Morgunblaðið - 03.09.1995, Page 20
20 B SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
írsku söngkonumar
Sinéad O’Connor og
Dolores O’Riordan hafa
báðar náð heimsfrægð
þó á ólíkum forsendum
sé. Fyrir stuttu gafst
Davíð Loga Sigurðs-
syni færi á að sjá þær
hvora á sínum tónleik-
unum sama kvöldið og
segir það hafa verið eins
konar einvígi söng-
kvennanna tveggja.
FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 2. júní
var ég staddur í Tivoli-
klúbbnum í Dublin á írlandi
og beið eftir að fá að sjá tón-
leika með Sinéad O’Connor
þegar að kom kunningi sem óskaði
mér góðrar skemmtunar. Hann
trúði því að við ættum eftir að sjá
eitthvað mikilfenglegt þetta kvöld,
Sinéad hafði nefnilega ekki haldið
tónleika í heimaborg sinni í fimm
ár. Kunningi minn reyndist sann-
spár. Nú lítur allt út fyrir að ég fái
bráðlega aftur að upplifa tónleika
með Sinéad O’Connor, og það á
íslandi, því vaskir menn hjá FÍugfé-
laginu Lofti hafa staðið í viðræðum
við söngkonuna um að koma og
spila í Héðinshúsinu.
Ég fór reyndar ekki einungis að
sjá Sinéad O’Connor þetta kvöld
því ég fór einnig að sjá The Cran-
berries halda sína fyrstu tónleika í
Dublin um nokkurt skeið og þótti
það nokkur viðburður því hljóm-
sveitin hefur verið að gera það sér-
staklega gott að undanfömu. Söng-
kona hljómsveitarinnar og aðal-
lagahöfundur, Dolores O’Riordan,
þykir svo sem ekki ólík Sinéad
O’Connor og þetta var ágætt tæki-
færi til að bera þessar tvær frá-
bæru söngkonur saman á heima-
velli þeirra.
Þetta var undir lok átta mánaða
námsdvalar minnar í Maynooth, litl-
um háskólabæ nálægt Dublin, og
hafði ég beðið þessa kvölds með
eftirvæntingu. Eg hafði að vísu
orðið fyrir vonbrigðum þegar mér
varð ljóst að tónleikamir yrðu sama
kvöldið en síðan tók ég gleði mína
á ný þegar kom í ljós að tónleikar
Sinéad O’Connor vom miðnætur-
tónleikar og ég gat því farið á báða.
Sú staðreynd að þessir tónleikar
vom sama kvöldið bauð reyndar upp
á að litið yrði á þetta sem nokkurs
konar einvígi söngkvennanna
tveggja. Það leikur reyndar enginn
vafí á því hvor er vinsælli í íriandi,
það sást best á umgjörð tóníeikanna
tveggja. Sinéad O’Connor lék í Tiv-
oli, sem er örlítill tónlistarklúbbur,
tekur aðeins um 1.000 manns, á
meðan The Cranberries skemmtu
fyrir troðfullu húsi í The Point, sem
er aðaltónleikahöllin í Dublin.
Sinéad O’Connor kom fram á
sjónarsviðið árið 1987 og sió síðan
rækilega í gegn árið 1990 með lag-
inu Nothing Compares To You, og
breiðskífunni I Do Not Want What
I Haven’t Got. Framhaldið hefur
hinsvegar verið nokkuð þyrnum
stráð enda Sinéad haldin sterkri
þörf til að bera skoðanir sínar á
torg, nákvæmar lýsingar á erfiðu
uppeldi sem fólst í misnotkun af
hendi móður hennar hafa fallið í
grýttan jarðveg í hinu íhaldssama
írska þjóðfélagi þar sem kaþólska
kirkjan er mjög valdamikil. Margir
kunna alls ekki að meta hve hrein-
skilnislega hún flíkar skoðunum
sínum og tilfinningum. Það var
þess vegna ekki alveg ljós hvemig
viðtökur hún fengi þetta kvöld.
The Cranberries hafa hins vegar
verið að gera það gott hvarvetna
undanfama mánuði eftir að önnur
plata þeirra, No Need To Argue,
kom út. Þetta kvöld snem þau aft-
ur til írlands sem stórstjömur. Þeim
var fagnað sem hetjum og voru
viðtökumar ef til vill áþekkar þeim
er Björk fékk í Laugardagshöll í
fyrra eftir að hafa gert það gott á
erlendri grandu.
í söngvum sínum eiga þær Dolor-
es og Sineád það sameiginlegt að
fjalla oft um einkalíf sitt auk þess
sem þær líta iðulega til sögu ír-
lands sem uppsprettu textasmíða.
Munurinn liggur hins vegar í af-
stöðu þeirra; í laginu Zombie leggur
Dolores áherslu á boðskapinn um
að friður verði að rikja í Norður-
Irlandi. Sinéad hefur aftur á móti
verið sökuð um að vera hlynnt írska
lýðveldishemum IRA og kemur
þjóðernishyggja hennar til dæmis
fram í laginu „Famine" sem fjallar
um kartöfluuppskerabrestinn mikla
í írlandi 1845-1850, sem olli því
að íbúum írlands fækkaði um tvær
milljónir. Kennir hún þar Bretum
um flestar ófarir írsku þjóðarinnar
og gagnrýnir hvernig þeir brugðust
(eða brugðust ekki) við vandanum.
