Morgunblaðið - 28.09.1995, Blaðsíða 4
É
; g22Í íláöiIiTf.yí.í .32£.W0/.<rjTMKir*
4 FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995
FRÉTTIR
y/.WDí. o v
MORGUNBLAÐIÐ
Davíð Oddsson forsætisráðherra eftir fund með forystu Alþýðusambandsins um úrskurð Kjaradóms
Forsendur úrskurðar
naumast leyndarmál
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
sagði eftir fund með forystu Al-
þýðusambands íslands í gær að
aðilar ættu það sameiginlegt að
hafa áhyggjur vegna þess óróleika
sem hefði skapast eftir úrskurð
Kjaradóms um laun æðstu stjóm-
enda. Sá árangur sem náðst hefði
í efnahagslífinu, sem skilaði sér í
6% kaupmáttaraukningu á þessu
og næsta ári, mætti ekki glatast.
Þá sagði Davíð að forsendur úr-
skurðar Kjaradóms væru naumast
leyndarmál, en verkalýðsforystan
hefur gert kröfu um að þær verði
lagðar á borðið. Hann sagðist
myndu eiga viðræður við forystu
dómsins, en dómurinn væri hins
vegar sjálfstæð stofnun. Aðilar
munu hittast á nýjan leik í næstu
viku þegar Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra er kominn til
landsins, en hann er erlendis nú.
Davíð sagði að á fundinum
hefðu fulltrúar Alþýðusambands-
ins farið yfir stöðu málsins frá
sínum sjónarhóli og þær afleiðing-
ar sem þeir óttuðust að það gæti
haft á kjaramál og þróun verðlags-
mála almennt í landinu. Einnig
hefði verið rætt um vandkvæði á
því að taka á þeirri stöðu sem upp
væri komin og fram hefði komið
að þeir hefðu ekki á reiðum hönd-
um lausn í þeim efnum frekar en
stjórnvöld.
Davíð sagðist hafa bent á að
ekki væri hægt að ógilda úrskurð
Kjaradóms nema með því að
breyta þeim lögum sem dómurinn
dæmdi eftir. „Það gerðum við síð-
ast 1992 og töldum okkur þá hafa
lagt grundvöll að því að ákvarðan-
ir Kjaradóms yrðu í samræmi við
þróun annarra mála í landinu.
Kjaradómur telur sig vinna þann-
ig. Þeir höfðu ekki ráð. Við höfðum
ekki ráð á þessari stundu, en báð-
ir aðilar lýstu sig fúsa til þess að
ræða málið á ný,“ sagði Davíð
ennfremur.
Hann sagði að menn hefðu talið
sig vera að koma til móts við þá
gagnrýni sem komið hefði fram
með ákvörðun forsætisnefndar
Alþingis varðandi skattalega með-
ferð fjörutíu þúsund króna starfs-
kostnaðargreiðslu, en komið hefði
fram á fundinum að það væri ekki
mat Alþýðusambandsins.
Kjaradómur
sjálfstæð stofnun
Davíð sagði að hann myndi
ræða við forystu Kjaradóms um
þá kröfu Alþýðusambandsins að
allar forsendur fyrir úrskurði um
laun æðstu stjórnenda yrðu lagðar
á borðið og gerðar opinberar.
„Kjaradómur er sjálfstæð stofnun.
Eg hef ekki leyfi til þess að skipta
mér af störfum hans nema þá með
mjög varfærnum hætti, því þessi
dómstóll á að vera óháður. Til að
mynda ef við hefðum sagt við
Kjaradóm „þið megið ekki dæma
með tilteknum hætti því það getur
skapað okkur pólitíska erfiðleika,
eins og nú eru á ferðinni," þá
hefði Kjaradómur ekki haft heim-
ild til þess að taka mið af slíkum
óskum,“ sagði Davíð.
Hann minnti á að 1992 hefði
hann skrifað Kjaradómi bréf og
beðið um að úrskurður hans yrði
endurskoðaður vegna þess óróa
sem þá var. Því hefði verið hafnað
af þáverandi Kjaradómi á þeirri
forsendu að þótt forsætisráðherra
væri æðsti valdamaður ríkisins
hefði hann ekki heimild til þess að
gefa óháðum dómstóli fýrirmæli.
