Morgunblaðið - 30.08.1995, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Hagnaður af rekstri Sjóvár-Almennra 93 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins
Góð afkoma kann að
leiða til lægri iðgjalda
Hagnaður af rekstri Sjóvár Al-
mennra á fyrri helmingi þessa árs
nam 93 milljónum króna saman-
borið við 103 milljónir króna á
sama tíma í fyrra.
Að sögn Ólafs B. Thors, fram-
kvæmdastjóra félagsins, er þessi
niðurstaða mjög viðunandi, sér-
staklega þar sem góðri afkomu
af rekstri fyrirtækisins á síðasta
ári hafí verið fylgt eftir með um-
talsverðri lækkun ýmissa iðgjalda
á þessu ári. Sömuleiðis hafi fyrir-
tækið hleypt af stokkunum Stofni,
nýju endurgreiðslu- og afsláttar-
kerfi vegna vátrygginga einstakl-
inga sem hafi skilað viðskiptavin-
um félagsins lægri iðgjöldum.
Viðskiptavinir njóti hagnaðar
Eigin iðgjöld félagsins á fyrri
hluta ársins lækkuðu um 5% en
eigin tjón hækkuðu hins vegar um
2% í samanburði við fyrri hluta
ársins 1994. „Þetta var gert í sam-
ræmi við þá ætlun félagsins að
góð afkoma þess komi viðskipta-
vinum jafnharðan til góða í lækk-
uðum iðgjöldum og þjónustu," seg-
ir Ólafur.
Hann segir þó ekki ljóst enn
hvort að þessi góða afkoma félags-
ins nú muni skila sér í enn meiri
lækkun iðgjalda. „Það er stefna
okkar að góð afkoma fyrirtækisins
skili sér til viðskiptavina okkar.
Hér er hins vegar aðeins um að
ræða uppgjör fyrir fýrstu sex
mánuði þessa árs og við erum enn
ekki famir að sjá hver afkoman
verður á síðari helming ársins. Ef
hins vegar fer eins og horfir þá
munum við að öllum líkindum
lækka iðgjöldin enn frekar. Hversu
mikil sú lækkun yrði er of snemmt
að segja til um nú.“
Rekstrarkostnaður eykst
Það sem vekur mesta athygli í
þessu milliuppgjöri Sjóvár-
Almennra nú er mikil aukning í
rekstrarkostnaði fyrirtækisins, en
hann jókst um 29% á fyrri árs-
helmingi þessa árs miðað við sama
tíma í fyrra. Ólafur segir þessa
hækkun einkum tilkomna vegna
aukins auglýsingakostnaðar og
víðtækrar tölvuvæðingar, auk þess
sem starfsfólki hafi verið greiddur
launabónus vegna góðrar afkomu
í fyrra.
Afskrifaðar kröfur lækkuðu
verulega, en á fyrri helmingi þessa
árs námu þær aðeins 8 milljónum
króna borið saman við 67 milljónir
á sama tíma í fyrra. Hreinar fjár-
munatekjur félagsins hækkuðu
um 13% og þakkar Ólafur þá
hækkun einkum betri nýtingu
avöxtunarmöguleika og aukins
arðs af hlutabréfaeign.
Eigið fé Sjóvár-Almennra hefur
hækkað um 6% frá áramótum og
nemur nú 1.129 milljónum króna
og er eiginfjárhlutfall fyrirtækis-
ins nú 9,7%. Skammtímaskuldir
félagsins hafa hækkað um rúm-
lega 100 milljónir króna á undan-
förnu ári en langtímaskuldir hafa
hins vegar lækkað um tæpar tutt-
ugu milljónir á sama tíma.
SJOVA ■ ALMENNAR
MILLIUPPGJÖR: Niðurstöður úr rekstrar- og etnahagsreikningi
Rekstrarreikningur
Mittjónir króna: ^
Tekjur: Jan
Iðgjöld tímabils (eigin iðgjöld)
Umboðslaun
Hreinar fjármunatekjur
Gjöld:
Tjón tímabils (eigin tjón)
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður
Afskriftir krafna
Reiknaðir skattar
Hagnaður:
Efnahagsreikningur
Milljónir króna:
Eignir: 30. júni 30. júflí
Veltufjármunir 4.569 5.070
Fastafjármunir 5.715 4.356
Hlutur endurtryggjenda í vátr.skuld 1.367 1.672
Skammtímaskuldir 776 668
Langtímaskuldir 73 92
Vátryggingaskuld 9.673 9.387
Eigið fé 1.129 951
Skuldir og eigið fé sa
Utlendir
Breytingar á æðstu framkvæmdastjórn Alusuisse-Lonza
fjárfestu
fyrir374
milljónir
Fjárfestingar erlendra að-
ila í íslenskum fyrirtækjum
námu 374,2 milljónum króna
á síðasta ári. Þetta kemur
fram í nýjasta tölublaði Hag-
talna mánaðarins.
