Morgunblaðið - 01.07.1995, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.07.1995, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FERÐALÖG Hekla komin ásafn Hellu. Morgunblaðið. OPNAÐ hefur verið Hekluminja- safn á Brúarlundi í Holta- og Landsveit. Ferðalöngum á leið um þjóðveg nr. 26, Landveg í Rangár- vallasýslu, gefst nú kostur á að líta við í Heklumiðstöðinni þar sem margvíslegur fróðleikur um þetta heimsfræga eldfjall er settur fram á smekklegan og aðgengilegan hátt. Ný mynd um Heklu Á sýningunni er saga Heklu og Heklugosa rakin með texta, teikningum, gömlum Heklumynd- um, ljósmyndum, jarðfræðikort- um, vikur- og hraunsýnum og á ýmsan annan hátt. Um jarðfræðiþáttinn sá Hauk- ur Jóhannesson jarðfræðingur, jarðfræðikort gerði Sigurgeir Skúlason landfræðingur en Björn G. Björnsson leikmyndahönnuður hannaði sýninguna og sá um upp- setningu hennar. Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir ÞAÐ eru heimamenn sem standa að Hekluminjasafninu, f.v. Ásta Begga Olafsdóttir og Gísli Sveinsson á Leirubakka, Engil- bert Olgeirsson Nefsholti og Jón Þórðarson Fosshólum. Byggðasafnið í Skógum og ein- staklingar lánuðu fjölmarga muni, s.s. myndir, bækur, úrklipp- ur og uppstoppuð dýr. I Heklumiðstöðinni er minja- gripaverslun og kaffisala, en gestir geta horft á nýja fimmtán mínútna langa sjónvarpsmynd sem Hrönn Kristinsdóttir gerði sérstaklega fyrir safnið, um leið og þeir gæða sér á heimabökuðum kökum og kaffi. Safnið verður opið alla daga í sumar kl. 10:00- 18:00 og á öðrum tímum eftir samkomulagi. Fjallvegir landsins óðum að opnast FJALLVEGIR landsins eru óðum að opnast og er orðið jeppafært í Eldgjá og Fjallabaksleið nyrðri úr Skaftártungu í Eldgjá og Landmannalaugar að vestan, en þar á milli er enn ófært. Þá er Kjalvegur fær og fært er upp í Veiðivötn og Jökulheima. Einnig er fært í Kverkfjöll og um Dómadal í Landmanna- laugar. Kaldidalur er í þann mund að opnast og fýrir helgi verður fært í Öskju. „Þetta er eins og undanfarin ár. Reyndar vorum við hjá Vega- gerðinni frekar svartsýn í byijun vors og héldum að opnun veganna yrði seinna en í venjulegu árferði vegna snjóþungs vetrar, en hlýind- in undanfarið hafa jafnað þann mun,“ segir Hjörleifur Ólafsson deildarstjóri hjá Vegagerðinni. „Nú er verið að moka á Þorska- fjarðarheiði og Axarfjarðarheiði og eru enn sums staðar miklir skaflar, jafnvel við sjávarmál“. Öldufellsleið er enn lokuð og einnig Tröllatunguheiði og Kolla- íjarðaheiði á Vestfjörðum. Vegur um Hólssand að Dettifossi og Jök- ulsá er nú opinn en er blautur enn og þolir takmarkaðann öxul- þunga. „Áætlað er að Sprengi- sandsleið verði fær eftir um 10 daga.“ Kjalvegur er fólksbílafær nú í fyrsta skipti eftir að síðasta veru- lega vatnsfallið, Seiðisá, var brúað í fyrrahaust og Uxahryggir og Kaldidalur eru einnig fólksbíla- færir þó að vegirnir séu frekar ósléttir og enn vondir. Skagafjörður Minnisvarði um Sölva Gistiheimilið Norðurfirði opnar um helgina ÝMISLEGT er um að vera í Skaga- firði á næstunni sem ferðamenn þar ættu að huga að. í dag l.júlí verður afhjúpaður minnisvarði um Sölva Helgason í Lónkoti í Sléttuhlíð eins og sagt hefur verið frá í blaðinu. Sléttuhlíð var fæðingarsveit Sölva eða Sólonar íslandus eins og hann kallaði sig. Einnig er í dag kóramót í Miðgarði í Varmahlíð og syngja þar Rökkurkórinn í Skagafirði, blandað- ur kór frá Siglufírði og blandaður þýskur kór. Þann 23.júlí verður uppákoma í Varmahlíð er hljómlistarmaðurinn Rúnar Þór spilar fyrir gesti og gang- andi við Kaupfélag Skagfirðinga milli 16 og 17.30 og fleira verður til skemmtunar. Undir mánaðamótin næstu eða 29.júlí verður Krókshlaup- ið á Króknum, og er það almennings- hlaup og keppt í 3ja og 10 km hlaupi. NÝTT gistiheimili verður opnað í Norðurfirði á Strönd- um um helgina. Gistiheimilið í Norðurfirði er til húsa í fyrrum verbúð rétt við höfnina. Þar er boðið upp á svefnpokapláss og uppábúin rúm og morgunmat. Að sögn eigandans Bergþóru Gústafsdóttur hentar gisti- heimilið vel 15-20 manna hópum. Gestir geta gætt sér á fískiréttum á gistiheimilinu og fer matseðillinn eftir því hvað veiðist, segir Berg- þóra. Stutt er í sundlaug á Krossnesi sem er opin all- an sólarhringinn og er á fjörubakkanum. Stundum bregður við að forvitnir selir skjóti upp