Morgunblaðið - 01.07.1995, Page 47

Morgunblaðið - 01.07.1995, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995 47 FRÉTTIR Laufskálar í Rimahverfi INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, afhenti þeim Gúst- afi Ölafssyni og fulltrúa Guð- rúnar Arnardóttur, viðurkenn- ingu í samkeppni um nafn á nýjum leikskóla í Rimahverfi, sem verið er að reisa. Þau áttu bæði hugmyndina að nafninu Laufskálar. „Þetta eru nýmæli að efna til samkeppni um nafn á leikskóla og óvíst hvort hún verður endurtekin,“ sagði Garð- ar Jóhannsson skrifstofusljóri Dagvistar barna, „Ungmennafé- lagið Fjölnir í Grafarvogi sá um að bera út tilkynningar um sam- keppnina og fóru þær í 700 íbúð- ir. 79 tillögur bárust frá 49 aðil- um.“ Gert er ráð fyrir að leik- skólinn verði tekinn í notkun í byijun næsta árs en þetta er fjögurra deilda skóli sem byggð- ur er eftir teikningu Albínu Thordarson arkitekts. Ný reglugerð um ávísun lyfja Sjúkling- arnir eiga völina NÝ REGLUGERÐ um ávísun lyfja tekur gildi í dag og leysir af hólmi svokallað R/S kerfi. Reglugerðin gefur sjúklingum kost á að spara með því að velja ódýr samheitalyf. Samkvæmt reglugerðinni er lyflafræðingum skylt að kynna sjúklingum þann möguleika að velja ódýrt samheitalyf í stað þess sem læknirinn hefur ávísað, sé það fyrir hendi. Þetta gildir ef verðmunur á lyfinu sem ávísað er og ódýrustu samsvarandi pakkningu af sam- heitalyfi er meiri en 5%. Sjúklingar geta þá sjálfir valið hvort þeir kaupa dýrara eða ódýrara samheitalyfíð. Lyfjafræðingarnir munu fara eft- ir lista yfir samheitalyf sem heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneyt- ið gefur út. A listanum verða ein- göngu samheitalyf sem enginn ágreiningur er um að séu fyllilega sambærileg að gæðum og innihalda sama virka Iyfjaefni, í sama magni, sama lyfjaformi og jafnstórri pakkningu. Ef læknir vill ekki að lyfjafræðingurinn upplýsi fólk um þennan valmöguleika ritar hann R með hring utan um fyrir aftan heiti lyfsins á lyfseðilinn. Sjúklingar greiði mismuninn Þann 1. ágúst tekur síðan gildi ný reglugerð um greiðslur almanna- trygginga í lyfjakostnaði. Þá verður tekið upp svokallað viðmiðunarverð sambærilegra samheitalyfja. Við- miðunarverðið miðast við smásölu- verð ódýrasta samsvarandi lyfs að viðbættum 5% og verður það endur- skoðað á þriggja mánaða fresti. Þátttaka almannatrygginga verður óbreytt fyrir þau lyf sem eru undir viðmiðunarverðinu en ef sjúklingur velur dýrara lyf verður hann að greiða mismuninn sjálfur. Lyfj ako stnaður gæti lækkað Samkvæmt fréttatilkynningu frá Tryggingastofnun ríkisins er gert ráð fyrir að reglugerðirnar geti orð- ið til þess að lyfjakostnaður al- mannatrygginga sem og sjúklinga lækki. Samskonar kerfi er í gildi í Danmörku, Svíþjóð og Noregi og er reynslan þar í löndum sú að lyfja- verð lækki fljótlega niður í viðmið- unarverð. Morgunblaðið/Golli Flutningur grunnskóla til sveitarfélaga Verkefnisstjórn lýkur undirbúningi TIL AÐ ljúka undirbúningi fram- kvæmdar á flutningi grunnskólans