Morgunblaðið - 01.07.1995, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995 11
HUNDRAÐ ÁRA AFMÆLI SEYDISFJARÐAR FAGNAÐ í BLÍÐSKAPARVEÐRI
ÞORVALDUR Jóhannsson, bæjarstjóri Seyðisfjarðar, tók á móti
Vigdísi Finnbogadóttur, forseta íslands, við minnismerki Ottós
Wathne þegar hún kom til bæjarins og ávarpaði hana og aðra
gesti þar. Fjöldi fólks beið komu Vigdísar og stilltu börnin sér
upp og veifuðu fánum í tilefni dagsins.
FRÆNKURNAR í eins kjólum. Systurnar Ingibjörg Rafnsdóttir,
5 ára, og Særún Rafnsdóttir, 3 ára, veifa fánum ásamt frænku
sinni Iðu Jóhannsdóttur, 3 ára, sem situr á milli afa og ömmu
þeirra allra, Ingibjargar Rafnsdóttur og Árna Stefánssonar.
Hann er þó víst betur þekktur undir nafninu Addi í Firði.
Morgunblaðið/Halldór
BÆJARBÚAR
STILLTU SAMAN
KRAFTA SÍNA
Seyðisfirði. Morgunblaðið.
„HÚN ER að koma, þarna er
hún.“ „Hvar, hvar?“ „Þarna í
svarta bílnum." „Jaaaá, þarna,
nú sé ég hana, sjáðu, þarna er
forsetinn!"
Eftirvæntingin leynir sér ekki
meðal ungviðsins á Seyðisfírði
þegar þjóðhöfðinginn heimsækir
bæinn þeirra í tilefni af 100 ára
afmælishátiðinni. Fjörðurinn
skartar sínu fegursta, gróðurinn
teygir sig langt upp í fjallshlíð-
arnar þar sem skínandi snjórinn
tekur við í dældunum. Leysinga-
vatn er með mesta móti og hvert
sem litið er fossa lækir niður
snarbrattar fjallshlíðarnar. Veð-
urguðirnir voru örlátir við Seyð-
firðinga á afmælishátiðinni, ekki
blakti hár á höfði í sólskininu,
hitinn er vel yfir 20 stig.
Listaverk á 16 stöðum
Bærinn er perla fjarðarins,
sparibúið afmælisbarn, og bæj-
arbúar stoltir. Yfir 30 listamenn
eru með verk til sýnis á 16 stöð-
um í bænum. Hér hafa hús verið
máluð, garðar verið slegnir og
bæjarbúar gáfu sjálfum sér
stórglæsilegt torg í miðbænum.
Afmælishátíð Seyðisfjarðar-
kaupstaðar var formlega sett í
gær við hátíðlega athöfn á torg-
inu. Forseti bæjarsljórnar, Arn-
björg Sveinsdóttir, flutti ávarp,
kirkjukórinn söng „Seyðisfjörð-
ur“, forseti íslands flutti ávarp
og afhjúpaði listaverkið Útlínur
eftir Kristján Guðmundsson. Vig-
dísi varð á orði að nú hefðu
bæjarbúar stillt saman krafta
MAGNÚS Heiðdal Karlsson,
5 ára, var ekki alveg viss
hvers vegna forsetinn væri
að koma. Móðir hans, Sigríð-
ur Heiðdal Friðriksdóttir,
leiddi hann i allan sannleika
í málinu.
sína til að minna sjálfa sig á
hvað þeir geti gert sér og samfé-
lagi sínu til sóma og bæri hátíða-
dagskráin þess greinilega merki.
Um leið skerpi bæjarbúar skiln-
ing sinn á því hvers vegna þeir
væru tengdir sterkum böndum
við þetta land, þennan fjörð og
þennan bæ. Hvers vegna Seyðis-
fjörður er þeirra staður í tilver-
unni. Hún fór nokkrum orðum
um sögu bæjarins og hlutverk í
þróun islensks samfélags en
Seyðisfjörður var fjórði bærinn
á landinu sem fékk kaupstaðar-
réttindi. Utanríkisráðherra, fé-
lagsmálaráðherra og fleiri mætir
gestir fluttu ávörp og óskuðu
Seyðfirðingum innilega til ham-
ingju með afmælið og voru bæj-
arbúum fluttar veglegar gjafir
af tilefninu.
