Morgunblaðið - 01.07.1995, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.07.1995, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Verkfalli yfirmanna á kaupskipum frestað til 1. ágúst eftir að samningar tókust Samið um 11,4% launahækkun SAMNINGAR náðust í kjaradeilu fimm stéttarfélaga yfirmanna á far- skipum og viðsemjenda þeirra um kl hálf fjögur í fyrrinótt þegar nýir kjarasamningar voru undirritaðir með fyrirvara um samþykki félags- manna. Verkfalli yfirmanna var þá frestað til 1. ágúst eða þar til kynn- ingu á samningunum og talningu úr atkvæðagreiðslu um þá er lokið. Samningarnir voru gerðir fyrir Skipstjórafélag íslands, Stýri- mannafélag Islands, Félag bryta, Félag íslenskra loftskeytamanna og Félag matreiðslumanna. Gilda þeir til ársloka 1996. Samið var um 11,4% launahækkun á samnings- tímabilinu og sérstaka 12.000 kr. eingreiðslu í lok samningstímans auk fleiri atriða. Benedikt Þ. yalsson, fram- kvæmdastjóri FFSÍ, sagðist vera sæmilega sáttur við þessa niður- stöðu. Hann sagði að í samningnum fælust kjarabætur sem kæmu til við- bótar atriðum í kjarasamningi þeim sem yfírmenn felidu. Þar væri í fyrsta lagi um að ræða 3% meiri kauphækkanir, 12.000 kr. ein- greiðslu og í þriðja lagi að samið um sérstaka greiðslu fyrir yfirvinnu á stórhátíðardögum, sem hækkar úr 2.000 kr. í 3.000 kr. Benedikt sagði einnig þýðingarmikið að samn- ingurinn kvæði á um breytingar á mati á starfsaldri stýrimanna. Mun sá tími sem stýrimenn hafa verið til sjós sem hásetar eða bátsmenn eftir- leiðis reiknast þeim til starfsaldurs- hækkana. Samningnum fylgir yfirlýsing fé- laganna fimm og FFSÍ um sameigin- lega afgreiðslu kjarasamninga, heildarsamningsgerð féiaganna og ef boða eigi til verkfalls fari fyrst fram sameiginleg skrifleg atkvæða- greiðsla um afstöðu félagsmanna til verkfallsboðunar. Er hér um að ræða sambærilega yfirlýsingu og verka- lýðsfélög starfsmanna álversins gáfu í tengslum við kjarasamning þeirra í seinustu viku. Einnig er í yfirlýsingunni kveðið á um að önnur stéttarfélög farmanna geti gerst aðilar að samstarfssamn- ingnum, að því tiiskyldu að sam- komulag náist um það milli þeirra og félaganna sem undirrita yfirlýs- inguna. Gildir hún í þrjú ár frá því að nýgerðir samningar renna úr gildi og framlengjast síðan um þrjú ár í senn, nema öll félögin séu sammála um annað. Hefur reynst erfitt að halda við launastefnu ASÍ/VSÍ Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, segir að þrátt fyrir að litlir hópar hafi samið um meiri launahækkanir en í samning- um VSÍ og landssambanda innan ASÍ í vetur, þá telji hann að engum grundvallarforsendum hafi verið raskað, en strekkt hafí verið mikið á þeim. „Mér er engin launung á því að ég tel að þeir samningar sem gerð- ir hafa verið undir vaxandi þrýst- ingi nú upp á síðkastið, hafi haft í för með sér meiri launahækkanir en við hefðum kosið. Það hefur reynst örðugt að halda við þá stefnu sem mörkuð var í upphafi ársins í sameiningu af okkur og landssam- böndum Alþýðusambandsins, að miða launabreytingar við það sem gerðist meðal okkar samkeppnis- ríkja. í því fólst að launabreytingar mættu ógjarnan hækka um meira en 7-8% á þessu tveggja ára tíma- bili. Samningar sem fara umfram þessi mörk eru vissir váboðar," seg- ir Þórarinn. Aðspurður um samstarfsyfirlýs- ingu stéttarfélaganna sagði Þórar- 'inn að kjaradeíla yfírmanna hefði fyrst og fremst snúist um launahlut- föll innan áhafna. „í framtíðinni er óhjákvæmilegt að ljúka samningum við öll stéttarfélögin, sem semja fyr- ir einstaka hluta áhafna, á sama tíma og helst þannig að um sameig- inlega atkvæðagreiðslu verði að ræða,“ sagði hann. Mál Málfríðar Þorleifsdóttur Afgreiðsla dóms- gerða Héraðsdóms tók rúman mánuð