Árið 1993 námu fjárfest-
ingar erlendra aðila í atvinnu-
rekstri hér á landi hins vegar
tæpum 450 milljónum ís-
lenskra króna og rúmlega
230 milljónum árið 1992.
Megnið af erlendri fjárfest-
ingu hér á landi árið 1994
var í fiskeldi eða tæplega 330
milljónir króna. í þjónustu og
verslun var fjárfest fyrir rúm-
lega 25 milljónir og í flugmál-
um fyrir tæplega 20 milljónir.
Um 88% fjárfestingarinnar
eru í nafni aðila í Svíþjóð,
tæplega 5% í Lúxemborg og
rúmlega 4% á Spáni.
DU PONT bílalakk notað af
fagmönnum um land allt.
■ Er bfllinn þinn
grjótbarinn eða
rispaður ?
DU PONT lakk
á úðabrúsa er
meðfærilegt og
endingargott.
Faxafeni 12. Si'mi 553 8000
Krónprinsessan lætur af störfum
Theodor Tschopp Dominique Damon
DOMINIQUE Damon, aðalfram-
kvæmdastjóri rekstrarsviðs ál-,
efna- og umbúðasamsteypunnar
Alusuisse Lonza, lætur af störfum
frá og með næsta föstudegi, 1.
september. Ekki er fyrirhugað að
ráða nýjan aðalframkvæmdastjóra
samkvæmt fréttatilkynningu frá
félaginu.
Morgunblaðið skýrði frá því fyr-
ir nokkru að óánægja ríkti með
Damon, en tæpt ár er síðan til-
kynnt var að hún myndi taka við
forstjóraembætti Alusuisse Lonza
árið 1997 þegar núverandi aðal-
forstjóri Theodor M. Tschopp,
verður væntanlega kjörinn stjórn-
arformaður félagsins.
Óánægja með Damon
Dominique Damon sem er
frönsk að uppruna, var ráðin til
A-L fyrir rúmum fimm árum til
þess að byggja upp umbúðasvið
fyrirtækisins. Nú er yfir þriðjung-
ur veltu A-L á umbúðasviðinu og
hefur dregið úr mikilvægi álfram-
leiðslu innan fyrirtækisins í sam-
ræmi við það. Damon hefur verið
næstæðsti stjórnandi A-L, og hefði
orðið fyrsta konan til að halda um
stjórnvölinn í svissnesku stórfyrir-
tæki. Hún hefur hins vegar þótt
harður stjórnandi og mannleg
samskipti ekki þótt hennar sterk-
asta hlið. Þó er stutt síðan að
óánægjuraddir fóru að heyrast, en
nú er ljóst að ekki eingöngu for-
stjórastóllinn er runninn henni úr
greipum, því Damon mun hverfa
frá A-L í lok vikunnar, eins og-
áður segir.
í frétt Reuter í gær eru tíðindin
um brotthvarf Damon sagðar hafa
komið á óvart en þær raktar til
ágreinings um stefnu fyrirtækis-
ins. Haft er eftir Hans Jucker,
stjómarformanni, að undirritað
hafi verið samkomulag af beggja
hálfu um að tjá sig ekki frekar
um málið. Reuter hefur eftir sér-
fræðingum í hlutabréfaviðskiptum
að hann sjái ekki að
brotthvarf Damon
hafi nein áhrif á
markaðinn, þar sem
hin fjárhagslega út-
koma þess yfirskyggi
allt annað.
Þótt ekki hafi ver-
ið tilkynnt hver taka
muni við forstjóra-
starfinu þegar Juc-
ker hverfur úr stjórn-
arformannsstarfinu
fyrir aldurs sakir,
segir hann þær fyrir-
ætlanir óbreyttar að
Theodor M. Tschopp
hverfi úr forstjóra-
stólnum til að taka við stjómarfor-
mennskunni 1997. Við þessar
breytingar á æðstu framkvæmda-
stjórn Alusuisse- Lonza munu hins
vegar Kurt Wolfenbergar, fram-
kvæmdastjóri áldeildar og aðal-
samningamaður A-L í viðræð-
unum um stækkun ísal, þar sem
hann er stjórnarmaður, og Henk
van de Meent, framkvæmdastjóri
umbúðadeildar, taka þar sæti. Auk
þeirra tveggja sitja fyrir í stjórn-
inni Tschopp, aðalforstjóri, Sergio
Marchionne, framkvæmdastjóri
fjármálasviðs, og Dr. Petar Kal-
antzis, framkvæmdastjóri efna-
deildar.
