Morgunblaðið - 01.07.1995, Blaðsíða 50
50 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
'J
„Au pair“
óskast til U.S.A. (Connecticut) til aö gæta tveggja barna, á aldrinum
1 og 4ra ára, frá ágúst 1995 til ágúst 1996.
Æskilegur aldur 19-20 ára.
Upplýsingar gefur Ásdís Elva í sfma 001 203 625 3140.
Iltagttiilftiftife
Á INTERNETI
http://www.strengur.is
Komdu í Árbæiarsafn og njóttu þess að drekka
ilmandi gott RIO kaffi í hlylcgu og notalegu umhve
í gamla Árbænum. Einnig parftu að prófafrægu
lummu-uppskriftina hennar Sigurlaugar.
Laugardagur 1. júlí
Boðið upp á lummur pg
Rio-kaffi f eldhúsmu í gamla Arbænum.
Gullsmiður að störfum í Suðurgötu 7.
Sjómaður sinnir netagerð við Nýlendu og hjall.
Roðskógerð á baðstofuloftinu í gamla Árbænum kl. 13-17.
Mjaltir við gamla Árbæinn kl. 17.
Krambúðin full af gamaldags góðgæti.
Sunnudagur 2. júlí
Bílaviðburður ársins! Sýndir verða bílar,
auk jeppa og vörubíla. Sérfræoíngar fornbílaklúbbsins
verða á safninu til skrafs og ráöagerða.
frá
gufuvaltarnum Bríeti og eimreiðinni Pionér frá 1892
Þar að auki verða sýndir fastir viöburðir með sama
sniði og á laugardag og einnig er boöið upp
á lummur og Rio-kaffi í eldhúsinu i gamla Arbænum.
Og svo auðvitað veitingar í Dillonshúsi.
; ÁRBÆJARSAFN * REYKJAVÍK MUSEUM
SÍMI: 5771111 • FAX: 5771122
ÍDAG
skák
llmsjón Margeir
Pétursson
HVÍTUR leikur og vinnur
Staðan kom upp á meist-
aramóti Skákskóla íslands
sem fram fór fyrr _i þessum
mánuði. Magnús Örn Úlf-
arsson (2.230) var með hvítt
og átti leik, en Hjalti Rúnar
Ómarsson (1.565) var með
svart.
28. Hf6! (Miklu sterkara en
28. h6 - g6) 28. - Rxf6
29. gxf6 - Hg8 30. Hgl
og svartur gafst upp
því hann er óverjandi
mát í fjórum leikjum.
Magnús Öm sigraði á
Skákskólamótinu,
hlaut 8 vinninga af 9
mögulegum, 2. Jón
Viktor Gunnarsson 7
v. 3. Bragi Þorfinnsson
7 v. 4. Bergsteinn Ein-
arsson 6 v. 5. Björn
Þorfinnsson 6 v. 6.
Hlíðar Þór Hreinsson 6
v. 7. Sigurbjöm
Björnsson 5 v. 8. Torfi
Leósson 5 v. 9. Kjartan
Maack 5 v. 10. Amar E.
Gunnarsson 5 v. 11. Kristján
Eðvarðsson 5 v. 12. Einar
Hjalti Jensson 5 v. 13. Davíð
H. Ingimarsson 5 v. 14. Ótt-
ar Norðfjörð 5 v. o.s.frv.
Með morgunkaffinu
Ást er...
jlMXfiA'll
UVFiH
IO-|6
að kenna þeim um-
ferðarreglumar.
ÉGÆTLAaðfáblóm-
vönd, sem passar vel
við mátulega trúlega
sögu.
Pennavinir
TVÍTUGUR tanzanískur
piltur með áhuga á kvik-
myndum, ferðalögum og
tónlist:
Crístian Kisanga,
P.O. Box 9769,
CCP Moshi,
Tanzania.
SAUTJÁN ára japönsk
stúlka með áhuga á tónlist,
bæði að spila á hljóðfæri
og hlusta á músík, kvik-
myndum, bókmenntum
o.fl.:
Yuki Matsumoto,
2-208, 150-4
Hit orízawa,
Isogo,
Yokohama Kanagawa,
235 Japan.
SAUTJÁN ára sænsk
stúlka með áhuga á kvik-
myndum, ferðalögum o.fl.:
Anna Norén,
Mjölkuddsv. 261,
97343 Luleá,
Sweden.
LEIÐRETT
Björg en ekki Björk
í grein um efnalaugar
og þvottahús, sem birtist í
blaðinu sl. fimmtudag, var
rangt farið með nafn einnar
efnalaugar. Hún var nefnd
Björk en hið rétta er að hún
heitir Björg. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Tapað/fundið
Fjallahjól tapaðist
JAZZ ROCKET, 15 gíra
fjallahjól, svart og grátt
með grænum stöfum
hvarf frá Sörlaskjóli 66,
laugárdaginn 24. júní sl.
Skilvís finnandi vinsam-
lega hafí samband í síma
562-5324 og er fundar-
launum heitið.
Hjól tapaðist
DÖKKBLÁTT Moongose
Swits Back 18 gíra fjalla-
hjól, tapaðist frá Vestur-
götu 7 um hádegisbil
þann 29. júní sl. Skilvís
fínnandi er vinsamlega
beðinn að skila því til
lögreglunnar í Reykjavík
eða hringja í síma
551-8909.
