Morgunblaðið - 01.07.1995, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
________________ERLEiMT______
Yaxandi ágreiningur milli
Bandaríkjanna og Evrópu
Frakkar gefa í skyn, að gæslulið Sam-
einuðu þjóðanna verði hugsanlega
flutt frá Bosníu án aðstoðar NATO
Reuter
TVEIR breskir gæsluliðar aðstoða starfsmann líkhúss í Sarajevo.
Fjórir óbreyttir borgarar týndu lífi og að minnsta kosti sex
særðust í sprengjuárás Serba á borgina í gær.
París, Sarajevo. Reuter.
VAXANDI hætta er á, að ágrein-
ingnrinn, sem er með Bandaríkja-
stjóm og ríkisstjómum Evrópuríkj-
anna um málefni Bosníu, leiði til
þess, að gæsluliðið verði kallað
þaðan án aðstoðar Atlantshafs-
bandalagsins, NATO. Var það haft
eftir háttsettum manni í franska
vamarmálaráðuneytinu í gær.
Bosníustjóm hefur ákveðið að hafa
engin samskipti lengur við Yasushi
Akashi, sendimann Sameinuðu
þjóðanna, sem hún telur vera hall-
an undir Serba.
„Vandinn er sá, að Bandaríkja-
stjórn er hlynnt og styður hemað
Bosníustjórnar en Evrópuríkin
taka enga afstöðu með deiluaðil-
um,“ sagði háttsettur embættis-
maður í franska vamarmálaráðu-
neytinu, sem ræddi við fréttamenn
gegn því, að þeir nefndu hann
ekki á nafn. Sagði hann, að banda-
rískir foringjar í varaliðinu, þar á
meðal fyrrverandi herforingjar,
aðstoðuðu jafnt Króata sem músl-
ima. „Hermenn Bosníustjómar eru
komnir í nýja einkennisbúninga og
eru vopnaðir M-16-rifflum og við
eigum að láta sem við vitum ekk-
ert hvaðan þeir em komnir," sagði
franski embættismaðurinn.
Embættismaðurinn sagði, að
skilið gæti með Bandaríkjunum og
Evrópu fyrr en varði ef Bill Clinton
forseta tækist ekki að koma í veg
fyrir, að þingið afléttí vopnasölu-
banninu á ríkin í Júgóslavíu fyrr-
verandi. „Þá yrðum við að fara og
fara einir, án hjálpar NATO,“ sagði
hann og bætti því við, að Evropu-
ríkin teldu Serba vera nú til við-
ræðu um friðaráætlunina, sem þeir
hefðu hafnað, en múslimum þætti
hins vegar hemaðurinn æ fýsilegri
kostur.
Hasan Muratovic, ráðherra í
Bosníustjórn, sagði í gær, að ekki
yrði framar rætt við Akashi, sendi-
mann Sameinuðu þjóðanna, en
múslimum finnst hann ganga er-
inda Serba. Reiddust þeir mjög
þegar hann fullvissaði þá um, að
þeim stafaði engin hætta af hrað-
sveitunum, sem eiga að gera
gæsluliðinu kleift að svara fyrir
sig af hörku, og raunar ríkir einn-
ig mikil óánægja í gæsluliðinu með
undanlátssemi Akashis.
Kúlnahríð á höfuðstöðvar
gæsluliðsins
Serbar létu sprengikúlum rigna
yfir höfuðstöðvar Sameinuðu þjóð-
anna í Sarajevo í gær og þótti
mikil mildi, að enginn 200 starfs-
manna þar skyldi slasast. Gary
Coward ofursti og talsmaður
gæsluliðsins sagði, að hugsanlega
mætti rekja árásina til þess, að
stjómarherinn hefur skotið á Serba
með stórskotaliðsvopnum, sem
hann hefur komið fyrir í skjóli við
höfuðstöðvarnar. Allt bendir þó til,
að Serbar hafi vísvitandi beint
skeytum sínum að þeim.
Mikíð mannljón
í flóðum í Kína
Reuter
ÍBÚAR Hokou-sýslu í Jiangxi-héraði styrkja varnargarða
í von um að koma í veg fyrir skemmdir af völdum flóða.
Shanghai. Reuter.
