Morgunblaðið - 01.07.1995, Síða 8

Morgunblaðið - 01.07.1995, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Helga jónsdóttir borgarritarí tekur v/ð staríi stjórn- arformanns Landsvirkjunar: „Finnst ég hafa færst æði mikið í fang" Það er ekki bara holdarfarið Jóhannes minn. Þú ert nú líka orðin ansi vel tengdur við kerfið . . . Biskup lendir í óeirðum í Betlehem BISKUP íslands, herra Ólafur Skúlason, og Viðar Víkingsson, kvikmyndagerðarmaður, lentu á milli tveggja elda í átökum á milli mótmælenda úr röðum araba og ísraelskra hermanna í gær. Biskup segir þá aldrei hafa verið í beinni hættu en eftir á að hyggja hafi þetta verið óþægileg lífsreynsla. Biskupinn hélt til ísraels síðastlið- inn þriðjudag ásamt þremur kvik- myndagerðarmönnum til að taka þátt í gerð nýrrar íslenskrar heim- ildaþáttaraðar, sem tekin er á sögu- slóðum Biblíunnar. Biskup er sögu- maður þáttanna. í gærmorgun fór tökuhópurinn með bíl til Betlehems og tók upp efni með biskupi í Fæðingarkirkju frelsarans, sem stendur við svokallað Jötutorg. Torgið er lítið en við það standa einnig moska og ísraelsk lög- reglustöð. Meðan á tökunum stóð var bænahald í moskunni við hlið kirkjunnar en föstudagur er helgi- dagur múslima. Bænargjörðinni var útvarpað yfir torgið og næsta ná- grenni í gegnum hátalara. Að sögn biskups hljómaði þaðan mikill reiði- lestur en ólga hefur verið á sjálf- stjórnarsvæðum Palestínumanna að undanförnu vegna deilna þeirra við Israela um lausn nokkur þúsund palestínskra fanga. Er tökum var lokið gekk biskup ásamt fylgdarliði út á torgið í átt að bílnum en þá hafði nokkur mann- Qöldi safnast þar saman. Þegar ís- lendingarnir komu að bílnum sáu þeir að afturrúða hans hafði verið brotin. Fóru kvikmyndagerðarmenn- irnir Jónmundur Guðmarsson og Þórður Þórarinsson inn á lögreglu- stöðina til að tilkynna skemmdar- verkið en biskup beið á meðan á torginu ásamt Viðari. Með púðurlykt í nösunum Fram að þessu hafði allt verið friðsamlegt á torginu en einhver spenna lá samt í loftinu, að sögn biskups. „Skömmu síðar lauk bæna- haldinu í moskunni og fólkið fór að streyma út úr henni. Þar var að Félagarnir dauðhræddir HERRA Olafur Skúlason. JÖTUTORG í Betlehem og Fæðingarkirkja frelsarans. Moskan er við hinn enda torgsins. mestu um að ræða konur og eldra fólk sem lét friðsamlega. Skyndilega kom svo annar hópur úr moskunni; unglingar og menn um tvítugt. Þeir létu ófriðlega og hrópuðu slagorð til lausnar palestínsku föngunum. Þeir fóru síðan að kasta gijóti í hermenn á torginu en veittust hvorki að okk- ur né öðrum ferðamönnum sem þarna voru. Við stóðum í mann- þrönginni miðri og vissum ekki hvað- an á okkur stóð veðrið. Viðar tók að kvikmynda óeirðirnar en ég fór að palli þar sem nokkrir gamlir ara- bar sátu til að fá betri yfirsýn. Allt í einu glymja við skothvellir og leyst- ust þá mótmælin upp á örskots- stundu. Mannfjöldinn þusti af torg- inu og litlu munaði að Viðar yrði fyrir honum með vélina. Lögreglan hefur líklega bara skotið til viðvör- unar því við sáum engan liggja eftir í valnum en það nægði til að tæma Við bílinn hittu þeir síðan Þórð og Jónmund, sem voru í lögreglu- stöðinni þegar skotin glumdu við, og