Morgunblaðið - 28.09.1995, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 28.09.1995, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 25 AÐSENDAR GREINAR „NORDEN er í ord- en“, Norðurlöndin eru í góðu lagi, sagði Ein- ar Már Guðmundsson, rithöfundur, þegar hann tók við bók- menntaverðlaunum Norðurlandaráðs fyrr á árinu. Það er reynd- ar raunin um norrænt samstarf þrátt fyrir að ýmsir hafi spáð illa fyrir því að undan- förnu vegna margs konar utanaðkomandi breytinga. Undanfarinn hálfan áratug eða svo hafa orðið mikil straumhvörf í Evrópu. Annars vegar lok kalda stríðsins og fall Berlínarmúrsins og Sovét- ríkjanna sem leiddi til frelsis og lýðræðis í Mið- og Austur-Evrópu og hins vegar síaukin tilhneiging Vestur-Evrópuþjóða til meiri sam- vinnu og samruna. Þessar gerbreyttu aðstæður hafa viða kallað á endurmat, einnig í norrænu samstarfi. Eftir að Svíþjóð og Finnland gengu í ESB, hefur farið fram umfangsmikil endur- skoðunarvinna á vettvangi Norður- landaráðs sem bæði hefur beinst að innihaldi hins opinbera norræna samstarfs og formi þess. Á þingi ráðsins í Reykjavík í mars sl. var í meginatriðum ákveðið hvert fram- tíðarinnihald samstarfsins skyldi vera. Þar var ákveðið að beina kröftunum framvegis að þremur meginþáttum: Hinu hefðbundna, hreinræktaða norræna samstarfí, samstarfi Norðurlandanna og nær- svæðanna (Eystrasaltslönd, Norð- urheimskautssvæðið o.fl.) og samstarfi landanna um Evrópu- málefni. Á aukaþingi ráðsjns í Kaupmanna- höfn n.k. föstudag og á reglulegu þingi í Finnlandi í nóvember verður væntanlega gengið frá nauðsynleg- um skipulagsbreyting- um í kjölfar þessa. Ráðið mun því hefja árið 1996 á nýjum og breyttum grundvelli. Breyttur veruleiki - ný verkefni Fall Berlínarmúrsins raskaði al- þjóðlegum valdahlutföllum og jafn- vægi öryggismála á Norðurlöndum breyttist. Það hefði gjarnan mátt gerast fyrr. Svíþjóð og Finnland þurfa nú ekki að sýna sömu varúð og áður í þeim efnum. Nú geta Norðurlönd leikið stórt hlutverk í samskiptum sínum við Eystrasalts- löndin og sem milligöngumenn milli þeirra og annarra Evrópu- landa. Sama á við gagnvart norð- vesturhluta Rússlands. Svæðasamstarfíð í Evrópu er að þróast í nýjar áttir, í framtíðinni munu t.d. Norðurheimsskautssvæð- ið og Eystrasaltssvæðið skipta miklu varðandi stöðugleika, lýð- ræði, hagvöxt og velmegun í okkar hluta heimsins. Með öðrum orðum: Athafnasvæði Norðurlandanna stækkar, æ fleiri alþjóðaverkefni bíða úrlausnar og þörfín fyrir kröft- uga samvinnu Norðurlandanna fer vaxandi en ekki minnkandi. Margt nýtt er þegar byijað, t.d. Það er mín trú, segir Geir H. Ilaarde, að nýtt skipulag Norður- landaráðs muni breyta ímynd ráðsins og að nýtt o g öflugra sam- starf þróist á næstu misserum. varðandi nærsvæðasamstarfið. Á nýafstaðinni þingmannaráðstefnu ríkja á Eystrasaltssvæðinu, sem Norðurlandaráð stóð fyrir, lagði ég fram hugmynd um að mynda víðtækt samstarf allra ríkja með hagsmuni á svæðinu (Baltic Sea Forum) með þátttöku ríkisstjórna og þingmanna þar sem pólitísk málefni yrðu reifuð. Þetta form gæti hugsanlega með tímanum orðið fyrirmynd annars svæðasam- starfs í álfunni. Hér er hlutverk og fordæmi Norðurlandanna aug- ljóst vegna reynslunnar sem þau hafa af samstarfi þar sem þing- menn og ríkisstjórnir eiga