Gæludýr
Týnd læða
ÞRÍLIT ársgömul læða,
sem líklega er kettlinga-
HÖGNIHREKKVÍSI
full, hvarf frá Þórufelli
8, en býr í Meðalholti 11,
21. júní sl. Hún var með
rauða ól sem gæti hafa
dottið af henni. Mögulegt
er að hún hafí leitað á
sitt gamla heimili og
vilist. Geti einhver gefíð
upplýsingar vinsamlega
hafíð samband í síma
587-1195 eða 567-0165.
Týnd
síamslæða
SEAL POINT þriggja
ára, dökk og hvít síams-
læða, sem gegnir nafninu
Píla hvarf frá heimili
sínu, Kambsvegi 35, í
Reykjavík þann 28. júní
sl. Píla er lítil og smávax-
in. Líklegt þykir að hún
sé á þvælingi annaðhvort
í Laugarásnum eða í
Kleppsholtinu. Geti ein-
hver gefíð upplýsingar
um ferðir hennar vin-
samlega hafíð samband
í síma 553-4627 eða við
Kattholt í síma
567-2909.
Víkverji skrifar...
MISTÖK við undirbúning laga-
texta til prentunar í Alþing-
istíðindum hafa nú kostað ríkissjóð
um tuttugu milljónir króna í skaða-
bætur til smábátaeigenda, sem var
synjað um veiðileyfí vegna mistak-
anna. Sennilega getur ekki öllu
dýrkeyptari prentvillur. Hins vegar
komu fréttir af þessu máli Víkverja
ekki sérstaklega á óvart. Frágang-
ur þingskjala er stundum með þeim
ólíkindum, að það telst Alþingi
varla sæmandi.
xxx
ÍKVERJI las frumvarpið til
nýrra laga um framkvæmd
GATT-samkomulagsins gaum-
gæfílega. Á köflum var frumvarpið
óskiljanlegt vegna augljósra mis-
taka í undirbúningi þeirra ráðu-
neyta, sem áttu hlut að máli. Sömu-
leiðis var málfar og stafsetning á
köflum fyrir neðan allar hellur.
Enda fólust sumar breytingartillög-
ur þingmanna í efnahags- og við-
skiptanefnd í hreinum og klárum
prófarkalestri og leiðréttingu á
klúðurslegu orðalagi ráðuneytis-
manna. Sjálfsagt er ein ástæðan
fyrir hroðvirkninni sú að frumvarp-
ið var samið í tímahraki. Það breyt-
ir ekki því, að um ófagmannleg
vinnubrögð er að ræða, svo ekki
sé meira sagt.
xxx
VÍKVERJA þykir sérkennilegt
að hjá Húsnæðisstofnun
ríkisins, sem er sú stofnun hins
opinbera sem flestir þeir er standa
í kaupum eða sölu á íbúðarhús-
næði þurfa að leita til, skuli ekki
liggja frammi upplýsingar um
ákvæði laga og reglugerða um frá-
gang kaupsamninga, þinglýsingar
og fleira sem fylgir fasteignavið-
skiptum. Aukinheldur þykir Vík-
veija starfsfólk stofnunarinnar
fremur áhugalaust um að leysa
vanda þeirra, sem bera sig eftir
slíkum upplýsingum. Skársta yfir-
litið um þessa hluti virðist Vík-
verja vera minnisblaðið, sem birt
er í fasteignablaði Morgunblaðs-
ins.
XXX
BJÖRN S. Stefánsson, Klepps-
vegi 40, sendir Víkveija bréf,
svohljóðandi: „Mig langar að leggja
orð í belg um notkun hástafa. Má
vera að aukin notkun þeirra sé
vegna enskra áhrifa, eins og þú
getur um og finnur að. Jafnsatt
má það líka vera, sem Árni Brynj-
ólfsson heldur fram af því tilefni,
að margt gott hafí komið frá ensk-
um heimi. Fyrir mér er aukin notk-
un hástafa hins vegar ósmekkleg
tilgerð, hvaðan sem hún er komin.
Mér fínnst þessi aukna hástafa-
notkun vera belgingur líkt og þeg-
ar fréttaþulur í útvarpi leggur
þunga áherzlu á annað hvert orð.
Mér þykir aulalega kynnt þegar á
matseðli stendur: Rjómalöguð
Sveppasúpa. Soðin Langa. Má vera
að margs konar tilgerð smiti hingað
frá enskum heimi, en það er ekki
verst hvaðan hún kemur, heldur
hitt að hér skuli almenningur talinn
hallur undir tilgerð og fyrirtæki
telji sér hag í að búa mál sitt þann-
ig þegar vara og þjónusta er boðin.
Tilgerð af þessu tagi heldur fælir
mig frá viðskiptum.“
xxx
AÐ GEFNU tilefni vill Víkverji
taka fram að hann hefur
komizt að því að unglingarnir, sem
beittu hrífum sínum klunnalega og
urðu honum tilefni til athugasemda
við verklagið, voru ekki úr Vinnu-
skóla Reykjavíkur. Unglingarnir
munu vera fullgildir starfsmenn
garðyrkjudeildar borgarinnar — og
ekki bætir það úr skák.