urðu skiljanlega dauðhrædddir um félaga sína. Fjórmenningarnir settust síðan í bílinn og komu sér í burtu af Vest- urbakkanum. „Við ókum sem leið lá á hótelið okk- ar í Jerúsalem og þar urðum við vitni að öðrum mótmælum, öllu frið- samlegri reyndar. Þar voru Israelar að mót- mæla lausn þessara sömu fanga,“ segir Ólaf- ur. Biskup telur að hann og Viðar hafi aldrei verið í lífshættu. „Hættan var aðallega sú, held ég, að við yrðum fyrir ungling- unum þegar þeir flúðu, en við gerðum okkur ekki grein fyr- ir hénni fyrr en eftir á. Viðar var að minnsta kosti alveg ljónheppinn að þeir hlupu hann ekki um koll. Þetta gerðist allt svo hratt að ég fann ekki til hræðslu." Atburðir gærdagsins hafa lítillega raskað áætlunum kvikmyndahópsins en biskup segir að annars hafi allt gengið vel og að þeir hlakki til að sj’na afrakstur ferðarinnar heima. „Eg naut þess mjög að heimsækja Fæðingarkirkju frelsarans. Þar hitti ég að máli erkibiskup grísku rétt- trúnaðarkirkjunnar í Betlehem og aðstoðaði hann okkur við kvik- myndatökuna. Það voru því mikil viðbrigði að koma út á torgið og lenda í öllum þessum æsingi. Við munum alveg örugglega fara gæti- lega hér eftir og ég bið fyrir bestu kveðjur heim,“ sagði Ólafur Skúla- son biskup. torgið. Arabapiltarnir flúðu í átt að moskunni en hermenn, gráir fyrir járnum, ráku flóttann. Við Viðar hlupum hins vegar í átt að bílnum með púðurlykt í nösunum en hana hef ég aldrei fundið áður.“ Alþingishúsið opið almenning Slæmt ef þingið er ekki í góðu * i • i • i • / i • ^ • aliti hja þjoðinm Ólafur G. Einarsson A LÞINGISHÚSIÐ /A verður opið al- -*■ menningi í dag frá kl. 12 á hádegi til kl. 16 og munu þingmenn og ráðherrar taka þar á móti gestum í tilefni af því að 150 ár eru liðin frá fyrsta fundi hins endurreista Alþingis, en þingið kom saman til fyrsta fundar 1. júlí 1845. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem almenningi gefst kostur á að kynna sér starfsemi Alþingis, því í fyrra var haldin sýn- ing í Alþingishúsinu í til- efni af 50 ára afmæli lýð- veldisins íslands. Hins vegar er þetta í fyrsta skipti sem þinghúsið er opið öllum og almenningi gefinn kostur á að hitta þar að máli þingmenn og ráðherra, sem segja munu frá starfsemi þings- ins og eigin störfum. Auk þess sem gestir geta rætt við forseta þingsins, ráðherra og aðra þingmenn gefst þeim tæki- færi til að ganga um þinghúsið og kynna sér sögu þess og ýmissa muna sem til sýnis verða. Þá verða upplýsingar um þingið á veggspjöldum og margþætt störf þess og nýjum kynningarbækl- ingi verður dreift til gesta. Ólafur G. Einarsson, forseti þingsins, segist vona að þ'etta sýni glögg- lega að þingmenn vilji nánari tengsl við umbjóðendur sína inn- an veggja þinghússins, en ákveð- ið hafi verið að nota þessi tíma- mót til þess. — Heldur þú að almenningur sé frekar óupplýstur um starf- semi Alþingis og alþingismanna? „Já það held ég. Það eru ótrú- lega margir sem maður þekkir persónulega og aldrei hafa komið inn í þetta hús, en þannig held ég að þessu sé varið með hvern einasta þingmann. Að sjálfsögðu koma hér oft hópar á þingpalla þegar einhver sérstök mál sem varða viðkomandi hóp eru á dag- skrá, en það eru