Morgunblaðið - 01.07.1995, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995 45
(SLAND
3Q<jp : (SLAND
: 1
30w: tsi-ANO 30»
• *
■ . -
ÍSIAND
30<v
(SWND ,v
30»
ÍSLAND
Í5LAND i| 30
PÓSTSKIP á frímerkjum.
FRIMSYN 95
FBIMERKl
Áhugaverd sýning
LÝSING
SÝNINGAREFNIS
í ÞÆTTI 27. apríl sl. var sagt
allrækilega frá frímerkjasýningu,
sem þá stóð fyrir dyrum í tengslum
við landsþing Landssambands ís-
lenzkra frímerkjasafnara. Sýning
þessi nefndist FRÍMSÝN 95 og var
haldin í nýreistu Safnaðarheimili
Háteigssóknar dagana 5.-8. maí.
Þar sem sýningin var ekki stór í
sniðum fór nokkuð vel um hana í
þessum húsakynnum. Heldur var
samt þröngt á milli ramma og lýs-
ingin var ekki nægjanlega góð,
enda ekki sniðin fyrir sýningarhald
af þessu tagi. Ekki kom þetta samt
svo mjög að sök. Aðsókn var meiri
en menn höfðu búizt við. Um þús-
und mahns skrifuðu nöfn sín í
gestabók, en fjölmargir gerðu það
ekki, og margir komu daglega.
Má því vel áætla að gestir hafi
alls orðið um tvö þúsund. Verður
slíkt að teljast mjög gott á svo-
nefndri landssýningu.
Félag frímerkjasafnara sá um
FRÍMSÝN 95 og varð ekki annað
séð en allur undirbúningur og
framkvæmd hennar hafi verið fé-
laginu og sýningarnefnd til mikils
sóma. Því miður vill oftast fara svo
að verkið mæðir á of fáum mönn-
um þegar á hólminn kemur. í áður-
nefndum þætti í apríl var rakið
nokkuð nákvæmlega það sýningar-
efni, sem yrði á sýningunni, og
verður það því ekki endurtekið
hér. í samkeppnisdeild voru fá
söfn, hvað svo sem veldur. Hér vil
ég taka upp ummæli formanns FF,
Garðars Jóhanns, sem hann birtir
í síðasta blaði félagsins, Safninu.
Hann segir: „Það er einhverra
hluta vegna ekki auðvelt að fá ís-
lenska frímerkjasafnara til að sýna
söfn sín, og sýningarnefndir hér á
landi þekkja ekki þann vanda sem
erlendar nefndir standa ávallt
frammi fyrir; að þurfa að hafna
nokkrum hluta þeirra safna sem
berast á sýninguna." Því miður eru
þetta orð að sönnu. En sem betur
fer var þeim mun meira að sjá af
margs konar efni í Opinni deild.
Svo virtist sem margir gestanna
hefðu einmitt ekki síður áhuga á
því, sem þar var til sýnis af öðrum
hlutum en frímerkjum. E.t.v. er
þetta nokkur vísbending um þá
þróun, sem borið hefur á í sam-
bandi við söfnun almennt. Frí-
merkjasafnarar einskorða sig t.d.
ekki lengur við hefðbundna söfnun
eftir löndum eða tegundum (mótíf-
um) frímerkja, heldur safna einnig
margir hverjir stimplagerðum
þeim, sem notaðar hafa verið til
ógildingar frímerkja. Þá safna
þekktir safnarar einnig póstkort-
um eftir ýmsum reglum. Allt þetta
má sjá á sýningum. En svo bætist
ýmislegt annað efni við. Ekki er
heldur nokkur vafi á því, að það
eykur verulega á íjölbreytni sýn-
inga og þá um leið aðsókn að þeim.
Eins og áður segir, komu ekki
mörg söfn til dóms eða úrskurðar
dómnefndar. Norskur safnari,
Gunnar Loshamn, fékk hæstu
verðlaun, gyllt silfur eða 77 stig,
fyrir safn frá Dönsku Vestur-Ind-
íum. Þorvaldur Jóhannesson er nú
eini íslenzki safnarinn, sem helgar
sig einvörðungu svonefndri flug-
sögusöfnun, eftir að Páll H. Ás-
geirsson féll frá á liðnu ári. Hann
átti tvö slík söfn á FRÍMSÝN 95,
og hlutu þau 72 stig og 65 stig,
eða stórt silfur og silfur. Fékk
Þorvaldur heiðursverðlaun Frí-
merkjaklúbbsins Öskju á Húsavík
fyrir Flugsögu íslands 1945 - 60.