sam- starf sín í milli þvert á landamæri. í mars á næsta ári verður önnur þingmannaráðstefna Norðurheim- skautssvæðisins, en þingmanna- nefnd með þátttöku Bandaríkj- anna, Kanada, Rússlands og Norð- urlandanna var mynduð eftir fyrstu ráðstefnuna um þetta efni í Reykjavík 1993. Á þessu svæði bíða mörg viðfangsefni, ekki síst á sviði umhverfismála, pólitískrar úrlausnar sem ríkisstjórnir land- anna vinna einnig að. Þeim málum er auðveldara að sinna eftir að Sovétríkin hurfu af sjónarsviðinu. Norðurlandaráð var einnig upp- hafsaflið í þessu samstarfi þing- manna, ekki síst fyrir frumkvæði Halldórs Ásgrímssonar núverandi utanríkisráðherra. Alþjóðamál í víðara samhengi eru einnig á dagskrá Norðurlanda- ráðs. Samstarf Norðurlandanna innan SÞ var þema ráðstefnu sem haldin var fyrr á þessu ári. Örygg- ismálin hafa haslað sér völl í breiðu samhengi í norrænu samstarfi og það er skylda Norðurlandanna að leggja sitt af mörkum við mótun framtíðarstefnu fýrir Sameinuðu þjóðirnar. Menning - umhverfi - pólitík Hið hefðbundna norræna sam- starf stendur eftir sem áður upp úr sem höfuðverkefni Norður- landaráðs, en aukin krafa um for- gangsröðun veldur því að áhersla er lögð á færri en stærri verkefni en áður. Menningarmálin eru mikilvæg, um helmingur norrænu fjárlag- anna rennur í verkefni í menning- argeiranum. Hjarta samstarfsins er á því sviði. Norðurlöndin byggja þjóðir með samtvinnaða sögu; tungumál og menningararfleið. I norrænu sam- starfi ber okkur skylda til að þróa þessa arfleið og þá samsemd sem menning okkar hefur skapað. Þetta er ekki síst mikilvægt nú, á tímum óstöðvandi alþjóðlegrar fjölmiðlunar þar sem hið ómerki- legasta flýtur oft ofan á. Umhverfismálin eru ekki síður mikilvæg í norrænu samstarfi. Þrátt fyrir að ekki verði lagðar stórar fjárhæðir í aðgerðir á nor- rænum vettvangi er gífurleg vinna hafin við mótun stefnu og sam- ræmingu sjónarmiða á umhverfis- sviðinu. Norðurlönd eru og feti framar í „umhverfisvænum" hugs- unarhætti og geta beitt sér á sviði Nýr kafli í norrænu samstarfi Geir H. Haarde Þorskurinn í Smugunni UNDANFARIÐ hefur verið mikið rætt um þorskveiðar okkar í Smugunni og umgengni um auð- lindina þar. En hvers konar þorsk erum við að veiða þama og hvern- ig er ástand þorskstofnsins í Bar- entshafi um þessar mundir? Allt frá því er íslendingar hófu veiðar í Smugunni árið 1993, hefur Ha- frannsóknastofnunin aflað gagna um veiðarnar eftir því sem við verður komið hvetju sinni með sýnatöku úr lönduðum afla hér heima og eins með dyggilegri að- stoð Landhelgisgæslunnar á mið- um úti. Veiðarnar 1993 Veiðar okkar í Smugunni eru svo til eingöngu þorskur tekinn í flotvörpu uppi í sjó. Árið 1993 veiddum við 9.374 tonn af þorski þarna og vorum fjórðu í röðinni það árið hvað þorskaflamagn snerti á eftir Norðmönnum, Rúss- um og Færeyingum. Afli af öðrum tegundum var sáralítill, mest veiddist af hlýra 216 tonn og 56 tonn af grálúðu og annar botn- fiskafli var alls 31 tonn. Haustið 1993 var mikið rætt um smáfiska- dráp í Smugunni. Sendur var mað- ur frá Landhelgisgæslunni til mælinga um borð í íslenskum tog- urum í samstarfi við norsku Strandgæsluna. Mælingarnar sýndu að þorskurinn stóðst hvorki íslensk viðmiðunarmörk (25% und- ir 55 sm) né norsk viðmiðunarmörk (15% undir 47 