Morgunblaðið - 01.07.1995, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 01.07.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995 15 LAIMDIÐ Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson FRÁ fyrstu skóflustungu að nýju íþróttahúsi við Brúarásskóla í Hlíðarhreppi. Bygging íþróttahúss hafin Vaðbrekku, Jökuldal - Fyrsta skóflustunga að nýju íþróttahúsi við Brúarásskóla í Hlíðarhreppi var tekin fyrir nokkru. Athöfnin hófst með því að Jón Steinar Elísson, oddviti Tungu- hrepps, flutti ávarp. Fram kom í máli hans að 15 ár eru frá því að Brúarásskóli tók til starfa og við hæfi á þeim timamótum að hefja byggingu íþrótthúss við skólann. Flatarmál hússins, sem er á tveimur hæðum, er 200 fm hvor hæð. Á efri hæðinni verður íþrótta- salurinn en á þeirri neðri verða snyrtingar, búningsaðstaða og rými fyrir leikskóla ásamt óráðstöfuðu rými til félagsstarfs. Iþróttahúsið verður tengt við barnaskólann með 60 fm tengi- byggingu en í henni verður m.a. hreinlætisaðstaða fyrir fatlaða. Heildarkostnaður við bygging- una er áætlaður 44 miHj. kr. sem skiptist á þijú sveitarfélög; Hlíð- arhrepp 40%, Tunguhrepp 40% og Jökuldalshrepp 20%. Því næst tók Guðgeir Ragnars- son, oddviti Hlíðarhrepps, fyrstu skóflustunguna og notaði til þess stóra beltagröfu. Að lokum var öllum viðstöddum boðið til kaffi- samsætis í barnaskólanum. Verslun með útisvist- arvörur Egilsstöðum - Kristófer Ragnarsson og Guðmundur Gunnlaugsson hafa opnað nýja verslun, Austfírsku Alp- ana, á Egilsstöðum. I versluninni fást alhliða sport- og útivistarvörur, s.s. reiðhjól, útivistar- og göngufatnaður, ferðavörur, skó- fatnaður, skíðavörur, útileguvörur. Þá verður hægt að fá þjónustu við samsetningu og viðgerðir á reiðhjól- Skólagarðamir taka til starfa Húsavík - Skólagarðar Húsavíkur, sem starfað hafa um áratuga skeið, hófu starfsemina síðasta þriðjudag júnímánaðar og þetta árið eru nem- endur um 50 talsins. Umsjón hefur Sigríður Siguijónsdóttir sem veitt hefur skólagörðunum forstöðu sl. 16 ár. Börnin eru á aldrinum 8-12 ára og er hveiju barni úthlutaður ákveð- inn reitur sem þau gróðursetja í hin- ar ýmsu matjurtir. Þau koma þarna hvern virkan dag til að hirða sinn reit og fylgjast með vexti gróðursins og er spenningurinn mikill þegar kartöflugrösin fara fyrst að sýna sig. Rætt er við þau um gróður og gróður- vernd og umgang um náttúruna. Það er sýnilega ekki minni áhugi þessa ungmennahóps fyrir vinnunni en þeirra eldri sem eru í unglinga- vinnu bæjarsins. FRÁ Skólagörðum Húsavíkur. Morgunblaðið/Silli IÐNAÐARHURÐIR - BILSKURSHURÐIR ÞAK- OG VEGGSTÁL Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir KRISTÓFER Ragnarsson og Guðmundur Gunnlaugsson. um og ennfremur ásetningar, við- gerðir og slípingar á skíðum. 15. júlí munu Austfirsku Alparnir standa fyrir íslandsmóti í fjallahjóla- keppni í Hallormsstaðaskógi og 16. júlí verður bikarmeistaramót í götu- hjólakeppni. Farið verður frá Hall- ormsstað til Egilsstaða og þaðan í gegnum Reyðarfjörð og Eskifjörð og endað í Oddsskarði. ÍSVAL-BORGA »lf HÖFÐABAKKA9-112 REYKJAVÍK - SlMI: 587 8750 - FAX: 587 8751 Rótarý á Islandi þingaði á Isafirði 1 1 Haustferð til Benidorm í septeim i ber^ frá 45.530* - 1n'iiinriirnnimnÁifflM~iniVifi.nini^linna»r.‘íifMminirir'vlíl*Tminr~r—•i"imin''H-lTiY'if».riii'T''"m.iinnrn1-nr-ilinr-.iinnfiirr^~ri-r~ni"TrTTvnrTr-in -nni.r-rwmnmnnvn.