Morgunblaðið - 30.08.1995, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Norskar kýr
til Islands
AÐALFUNDUR Landssambands
kúabænda samþykkti í gær að
fela stjórn sambandsins að heíja
þegar í stað undirbúning að inn-
flutningi á nýju mjólkurkúakyni.
Jón Viðar Jónmundsson naut-
griparáðunautur sagði að ef af
innflutningi yrði myndi norska
mjólkurkúakynið nær örugglega
verða fyrir valinu. Verið er að ljúka
samanburðarrannsókn á norska
og íslenska kúakyninu í Færeyjum
og bendir hún til að norski stofn-
inn gefi af sér a.m.k. 20% meiri
afurðir en sá íslenski.
Jón Viðar sagði að alþjóðlegar
samanburðarrannsóknir sýndu að
norska kúakynið væri eitt það
besta í heiminum í flokki rauð-
flekkóttra kúa. Hann sagði að
norskar kýr væru ekki aðeins af-
urðamiklar heldur væru þær og
mun geðbetri en þær íslensku,
júgurbygging væri betri og mjólk-
urframleiðslan jafnari. Þá benti
margt til þess að minna væri um
júgurbólgu í norskum kúm en þeim
íslensku.
Meðalnyt í íslenskum kúm er
um 4.200 kg á ári, en meðalnyt í
norskum kúm er yfir 6.000 kg.
Norsku kýmar eru stærri og þurfa
þar að leiðandi meira fóður. Jón
Viðar sagði ekki raunhæft að gera
ráð fyrir því að norskar kýr mjólk-
u'ðu jafnmikið á íslandi og í Nor-
egi. Samanburðartilraunin á kúa-
kynjunum í Færeyjum gæfi til
kynna að búast mætti við 20%
meiri ársnyt hjá norsku kúnum en
þeim íslensku.
Jón Gíslason, formaður fagráðs
LK, sagði að innflutningur á nýju
kúakyni yrði framkvæmdur með
innflutningi á fósturvísum. Kúa-
kynið yrði haft í einangrun í Hrís-
ey til að byija með til að tryggja
að sjúkdómar flyttust ekki inn með
því. Hann sagði óraunhæft að tala
um að skipt yrði um kúakyn í land-
inu þrátt fyrir þennan innflutning.
Bændur vildu hins vegar eiga þann
möguleika að geta fengið afurða-
meira kyn til framleiðslu.
Norsku kýmar eru talsvert
stærri en þær íslensku og sagði
Jón ljóst að breyta þyrfti íslensk-
um fjósum til að þau hentuðu
kúnum. Norsku kýrnar þyrftu t.d.
stærri bása en þær íslensku.
Gleðistund hjá Zonta-konum á Akureyri
Norðmenn segjast eygja lausn á Smugumálinu
heim
Morgunblaðið/Pálmi Guðmundsson
Rakað á
Arbæjartúni
GESTIR Árbæjarsafnsins
fylgjast ævinlega af áhuga
með þegar heyjað er á Árbæj-
artúninu og sumir taka þátt í
heyskapnum. Stúlkan á mynd-
inni lét ekki sitt eftir liggja,
tók sér hrífu í hönd, gekk út
í slægjuna og rakaði af miklum
móð. Að vanda er túnið við
Árbæinn slegið með orfi og ljá
og síðan rakað, rifjað, tekið
saman og bundið í bagga upp
á gamla mátann.
>min
Akureyri. Morgunblaðið
STYTTAN af Jóni Sveinssyni,
Nonna, var afhjúpuð við hátíðlega
athöfn á Akureyri í gær. Það voru
Zonta-konur sem börðust fyrir því
að finna þessa týndu og nánast
gleymdu styttu Nínu Sæmunds-
son, láta steypa hana í brons og
flytja hana norður á æskustöðvar
hins dáða barnabókahöfundar.
Styttan stendur við Zonta-húsið
og Nonnahús í Aðalstræti og
höfðu margir á orði að nú væri
Nonni loksins kominn heim.
Fjölmenni var við athöfnina og
þýðir tónar lúðrasveitar og bless-
unarorð bárust gestum á þessum
góðviðris- og gleðidegi. Það voru
Anna Snorradóttir og Stefanía
Ármannsdóttir sem afhjúpuðu
styttuna en þeim var þakkað sér-
staklega fyrir framtak sitt.
Zonta-konurnar Valgerður
Hrólfsdóttir og Ragnheiður Hans-
dóttir sögðu frá Zontaklúbbi Ak-
ureyrar, Nonnahúsi og leitinni að
styttunni. Klúbburinn valdi sér
það heimaverkefni árið 1950 að
heiðra minningu Jóns Sveinssonar
og stefnan var sett á að eignast
Nonnahús. Þar var síðan opnað
safn 1957 og hefur aðsókn að því
farið ört vaxandi.
„Nonni var kjörinn heiðurs-
borgari Akureyrar árið 1930 og
þótti okkur fara vel að afhjúpa
styttuna á afmæli Akureyrar. Sú
hugsjón sem hann hafði að leið-
arljósi í lífi og starfi, eins og hann
segir sjálfur í einni af bókum sín-
um, að gleðja aðra og styrkja þá
í trúnni á allt sem er gott og fag-
urt í heiminum," sagði Valgerður
og þakkaði þeim fjölmörgu aðilum
sem höfðu með e)ju, dugnaði og
fjárstuðningi gert það mögulegt
að fá styttuna heim.