ekki nema nokkrir tugir manna. Síðan koma hér við einstaklingar, svona kannski meira fyrir tilviljun, og svo höfum við nokkra menn sem koma hér oft til að hlýða á um- ræður, þótt ekki vilji ég kalla þá fastagesti. Það er því ótrúlega lítill hópur sem þekkir þinghúsið af eigin raun. Það getur því vel verið að það sé ekki vanþörf á að hafa kynningu af þessu tagi af og til í framtíðinni. Við munum að minnsta kosti draga lærdóm af því hvernig við þessu verður brugðist núna.“ — Nú hefur þú verið forseti þingsins frá því það kom sam- an að loknum kosn- ingum í vor og frammistaða þín hef- ur verið lofuð. Hefur þú fundið þig vel í þessu starfi? „Já, mikil ósköp, ég kann vel við mig í þessu. Eg hafði og hef að sjálfsögðu á því skoðanir hvað sé hægt að gera hér vegna þess hvað ég hef setið lengi á þingi. Ég er sá sem hefur setið næst- lengst af þeim sem nú eiga sæti á þingi, en Ragnar.Arnalds hefur setið einu kjörtímabili lengur en ég-, Ég er mjög þakklátur fyrir þau viðbrögð sem ég hef orðið var við og þá er ég kannski ekki að ►Ólafur G. Einarsson, forseti Alþingis, er fæddur 7. júlí 1932 á Siglufirði. Hann lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1953 og lögfræði- prófi frá Háskóla Islands 1960. Ólafur var sveitarstjóri Garða- hrepps frá 1960 til 1972, en hann átti sæti í hreppsnefnd Garðahrepps og bæjarstjórn Garðabæjar frá 1966 til 1978 og var hann forseti bæjar- stjórnar frá 1975 til 1978. Ólaf- ur hefur verið þingmaður Reykjaneskjördæmis frá 1971 og hann var menntamálaráð- herra 1991-1995. Hann hefur auk þess gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum á sviði sveit- arstjórnamála og á vegum Al- þingis og árið 1984 var hann sæmdur stórkrossi þýsku þjón- ustuorðunnar með stjörnu. Eiginkona Ólafs er Ragna Bjarnadóttir húsmóðir og eiga þau eina dóttur. tala um óverðskuldað lof sem hefur verið borið á mig í blöðum, en ég met það engu að síður. Miklu frekar er ég þakklátur fyr- ir það hvemig þingmenn brugð- ust við mínum ábendingum, en ég fann mjög ríkan vilja hjá þeim til að breyta þessari ásýnd þings- ins sem að minni hyggju og ég held alls almennings var ekki góð. Auðvitað er ekki komið eitt- hvert nýtt snið sem við getum reiknað með að verði, en svona fyrstu viðbrögð eru mjög jákvæð og það þykir mér gott. Eg minn- ist til dæmis alls ekki fyrsta þings eftir kosningar sem var með þeim blæ sem vorþingið núna var, því oft em menn nú ókyrrir einmitt á fyrsta þingi. En það var ekki nú. Málþóf átti sér aldrei stað og um óeiningu um dagskrá eða fundarstjórn forseta var ekki að ræða. Ég vonast eindregið til þess að á þessu verði framhald og mun leggja mig fram um það, auð- vitað með sérstöku sam- starfi milli forsætisnefndarinnar og formanna þingflokkanna sér- staklega, en að sjálfsögðu með góðu samstarfi við þingmenn yf- irleitt." - Telur þú að þetta verði til þess að breyta ímynd Alþingis út á við? „Það vona ég mjög eindregið vegna þess að það er engum til góðs ef stofnunin sem slík er ekki í góðu áliti hjá þjóðinni. Það er vont og við þurfum að leggja okkur fram um að bæta það.“ „Ótrúlega lítill hópur þekkir þinghúsið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.