Þegar barnakórinn skyldi
flytja sitt atriði kom babb í bát-
inn, söngbörnin voru svo spennt
yfir öllum hátíðahöldunum að
þau höfðu týnst tímabundið en
skiluðu sér fljótt upp á svið og
skiluðu hlutverki sínu með mikl-
um sóma.
Gjörvilegur bær
Ungir sem aldnir, aðfluttir og
brottfluttir, karlar og konur, all-
ir skemmtu sér hið besta. Hinir
eldri voru sammála um að margt
hefði breyst á undanförnum
árum og áratugum.
Seyðisfjörður stæði þó uppi
sem gjörvilegur bær. Börnin
fengu ís og annað góðgæti en
voru ekki jafnhárviss og hinir
eldri af hveiju þetta tilstand staf-
aði. Það kom þó ekki í veg fyrir
að þau gætu skemmt sér. Unga
fólkið hefur verið iðið í bæjar-
vinnunni og uppsker nú laun erf-
iðis síns því fyrir utan hátíðar-
dagskrána og stemmninguna eru
unglingadansleikir í kvöld og
annaðkvöld.
Lengra
og betra
með Heimsklúbbnum
og Príma
Karíbahafið
Eyjan DÓMINÍKANA er ekki
eyðisker heldur jarðnesk paradís í
Karíbahafi, þar sem litfagur
gróður og lostætir ávextir prýða
tilveruna. Innfæddir eru þeldökkir
eða af blönduðum uppruna, fall-
egt fólk, kurteist og ljúft í viðmóti.
Hótelin okkar eru falleg, sum með
öllu inniföldu, svo þú tekur ekki
upp budduna í ferðinni, fullt
úrvalsfæði, aliir drykkir, skemm-
tanir, íþróttaaðstaða. Margir hafa
sannfærst af eigin raun, að þetta
eru kostakjör, ódýrara en Spánar-
eða Kanaríeyjaferð. Okkar eigin
fararstjóri á staðnum í jan.-feb.
1996.
Nú er tíminn til að tryggja sér
pláss á sérstökum kjörum.
Tækifærisferðir, s.s. brúð-
kaup, afmæli, klúbbar allt árið.
Það nýjasta og besta -
Sigling á Imagination
Skemmtilegustu lúxussiglingarn-
ar eru með CARNIVAL CRUISES.
Vígslujómfrúrferð á nýjasta, glæsi-
legasta skipinu - IMAGINATION
með fullu lúxusfæði um borð í fljót-
andi borg með öllum skemmt-
unum og tilbreytingu, sem boðist
getur á einni viku. Tengt við vikud-
völ á nýju lúxus-hóteli á
Dominicana, RESAISS-ANCE.
ísl. fararstjóri Heimsklúbbsins
tryggir örugga, þægilega ferð.
8. sept. Fá pláss laus.
PERLUR
AUSTURLANDA
Austurlönd eru spennandi og
meira ævintýri en þú hefur kynnst
annars staðar á ferðalögum með
betri hótel, ljúffengari og ódýrari
mat, ódýran fatnað úr vönduðum
efnum, fegurð og fjölbreytta
menningu. Nú býðst þér það besta
í Asíu á áður óþekktu tilboðsverði:
HONG KONG - SINGAPORE -
BAU - BANGKOK - 2. okt.,
20 dagar, örfá sæti laus.
Misstu ekki af tækifærinu, sem er
einstakt. Verðgildi peninganna
hvergi meira.
FERÐASKRIFSTOFAN
LEH9ANDI í SÖLU FARSEÐLA
TILASÍU 0G ÁSTRALÍU
Austurstræti 17, 4. haaÐ,101 Reykjavik,
sími 56 20 400, fax 562 6564