Morgunblaðið - 01.07.1995, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 01.07.1995, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995 49 BREF TIL BLAÐSINS Sólargeislar hversdagsins Frá Guðmundi Magnússyni: HVERNIG bregðast menn við gagnrýni og hvað gera þeir þegar upp koma vandamál? Sjálfur er ég bundinn hjólastól og hef verið það í nær átján ár. Guðmundm- þröngu dymar Magiiússon inn á salernið og þrengslin þar fyrir innan ef maður kemst inn. „Hvers vegna að setja upp ská- braut eða stærðar salernisaðstöðu þegar ekki koma neinir fatlaðir nema svona einn á ári eða svo og þá eru allir boðnir og búnir til að hjálpa þeim.“ Þetta er algengt svar þegar maður talar við for- stöðumenn verslana eða þjónustu- fyrirtækja. Þá má líka spyija á móti: „Hvers vegna fara hreyfihamlaðir svona lítið út á meðal fólks? Er það mögulegt að tröppurnar, þröskuld- arnir og allar þröngu dyrnar eigi þar einhveija sök?“ Nú er ég þeirrar náttúru að vilja bjarga mér sem mest sjálfur og get það svo fremi að nægilegt rými sé fyrir hjólastólinn og rúm eða önnur sæti í hæfilegri hæð. Því er það ósköp svekkjandi að vegna þröngsýni þeirra sem byggja, laga eða breyta eldra hús- næði eru settar tröppur, þröngar dyr og lítil klósett! Vandamálin leyst strax En ekki eru allir seldir undir sömu sök,- Stöku sinnum rekst maður á menn sem telja vandamál til að leysa og leysa strax. í vor og sumar hef ég rekist á tvo slíka menn og finnst mér að slíkt sé svo merkilegt að ég má til að segja frá þessum atburðum. Fyrri atburðurinn átti sér stað rétt upp úr páskum þegar stjórn Hala-leikhópsins hafði ákveðið að fara út að borða á einhvem sér- stakan veitingastað þar sem átti að afhenda Steindóri Hjörleifssyni leikara skjal sem áréttaði að hann væri heiðursfélagi leikhópsins númer eitt. Okkur kom saman um að gaman væri að borða upp á japönsku og var mér falið að ræða við þá á Somorai. Skilyrði var að þar væri sæmilegt aðgengi og sal- ernisaðstaða fyrir notendur hjóla- stóla. Þegar komið var inn, yfir tvö nijög lág þrep, var greiður gangur milli borða og allt virtist í fínasta lagi. Spurðist ég þá fyrir um hvort salernið væri ætlað hjólastólum. Sigvaldi, sem tók á móti mér, hélt að svo mundi vera, en ef til vill dálítið þröngt. Þarna voru tvö sal- erni annað mjög lítið og það sem mér var sýnt. Fyrst var komið inn í eins konar forstofu og var þar vaskur og pissiskál í dálitlu skoti, en beint á móti fyrri dyrum voru aðrar dyr inn á sjálft salernið. Þegar svo inn var komið var hvorki hægt að snúa þar við eða loka á eftir sér, því hurðin opnaðist inn og þannig að hún var í vegi fyrir allri hreyfingu fyrir innan. Þegar ég benti Sigvalda á að þetta væri allsendis ómögulegt, eins og hann reyndar sá, bað hann mikillar afsökunar og sagði að þeir hafi bara fengið rangar upp- lýsingar en þetta þyrfti að laga sem fyrst. Þetta var á föstudegi, en við ætluðum að koma á mánu- dag, sem var 1. maí. Hann bað mig að hafa samband við sig á sunnudeginum og vonaðist til að vera þá búinn að gera nauðsynleg- ar ráðstafanir, sem stóð heima. Því með því að taka innri hurðina af hjörum og gera kleift að læsa fremri hurðinni var nægilegt pláss til að snúa og athafna sig á salern- inu. Hér var maður sem taldi að vandamál væru til að leysa. Við áttum síðan þarna mjög ánægju- legt kvöld með góðum mat og frábærri þjónustu! Góðar móttökur á ættarmóti Seinni atburðurinn var svo nú um síðustu helgi á ættarmóti í Tungu í Svínadal, líka varðandi salerni aðgengilegt öllum. Það var fyrir nokkuð löngu að ákveðið var að halda þarna ættar- mót og þar sem einhvern tímann hafði einhver maður verið þarna í hjólastól töldu allir nefndarmenn að allt væri í góðu gengi. Ég var aftur á móti vantrúaður sem Tóm- as og ákvað að fara í bíltúr viku áður og skoða aðstæður. Þá kom nú eitt og annað í ljós. Tvær eða þijár útitröppur og alveg ómögu- leg salernisaðstaða. Svo heppilega vildi til að eig- andinn, Guðni Þórðarson, var úti við þegar ég renndi í hlað og sýndi hann mér húsakynnin eftir að hafa hjálpað mér upp tröppurnar. Allir dyr voru vel rúmar og engir þröskuldar eftir að inn var komið, en klósettin þijú svo þröng að ég treysti mér ómögulega til að nota þau nema með mikilli aðstoð. Þetta ræddi ég við Guðna sem afsakaði sig og sagði að varla yrði hægt að laga þetta fyrir næstu helgi því mikið væri að gera hjá honum. Hann var heldur ekki viss um hvernig best mundi að gera þetta. Bauðst ég til að senda honum þær byggingareglu- gerðir sem við eigum og svokölluð Rb-blöð (nánari útlistanir og teikningar frá Rannsóknarstofu byggingariðnaðarins) og þáði hann það með þökkum. Er nú ekki að orðalengja það að vegna anna gat ég ekki farið fyrr en seint aðfaranótt laugar- dags og kveið því að þurfa að vekja menn til að hjálpa mér á klósettið og vaka meðan ég at- hafnaði mig þar. En viti menn, ófullkomin ská- braut var komin og þegar inn var komið kom í ljós nýtt, stórt og hreint fullkomið salerni fyrir fatl- aða! Þarna voru há rúm með dýnum svo mér leið þarna eins og blóma í eggi! Háu rúmin komu Sér vel, ekki bara fyrir mig heldur líka fyrir elstu kynslóðina sem á orðið erfitt með að standa upp úr lágum sætum. Frændfólkið skemmti sér svo þarna í ágætri aðstöðu, nóg rými, leiktæki fyrir börnin og sæmileg- asta tjaldaðstaða fyrir þá sem hana vildu nota. Hér var þá kominn annar mað- ur sem ekki lét sitja við orðin tóm heldur leysti vandann strax. Ég veit ekki hvort fólk almennt gerir sér grein fyrir hve mikil- vægt það er að fá slíkar viðtok- ur. I staðinn fyrir að finnast mað- ur einhvers annars flokks borgari verður maður upplitsdjarfari og finnst sól skína í heiði, hversu þungbúið skýjafarið annars er. GUÐMUNDUR MAGNÚSSON, formaður starfsnefndar Sjálfsbjargar um ferlimál. Nær en þig grunar! - BYKO hefur opnað nýja deild sem sinnir eingöngu viðskiptavinum okkar á landsbyggðinni. Grænt númer er tengt beint til þrautþjálfaðra sölumanna okkar í landsbyggðardeildinni. Þjónustan er einstök. Þú hringir, pantar og vörurnar eru komnar til flutningsaðila innan sólarhrings. BYKO -byggir með þér Grænt númer: - kjarni málsins!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.