Morgunblaðið - 14.07.1995, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 14.07.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1995 39 Afmæli SIGURÐUR ÁRNASON SIGURÐUR Árnason bóndi á Sámsstöðum í Fljótshlíð er 95 ára í dag. Kynni mín af Sig- urði hófust í einu af dómabindum Hæsta- réttar en í lagadeild- inni var hann skyldu- lesning til prófs vegna aðildar að lög- bannsmáli fyrir nokkrum áratugum. Mig grunaði auðvitað ekki við próflesturinn að ég ætti skömmu I síðar eftir að kynnast þessum manni sem hélt málstað sínum svo fast fram fyrir dómstól- um. Ekki líkaði Sigurði niðurstað- an en sagði bara: Hann Bjössi kunni aldrei neitt að dæma. Annars er það merkilegt að ég skyldi yfirleitt fá tækifæri til að kynnast Sigurði bónda, einkum I fyrir þá sök að hann var þá orðinn rúmlega áttræður en svo sem Ikunnugt er eru langflestir venju- legir menn dauðir áður en þeim aldri er náð. Sigurður er maður hávaxinn, veðurbarinn og lítillega lotinn þegar ég kem til sögunnar. Hárið er hvítt og strítt og toppur fram á ennið. Hann er þá full- hress en gengur ekki til verka annarra en þeirra að stjórna því j sem honum sýnist. Helst fæst hann við lestur, einkum ljóða og gott þykir honum að halla sér | afturábak í rúm sitt og yrkja vísur á lausblöð, gamla dagbók og snepla. Vísurnar eru rammpólit- ískar og beittar. Og þegar hann les fyrir mig endar hann ævinlega lesturinn með því að segja: Finnst þér þetta ekki gott hjá mér? Vísur eftir Sigurð eru til um fjölmarga stjórnmálamenn. Eldri vísur um ( Hermann, Eystein, Jónas og ; Hannibal en á seinni árum var á honum Jón Baldvin einkar hug- I leikinn. Ekki hef ég leyfi né þor til að birta neitt af vísum þessum nú. Sigurður Árnason er fæddur á Sámsstöðum í Fljótshlíð 14. júlí árið 1900 eins og reikningsglögg- ir menn munu þegar vera búnir að átta sig á. Foreldrar hans voru hjónin Þórunn Jónsdóttir og Árni ■ Árnason frá Kirkjulæk í Fljótshlíð en þau bjuggu lengst af á Sáms- a stöðum. Sigurður kvæntist Odu ^ Hildi síðar Árnason 1934 og bjuggu þau á Sámsstöðum til árs- ins 1989 er þau fluttu sig um set að Kirkju- hvoli á Hvolsvelli. Hildur og Sigurður eignuðust sjö börn sem eru: Unnur, Val- borg, Sara Hjördís, Árni Þorsteinn, Þór- unn Björg, Hrafnhild- ur Inga og Þórdís Alda. Svo sem sjá má eru systurnar þar í auknum meirihluta en Árni smiður eini son- urinn býr nú á Sáms- stöðum. Þær systur eru kunnar fyrir fríð- leika og skörungsskap en sumum þykir þó að það fyrrnefnda hefði mátt duga. Árni er maður dverg- hagur bæði á „málm og tré“ eins og þar stendur. Samferð Sigurðar og Hildar hefur verið löng og gæfurík. Þessi lágvaxna, laglega og netta kona hefur haldið sínu fólki til verka og kunnað vel tök á karli þegar svo hefur borið undir. Nú er það gjarnan svo þegar menn eru komnir á níræðisaldur, að ekki sé talað um tíræðis, að þeir geta haft sína hentisemi með ýmsa hluti enda láta þeir sig ekki eins miklu varða hvað öðrum finnst eins og okkur sem yngri erum. Sömuleiðis verður mikið álitamál hversu mikla tilsögn menn eru móttækilegir fyrir á þessum