Morgunblaðið - 01.07.1995, Síða 48
48 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Tommi og Jenni
THI5 15 A 6REAT PLACE FOR ICE CREAM
CONE5..THEV HAVE ALL KIND5 OF FLAV0R5..
---—-------rrvTrr ..——I I I ,
Þetta er stórkostlegnr staður fyrir ís ... þeir eru
með alls konar bragð ...
UJHAT FLAVOR DO HOO
THINK VOU WANT7,
'ZJT
Hvaða bragð heldurðu
að þú viljir?
BREF
TEL BLAÐSINS
Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Fj ölskylduhelgi
í Langadal
Frá Ferðafélagi íslands:
FERÐAFÉLAG íslands óskar að
koma eftirfarandi á framfæri
vegna fréttaflutnings undanfarið
um tjaldstæði í Þórsmörk. Um
þessa helgi, 30.6.-2.7., er fjöl-
skylduhelgi á umráðasvæði þess í
Langadal, en ekki samkoma ungl-
inga.
Frétt Morgunblaðsins miðviku-
daginn 28. júní, þar sem m.a. í
myndafyrirsögn er talað um
glaum og gleði í Þórsmörk næstu
tvær helgar, er líkt og aðrar frétt-
ir af þessu tagi til þess eins að
skaða ímynd Þórsmerkur sem
einnar af mestu náttúruperlum
landsins.
Slíkar fréttir hvetja beinlínis
til aukinnar ásóknar unglinga í
Þórsmörk með því álagi og þeim
vandræðum með því miður hafa
fylgt óskipulögðum samkomum
unglinga í Þórsmörk. Ferðafélag
íslands og aðrir aðilar sem sjá
um tjaldstæði í Þórsmörk óska
ekki eftir að kalla yfir sig þær
fylliríssamkomur unglinga sem
stundum hafa verið fyrstu helgina
í júlí undanfarin ár, þó sem betur
fer ekki undanfarin tvö ár.
Ferðafélagið vill beina því til
fjölmiðla að þeir hvetji fólk til að
kynnast Þórsmörk á jákvæðan
hátt, hvort sem um er að ræða
fólk á unglingsaldri eða öðrum
aldursskeiðum.
Þetta er annað .árið í röð sem
ferðafélagið efnir til sérstakrar
íjölskylduhelgi í Langadal í Þórs-
mörk fyrstu helgina í júlí.
í boði er helgarferð á hagstæðu
verði með brottför föstudagskvöld-
ið 30. júní kl. 20.00. Gist verður
í Skagfjörðsskála og tjöldum í
dalnum.
í fyrra voru þátttakendur um
100 en nú stefnir í enn meiri þátt-
töku og þar eru böm í miklum
meirihluta enda verða þau höfð í
fyrirrúmi þessa helgi. Fjölbreytt
dagskrá er fyrir unga sem aldna
sem fararstjórar hafa undirbúið
af kostgæfni. Meðal dagskrárliða
eru gönguferðir, ratleikur (leitin
að álfasilfrinu) og kvöldvaka.
Auk þess fjölskyldufólks, barna
og fullorðinna sem taka þátt í fjöl-
skylduferðinni er nærri fullbókað
á tjaldstæðin í Langadal og er þar
fjölskyldufólk í meirihluta. Vegna
gróðurverndar er pláss takmarkað
á tjaldsvæðum í Þórsmörk og þeir
sem eiga pantað verða að sýna
staðfestingu frá viðkomandi aðila
að þeir eigi tjaldpláss.
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Samstarf Náttúru-
verndarráðs
og einkaaðila
Frá Arnþóri Garðarssyni:
VÍSAÐ er til opins bréfs Sjálfboða-
liðasamtaka um náttúruvernd,
sem barst Náttúruvemdarráði 16.
júní sl., um átaksverkefni Ferða-
málaráðs og Eimskipafélags ís-
lands hf. „Fossar í fóstur".
Náttúmvemdarráð þakkar
Sjálfboðaliðasamtökunum þann
áhuga og vilja í verki sem samtök-
in hafa á undanförnum ámm sýnt
til þess að stuðla að vemd ís-
lenskra náttúru. Sérstaklega er
þakkað fyrir framlag samtakanna
á þeim svæðum sem Náttúru-
verndarráð ber ábyrgð á.
Nú er það svo að fjármunir, sem
ætlaðir em til náttúmverndar og
fræðslu um náttúru landsins, em
af skornum skammti. Svipað er
að segja um fjáröflunarleiðir opin-
berra stofnana en þær em tak-
markaðar lögum samkvæmt. Með-
al annars vegna þessa hefur verið
gripið til þess ráðs að afla fjár til
einstakra verkefna í náttúmvernd
frá aðilum í einkarekstri.
Náttúruverndarráð leggur á það
áherslu að þegar fjármagn, ætlað
til verkefna sem með einum eða
öðmm hætti varða Náttúm-
verndarráð og hlutverk þess, kem-
ur frá aðilum í einkarekstri, sé
undirbúningur þeirra og fram-
kvæmd í fullu samráði við ráðið.
Tilgangurinn með þessu er m.a.
sá að koma í veg fyrir og draga
úr neikvæðum afleiðingum, sbr.
það sem segir í opnu bréfi Sjálf-
boðaliðasamtakanna um auglýs-
ingar við náttúrafyrirbæri.
Með ósk um áframhaldandi gott
samstarf Náttúmverndarráðs og
samtakanna.
ARNÞÓR GARÐARSSON,
formaður Náttúruvemdarráðs.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbðk verður framvegis varðveitt i
Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.