I unglingadeild voru nokkur
áhugaverð söfn, en þau áttu ung-
lingar, sem hafa þegar getið sér
orð á sýningum. Gunnar Garðars-
son fékk gyllt silfur eða 83 stig
fyrir safn sitt Ránfuglar í útrým-
ingarhættu. Að auki fékk hann
heiðursverðlaun frá LÍF. Guðni
Friðrik Árnason fékk einnig gyllt
silfur fýrir safn sitt Kristófer Kól-
umbus og fundur Ameríku eða 75
stig. Gísli Geir Harðarson fékk enn
fremur gyllt silfur og 75 stig fyrir
safn sitt Tónskáld tveggja tíma-
bila. Báðir þessi ungu menn fengu
einnig heiðursverðlaun, Guðni
Friðrik frá FF og Gísli Geir frá
Minningarsjóði Páls H. Ásgeirs-
sonar. Þá voru veitt verðlaun fyrir
athyglisverðasta nýja safnið, en
þau eru LÍF-bikarinn svonefndi.
Þau hlaut að þessu sinni Steinar
Örn Friðþórsson fyrir safn, sem
hann kallar Stríðið í Evrópu.
Ákveðið var á landsþingi LÍF norð-
ur á Akureyri fyrir tveimur árum
að taka þessi verðlaun upp og veita
þau árlega. I því skyni var gerður
sérstakur bikar, kenndur við LÍF,
sem verður farandbikar, þar sem
nafn sýnandans verður greypt á.
Er þess vænzt, að þetta verði ung-
um söfnurum hvatning til að setja
saman söfn á frumlegan og
skemmtilegan hátt.
Hér voru sýnd þrjú söfn mjög
ungra safnara, sem eru að feta
fyrstu spor sín á sýningum. Systk-
in, Bryndís Vigfúsdóttir og Baldvin
Vigfússon, áttu þar hvort sitt safn-
ið, Afmælisdagar og Flutninga-
tæki og fleira.. Sindri Höskuldsson
sýndi safnið Kanadísk frímerki frá
15 ára tímabili. Dómarar töldu
þessi söfn athyglisverð, miðað við
aldur, enda fóru þeir í gegnum þau
með sýnendum og gáfu þeim góð
ráð upp á framhaldið. Margt annað
athyglisvert sýningarefni var
þarna, þótt þess verði ekki getið
sérstaklega hér.
Ný frímerki 20. júní.
íslenzka póststjórnin gaf út
fjögur ný frímerki 20. júní sl. Að
þessu sinni urðu enn skip fyrir
valinu, svo sem var árið 1991.
Hefur útgáfu þessari verið valið
heitið Póstskip. Svo sem alkunna
er, voru siglingar milli Islands og
annarra landa og eins með strönd-
um fram í höndum Dana, þar til
Eimskipafélag íslands var stofnað
árið 1914. Var það Sameinaða
gufuskipafélagið danska, sem ann-
aðist þessar siglingar um nær heila
öld. Hér má sjá tvö skip félagsins
á merkjum þessum, Lauru og
Dronning Alexandrine. Þá er
Goðafoss III., sem Eimskipafélagið
lét smíða eftir seinna stríð, á þriðja
merkinu. Á hinu fjórða er svo flóa-
báturinn Laxfoss, sem margir
minnast enn þá og var í förum
milli Reykjavíkur og Borgarness
með viðkomu á Akranesi. Siglingar
á þessari leið hófust 1890, og þar
var Suðurlandið iengi í förum.
Hefði ég sjálfur kosið, að það
ágæta skip hefði hér hlotið náð
fyrir augum útgáfunefndar póst-
stjórnarinnar og orðið hið fjórða í
þessum flokki.
Enn get ég ekki orða bundizt
yfir því, hversu skýringar mynd-
efnis frímerkjanna eru orðnar
stuttorðar í tilkynningu póststjórn-
arinnar. Ræddi ég þetta mál í
þætti 4. maí, og hefur skoðun mín
sízt breytzt, eftir að hafa fengið
síðustu tilkynningu hennar í hend-
ur. Ég hef vissulega heyrt, að
sparnaður ráði hér einhveiju um,
m.a. lækkun burðargjalds undir
þessar tilkynningar, en hér er sem
fyrr skammt öfganna á milli. Og
græðir pósturinn m.a. ekki svo vel
á frímerkjasöfnurum, að hann geti
hér haldið fyrri reisn sinni í þessum
efnum?