aldri. Oftast enga en samt getur á köflum þurft að siða þá dálítið til eins og aðra. í einu til- viki sem hér má tilfæra fór það svo þegar einn tengdasonurinn hafði fært afmælisbarninu dálitla bijóstbirtu, að þegar líða tók á þótti vatnsbragð vera orðið óþægi- lega mikið. Sigurði var strax ljóst hvers kyns var og sagði: Við höf- um öll heyrt um það þegar Jesús breytti vatni í vín en hún Hildur mín er sú eina sem getur breytt víni í vatn. Segir þessi saga margt um Hildi og Sigurð; Hildur gætir vel að sínum og Sigurður þekkir sitt heimafólk. Sigurður heldur upp á afmælis- daginn heima á Sámsstöðum með börnum sínum. Þaðan sést Eyja- fjallajökull. Og þótt sjón hafi dapr- ast veit ég að þú finnur að hann er þar. Eins og þú sagðir sjálfur um daginn: Það dugar. Bestu hamingjuóskir í tilefni dagsins. Oskar Magnússon. Breytingar á vinnufyr- irkomulagi á spítölum ! MORGUNBLAÐINU hefur borizt | eftirfarandi fréttatilkynning frá hjúkrunarstjórn Landspítala og Borgarspítala: „Eins og fram hefur komið í fjöl- miðlum hefur verið ákveðið að breyta vinnufyrirkomulagi á skurð- og svæfingadeildum Landspítala og Borgarspítala og taka breytingarn- ar gildi hinn 1. október nk. 4 Á síðustu árum hefur álag á skurðstofum stóru sjúkrahúsanna J aukist mikið og fer nú töluverður 4 hluti vinnunnar fram utan venjulegs dagvinnutíma. Þetta hefur leitt til þess að ekki er óalgengt að hjúkrunarfræðingur sem tekur gæsluvakt að lokinni dagvinnu vinni 16-24 tíma sam- fellt, en samkvæmt lögum um vinnuvernd og kjarasamningum hjúkrunarfræðinga skal starfsmað- ( ur fá a.m.k. 8 tíma hvíld þegar , j hann hefur unnið 16 tíma samfellt. Ú Til þess að tryggja tilskylda hvíld 1 er síðan eins konar refsiákvæði í samningnum sem felur í sér greiðslu tvöfaldrar yfirvinnu ef lág- markshvíld fæst ekki. Því hefur verið ákveðið að gera eftirfarandi breytingu á vinnutíma hjúkrunarfræðinga á skurð- og svæfingadeildum Landspítala og Borgarspítala: Á Landspítala komi hjúkrunar- fræðingur sem taka á gæsluvakt til vinnu þann dag (u.þ.b. einu sinni í viku) kl. 13 í stað 7.30 og á Borg- arspítala kl. 12 í stað 8. Hér er því um minniháttar breyt- ingu á vinnutíma að ræða og alls ekki verið að taka upp vaktavinnu eins og fram hefur komið í fjölmiðl- um. Tilgangurinn með þessum breyt- ingum er að draga úr óhóflegu vinnuálagi hjúkrunarfræðinga, tryggja gæði, þjónustu og öryggi sjúklinga og hagkvæmari rekstur á dýru húsnæði og tækjum skurð- stofa. Þessar breytingar munu væntanlega einnig draga úr greiðsl- um tvöfaldrar yfirvinnu vegna brota á lágmarkshvíldarákvæðum." FRÉTTIR KRISTBJÖRG Sigurðardóttir og Sigþór Pétur Sigurðarson í nýju versluninni. Sjónmælingar í nýrri gleraugnaverslun NÝLEGA var opnuð ný gleraugna- verslun, Gleraugna-Galleríið, í Kirkjuhvoli, Kirkjutorgi 4. Gleraugna-Galleríið hefur þá sér- stöðu að vera fyrsta og eina gler- augnaverslunin á íslandi sem getur boðið viðskiptavinum sínum upp á sjónmælingar, segir í frétt frá fyrir- tækinu. Eigendur verslunarinnar eru þau Kristbjörg Sigurðardóttir og hjónin Þyrí Grétarsdóttir