AFGREIÐSLA á dómsgerðum frá Héraðsdómi Reykjavíkur vegna máls Málfríðar Þorleifsdóttur, sem slasaðist alvarlega þegar hún festist í drifskafti dráttarvélar, tók aðeins rúman mánuð frá því beiðni um dómsgerðimar barst frá lögmanni Vátryggingafélags íslands, að sögn Friðgeirs Bjömssonar, dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur. Að sögn Friðgeirs barst beiðni um dómsgerðirnar Héraðsdómi Reykjavíkur 28. janúar 1994 og vom þær afhentar lögmanni VÍS 7. mars 1994. Lögmaður VÍS skil- aði dómsgögnum og greinargerð vegna málsins hins vegar ekki til Hæstaréttar fyrr en 29. desember 1994, samkvæmt því sem fram kom í grein forseta Hæstaréttar um málið, sem birtist í Morgunblað- inu síðastliðinn þriðjudag. Umrætt mál var þingfest í Hæstarétti í febrúar 1994. I Morg- unblaðinu í fyrradag var haft eftir deildarstjóra tjónadeildar VÍS að sá dráttur sem varð á því að lög- maður VÍS legði fram dómsgögn og greinargerð hafi stafað af því hve langan tíma tók að fá dóms- gögnin frá Héraðsdómi Reykjavík- ur, og sagði hann engan vilja hafa verið af hálfu VÍS að tefja þetta tiltekna mál. Ekki óeðlilegur tími Ingvar Sveinbjömsson, lögmað- ur VIS, sagði í samtali við Morgun- blaðið s.l. fimmtudag að hann teldi ekkert óeðlilegt við þann tíma sem liðið hefði frá því dómsgerðirnar komu frá Héraðsdómi Reykjavíkur og þar til dómsgögnum og greinar- gerð hefði verið skilað til Hæsta- réttar. „Það er ekkert óeðlilegur tími. Við vorum líka að afla frekari gagna í þessu máli. Það tók dálít- inn tíma, en við lögðum fram frek- ari gögn í Hæstarétti," sagði hann. Morgunblaðið/Lars Björk BRAUTARSTÖÐIN í Gungvala er sögufrægt hús. ÍRIS EDDA Eggertsdóttir Islensk kona opnar gistihús í gamalli brautarstöð í Svíþjóð Gróðursæll aldingarður KNÚIN AF ævintýraþrá hélt íris Edda Eggertsdóttir, sem rekið hefur gistihús og hárgreiðslustofu í Reykjavík, til smáþorpsins Gungvala í S-Svíþjóð í haust. Hún vissi þá ekki hvað beið hennar en í dag opnaði hún gistihús í nýupp- gerðri gamalli brautarstöð í hjarta Blekinge-héraðsins, sem Svíar nefna aldingarð Svíþjóðar. „Gróðursælt umhverfi og ein- stæð náttúrufegurð heiiluðu mig svo ipjög að ég lagði það á mig með góðri hjálp að gera stöðina upp,“ sagði Iris Edda. „Eg er sannfærð um að það er heilsubót hverjum manni að koma hingað. Göngustígar og hjólreiða- stígar liggja um allt svæðið og golfvellir og fengsælar veiðiár eru í næsta nágrenni gistihússins," sagði íris. Brautarstöðin í Gungvala er sögufræg bygging en hún var vígð árið 1915. Járnbrautarteinar Iágu um þorpið en lestir gengu þessa leið milli bæjanna Karlshamn og Svángsta allt til ársins 1967. íris sagði að þorpsbúar hafi tekið sér fagnandi og boðið fram alla aðstoð sína við endurbætur á brautar- stöðvarhúsinu. „Fólkið hér á svæð- inu er mjög þakklátt fyrir að hús- ið fái andlytslyftingu en það stóð autt i átta ár. Ég hef komist að raun um að Svíar eru mjög hjálp- legir og elskulegir en ekki jafn stífir og margir vilja vera láta,“ sagði hún. Mikil vinna liggur að baki opn- unar gistihússins. Innréttingum var mikið breytt, dyr færðar til og veggir felldir niður. íris sagði að innréttuð hafi verið 6 rúmgóð herbergi fyrir allt að 20 gesti. Gestum bjóðist gisting og morg- unverður og stefnt sé að því að fjölga herbergjum með því að endurinnrétta lítið hús við hlið brautarstöðvarinnar sem eitt sinn var pósthús þorpsins. 