kollinum í sjón- um rétt við sundlaugina í leit að félagsskap og vekur það lukku á meðal ferðamanna, segir Bergþóra. Boðið er upp á útsýnisferðir á bát að Dröngum og eru fjölmargar fallegar gönguleiðir í nágrenninu. Strandir eru frægar fyrir hrikalega og fallega fjalla- sýn. Einnig eru þar sögufrægar slóðir, m.a. var þar síðasta galdrabrennan og Fóstbræðrasaga gerist þar að mestu leyti. Að sögn Bergþóru hefur straumur ferðamanna auk- ist töluvert síðustu ár og eru Þjóðveijar í meirihluta. Síðasta sumar var boðið upp á svefnpokapláss í Norður- NORÐURFJÖRÐUR og sér yfir Drangajökul fírði en annars hafa ferðamenn aðeins getað sótt gisti- aðstöðu til Hótel Djúpuvíkur hingað til. Svefnpokapláss kostar 1.500 krónur nóttin og upp- búið rúm 2.000 krónur og er morgunmatur innifalinn. Fiskihlaðborð mun kosta um 1.000 krónur. Laugarvatn Fjölskyldu- helgi UM helgina verða fjölskyldur einkar velkomnar á Laugarvatn enda hefur verið unnið að því að efla staðinn sem kyrrlátan áningarstað fjölskyldufólks. Lóa Ólafsdóttir, forstöðumaður tjald- svæðisins segir að ungiingar 16 ára og yngri verði að vera í fylgd með fullorðnum og mikið sé lagt upp úr því að böm eða unglingar séu ekki með vín og sé þá vísað frá. Mistök urðu á ferðasíðu á miðvikudaginn í umfjöllun um útisamkomur og mátti ætla að unglingar væru þar með ærsl og drykkjulæti. Lóa segir að mikið kapp hafí verið lagt á að ýta undir hið gagnstæða og að fjölskyldur kæmu og ættu kyrrlátar helgar á staðnum. Um helgina verður margskonar dagskrá fyrir tjaldgesti, svo sem grill- veislur, kvöldvökur og margt fleira. Tjaldstæði kostar 370 kr. Upplýsingamiðstöð og ný Eyjamynd Vestmannaeyjum. Morgnunblaðið. UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ ferðamála í Vestmannaeyjum var opnuð í stækkuðu og endurbættu húsnæði og er nú um helmingi stærri en áður og mun betri aðstaða er fyrir alla sem koma þang- að. Þá var kynntur nýr bækl- ingur um Vestmannaeyjar sem ferðaþjónustumenn í Eyjum hafa sameinast um að gera og ný kvikmynd um uppbygginguna í Eyjum frá goslokum til dagsins í dag. Upplýsingamiðstöðin er á Vest- mannabraut 38 í Eyjum og rekin af hjónunum Emi Ólafssyni og Hrefnu Hilmisdóttur. Þau hjón ráku um nokkurra ára skeið ferða- skrifstofu og seldu Eyjamönnum ferðir út í heim fýrir Samvinnu- ferðir - Landsýn er bærinn gerði samning við þau um rekstur upp- lýsingamiðstöðvarinnar. Síðan hefur starfsemin þróast og þjón- ustan aukist. Örn Ólafsson sagði að megin- _ Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson ELIAS Bjarni Gíslason, ferðamálafulltrúi, ásamt Hrefnu Ililmis- dóttur og Emi Ólafssyni sem reka Upplýsingamiðstöð ferðamála . markmiðið sé að miðla upplýsing- um til ferðamanna um hvað væri í boði í Eyjum og vísa þeim veginn eftir þeirra óskum. Hann sagði að sl. ár hefðu um 2.000 manns nýtt sér þessa þjónustu og eflaust ætti eftir að fjölga hjá þeim nú. Örn sagði að þessi þjónusta hefði líka það hlutverk að miðla upplýsing- um til Eyjamanna sem hyggðust ferðast um ísland. Frammi lægju allir bæklingar sem gefnir væru út af þeim sem sinntu ferðaþjónustu svo að hand- hægt væri að kíkja inn til að fá upplýsingar sem vantaði áður en ALLIR helstu ferðaþjónustuaðilar voru við opnun stærri og rúm- betri Upplýsingamiðstöðvar á Vestmannabraut 38 í Eyjum. haldið væri af stað í ferðalagið. Miðstöðin er opin alla daga frá kl. 9-17 og um helgar frá 13-17. Elías Bjarni Gíslason, atvinnu- og ferðamálafulltrúi í Eyjum, sem hafði umsjón með útgáfu upplýs- ingabæklingsins, sagði að þar væri ágrip af sögu Eyjanna og upplýsingar um ýmislegt áhuga- vert fyrir ferðamenn sem þangað koma og yrði honum dreift um allt land. Elías sagði að einnig hefði verið unnið að gerð skilta sem sett verða upp á ýmsum án- ingastöðum ferðamanna í Vest- mannaeyjum. Skiltin eru með hag- nýtum upplýsingum sem ferða- menn geta nýtt sér. Kvikmyndin Kraftaverkið er framleidd undir stjórn Sigurgeirs Schewing sem undanfarin ár hefur staðið fyrir kvikmyndasýningum fyrir ferðamenn. Myndin fjallar um uppbyggingu í Eyjum eftir gos og er nokkurs konar framhald Eldeyjarinnar sem Sigurgeir sýnir einnig en hún er um eldgosið í Eyjum. Eru daglegar sýningar á myndunum í Félagsheimilinu við Heiðarveg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.