Ragnheiður rakti sögu stytt-
unnar. Nína Sæmundsson lauk við
Morgunblaðið/Hilmar T. Harðarson
NONNI kominn heim í bronsklæðum. Fjölmenni var við
afhjúpun styttunnar í gær.
hana 1958 og var þetta síðasta
verk hennar. Styttan var úr gipsi
og var sýnd á Borgarbókasafninu
um tíma en virðist síðan hafa
týnst. Anna Snorradóttir, Stefanía
Armannsdóttir og fleiri hófu leit
og fyrirspurnir í kringum 1990
ogáriðl992fannsthúnáloftiKorp-
úlfsstaða. Árið eftir fékk Zonta-
klúbbur Akureyrar styttuna til
eignar með gjafabréfi frá Menn-
ingarsjóði rikisins. Þá hófst fjár-
söfnun og með dyggum stuðningi
bæjaryfirvalda og fleiri aðila var
styttan steypt í brons í Þýskalandi
1994 og fyrr í sumar kom hún til
Akureyrar.
„Nú stendur hún hér við
bernskuheimili Nonna, nær 37
árum eftir að listakonan lauk
verkinu. Þessum áfanga er nú náð
og við erum bæði glaðar og þakk-
látar. Við höfum mætt mikilli vel-
vild og stöndum í þakkarskuld við
svo ótal marga,“ sagði Ragnheiður
Hansdóttir og taldi upp fjölmarga
aðila í ræðu sinni sem stutt hafa
þetta verkefni.
Norska sjávarútvegs-
ráðuneytið ræður
ekki við deiluna
JAN Henry T. Olsen, sjávarútvegs-
ráðherra Noregs, sagði í gær í sam-
tali við norska dagblaðið Aftenpost-
en að norsk stjómvöld væru á góðri
leið með að finna lausn á deilumál-
um sínum við íslendinga vegna
veiða þeirra í Smugunni. Hann
sagði að norsk og rússnesk stjórn-
völd væru fús til að veita íslending-
um kvóta en þeir yrðu þó fyrst að
draga úr kröfum sínum. Davíð
Oddsson forsætisráðherra segir að
Norðmenn hafi þannig hugmyndir
um kvóta handa íslendingum að
þær nái ekki nokkurri átt. Davíð
segir að norska sjávarútvegsráðu-
neytið ráði ekki við þetta mál.
Olsen sagði í samtalinu við Aft-
enposten að samkomulag væri um
að hefja vísindarannsóknir í Síldar-
smugunni þar sem lagt yrði mat á
stofnstærð og framtíðarhorfur
stofnsins. „Þegar niðurstöðurnar
liggja fyrir geta raunverulegar
samningsumleitanir hafist,“ sagði
Olsen í samtali við Aftenposten.
„Það er langt síðan Norðmenn
viðurkenndu að þeir yrðu að láta
okkur hafa kvóta í Smugunni. En
þeir eru með slíkar hugmyndir þar
að þær ná ekki nokkurri átt. Það
flýtir ekkert fyrir lausn málsins
hvérnig Norðmenn stilla málinu
upp. Eg er þeirrar skoðunar að
norska stjórnkerfið sé í lamasessi
Morgunblaðið/Erlingur Bjömsson
og sjávarútvegsráðuneytið ráði ekki
við þetta mál. Norðmenn þurfa að
taka sér tak. Ég tel að þeir hafi
spillt fyrir sjálfum sér því það hefði
verið hægt að ná samningum miklu
fyrr á skynsamlegum nótum ef þeir
hefðu ekki sýnt óbilgimi,“ sagði
Davíð.
Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir
Ætla að
starfa
að borgar-
málum
„Ég er að starfa á vettvangi
borgarmála og ætla mér að gera
það og ætla mér að stuðla að
því að Reykjavíkurlistinn vinni
sigur í næstu borgarstjómar-
kosningum. Ég ætla að sinna því
verkefni og hef ekki tíma fyrir
annað. Þannig að ég er ekki á
þessum landsmálavettvangi,"
sagði Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir borgarstjóri þegar hún var
beðin um viðbrögð við þeirri
hugmynd Jóns Baldvins Hanni-
balssonar, formanns Alþýðu-
flokksins, að Ingibjörg leiddi
sameinaða jafnaðarmenn í næstu
alþingiskosningum.
Ingibjörg var spurð hvort hún
útilokaði þá að hún tæki áskor-
uninni. „Þetta er náttúrulega
bara hans hugmynd sem hann
slær fram á fundi og ég lít ekki
á þetta sem neina sérstaka
áskorun."
Ingibjörg kvaðst ekki sjá
neina ástæðu til að ætla annað
en að hún byði sig fram til endur-
kjörs í næstu borgarstjórnar-
kosningum.
■ Þreyttir /10
íslenska sjónvarpið hf.
fær útsendingarleyfi
Fyrsti hluthafafundur á morgun
ÚTVARPSRÉTTARNEFND sam-
þykkti á fundi sínum á mánudag
að veita nýju félagi, íslenska sjón-
varpinu hf., leyfi til að hefja sjón-
varpsútsendingar. Félaginu var
úthlutað fímm rásum á örbylgju
eða svokölluðu 2,5 ghz tíðnisviði.
Fyrsti hluthafafundur hins nýja
félags verður haldinn á morgun.
Verður stjórnarkjör meðal annars
á dagskrá að sögn Gunnars M.
Hanssonar, forstjóra Nýhetja, en
það fyrirtæki hefur um nokkurt
skeið unnið að undirbúningi máls-
ins í samvinnu við forsvarsmenn
Sambíóanna, Japis og Texta hf.
Heildarhlutafé íslenska sjón-
varpsins hf. verður um 250
milljónir króna. Komið hefur fram
að hluthafar verði alls um fimmt-
án talsins og eignaraðild dreift
þannig að enginn einn aðili eigi
stærri hlut en um það bil 10% í
félaginu.
v-