-mn.-.n-r-nn.-.mnt-nir-irifnir-nrr Morgunblaðið/Siguijón J. Sigurðsson ROY J.A. Whitby, fyrrverandi stjórnarmaður í Rótarý Internat- ional, Ólafur Helgi Kjartansson, fráfarandi umdæmisstjóri Rót- arý á íslandi, Jean Whitby, eiginkona Roys, og Gunnar Grantin- ger frá Rótarý í Svíþjóð voru á meðal fjölmargra þátttakenda á umdæmisþinginu sem haldið var á Isafirði um helgina. Agli á Hnjóti veitt- ur veglegur styrkur íslensk fararstjórn íslenskur hjúkrunarfrœóingur Farþegar Heimsferðu fá fritt i likamsrœkt Sjónvarp og simi Gufubað Veitingastaður Bar Möttaka opin allan sólarltringinn Þvottahús M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára. RÓTARYHREYFINGIN á Islandi hélt árlegt umdæmisþing á ísafirði um síðustu helgi, hið 49. í röðinni. Þingið var fjölsótt en vel á annað hundrað gestir sóttu ísafjörð heim af þessu tilefni, þar af nokkrir er- lendir fulltrúar hreyfingarinnar. Á þinginu var meðal annars fjall- að um æskulýðsmál og skiptinema- starf Rótarý auk þess sem Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri, kynnti stefnu íslensku Rótarýhreyf- ingarinnar í umhverfismálum. Jón Páll Halldórsson, framkvæmdastjóri Norðurtangans, flutti tölu um sögu ísafjárðar og ólafur Davíðsson, ráðu- neytisstjóri í forsætisráðuneytinu, flutti ræðu um ísland og umheiminn. Við hátíðarkvöldverð í lokahófi þingsins var Agli Ólafssyni, bónda á Hnjóti í Örlygshöfn, veitt 350 þús- und króna viðurkenning úr Starfs- greinasjóði Rótarýumdæmisins fyrir þrautseigju og eljusemi á Hnjóti, en hann hefur eins og kunnugt er byggt upp mikið héraðsminjasafn að Hnjóti, er forseti Islands opnaði við hátíðlega athöfn árið 1983. Meðal sérstakra muna, sem safn- inu tilheyra, eru tvö skip, víkinga- skip sem var endursmíðað úr eldra skipi í tilefni þjóðhátíðarinnar 1974 og Mummi, merkilegur 12 tonna bátur sem smíðaður var á ísafirði árið 1935. Þá hefur Egill einnig komið á fót fyrsta og eina flugminja- safninu hér á landi, sem hann reynd- ar gaf samgönguráðuneytinu og flugmálastjórn á síðasta ári og hefur Alþingi samþykkt stofnskrá þess. Á umdæmisþingingu lét Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á ísafirði, af embætti umdæmisstjóra Rótarýhreyfingarinnar á íslandi en við því starfi til eins árs tók Ásgeir Jóhannesson frá Kópavogi. M.v. 2 ííbúð, ElFaro íbúðarhótelið. lnnifalið i verði: Fiug, gisting. ferðir til ogfrá flugvelli. islcnsk famrstjóm. fiugvallaskattar. Forftíllugjald, kr. 1.200,- ekki innifalið. aro E/Fc íiih,ið JO liibúð i?-900,. /1 l'búð Vinsælasli gististaður Heimsferðafarþega í sumar. Nýlegt íbúðarhótel með góðum aðbúnaði. Allar ibúðir eru með sjónvarpi, síma, einu svefnherbergi, baði, stofu, eldhúsi og svölum sem snúa allar að sjónum. Garðurinn er ekki stór en með góðri laug og hér býðst þér þjónusta sem þú átt ekki að venjast á Benidorm. Gufubað, fullkomin líkamsrækt, þvottahús, veitinga- staður, bar og móttakan er opin allan sólarhringinn. Staðsetningin er frábær, í rólegri götu rétt fyrir ofan einstaklega fallega Poniente ströndina. Strætó stoppar rétt fyrir framan hótelið og aðeins er um 20 mínútna gangur í gamla miðbæinn. Klii, J.660, • e'nb. TiyO-ro, fu,1»ró i„„ °K ftrfalj. - Uos '"Cl'öld: ■ barn. Austurstræti 17 • 101 Reykjavík Sími 562 4600 • Fax 562 4601
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.