Morgunblaðið - 01.07.1995, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 01.07.1995, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995 7 Þingvellir Hjartaskurðlæknar vilja nýtt vaktakerfi til að tryggja bráðaþjónustu Breytt verka- skipting ÞINGVALLANEFND hefur ráðið framkvæmdastjóra til að hafa með höndum rekstur þjónustumiðstöðvar og tjaldstæða á Þingvöllum og sjá um framkvæmdir og eftirlit í þjóð- garðinum. Þjóðgarðsvörður hefur sinnt þess- um störfum en vegna umfangs þeirra var ákveðið að ráða til þess sérstakan starfsmanna. Á hvetju ári eru talsverðar framkvæmdir í þjóðgarðinum, m.a. lagning göngu- stíga og endurbætur á þeim. Að sögn Guðmundar Árnasonar, deildarstjóra í forsætisráðuneytinu, hefur hlutverk þjóðgarðsvarðar breyst við ráðningu framkvæmda- stjóra í þá veru, að hann hefur nú aðallega með höndum skipulag fræðslustarfsemi og gestamóttöku. Guðmundur segir að Þingvalla- nefnd hafi haft heimild fyrir þessari stöðu en ekki nýtt hana um langa hríð. Framkvæmdahliðin hafí ekki alltaf verið á könnu þjóðgarðsvarðar og nú sé verið að taka upp fyrir- komulag sem áður hafi verið við- haft. Hann segir undirbúning að ráðningu framkvæmdastjóra hafa farið fram í allan vetur í fullu sam- ráði við þjóðgarðsvörð. Sigurður Oddsson tæknifræðing- ur gegnir stöðu framkvæmdastjóra Þingvallanefndar tímabundið og hefur starfsaðstöðu, bæði í Reykja- vík og á Þingvöllum. -----»■ ♦ »--- Fér át af á mótorhjóli MAÐUR á mótorhjóli lenti út af veginum við Múlafjall í Hvalfirði rétt fyrir klukkan ellefu í fyrrakvöld. Maðurinn var á leið til Reykjavík- ur ásamt tveimur öðrum mönnum á mótorhjólum. Hann mun hafa misst stjórn á hjólinu og lent út af vegin- um. Lögregla og sjúkralið fór á staðinn og mat læknir meiðsli mannsins svo að ráðlegt væri að flytja hann með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Borg- arspítalann. Samkvæmt upplýsingum lögregl- unnar reyndist maðurinn minna slas- aður en í fyrstu var talið. Hann var lærbrotinn, en meiðsli hans að öðru leyti ekki alvarleg. -----» ♦ ♦---- Lakkeyði hellt yfir bíl BÍLL var stórskemmdur á bílastæði við Krummahóla og brotist var inn í tvo bíla á sama stæði. Lögreglunni var tilkynnt í gær- morgun að útvarpi og geislaspilurum hefði verið stolið úr tveimur bílum, en skemmdarvargar höfðu hellt lakkeyði yfir þann þriðja og stungið göt á hjólbarða hans. Ekki er vitað hveijir voru þarna að verki. -----»-♦ ♦---- Enn lægra bensín KOMIÐ hefur í ljós að verð á bens- íni í sjálfsafgreiðslu á bensínstöðvum Olís í Hafnarfirði, Akranesi og í Borgarnesi er ódýrast. Verð á 92 oktana bensíni í sjálfs- afgreiðslunni er 64,90 krónur, eða 40 aurum ódýrara en í öðrum sjáfs- afgreiðslum, 95 oktana bensín kost- ar 67,20 krónur og munar þar 30 aurum miðað við aðra og loks 98 oktana sem kostar 70,70 krónur og þar munar 20 aurum. Heilbrigðisráðherra segist engu lofa INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigð- isráðherra segir að fjárlaganefnd hafi ekki veitt heimild fyrir þetta ár til þess að breyta vaktakerfi á hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala og ekki sé hægt að lofa fjármunum til þess að svo megi verða næsta ár. Yfirlæknir deildarinnar, Grétar Ólafsson, sagði í Morgunblaðinu í gær að nauðsynlegt væri að koma á vaktakerfi sem gerði ráð fyrir tveim- ur skurðlæknum á vakt í einu svo tryggt væri að bráðaaðgerðir væru mögulegar allan sólarhringinn. Heilbrigðisráðherra segir að í stað- inn hafí verið rætt um það að Trygg- ingastofnun greiddi fyrir einstakar aðgerðir til að stytta biðlistann en slíkt tryggði þó ekki að hægt væri að skera allan sólarhringinn. „Styr- inn hefur staðið um það hvort eigi að miða við hvað kostar að gera hjartaaðgerð hér eða erlendis," segir Ingibjörg en hjartaaðgerð hér heima kostar um 800 þúsund krónur. Aðspurð hvort hún myndi beita sér fyrir því að spítalinn fengi fjár- magn til að kosta nýtt vaktakerfi sagðist Ingibjörg ekki tiibúin að lofa því á þessari stundu. Hún vár jafn- framt innt eftir því hvort til stæði að fjölga skurðstofum eða gera aðrar breytingar á starfsemi deildarinnar svo stytta megi biðlista. „Það er ver- ið að skoða þetta eins annað enda mörg brýn verkefni sem bíða.“ Loks var Ingibjörg spurð um það álit Grétars Olafssonar yfirlæknis, sem fram kom í Morgunblaðinu í gær, að hjartasjúklingar væru eini sjúklingahópur landsins sem ekki ætti kost á bráðaþjónustu allan sól- arhringinn. „Eins og umfjöilunin er um lokanir deilda virðist sem ekki búi allir sjúklingahópar við fullkomið öryggi. En þar er ekkert nema gott um það að segja að læknar hafi metnað fyrir hönd sjúklinga sinna. Þetta hefur verið á forgangslista stjórnar Ríkisspítalanna og allar lífs- nauðsynlegar aðgerðir eru ofarlega á blaði,“ segir hún. Vegna mistaka við vinnslu blaðs- ins sagði í baksíðufrétt í Morgunblað- inu í gær að hingað til hafi hending ráðið hvort tekist hafi að fá nægan mannskap til þess að framkvæma hjartaaðgerðir á Landspítalanum. Hið rétta er að undir hælinn er lagt hvort hægt er að framkvæma bráða- aðgerðir að nóttu eða um helgar því ekki hefur fengist leyfi fyrir vakta- kerfi á hjarta- og lungnaskurðdeild sem gerir ráð fyrir tveimur skurð- læknum á vakt í stað eins. Tvo skurð- lækna þarf fyrir hverja aðgerð. Nú er hann tvöfaldur! - ALLTAFÁ LAUGARDÖGUM SÖLUKERFW LOKAR KL. 20.20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.