í laginu Ode to My Family fjallar
Dolores á angurværan hátt um
barnæsku sína á meðan Sinéad seg-
if okkur í laginu Fire on Babylon
hvernig móðir hennar misnotaði
hana í æsku og hve mjög hún enn
þjáist á sálinni, erfítt er að skilja
textann öðruvísi en svo að Sinéad
óski látinni móður sinni vistar í
helvlti. Játningar sem þessar eiga
vart upp á pallborðið í írlandi eða
Bandaríkjunum og hefur henni í
seinni tíð verið tekið kuldalega, þó
aldrei eins og eftir að hún reif
mynd af páfanum í beinni sjón-
varpsútsendingu þar vestra og
hvatti fólk til að takast á við þann
raunveralega óvin fólksins. Var hún
seinna hrópuð niður á tónleikum
sem haldnir vora til heiðurs Bob
Dylan og ollu þær móttökur henni
nokkru hugarangri.
The Cranberries hefur hins vegar
verið tekið opnum örmum nýlega
og sanna sölutölur það svo um
munar, nýleg könnun á vegum
bresks dagblaðs hélt því fram að
Dolores væri meðal fimm tekju-
hæstu kvenna Bretlandseyja þó írar
líti nú reyndar á það sem móðgun
að vera taldir til Bretlandseyja. Var
hljómsveitinni líka fagnað vel þetta
kvöld eins og áður segir. I yfirfullu
húsinu lét fólk óspart í ljós ánægju
sína með því að syngja, dansa eða
falla í yfírlið þó mig grani reyndar
að áfengi hafí þar oft verið áhrifa-
valdur, unglingar fjölmenntu nefni-
lega þetta kvöld í The Point til að
beija hetjumar sínar augum.
Móttökurnar sem Sinéad fékk í
Tivoli vora að vísu enn áhrifa-
meiri. Sýndu viðstaddir henni að
enn var til fólk sem metur tónlist
hennar og virtist þetta koma henni
ánægjulega á óvart, allavega var
ekki vart við að hún sýndist hrærð
yfir móttökunum. Jafnframt var
hún mjög feimin í upphafi en færð-
ist svo öll í aukana. Má segja að
hún hafi þakkað fyrir velviljann
með því að halda frábæra tónleika.
Sinéad spilaði mest lög af nýj-
ustu plötu sinni Universal Mother
auk þess sem hún tók John Lennon-
lagið Mind Games, írskt þjóðlag
með aðstoð flautuleikara The
Chieftains og síðan lauk hún tón-
leikunum með lagi eftir Jimmy
Cliff. Sérstaka athygli mína á tón-
Ieikum The Cranberries vakti hins
vegar að hljómsveitin hefur gefið
sér tíma til að semja lög á nýja
plötu og fékk ég að heyra ein fimm
þeirra þetta kvöld sem öll hljómuðu
mjög efnilega.
Og hvor þessara söngkvenna
hafði svo betur í einvíginu — gæti
einhver spurt. The Cranberries
buðu upp á hressilega tónleika og
Dolores O’Riordan sannaði að frá-
sagnir um lélega sviðsframkomu
hennar eru úr lausu lofti gripnar.
Sinéad O’Connor hafði hins vegar
betur þetta kvöld og hlakka ég til
að sjá hana aftur á íslandi.
Stemmningin var rafmögnuð í litl-
um salnum og ég varð sannarlega
vitni að einhveiju sérstöku eins og
kunningi minn hafði spáð. Þegar
Sinéad var kölluð upp blístruðu
áhorfendur af miklum móð og
maðurinn sem stóð við hliðina á
mér, gítarleikari U2, The Edge, lét
ekki sitt eftir liggja.
Ný veslun með bútaassaumsvörur
Jólaefnin komin - Skráning á námskeið hafín - Verið velkomin
Frú Bóthildur
Saumagallerf
Suðulandsbraut 20
S. 553 3770
Hef flutt
lækna- og rannsóknastofu mína
í Dómus Medica, Egilsgötu 3.
Tímapantanir í síma 563 1058 milli kl. 9-16.30.
Marino T. Hafstein, læknir.
Sérgrein heilsa- ogtaugasjúkdómar.
Klínisk taugalífeðlisfræði.
Breytingaskeiöiö
— bætt heilsa betri líöan
Dr. Farida Sharan MDMA ND MH
er sérfræðingur í málefnum sem
tengist heilsu kvenna. Hún notar
náttúrulegar lækningaaðferðir;
bætt mataræði, grös og
lithimnulestur (iridology).
Dr. Sharan hefur skrifað bækur
um heilsufar kvenna, kennir og
heldur námskeið og fyrirlestra
um allan heim.
Takmark Dr. Sharan er a& gefa konum kraft,
styrk og þor til ab takast á vift cigið heilsufar og
hjólpa þeim ai ö&last dýpri skilning á huglægum,
líkamlegum og andlegum þörfum sínum.
Dr. Sharan veitir ráögjöf í Heilsuhúsinu
í Kringlunni. miðvikudaginn 6. sept. kl. 10-14.
Förðunarskóli Línu Rutar
6 vikna til 3 mán. námskeið í Ijósmynda-
og tískuförðun og 7 vikna námskeið í
kvikmyndaförðun hefst 11. september.
Við bjóðum upp
á toppfólk I
faginu og fólk
með mikla
reynslu. Lína
Rut, Hanna
Maja, Jóhanna
Kondrup,
Susanna og
þórunn Högna.
Nemendur skólans hafa sýnt og sannað að
þeir eru sterkir á velli og unnu þeir flesta
titla í keppni Hár og fegurðar í mars '95.