og Sigþór Pétur Sigurðarson sem nam við Dan- marks Optiker Skole. Sigþór hefur unnið sem sjóntækjafræðingur hjá annarri stærstu keðju Danmerkur á þessu sviði, F.A. Thiele, síðastlið- in sex ár. Ætlunin er að nýta aðstöðu versl- unarinnar til kynningar á lista- mönnum með smærri myndverka- sýningum. Fyrsti listamaðurinn er Kjartan Guðjónsson listmálari, sem sýnir olíumyndir, penna- og krítarteikn- ingar. Verslunin er opin alla virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 10-14. Þing- flokkur mótmælir dómum „ÞINGFLOKKSFUNDUR Þjóðvaka, haldinn 12. júlí, mótmælir þeirri lítilsvirðingu og því óviðunandi misrétti sem fram kemur I dómum Hæstaréttar og Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem konum eru dæmdar lægri örorku- bætur en karlmönnum," segir í frétt frá þingflokknum. Það mat er lagt til grund- vallar í dómunum, að framtíð- artekjur kvenna verði um 25% lægri en framtíðartekjur karla. Þingflokkur Þjóðvaka telur fráleitt að það launamis- rétti sem nú viðgengst sé notað gagnvart þeim konum sem rétt eiga á örorkubótum þannig að þær þurfi um alla framtíð að líða fyrir það óþol- andi misrétti sem nú á sér stað. Þingflokkur Þjóðvaka mun á haustþingi leggja til lög- festingu þess að óheimilt verði að mismuna konum og körlum við mat á örorkubót- um. Nýr golf- völlur í Mið- dal við Laugarvatn í SÍÐASTA mánuði opnaði golf- klúbburinn Dalbúi á Laugarvatni nýjan golfvöll. Er það 9 holu völlur og er hann staðsettur á kirkjujörð- inni Miðdal, um 3 km innan við Laugarvatn. Golfklúbburinn leigði um 40 hektara lands af Félagi bókagerðar- manna og teiknaði Hannes Þor- steinsson golfvallahönnuður völlinn. Nægt landrými er fyrir 18 holu völl á staðnum en byijað er með 9 holur. Klúbbhúsið er neðsta hæð íbúðarhússins í Miðdal og hefur það verið innréttað. Veitingar eru þar seldar um helgar. Fyrsta golfmótið var nýlega hald- ið á vellinum og firmamót verður þar 15. júlí sem öllum er opið. Völl- urinn er opinn alla daga félags- mönnum sem öðrum og kostar dag- urinn kr. 500. Formaður golf- klúbbsins Dalbúa er Gunnar G. Schram. FRÁ vinstri: Bjarni Daníelsson staðarhaldari, Gunnar G. Schram formaður golfldúbbsins, Jón Þ. Hilmarsson form. mótanefndar og Hilmar Einarsson gjaldkeri. ■ HLJÓMS VEITIN KOS leikur sveitina skipa Sigurður Dag- nú um helgina, 14. og 15. júlí á - bjartsson, Kristján Óskarsson og Café Royale í Hafnarfirði. Hljóm- Eva Ásrún Albertsdóttir. Vestfjarða- víkingurinn krýndur um helgina HIÐ ÁRLEGA aflraunamót „Vestfjarðavikingurinn" fer nú fram og leiða þar saman hesta sína nokkrir af sterkustu mönnum íslands og Andy And- erson frá Skotlandi. í dag verður keppt í axlar- lyftu í Flókalundi kl. 9:30, í steinatökum að Minjasafninu að Hnjóti kl. 14, hleðslugrein á Patreksfirði kl. 16:30 og sundlaugagrein á Tálknafirði kl. 18:30. Á morgun verður keppt í flugvéladrætti á Patreksfirði kl. 10:30, drumbalyftu í Sel- árdal kl. 14 og bóndagöngu í Otradal kl. 17. Loks verður sveitaball með GCD á Bíldudal á laugardagskvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.