sm). Þetta leiddi til þess að sjávarút- vegsráðuneytið gaf út reglugerð, þar sem veiðar voru bannaðar í sunnanverðri Smugunni fram til áramóta. Eftir að skipin færðu sig norðar glæddist aflinn þar og þar var mun vænni fiskur á ferðinni. Aldurs- greiningar sýndu að nær annar hver fiskur þarna var 10 ára af stóra árganginum frá 1983. Næstalgengasti aldursflokkurinn í veiðunum var hins veg- ar 4 ára fiskur af ár- gangi 1989, en það var þá skársti árgangur- inn, sem var að koma inn í veiðistofninn síð- an 1983. Heildarþors- kveiðin úr Barents- hafsþorskstofninum árið 1993 var 581.611 tonn og nam því hlutur íslendinga í heildarveiðinni rúmum 1,6%. Veiðarnar 1994 Veiðar hófust aftur í Smugunni af krafti er líða tók á sumarið 1994. Þær fóru hægt af stað en vel aflaðist í ágúst og september, oft mokafli. Landhelgisgæslan var með varðskip á miðunum. Varð- skipsmenn mældu stærð þorsksins og söfnuðu jafnframt kvörnum til aldursgreiningar. Mun minna mældist af smáþorski en árið áður og gáfu mælingar varðskipsmanna ekki tilefni til lokana. Fjöldi þorsks undir 47 sm reyndist vera á bilinu 0-10%. Aldursdreifmg í veiðum íslend- inga var á þann veg að mest veidd- ist af 5 ára þorski þ.e. árgangi 1989 og var annar hver þorskur í aflanum af þessum árgangi. Meðal- lengd hans var 69 sm. Næst algeng- astur var 4 ára þorskur af árgangi 1990 (20% hlutdeild) en þessi ár- gangur er talinn vera af svipaðri stærð og stóri árangurinn frá 1983. Þegar aldursdreifíng í okkar veiðum í Smug- unni árið 1994 er borin saman við áætlaða ald- ursdreifíngu í stofnin- um, kemur hvor tveggja mjög vel heim og saman, þ.e. að þeir árgangar sem voru uppistaðan í veiðinni em einnig uppistaðan í stofninum 1994. Skertur þorskkvóti á heimamiðum, góð aflabrögð og aukin sókn í Smuguna varð til þess að við jukum hlutdeild okkar í þors- kveiðunum úr Barentshafsstofnin- um í 4,6% árið 1994. Þorskafli okkar á þessum miðum varð 36.737 tonn en heildarþorskafli allra þjóða, sem veiða úr þessum stofni nam samtals um 800 þús. tonnum í fyrra. Við erum því orðin þriðja mesta þorskveiðiþjóðin í Barentshafi á eftir Norðmönnum og Rússum. Næstir á eftir okkur koma Færeyingar með tæplega 23 þús. tonna afla árið 1994. Þrátt fyrir að þorskafli okkar fjórfaldað- ist árið 1994 miðað við 1993 þá minnkaði annar botnfiskafli okkar á þessum miðum úr 293 tonnum 1993 í 233 tonn 1994. Veiðarnar 1995 Gangur veiðanna í ár hefur ver- ið áþekkur og í fyrra. Þær fóru rólega af stað en svo hafa komið góðir kaflar í ágúst og það sem af er september og stefnir allt í það, að aflinn í ár verði ekki minni en í fyrra. Mælingar varðskipsmanna nú sýna að mikið er um smáan þorsk Með ströngum veiði- takmörkunum, segir Sig’fús A. Schopka, hefur þorskstofninn í Barentshafí náð fyrri sessi sem stærsti þorsk- stofn í N-Atlantshafi. í aflanum, þó að hann hafí staðist viðmiðunarmörk. Flestir hafa verið með 135 mm karfapoka í Smug- unni, en draga má eitthvað frekar úr veiðum á smáþorski með 155 mm möskva í poka og hefur það nú verið sett í reglugerð. Aldurs- greiningar á þessum fiski sýna, að smáfiskurinn er aðallega fjög- urra ára þorskur af árgangi 1991 en sá árgangur er talinn vera vel yfír meðallagi. Hvað vænni þorsk- inn snertir mynda árgangarnir frá 1989 og 1990 uppistöðu