Aðspurður hvort ekki væri eðli-
legt að forystumenn verkalýðs-
hreyfingarinnar gerðu kröfu um
að fá að sjá þær forsendur sem
lægju til grundvallar úrskurðinum,
sagðist Davíð sammála því að þess-
ar forsendur gætu naumast verið
leyndarmál. Hann myndi ræða við
forystumenn Kjaradóms, en hann
gæti ekki gefið þeim nein fyrir-
mæli.
Davíð sagði að málsaðilar ættu
það sameiginlegt að hafa áhyggjur
af þeim óróleika sem hefði skap-
ast í framhaldi af ákvörðun Kjara-
dóms. Aðilar hefðu áhyggjur af
því ef sá árangur, sem hefði náðst
með sameiginlegu átaki alþýðu-
hreyfíngarinnar, Vinnuveitenda-
sambandsins og ríkisstjómarinn-
ar, myndi glatast. Þessi árangur
væri nú að skapa 6% kaupmáttar-
aukningu á tveimur ámm, sem
væri það mesta sem hefði gerst
um háa herrans tíð hér í landi að
frátöldum árunum 1986 og 1987.
Þá hefði kaup hækkað mikið en
það hefði verið byggt á ótraustum
grunni. Þess utan hefði kaupmátt-
ur ekki verið að hækka jafn örugg-
iega og nú „og mun gera á næstu
tveimur, þremur áram ef við spil-
um ekki öllu út úr höndunum.,“
Aðspurður sagðist hann telja
að Alþýðusambandsforystan vildi
frið „en hún vill líka tryggja hags-
muni síns fólks og það skilur mað-
ur,“ sagði hann ennfremur.
Benedikt Davíðsson forseti ASI að
loknum fundi með Davíð Oddssyni
forsætisráðherra
Nauðsynlegt
að skoða allt
málið ítarlega
BENEDIKT Davíðsson, forseti
ASÍ, sagði að loknum fundi for-
ystumanna Alþýðusambands ís-
lands með forsætisráðherra í gær,
að verkalýðsforystan hefði sett
fram ábendingar um að hún teldi
nauðsynlegt að allt málið varðandi
Iaunahækkanir æðstu embættis-
manna ríkisins yrði skoðað mjög
ítarlega, og þá sérstaklega áður
en ríkisstjórnin tæki þá afstöðu
að allt væri í lagi í kjölfar Kjara-
dóms og úrskurðar forsætisnefnd-
ar Alþingis.
Beðið eftir formanni hins
stj órnarflokksins
„Niðurstaðan varð ekki önnur
en sú að við ætlum að hittast aft-
ur þegar formaður hins stjórnar-
flokksins kemur heim um helg-
ina,“ sagði Benedikt. Sagðist hann
vænta þess að þá yrði það skoðað
mjög gaumgæfilega hvort niður-
staða Kjaradóms og forsætis-
nefndar ætti að standa óbreytt
eins og orðið er samkvæmt úr-
skurðum, og þá hvort hægt sé að
gera einhveijar sambærilegar
breytingar fyrir annað fólk í þjóð-
félaginu.
Snýst um að bæta kaupmátt
láglaunafólks
„Um það snýst málið. Það er
ekki bara um það að halda uppi
einhveijum meðaltalskaupmætti
launa, heldur hefur launastefnan
oftast snúist um það að bæta
kaupmátt þeirra sem hafa haft
hann lakastan og við teljum að
það sé láglaunafólkið.“
Benedikt sagðist ekki vilja tjá
sig um það hvort hann teldi grund-
völl fyrir því að niðurstöðu Kjara-
dóms yrði breytt. „Okkar krafa
hefur verið sú að annaðhvort yrði
gert að launaþróunin hjá okkur
yrði metin á sama hátt og Kjara-
dómur og forsætisnefnd er að gera
þarna fyrir þá starfshópa sem
þama er verið að kveða upp úr
um, eða að þessu yrði breytt,“
sagði hann.
Ein launastefna hjá
Alþýðusambandi Islands
Aðspurður um hvort ASÍ væri
í raun og veru með eina launa-
stefnu sagði Benedikt svo vera
og hún hefði verið sú að reyna
að nýta efnahagsbatann til þess
að jafna kjörin og færa sérstak-
lega til þeirra sem hefðu búið við
mesta skerðingu að undanförnu,
og jafnframt byggja undir at-
vinnulífið.