HUNDRUÐ manna hafa iátist og
geysilegt tjón orðið á stórum land-
svæðum í miklum flóðum í Austur-
Kína. Er því spáð að flóðin muni
færast enn í aukana vegna úrkomu
og að manntjón verði meira.
Fréttum af manntjóni ber ekki
sama. Að sögn embættismanns í
Jiangxi-héraði voru 194 látnir i
gær og var búist við að sú tala
myndi hækka verulega. Fjórtán
milljónir manna í komforðabúri
Kína, eins og héraðið hefur verið
nefnt, hafa orðið fyrir skaða eða
neyðst til að flýja heimili sín af
völdum flóðanna.
Dagblöð í Shanghai sögðu tjónið
hins vegar mun minna, að 64 hefðu
látist og að yfirgefa hefði þurft
22.000 heimili. Þá sagði Xinhua-
fréttastofan fyrr í vikunni að um
100 væru látnir í flóðum vegna
úrhellis sem staðið hefði í viku í
Hunan-héraði. Úrhelli á þessum
árstíma hefur iðulega kallað hörm-
ungar yfir svæðin sem Yangtze-
fljótið rennur um. Vegna flóða
hefur fólk neyðst til að búa við
slæmar aðstæður þar sem hætta
er á alvarlegum sýkingum og
dauða. Það sem veldur veðurfræð-
ingum áhyggjum nú eru breytingar
á veðurfari, sem þeir telja að muni
auka enn á hörmungarnar, sem
kunni að verða hinar mestu á þess-
ari öld.
Hækkandi hitastig veldur því
að snjór á Tíbet-Qinghai-háslétt-
unni bráðnar meira en venjulega,
en þar eru m.a. upptök Yangtze-
árinnar. Hefur yfirborð í ám og
vötnum í austurhluta landsins
hækkað verulega og ógna þær nú
flóðgörðum sem veija eiga land-
svæðin fyrir ágangi árinnar.
Þá hefur úrkoma frá apríl og
fram í júní verið óvenju mikil, um
180 mm meiri en í meðalári. Hefur
yfirborð í ám og vötnum aðeins
einu sinni farið eins há.tt frá bylt-
ingu kommúnista árið 1949.
Flóðin hafa náð til borgarinnar
Shanghai, þar sem úrhelli síðustu
daga hefur ekki bætt úr skák. Eru
mörg hverfi borgarinnar undir
vatni. Menn óttast að ástandið
verði mun verra þegar flóðin ná
til borga sunnar með austurströnd-
inni, svo sem Zhejiang og Fujian
en þar verða oft flóð á sumrin er
flóðbylgjur af hafi skella á borgun-
um í kjölfar hvirfilbylja.
Þaulhugsað bankarán vek-
ur aðdáun í Þýskalandi
BANKARÆNINGJARNIR, sem á miðvikudag
komust undan með milljónir marka eftir að
hafa þegið lausnarfé fyrir gísla í banka einum
í Berlín, virðast hafa horfið sporlaust.
Ræningjamir fengu fimm milljónir marka í
lausnargjald fyrir 16 gísla og tæmdu hirslur
útibús Commerzbank í hverfínu Zehlendorf.
Lögregla hefur ekki hugmynd um hvar þeir em
niðurkomnir og segir í dagblaðinu Die Welt í
gær að Þjóðveijar dáist að þeim á laun.
Það var ekki laust við að aðdáunar gætti hjá
lögreglustjóra Berlínar, Hagen Saberschinsky,
þegar hann sagði að ræningjarnir hefðu sýnt
„atvinnumennsku, útsjónarsemi og greind".
Hann bætti þó við að hér væm á ferð „stór-
glæpamenn. Þeim ber engin viðurkenning".
Lögregla er þess fullviss að hér sé úm sér-
fræðinga að ræða. Þeir hafí haft gúmmíhanska
á höndum og skíðagrímur með mjóum augnrif-
um á höfði, þannig að gíslamir hafí aðeins get-
að lýst augnlit ræningjanna þegar þeim var
sleppt. Ránið hafi viljandi verið framið þegar
mörg vitni vom viðstödd til þess að engin bið
yrði á að lögregla kæmi á 'vettvang.