107% hagnaðarauki
Hagnaður Alusuisse-Lonza á
fyrri helmingi þessa árs var 10,6
milljarðar íslenskra króna. Um er
að ræða 107% aukningu frá sama
tímabili í fyrra þegar hagnaður
var 5,1 milljarður. Hagnaður fyrir
fjármagnskostnað og skatta á
fyrri árshelmingi 1995 var 17,4
milljarðar. Þar er aukningin 22%
frá því í fyrra. í fréttatilkynningu
segir að A-L skýri þessa góðu
rekstrarafkomu m.a. með hag-
stæðum markaðsskilyrðum og
dreifingu áhættu með skiptingu
fyrirtækisins í þijár megin rekstr-
ardeildir. Áldeildin sem íslenska
álfélagið hf. tilheyrir, sýndi 15%
söluaukningu á tímabilinu og þar
jókst hagnaður fyrir fjármagns-
kostnað og skatta um 58% eða úr
3,8 milljörðum í tæpa 6,6 millj-
arða. Rekstrarafkoma efnadeildar
A-L var líka umtalsvert betri en
fyrstu sex mánuðina 1994, en
rekstrarafkoma umbúðadeildar
var heldur lakari en á umræddu
tímabili í fyrra. Reuter hefur eftir
sérfræðingum sem fylgjast með
fyrirtækjum á þessum markaði að
rekstrarárangur Alusuisse sé af-
rek miðað við hækkun svissneska
frankans gagnvart dollara og öðr-
um lykilmyntum.
McDonald’s vann sigur
Kaupmannahiifn. Reuter.
FYRIRTÆKIÐ McDonalds hefur
unnið mál sem það höfðaði gegn
veitingamanni í Silkiborg í Dan-
mörku, en hann opnaði þar veit-
ingastað undir nafninu McAIIan.
Komst danskur dómstóll að þeirri
niðurstöðu að sú nafnotkun væri
óheimil.
„Fjölmiðlar hafa fjallað um þetta
mál eins og um væri að ræða bar-
áttu Davíðs og Golíats," sagði tals-
maður McDonalds. „Það á ekki við
nein rök að styðjast. McDonalds
hefur eytt 40 árum í að byggja
upp viðskiptin, ímynd og vöru-
merki, og ef hver sem er gæti
komið og hermt eftir nafni okkar
þá væri þetta allt til einskis."
Talsmaðurinn sagði það skipta
fyrirtækið miklu máli að vernda
einkaréttinn á notkun „Mc“-nafns-
ins í skyndibitaviðskiptum.
Veitingamaðurinn Allan Peder-
sen tók úrskurði dómstólsins vel
og sagðist nú ætla að festa kaup
á tússpenna og strika yfir öll Mc-
forskeyti á stað sínum. Hann sagð-
ist telja sig vera í fullum rétti að
nota Mc-nafnið enda væri hann
aðili að skoskri ætt. Hefði honum
verið veitt aðild vegna ötuls mark-
aðssetningarstarfs á skosku viskýi.
Nokkrir aðrir skyndibitastaðir í
Danmörku hafa tekið upp „Mac“
eða „Mc“ í heiti sínu og segja full-
trúar McDonald’s, að nú muni fyr-
irtækið snúa sér að þeim.
Á hveiju ári koma að meðaltali
upp 200 tilvik þar sem McDon-
ald’s telur að verið sé að misnota
vörumerki þeirra. Flest eru málin
leyst án þess að til réttarhalda
þurfí að koma en til þessa hefur
McDonald’s haft sigur í öllum
málum.
Hagnaður
hjá UNI
Storebrand
Ósl6. Reuter.
STÆRSTA tryggingarfélag Noregs,
Uni Storebrand A/S, hefur greint frá
því að rekstrarhagnaður þess hefði
tvöfaldast á fyrstu sex mánuðunum.
Hagnaðurinn nam 1,99 milljarði nor-
skra króna en var 962 milljónir á sama
tíma í fyrra. Mestu flóð í rúmlega
heilda öld urðu í Noregi í júní og urðu
tryggingarfélög að greiða út háar fjár-
hæðir sökum þessa. Stjómendur telja
að fyrirtækið muni verða að greiða
102 milljónir nkr. vegna flóðatjóna.
V