„Það _er okkar meginlauna-
stefna. Útfærslan á henni hefur
verið í höndum einstakra félaga
og sambanda að undanförnu, og
það hefur verið bent á af hálfu
framkvæmdastjóra Vinnuveit-
endasambandsins að ekki hafí allir
fengið mnákvæmlega sömu krónú-
'töluhækkun, heldur sumir meira.
Það er alveg rétt, en í mjög mörg-
um slíkum tilfellum hafa verið að
gerast kaup; menn hafa verið að
semja um breytingar á kjörum sem
ekki hafa kannski leitt til útgjalda-
auka hjá fyrirtækjunum umfram
það sem almenna launataxta-
hækkunin gefur tilefni til. Það er
verið að semja um hagræðinbgu á
ýmsum sviðum," sagði Benedikt.
Hann sagðist ekki vilja slá neinu
föstu um það hver verði mestu
viðbrögð þeirra starfsgreinasam-
taka sem gerðu samningana ef
niðurstöðu Kjaradóms yrði ekki
breytt. „Samningar eru í gildi hjá
okkur til áramóta og ég vil ekki
slá neinu föstu um það hver verð-
ur niðurstaða næstu samninga hér
og nú.“
Morgunblaðið/Tone Myklebost
STEINUNN Kristjánsdóttir fornleifafræðingur tekur utan af beinunum hér syðra.
Formaður VMSÍ
Allt í uppnámi
BJÖRN Grétar Sveinsson, formað-
ur Verkamannasambandsins, fór
fram á það á löngum fundi forystu-
manna ASÍ með Davíð Oddssyni
forsætisráðherra og Guðmundi
Bjarnasyni, landbúnaðar- og um-
hverfisráðherra og varaformanni
Framsóknarflokksins, í gær, að
forsætisráðherra veitti aðstoð sína
við að fá forsendur úrskurðar
Kjaradóms birtar.
„Forsætisráðherra gaf engin lof-
orð um það, en hann hafnaði því
ekki heldur. Það virðast allir, nema
háæruverðugur dómstóll, vera
sammála um að nauðsynlegt sé að
skoða þessar forsendur. Málið er
ekkert einfalt. Ef menn ákveða til
dæmis að taka þetta til baka,
standa forsendurnar eftir og málið
er óleyst," sagði Björn Grétar.
„Það kom ekkert fram á fund-
inum sem leysir þessi mál á þessu
stigi en við ætlum að halda annan
fund eftir helgina,“ sagði Björn
Grétar. „Það þarf að skoða þessi
mál vel. Þarna er allt í uppnámi,"
sagði hann ennfremur.
Málið rætt á miðstjórnar-
fundi ASÍ í gær
Á fundi miðstjórnar ASÍ í gær
var fundarmönnum gerð grein fyr-
ir viðræðunum við ráðherrana fyrr
um daginn. Fundinn sátu m.a. for-
ystumenn landssambanda innan
ASÍ en það voru landssamböndin
sem stóðu að gerð kjarasamning-
anna í febrúar síðastliðnum og
skipa þau fulltrúa í launanefnd
samningsaðila. Munu landssam-
böndin einnig skoða þessi mál á
næstunni hvert fyrir sig, að sögn
Björns Grétars.
Beinagrindin
flutt suður
BEINAGRIND fornmannsins sem
fannst í fornleifauppgreftri í
Skriðdal var send suður til
Reykjavíkur í gær ásamt munum
sem fundust í kumlinu. Þar verða
beinin þurrkuð og hreinsuð. Járn-
hlutirnir og tréhlutirnir verða
meðhöndlaðir. Guðrún Kristins-
dóttir fornleifafræðingur sagði að
eftir ætti að taka ákvörðun um
hvort beinagrind fornmannsins
yrði varðveitt í Reykjavík eða á
minjasafninu á Egilsstöðum.
Teknar verða röntgenmyndir
af járnmununum. Guðrún segir
að með röntgenmyndum megi sjá
ýmis einkenni sem ekki sjást ber-
um augum á ryðbrunnu járni.
Sagði Guðrún að reynt yrði að fá
hlutina austur fyrir næsta sumar.
„Við reynum að fá beinagrindina
og munina til láns í tvö til fimm
ár. Austfirðingar bíða eftir því að
fá að sjá munina og ég er svo
bjartsýn að ég trúi því að við fáum
að varðveita fundinn."