í nágrenninu væru varaðir við. Hljóðfærin verða ekki dúðuð Vegna hitaleysisins var ekki hægt að hljóðrita á miðvikudag og fór upptökuáætlun úr skorðum. Runólfur sagði að þótt hægt væri að dúða hljóðfæraleikarana sættu hljóðfærin sig ekki við hitasveiflur í salnum. Erlendir listamenn voru komnir til liðs við hljómsveitina og hljómsveitarfólk mjög upptekið og því leit út fyrir að hljóðritunin færi út um þúfur. „Við urðum að fá hljóðfæraleikarana til að bæta á sig upptökutímum á fimmtudag og föstudag. Margir höfðu ráðstafað tíma sínum í annað, en fólkið gerði þetta án þess að taka sérstaklega fyrir það. Hljómsveitarstjórinn og aðrir leggja á sig aukavinnu vegna þessa verkefnis, sem þeir gefa til að heiðra Pál Pampichler,“ sagði Runólfur. Verkin á diskinum heita Conci- erto di Giubileo, Kiarinettukonsert og Ljáðu mér vængi. Einleikari í klarinettukonsertinum er Sigurður Ingvi Snorrason og Rannveig Fríða Bragadóttir syngur einsöng í Ljáðu mér vængi. Stjórnandi hljómsveit- arinnar er Petri Sakari og upptöku- stjóri er Bjarni Rúnar Bjarnason. Sheilstöðin er opin alla daga kl. 7.30-22.00 Opnunarhátíð Shellstööinni Gylfaflöt í Grafarvogi l.júlíkl. 15-18 Þú kemur til okkar hvenær sem er sólarhringsins, dæíir sjálf(ur) í MX sjáifsala - og færð 1,20 kr. í afslátt. \ i / / \ ■ \WI i-;S\ fyrii' korí: ov( soðl.i I dag bjóðum við íbúa Grafarvogs og nágrennis velkomna í götugrill. Grillaðar ’ pylsur, . Fílakaramellumaðurinn og VlacíönlSshs konan gefa góðgæti, starfsmenn Skógræktar ríkisins gefa trjáplöntur og Poxmenn Islands mæta á staðinn og kynna nýju seriuna. skyndibita og greiðasala býður gesti velkomna og etrimesl og gott í munninn. BETRA 3ÍNSÍN auk alls A stöðinni fæst að sjálfsögðu þess fjölbreytta vöruúrvals og fyrsta flokks þjónustu sem býðst á næstu Shellstöð. Skeljungur hf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.