til sveitarfélaganna 1. ágúst á næsta ári hefur menntamálaráð- herra skipað verkefnisstjórn sem hefur yfirumsjón með verkefninu. Áhersla lögð á að góð samvinna náist í fréttatilkynningu segir: „Ráð- herra hefur lagt mikla áherslu á að um framkvæmdina geti náðst góð samvinna milli ríkis, sveitarfé- laga og kennara. Verkefnisstjórnin er skipuð Hrólfí Kjartanssyni frá mennta- málaráðuneyti, sem jafnframt er formaður, Steingrími Ara Arasyni frá fjármálaráðuneyti, Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Eiríki Jónssyni sem tilnefndur var af Kennarasambandi Islands og Hinu íslenska kennarafélagi. Jafnframt hafa verið skipaðir þrír starfshópar sem ætlað er að annast útfærslu og framkvæmd til- tekinna verkefna á þessu sviði. Einn þeirra mun fjalla um að gera tillög- ur um tilhögun og meðferð kjara- mála, lífeyrismála og starfsrétt- indamála kennara á grunnskóla- stigi. Öðrum hópi er ætlað að meta kostnað af tilfærslu grunnskólans til sveitarfélaga og gera tillögur um hvernig sveitarfélögum verði tryggðar auknar tekur til reksturs þess hluta skólans sem enn er í höndum ríkisins. Verkefni þriðja hópsins er m.a. að vera Sambandi íslenskra sveitar- félaga til ráðuneytis um fyrirkomu- lag þeirrar þjónustu er fræðsluskrif- stofur hafa annast.“ Morgunblaðið/GSH SÆVAR Þorbjörnsson og Jón Baldursson að spila við Tékka á föstudagsmorgun. ESTHER Jakobsdóttir og Ljósbrá Baldursdóttir við upphaf leiks íslands og San Marínó á föstudag. Heimsmeistaramótssætin ráðast í lokaumferðinni __________Brlds____________ Evrópumótið í svcitakeppni VILAMOURA, PORTÚGAL Evrópumótið í opnum flokki og kvennaflokki, 17. júní til l.júll Vilamoura. Morgunblaðið. ÞAÐ verða margar neglur nagað-. ar upp í kviku þegar síðustu spil-. in falla á grænu borðin í Vilamo- ura í dag. Sjaídan hefur baráttan um fjögur efstu sætin verið jafn- hörð á Evrópumótum í brids og margar þjóðir eig^ möguleika á að ná þeim á lokasprettinum. Þessi sæti gefa keppnisrétt á heimsmeistaramótinu sem haldið verður í Kína í haust. Það er greinilegt að breiddin í Evrópu er orðin mikil. Flestir spil- ararnir í opna flokknum hafa á valdi sínu góða úrspils- og varnar- tækni og vel æfð sagnkerfi. Ef til vill liggur munurinn á liðunum helst í beittum margræðum hindr- unarsögnum sem hafa það bæði að markmiði að rugla andstæðing- inn í ríminu og auðvelda að finna góðar fórnarsagnir. Þarna hafa Islendingar nokkuð forskot enn sem komið er, sífellt fleiri þjóðir eru farnar að tileinka sér þessar sagnir. Islenska liðið í opna flokkum hefur verið að spila vel síðari hluta mótsins enda hefur það unnið flesta leiki sína. Liðsmennirnir segja sjálfir að-leikirnir við Ung- veija og Tyrki á miðvikudag hafi verið einna bestu leikir liðsins á mótinu en þessar þjóðir hafa á að skipa margreyndum keppnis- mönnum. íslenska liðið fékk geimsveiflu í þessu spili í leiknum við Ung- veija: Austur gefur, NS á hættu Norður ♦ Á982 y G1085 Vestur ♦ K642 Austur ♦ K * 10 ♦ G73 y K943 V D762 ♦ G1053 ♦ Á7 47643 Suður 