Sýndu slægð
Samningamir við lögreglu bám einnig slægð
vitni. Stjórnandi útibúsins var látinn ræða við
lögreglu til þess að hún fengi ekki sýnishorn
af rödd ræningjanna. Stjómandinn mátti aðeins
svara já eða nei til að tryggja að hann gæti
ekki komið duldum vísbendingum til lögreglu.
Bankaræningjarnir settu stöðugt ný^ skilyrði
fyrir lausn gíslanna til að vinna tíma. A meðan
opnuðu þeir bankageymslur og -hólf með mikl-
um látum til að fela það að þeir væm að gera
gat í sex sentimetra þykkt, steinsteypt kjallara-
gólf útibúsins. Þar fyrir neðan voru göng, sem
ræningjamir hafa sennilega verið nokkra mán-
uði að grafa.
Göngin voru þriggja til fjögurra metra djúp
og teygðu sig að göngum fyrir regnvatn tutt-
ugu metra frá bankanum. Þeim göngum fylgdu
bankaræningjamir 100 metra að öðmm
göngum, sem þeir höfðu grafið inn í tvöfaldan
bílskúr, og þaðan komust þeir óhindrað gegnum
vegatálma lögreglu.
Samkomu-
lag í Hong
Kong
BRETAR og Kínveijar komust
í gær að samkomulagi um
byggingu flugvallar í Hong
Kong en þjóðirnar hafa deilt
hart um fjármögnunina í fímm
ár. Eftir tvö ár munu Bretar
láta yfírráðin yfir Hong Kong
af hendi til Kínveija. Hafa
samskipti þjóðanna verið afar
stirð en íbúar nýlendunnar
vonast til þess að samkomu-
lagið sé til marks um að þau
fari batnandi.
Málamiðlun
samþykkt
FULLTRÚADEILD Banda-
ríkjaþings samþykkti á
fímmtudag frumvarp um 16,4
milljarða niðurskurð á verk-
efnum á vegum hins opinbera.
Þá var samþykkt 6,5 milljarða
dollara framlagt til íbúa Kali-
fomíu vegna náttúruhamfara
og Oklahomaborgar vegna
sprengjutilræðisins þar í apríl
sl. Um er að ræða málamiðlun
á milli Bills Clintons Banda-
ríkjaforseta og þingsins og
lýsti forsetinn ánægju sinni
með margar þeirra breytinga
sem gerðar voru á frumvarp-
inu, sérstaklega þær er varða
menntun, starfsþjálfun, þjón-
ustu og umhverfisreglugerðir.
Lebed hefur
stjórnmála-
þátttöku
RÚSSNESKI herforinginn
Alexander Lebed, sagðist í
gær ætla að flytjast frá
Moldóvu til Moskvu þar sem
hann ætlar að hefja þáttöku í
stjórnmálum. Talið er að
Lebed muni bjóða sig fram til
forseta á næsta ári en hann
fyrr í mánuðinum sagði hann
af sér sem yfirmaður 14. hers-
ins, sem staðsettur er í
Moskvu. Hann. kvaðst myndu
taka við stöðu varaformanns
eins af flokkum þjóðernissinna
á þingi.
Sólbruni
á Irlandi
ÍMYND írlands sem regnvots
lands hefur beðið hnekki á síð-
ustu dögum en þar er nú hita-
bylgja og veðurfar líkast því
sem gerist við Miðjarðarhaf.
Hefur hitinn verið um 30 gráð-
ur undanfarna átta daga og
hafa læknar sagt að sólbruna-
tilfellum hafi fjölgað mjög á
síðustu dögum. Reynt hefur
verið að koma í veg fyrir slíkt
með því að birta áminningar
og leiðbeiningar í blöðum um
notkun sólvarnarkrems.
Milljarða-
bætur vegna
áreitni
FYRRVERANDI starfskonu
hjá bandarísku verslunarkeðj-
unni Wal-Mart voru í gær
dæmdar 50 milljónir dala, 3,2
milljarðar ísl. kr. í skaðabætur
vegna kynferðislegrar áreitni.
Sakaði konan yfirmenn sína
um að hafa verið klúryrtir við
hana auk þess sem einn þeirra
hefði reynt að kyssa hana. Er
dómurinn spurðist út, hrundu
hlutabréf í fyrirtækinu í verði.