11ÍÍ1»W9 19711 LÁRUS Þ VALDIMARSSON, framkvæmdastjori JuL I IvU (IvL lu/l) KRISTJAN KRISTJANSSON, iogciitur (SSTfiGNíSAii Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Úrvalsíbúð - hagkvæm skipti Mjög stór 5 herb. íbúð 133,6 fm á 1. hæð við Hjallabraut Hf. Stór skáli. Nýtt eldhús. Sér þvottahús í íb. Rúmg. sólsvalir. Ágæt sameign. Skipti æskileg á 3ja herb. ib. helst i nágr. Einbýlishús - frábært útsýni Endurnýjað með 5 herb. íb. á hæð og að nokkru í kj. Stór lóð. Há tré. Skipti koma til greina. Vinsæll staður. Gott verð. Á lækkuðu verði í Vogunum Rúmgóð samþ. kjíb. með sérinng. í einbhúsi. Laus fijótl. Tilboð óskast. Góðar íbúðir í Vesturborginni Sólríkar 4ra herb. íbúðir við Kaplaskjólsveg (stór í lyftuh.) og Meistára- velli. Vinsamlegast leitið nánari uppl. Heimar - Vogar - Sund Á söluskrá óskast rúmgóö 3ja herb. íb. eöa lítil 4ra herb. Má þarfn. endurbóta. Traustur kaupandi. Skrifstofuhúsnæði óskast í borginni Gott húsn. lágmarksstærð 120-150 fm, stærri eign kemur til greina. íbhúsn. má fylgja. Hiunnindi - laxveiði - skotveiði Fjársterkir kaupendur (gamlir og góðir viðskiptamenn) óska eftir hlunn- indajörð. Margt kemur til greina. Vinsamlegast leitið nánari uppl. • • • Opið í dag kl. 10-14. Fjöldi eigna í skiptum. Almenna fasteignasalan sf. var stofnuð 14. júlí 1944. ALMEMIMA FASTEIGWASALADI LAU6AVE6118S. 552 1150-552 137» íbúar í Laugarneshverfi mótmæla byggingu barnaheimilis Ottast um öryggi skólabarna vegna aukinnar bílaumferðar ÍBÚAR í Laugarneshverfi eru að safna undirskriftum á lista vegna fyrirhugaðrar byggingar barna- heimilis á lóð gæsluvallar í hverfinu. Telja íbúar í grennd við lóðina að bílaumferð inn í hverfíð muni aukast stórlega og vilja að barnaheimilið verði annað hvort reist annars stað- ar eða fært til á lóðinni svo umferð beinist annað. Búið er að safna 90 undirskriftum og er markmiðið að leggja fram lista með nöfnum sem fiestra íbúa hverfisins fyrir fund stjórnar Dagvistar bama á miðviku- dag. Búið er að grafa grunn fyrir barnaheimilið á lóð gæsluvallarins á horni Gullteigs og Hofteigs, og ótt- ast íbúarnir að umferð um hverfið muni aukast stórlega. „Þetta verður fjögurra deilda leikskóli, með 80 börnum kannski, sem væntanlega þýðir umferð 80 bíla á morgnana þegar börnin í hverfmu eru á leið í skólann. En leið margra þeirra ligg- ur yfir Gullteig," segir Gunnhildur Gísladóttir, einn íbúa í hverfinu/ Úr takti við tímann „Okkur finnst það ekki í takti við tímann að leiða bílaumferð inn í mitt íbúahverfi," segir hún. „Ástæð- an fyrir því að við erum svona sein er sú að framkvæmdin var ekki kynnt fyrir öllum íbúum hverfisins. Hún fór í svokallaða grenndarkynn- ingu samkvæmt lögum en í þessu tilfelli falla einungis nokkur hús undir þá skilgreiningu. Að vísu telst það ekki skipulagsbreyting að byggja barnaheimilið á lóð gæslu- vallar og því ekki nauðsynlegt lögum samkvæmt að kynna það öllum íbú- unum en þetta snertir fleiri og við sem búum hérna og eigum börn urðum nokkuð óttaslegin." Gunnhildur segir íbúa hafa iagt til við borgaryfirvöld að barnaheimil- ið yrði fært til á lóðinni að mótum Reykjavegar, sem er í útjaðri hverf- isins, og Hofteigs eða yfir Reykjaveg inn í Laugardal. „Við erum náttúrlega búin að kvarta sáran yfir þessu við borgaryf- irvöld. Okkur hefur verið sagt að svolítið seint sé af stað farið með mótmælin en teljum þó að kannski sé það farsælli lausn að bíða með barnaheimilið í hálft ár í stað þess að ráðast í framkvæmdir á byggingu sem mun standa næstu áratugi og getur haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir umferðina í hverfinu." „Við teljum reyndar að úrbóta sé þörf nú þegar því það er orðið tals- vert gegnumflæði hérna vegna Blómavals og Grand Hótels. Síðan eru íslenskar sjávarafurðir að byggja hús í nágrenninu sem líka mun auka bilaumferð og okkur finnst búið að hrúga dálítið mikilli atvinnustarfsemi inn í hverfið án þess að huga að afleiðingunum. Við viljum fá að vera með í ráðum," segir Gunnhildur að lokum. 4- i. « c I i « I r i i I i ; I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.