Morgunblaðið - 16.08.1995, Page 28

Morgunblaðið - 16.08.1995, Page 28
28 MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1995 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir Ég kom yfir til að sjá alla fiskana sem þú veiddir, herra ... Ég veiddi engan fisk, Magga ... ég datt í vatnið ... Varðstu blaut? Þú ert óhóflega skrýtin, Magga... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 691329 Til Borgfirðinga vegna vegamála Frá Ámunda Ámundasyni: KÆRU fyrrverandi sveitungar. í langri bið minni hér úti í Svíþjóð hef ég oft stytt mér stundir með lestri Morgunblaðsins. Þar hef ég m.a. séð umfjöllun um væntanlega breytingu á Borgarfjarðarbraut upp í Reyk- holtsdal, og að ekki séu aliir á eitt sáttir í þeim efnum. Þar sem mér er mikið í mun að sem allra flestir komi ósárir frá þessari deilu, langar mig til að leggja nokkur orð í belg. Tillaga mín gengur út á enn róttækari breyt- ingu en þá sem nú er deilt um. Ég legg með öðrum orðum til að gerður verði upphækkaður góður vegur yfir Hestháls, enda þar fallegt með af- brigðum og vegurinn mikið ekinn á komandi tímum. Síðan verði tekin bein stefna af Hesthálsinum þvert yfir Lundarreykjadalinn og holtin neðst í honum, byggð verði ný brú á Grímsá, vegurinn liggi síðan fyrir ofan Fossatún eftir hálsinum sem þar er, komi fyrir ofan Varmalæk, yfir Steðjagilið á Flóku, stefni síðan í átt að Litla-Kroppi, færist síðan nær Stóra-Kroppi og Runnum og þar með nær hinum fagra Geirsárfossi. Þá kæmi vegurinn yfir Litla-Kropps-nef- ið, þaðan sem er eitthvert alfegursta útsýni í Borgarfirði. Áfram lægi svo vegurinn í sveig í átt að Hömrum og að Kleppjámsreykjum. Margar flugur eru slegnar í einu höggi með þessari lausn. Láglendi er lítið skert og mun fegurri leið fæst fyrir vegfarendur. Ég þekki það frá gamalli tíð að margir snjóþungir veg- arkaflar hverfa með þessari lausn og nauðsynlegt er, hvort sem er, að byggja nýjar brýr á Grímsá, Flóku og Geirsá, þótt þær gömlu geti enn um sinn að einhveiju leyti annað inn- ansveitar umferð líkt og Hvítárvalla- brúin og síkisbrýmar. Kæru Borgfirðingar, forráðamenn Vegagerðarinnar og Skipulags ríkis- ins. Skoðun mín er sú að við eigum að horfa dálítið lengra fram á veginn og miða aðgerðir við það. Ég held að allir geti verið sammála um að umferð eigi eftir að aukast á kom- andi áram í Borgarfirði, enda sveitin falleg og fleiri og fleiri eiga eftir að njóta hennar á ferðalögum. Því segi ég: Tökum nú skrefið til fulls, en ekki til hálfs eins og svo oft áður. Hættum að hriða eyrinn, en henda krónunni. Ég vona að menn hugleiði þessa tillögu mína og komist að þeirri nið- urstöðu að hún sé hvort tveggja í senn vænleg sáttaleið í þeirri deilu sem þama er risin, og um leið góð framtíðarlausn í vegatengingu Reyk- holtsdals til suðurs og síðast en ekki síst mun heppilegri leið fyrir Ma Flókadals, en sú sem nú er til um- ræðu. Með kærri kveðju til ykkar allra í þeirri einlægu von að mér megi auðn- ast sem fyrst að njóta með ykkur fegurðar Borgarfjarðar og hitta sem flesta Borgfírðingaa sátta og ánægða. ÁMUNDI ÁMUNDASON frá Kleppjárnsreykjum. Safn til íslenskrar íþróttasögu Frá Skúla Magnússyni: FYRIR u.þ.b. tveimur áram reifaði ég þá hugmynd hér í dálkunum, að löngu væri tímabært að hrinda af stokkunum ritun íslenskrar íþrótta- sögu er alfarið yrði kostuð af ágóðan- um af lottóspili. Jafnframt hvatti ég til samstarfs sagnfræðiskorar Heim- spekideildar Háskóla íslands og íþróttamanna um þessi mál. Að ungu fólki gæfist einkum kostur á að vinna að slíku verki. Tilefni bréfsins míns þá var það að ég sá einhvers staðar í blaði að glímusaga íslands hefði verið á ann- an tug ára í smíðum eða jafnvel Ieng- ur. Blöskraði mér slíkur seinagangur og skilningsleysi forystumanna ís- lenskrar íþróttahreyfingar sem stöð- ugt kalla á fé til starfsins til leikiðk- ana í sviðsljósinu, heima og heiman, en gleyma þeim árum þegar íþrótta- félögin voru nánast peningalaus, voru borin uppi af hugsjóninni einni. Ekki síst gömlu ungmennafélögin. Að þeim beinist einkum athygli mín. Fyrir áratug eða svo vann ég í bókasafni framhaldsskóla á meðan ég stundaði nám í skólanum sjálfum. Gafst mér þá gott tækifæri til að kynna mér útlenda, einkum enska og bandaríska íþróttasögu, í Bresku alfræðibókinni. Á sama tíma varð kunningi minn, sem kenndi íþróttir við skólann, landskunnur og farsæll þjálfari, að notast við smá bæklinga við kennslu í íslenskri íþróttasögu og öll rit um hana komust fyrir í rúmlega hálfri hillu. Eitthvað mun hafa ræst úr þessu síðustu ár, en ég er hissa á að ekki skuli meira unnið að rannsóknum og útgáfu á íslenskri íþróttasogu nú þegar hreyfingin veltir milljörðum króna á hveiju ári. Útgáfa í formi ritraðar, svipuð Iðnsögu Islands, sem vinur minn og gamall kennari Jón Böðvarsson, hef- ur stýrt af röggsemi í áratug, væri afar hentug íslenskri íþróttasögu, því henni má alltaf halda áfram, án veru- legra endurtekninga á því sem áður er komið. Ég er ekki íþróttamaður og hef aldrei á ævinni sparkað bolta, en margir vinir mínir, ungir og gamlir, era það, einkum í Keflavík. Þeirra vegna hreyfi ég einkum þessari hug- mynd, ekki síst eru mér ofarlega í huga gamlir ungmennafélagar í Keflavík, einkum vinur minn, Helgi S. Jónsson (f. 1910-d. 1982), sem var ákaflega hugmyndaríkur hug- sjónamaður og hafði meiri áhrif í umhverfi sínu en margur hyggur, einkum með ljúfmannlegri fram- komu sinni við unga og gamla, háa sem lága. Ég var ungur, er ég las 15 ára afmælisrit UMFK, sem Helgi var aðaiframkvöðull að og kpm út 1959. Ef til vill gætir þar enn áhrifa frá þeim lestri nú er ég reifa hug- myndir um útgáfu íslenskrar íþrótta- sögu, einkum sögu ungmennafélag- anna frá 1906. SKÚLIMAGNÚSSON, Nýja-Garði, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.