aflans. Þetta er í samræmi við spár, þar sem eldri árgangar frá árunum 1984-1988 eru allir lakir og ár- gangur 1983 er nú horfinn úr veið- inni. Ástand stofnsins Með ströngum veiðitakmörkun- um hefur þorskstofninn í Barents- hafi náð fyrri sessi, sem stærsti þorskstofn í N-Atlantshafí. Nýlið- un í stofninn hefur verið góð síðan árið 1989, flestir árgangar ná ■ meðalstærð. Nýjustu fréttir úr seiðaleiðangri 1995 benda til að enn einn stór árgangur sé í uppsigl- ingu. Afli hefur vaxið úr 212 þús. tonnum 1990 í um 800 þús. 1994. Sigfús A. Schopka umhverfistækninnar sem verið hefur norræn útflutningsvara um nokkurt skeið. Það er mín trú að hið nýja skipu- lag Norðurlandaráðs muni breyta ímynd ráðsins og að nýtt og öfl- ugra samstarf muni þróast á næstu misserum. Ráðið mun auka áhrif sín á pólitíska stefnu Norðurland- anna sem og í alþjóðasamstarfi og hreint pólitískt samstarf verður mikilvægara. Störf norrænu flokkahópanna munu eflast og málefnin verða reifuð og leidd til lykta þar í auknum mæli. Nú er líka tækifæri til að tengja norræna samstarfið betur inn í þjóðþingin svo að það verði sjálf- sagður hluti stjórnmálanna á heimavelli. Þetta má gera án vand- ræða, t.d. með því að sjá til þess að upplýsingaflæði sé eðlilegt og að norræn málefni séu eftir atvik- um tekin fyrir í nefndum þjóðþing- anna. Stuðningur almennings Sá er stærstur munur á Norður- landasamvinnunni og annarrí al- þjóðlegri samvinnu að almenningur stendur heils hugar að baki hinni norrænu. Það sýna allar kannanir. Slíkur stuðningur fólksins er ein- stæður og ómetanlegur. Norræn samvinna er líka einstök og snert- ir alla þætti í samfélaginu, bæði hjá opinberum aðilum og almenn- ingi. Hún mun halda áfram að dafna einfaldlega af því að það er það sem fólk vill. Er ég afhenti Einari Má bók- menntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrr á þessu ári vitnaði ég í gömul ummæli um að hæfíleiki rithöfunda til að tjá sig sé gjörólíkur þeim hæfíleika hjá stjórnmálamönnum. Þeir síðarnefndu geti lært mikið af rithöfundum, en skáldin lítið af stjórnmálamönnum. En um eitt erum við alténd sammála: Norden er í orden. Höfundur er alþingismaður og forseti Norðurlandaráðs. Miðað við úthlutaða kvóta 1995 er búist við einhverri aflaminnkun miðað við árið 1994. Aukin sókn mun ekki skila sér í meiri af- rakstri til lengri tíma litið. Önnur teikn á lofti sem gætu dregið úr vexti stofnsins og viðgangi eru minna fæðuframboð og kólnun í Barentshafi. Því hefur verið spáð og byggt á langtímamælingum að sjávarhiti færi lækkandi, en svo myndi hlýna aftur undir aldamót. Ekki hefur enn bólað á þessari kólnun. Kólnun myndi að öllum lík- indum draga úr fískgengd í Smug- unni. Hvað ætið snertir, er loðnu- stofninn nánast hruninn, svo þorskurinn hefur orðið að snúa sér að annarri fæðu í ríkara mæli. Engann bata er að sjá í loðnustofn- inum í náinni framtíð og klakið í ár virðist afar lélegt. Lítil loðnu- gengd hefur hægt á vexti og leitt til þess að sjálfrán þorsks hefur aukist. Sjálfránið beinist að smæsta þorskinum, og skörð högg- vin í nýliðana áður en þeir koma fram í veiðistofni. Kveði rammt að þessu hefur það áhrif á nýliðun- artölur og þar með afrakstur stofnsins. Höfundur er fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.