4KDG8 ♦ D10654 VÁ ♦ D98 ♦ Á952 Við annað borðið opnaði Jón Baldursson á 13-15 punkta grandi með austurspilin. Suðri fannst hann ekki eiga nógu góð spil til að segja 2 spaða og passaði og 1 grand var passað út. Jón fór 2 niður, 100 til Ungveijanna, en við hitt borðið opnaði austur á eðli- legu laufi. Nú gat Matthías Þor- valdsson í suður sagt 1 spaða, vestur doblaði til úttektar en Jak- ob Kristinsson í norður stökk í 2 grönd sem sýndi góða hækkun í 3 spaða. Austur sagði 3 hjörtu en Matthías sagði 4 spaða og átti ekki í erfiðleikum með að fá 11 slagi, 650 til íslands og 13 impar. Góð trygging ísland vann Tyrkland 20-10 og íslensku spilararnir höfðu yfir- höndina í spilum sem buðu upp á sagnbarattu, eins og þessu: Norður gefur, AV á hætti Norður ♦ ÁG83 ¥G7 ♦ K7 ♦ 98653 Vestur ♦ D V ÁD10865 ♦ 98632 ♦ 2 Suður ♦ K10974 V3 ♦ GIO ♦ ÁKD74 Austur ♦ 652 V K942 ♦ ÁD54 ♦ GIO Við annað borðið sátu Guð- mundur Páll Arnarson og Þorlák- ur Jónsson AV og Özdil og Goksu NS. Özdil er Islendingum að góðu kunnur en hann keppti á Bridshá- tíð í vetur. Við hitt borðið sátu Jón Baldursson og Sævar Þor- bjömsson NS og Ince og Yilmaz AV: Vestur Norður Austur Suður Guðm. Özdil Þorl. Goksu pass pass 1 lauf 1 hjarta dobl 3 tíglar 4 spaðar 5 työrtu dobl/ Sævar Yilmas Jón Ince pass pass 1 spaði 2 hjörtu 4 spaðar 5 hjörtu 5 spaðar/ Við annað borðið opnaði suður á eðlilegu laufi upp á gamla mát- ann; flestir sem spila eðlilegt kerfi opna á 1 spaða með þessi spil nú til dags. Guðmundur Páll stakk inn hjarta og norður sýndi undir- tekt með dobli. 3 tíglar Þorláks sýndu tígullit og hjartastuðning og því gat Guðmundur Páll sagt 5 hjörtu. Norður valdi að dobla það en þegar tígullinn lá vel fékk Guðmundur 11 slagi og 850 fýrir. Við hitt borðið var stígandi í sögnum og Jón hefur varla hugs- að sig lengi um áður en hann sagði 5 spaða. Þeir fóru einn nið- ur en í betri tígullegu hefðu 5 spaðar unnist þótt 5 hjörtu hefðu tapast. Því voru íslendingarnir vel tryggðir í spilinu og græddu 13 impa. I kvennaflokki græddi íslenska liðið einnig á þessu spili gegn Hollendingum. Esther Jakobs- dóttir og Ljósbrá Baldursdóttir fengu að spila 4 spaða í NS sem unnust. Við hitt borðið börðust Anna ívarsdóttir og Gunnlaug Einarsdóttir í 5 hjörtu en Hollend- ingarnir fóru í 5 spaða sem fóru 1 niður. 504 spil á 10 dögum Evrópumótið hefur verið nokk- uð strembið fyrir íslensku konurn- ar. Þær eru aðeins fimm sem þýddi að ekki er mikið um hvfldar- tíma. Þannig spilaði Esther Jak- obsdóttir hvern einasta leik á mótinu, alls 504 spil á 10 dögum! Kvennamótinu lauk í gær og íslenska liðið endaði í 15. sæti af 22 þjóðum með 296,5 stig. Liðið tapaði 12-18 fyrir San Marínó { fyrri leiknum í gær en gerði síðan jafntefli, 15-15, við Austurríki. Við það misstu austurrísku kon- unar af ferð til Kína en þær urðu í 5. sæti með 363 stig. Frakkar sigruðu með 418 stigum, næstir voru Þjóðveijar með 383 stig, ísraelsmenn með 380 og Bretar með 366.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.