Jón Aðalsteinn Jónsson
BRIDS
llmsjón Arnór G.
Ragnarsson
Sumarbrids
Mánudaginn 26. júní mættu 30 pör
í súmarþrids. fjþilaðar vorú- i 5-umferð-
Jóri Hersir-Eljassoy— Guðrúfl Jóham\ésdottir' • 507
'CuðlaugurSveiiBson-LálúsIienNfnssoh 487
Gýðipúndur Baldursson-’SvéirirSmánnssön 472
GarðarGarðarssön-EýljórJónssori . 459
A/V riðill
Guðmundur Gunnarsson - Gúnnar Þórðarson 494
AlbertÞorsteinsson-BjömÁrnason 473
Þórir Leifsson - Óskar Karlsson 471
Jón Stefánsson — Tómas Sigurjónsson 457
Meðalskorvar 420
Þriðjudaginn 27. júní mættu síðan
32 pör og var spilað með sama fyrir-
komulagi. Úrslit urðu:
N/S riðill
Halldór M. Sverriss. - Sveinn R. Þorvaldss. 542
Magnús Torfason - Guðmundur Pétumson 4§7
Jón Stefánsson - Sveinn Sigurgeirsson 462-
Birna Stefnisd. - Aðalsteinn Steinþórss. 449
A/V riöill
MagnúsAspelund-SteíógtímurJónasson. . 481'
■ AnnaÞoraJónsdóttir-flinanJónsson s . 459
ÖiafurJónssoif.-BaldarCíska!§son; 'y 45.7
Þrtihjr Inghnafssoii-’Íóak (jrn Sigurðssoií r&t.
PYamyegis* verður spilað RL'. 19 á
sunhudögum,. eri ekki kí. J4.' Þriðju-
daginn 4. júlí vérð'úr spilaður þaromet-
er eftir Monrad kerfi í sumarbrfds.
Spilað er í Þönglabakka 1.
MESSUR Á MORGUIVI
Guðspjall dagsins:
Hinn týndi sauður.
(Lúk. 15.)
ÁSKIRKJA: Vegna sumarleyfa
starfsfólks er bent á messu í Laug-
arneskirkju kl. 11. Árni Bergur Sig-
urbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Kvöldmessa kl.
21. Eigum hljóða stund í kirkjunni
eftir annríki helgarinnar. Fjölbreytt
tónlist. Organisti Guðni Þ. Guð-
mundsson. Einsöngur Hanna Björk
Guðjónsdóttir. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur sr. María Ágústsdóttir. Org-
anisti Kjartan Sigurjónsson. Anglik-
önsk messa kl. 14. Prestur sr. Ste-
ven Mason. Organisti Kjartan Sigur-
jónsson.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11.
Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Org-
anisti Árni Arinbjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 1.1.
Organisti Hörður Áskelsson. Kam-
merkórinn „Vocalerne" frá Árósum,
Danmörku syngur í messunni.
Stjórnandi Mogens Helmer Peters-
en. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Org-
eltónleikar kl. 20.30. Orgelnemend-
ur Harðar Áskelssonar leika „Messe
Solemnelle a l’usage des Parosses”
eftir Francois Couperin.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Organisti Pavel Manasek. Sr. Helga
Soffía Konráðsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11. Prest-
ur sr. Flóki Kristinsson. Organisti
Þóra V. Guðmundsdóttir. Kaffisopi
eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl. 11.
Félagar úr Kór Laugarneskirkju
syngja. Organisti Jónas Þórir. Ólafur
Jóhannsson.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Orgel- og kórstjórn Reynir Jónasson.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Helgi-
stund kl. 11 í umsjá sóknarnefndar.
Organisti Kristín Jónsdóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Sigrún Steingrímsdótt-
ir. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa með
altarisgöngu kl. 11. Organisti Davíð
Jónasson. Samkoma Ungs fólks méð
hlutverk kl. 20. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Þorbergur Kristjánsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 20.30. Prestur sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson. Organisti
Ágúst Ágústsson. Ólafur Elíasson
leikur á píanó í guðsþjónustunni.
Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Messa kl.
11. Prestur sr. Sigurður Arnarson
prédikar og þjónar fyrir altari. Soffía
Halldórsdóttir syngur einsöng. Org-
anisti Bjarni Þór Jónatansson.
Messa á hjúkrunarheimilinu Eir kl.
15.30.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Prestur dr. Sigurjón Arni Eyjólfs-
son. Efni prédikunar: Guðsmynd
mannsins. Organisti Oddný Þor-
steinsdóttir. Kristján Einar Þorvarð-
arson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Helgi- og
bænastund kl. 11 í umsjá sr. Macjn-
úsar Guðjónssonar. Orgelleikari Orn
Falkner. Molakaffi eftir stundina.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SEUAKIRKJA:Guðsþjónusta kl. 20.
Gospelhópur Kvennakórs Reykjavík-
ur syngur í guðsþjónustunni undir
stjórn Jóhönnu Þórhallsdóttur. Sr.
Valgeir Ástráðsson prédikar. Altaris-
ganga. Organisti Kjartan Sigurjóns-
son. Sóknarprestur.
SAFNKIRKJAN ÁRBÆ: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Þór Hauks-
son.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason, héraðs-
prestur messar. Sr. Bragi Friðriks-
son.
KÁLFATJARNARKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Bragi Friðriks-
son.
BESSASTAÐAKIRKJA: Kvöldguðs-
þjónusta kl. 20.30. Sr. Bragi Friðriks-
son.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum:
Almenn guðsþjónusta á Hraunbúð-
um kl. 10. Almenn guðsþjónusta í
Landakirkju kl. 11. Sr. Gylfi Jónsson
þjónar við báðar guðsþjónusturnar.
AKRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Síðasta messa fyrir sumarleyfi kirk-
justarfsfólks. Björn Jónsson.
BORGARPRESTAKALL: Guðsþjón-
usta verður í Borgarneskirkju kl. 10.
Ath. breyttan messutíma í þetta
sinn. Árni Pálsson.
HOLTSKIRKJA, Önundarfirði:
Helgistund með altarisgöngu sunnu-
dag kl. 14. Sr. Gunnar Björnsson
prédikar og þjónar fyrir altari.
ÞINGVALLAKIRKJA: Messa kl. 14.
Prestur sr. Guðný Hallgrímsdóttir.
Organisti Ingunn Guðmundsdóttir.
Prófastur.
Sumarbrids
Miðvikudaginn 28. júnf var spilaður
mitchell-tvímenningur í sumarbrids og
mættu 28 pör. Úrslit urðu þessi:
N/S riöill
Sigurður B. Þorsteinss. - Sverrir Ármannss. 316
Jóhannes Ágústsson - Friðrik Frjðriksson 310
Urnrnr Sveinsd. - Inga Lára Guðmundsd. 294
GuðjónBragason-OlafurSteinason 288
A/V riðill
Halldór M. Svérriss. — Sveinn R. Þorvaldss. • 356
ÁmLM.Björnsson-HeimirTryggváson • 32T
SigfúsÞÓPðarspn-ÞórðurSrgurðssón -I .326
JónÞórKarÍstQn^-SjgurðurAmundasonr... 292 '.
1 Mejalskoryar . *' . 270:.
:t' Fimmtudagian. 2^í‘jjiní mættLsíðan
* 2U par,tiLléikB og*urfu urdlit þannig:
;N/| Iriðir V r •
GyffiBaldursson-JónHjaltason ’ .-820 ;
IngímundurGuðmundsson-FriðrikEgilsson’ 306
Alda Hansen — Sigrún Pétursdóttir 300
A/V riðill
Erlendur Jónsson - Sveinn R. Þorvaldsson 308
DanHansson-LúðvíkWdowiak 304
ÓskarKarlsson-ÞórirLeifsson 302
Meðalskorvar 270
VÍðtÖpM ,
Æbismst
,.í Kolaportinu um helsina
Seljendur í Kolaportinu taka æðiskast
um helgina og bjóða sérstök tilboð
á mörgum vörutegundum.
Líttu eftir
m-
Æðisplakatir
jar þú vei
inu
verslar.
Þar sérðu tilboðin
þcgai
mi
KOLAPCmiÐ
OPIÐ LAUGARDAG KL. 10-16 OG SUNNUDAG KLVLIL