Morgunblaðið - 14.07.1995, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
þÓ Ef?T LATU^l S þApyiLL SVO TIL GRETTIR, J) APESeRÁP -- w'/Sl StfKA VfSINOá- 1/r legatilrájn. M y ÞAKICA ÞáR X o LATOF, LATUÍ?\ /lÍk'AMlfZ í \ LATUR, LATUR!) S HVÍLp, HAFA / „''-MUHMeJGJNGUf l AÐ VE8M\ fvhr
PlH É > * copenhagen ~ o JfM PAVfö 9-2
Ferdinand
Smáfólk
AF HVERJU stend Af því þér finnst Ég hata leikinn! Af því þú elskar Þar hittirðu naglann á
ég hérna úti í rign- gaman að leikn- kastarann! höfuðið!
ingunni? um ...
BREF
TDL. BLAÐSINS
Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 5691329
BENNY HINN
Kraftaverk
og Benny Hinn
Frá Ásmundi Magnússyni:
í FYRRA, 21. ágúst 1994, var sam-
koma í Kaplakrika í Hafnarfirði
með bandaríska vakningarpredikar-
anum Benny Hinn. Þessi samkoma
vakti mikla umræðu í þjóðfélaginu
ekki síst um það
hvort kraftaverk
gerðust enn í
dag. M.a. var við-
tal við kollega
minn Matthías
Halldórsson að-
stoðarlandlækni.
Hann sagðist
öngvan lækni
þekkja sem tryði
á kraftaverk. Ég
lét ekki verða af því sem mér datt
fyrst í hug að gera, að hringja í
hann og segjast einn þeirra sem
hann a.m.k. væri málkunnugur,
sem þetta ætti ekki við um. Enda
tók ég þetta ekki alvarlega - taldi
þetta sagt í hita umræðunnar og
kannski ekki það sem sagt hefði
verið að vandlega athuguðu máli.
Hvað hef ég fyrir mér í því að
kraftaverk gerist enn í dag? Jú, ég
hef bæði fengið sjálfur lækningu
fyrir fyrirbæn í Jesú nafni, einnig
beðið fyrir sjúkum og séð fólk lækn-
ast fyrir fyrirbæn. Auk þess þekki
ég margt fólk sem hefur reynt það
sama. M.a. á samkomu Benny Hinn
í fyrra. Tveir vitnisburðir frá henni
eru sýndir þessa dagana daglega á
sjónvarpsstöðinni Omega. Hvers
vegna daglega? Jú, vegna þess að
Benny Hinn kemur aftur til íslands
í næstu viku og verða samkomur
18. og 19. júlí í Laugardalshöllinni.
Það er ósk þeirra sem standa að
sjónvarpsstöðinni Omega, að sem
flestir njóti af. í Laugardalshöll-
inni? Já, vegna þess að í fyrra komu
nærri 6 þúsund manns á samkom-
una í Kaplakrika en húsið tók „að-
eins“ 4 þúsund.
En ég var að tala um kraftaverk.
Hvers vegna trúi ég á kraftaverk
í Jesú nafni? Vegna þess að ég hef
séð þau. En ekki aðeins þess vegna.
Við lækningu og kraftaverkum frá
Guði tökum við í trú eins og öllu
öðru frá honum. Guðs orð segir að
trúin sé fullvissa um það sem menn
vona og sannfæring um þá hlutí
sem ekki er auðið að sjá. Ef þú
trúir að almáttugur Guð sé til, þá
trúir þú því að hann standi að baki
sköpuninni. Ætti honum, sem hefur
skapað allt, að verða skotaskuld úr
því að lagfæra það sem úrskeiðis
fer hjá manninum sem hann skap-
aði eftir sinni mynd og til samfé-
lags við sig? Biblían, Guðs orð, seg-
ir að Jesús Kristur sé hinn sami í
gær og í dag og unualdir. Jesús
gekk hér um á jarðvistardögum sín-
um og læknaði sjúka. Reisti meira
að segja upp dauða. Hann er hinn
sami í dag. í dag situr hann við
hægri hönd föðurins á himnum.
Þriðja persóna Guðdómsins Heilag-
ur andi gefur þeim sem trúa á hann
kraft til að vinna sömu verk í Jesú
nafni. Einn þeirra er Benny Hinn.
Ég hvet þig til að koma á einhverja
eða allar þijár samkomurnar sem
verða á vegum sjónvarpsstöðvar-
innar Omega í Laugardalshöllinni
18. og 19. júlí með trúboðanum
Benny Hinn. Ókeypis aðgangur er
að öllum samkomunum. Eg er þess
fullviss að þar mun Guð vinna
kraftaverk í lífi margra.
ÁSMUNDUR MAGNÚSSON,
læknir og forstöðumaður fríkirkjunnar
Orðs lífsins.
Ásmundur
Magnússon
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.