Morgunblaðið - 28.09.1995, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 28.09.1995, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 43 I DAG Árnað heilla rj rÁRA afmæli. í dag, • Ofimmtudaginn 28. september, er sjötíu og fímm ára Grímur Jónsson, læknir, Lyngbergi 53, Hafnarfirði. Eiginkona hans er Gerða M. Jónsson. Þau verða að heiman í dag. rrrVÁRA afmæli. í dag, I V/fimmtudaginn 28. september, er sjötugur Hjörleifur Jónsson, fram- kvæmdastjóri Fóður- blöndunnar hf., Safamýri 23, Reykjavík. Eiginkona hans er Ingibjörg Snæ- bjömsdóttir. Þau hjónin verða að heiman á afmælis- daginn. Ljósm: Kristján E. Einarsson BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 24. júní sl. í Há- teigskirkju af sr._ Pálma Matthíassyni Ásbjörg Guðný Jónsdóttir og Kristberg Snjólfsson. Heimili þeirra er í Fléttu- rima 33, Reykjavík. Ljósm: Kristján E. Einarsson BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 29. júlí sl. í Stykkis- hólmskirkju af sr. Gunnari Eiríki Haukssyní Steinunn Helgadóttir og Sæþór Heiðar Þorbergsson. Með þeim á myndinni er sonur þeirra Þorbergur Helgi. Heimili þeirra er á Borg, Stykkishólmi. Ljósn)yndarinn Lára Long BRÚÐKAUP. Gefín voru saman 19. ágúst sl. í Þor- lákskirkju af sr. Svavari Stefánssyni Anna Sólveig Ingvadóttir og Þráinn Jónsson. Heimili þeirra er í Heimabergi 8, Þorláks- höfn. Ljósm.stofa Sigrfðar Bachmann BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 15. júlí sl. í Háteigs- kirkju af sr. Verði Trausta- syni Elva Wííum og Þór- arinn Friðriksson. Heimili þeirra er í Hrísmóum 1, Garðabæ. LEIÐRETT Myndabrengl Leiðinleg myndabrengl urðu í veiðimáladálkinum „Eru þeir að fá ’ann?“ í blaðinu í gær. Texti sem fylgdi myndinni átti ekki við. Myndin sem birtist var af Þorarni Sigþórssyni með nýveiddan lax við Leir- vogsá. Textinn átti við mynd af ónafngreindum veiðimanni sem þreytir lax i Laxfossi í Grímsá. Er beðist velvirðingar. Ekkert útræði Daníel Hálfdánarson í Vattanesi við Fáskrúðs- fjörð hafði samband við Morgunblaðið vegna grein- ar um fuglamerkingar í eyjunni Skrúð, sem birtist í Morgunblaðinu sunnu; daginn 10. september. í greininni er m.a. greint frá því að fyrrum hafi verið útræði frá Skrúð og ver- menn þá búið í svonefndum Blundsgjárhelli. Heimild- irnar eru fengnar úr bók- inni Landið þitt eftir Þor- stein Jósepsson og Stein- dór Steinsdórsson frá Hlöðum. Daníel segir engar heim- ildir vera til um útræði úr Skrúð og ýmsir gamlir sveitungar hans, fæddir fyrir aldamót, kannist ekki við slíkt, enda sé svo tor- fært í eyjuna að öllu jöfnu að útgerð hefði vart verið gerleg á trébátum fyrri tíma. Oft væri ekki lend- andi í eynni vikum saman. Hins vegar hefðu menn sætt lagi og farið í eyna bæði fyrr og síðar til eggja og lundaveiða. Er þessu hér með komið á framfæri. Ljósm: Studio 76 Anna BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 19. ágúst sl. í Dóm- kirkjunni af sr. Pálma Matthíassyni Esther Hall- dórsdóttir og Haraldur Helgason. Þau eru búsett í Hafnarfirði. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 8. júlí sl. í Bústaða- kirkju af sr. Pálma Matthí- assyni Soffía Margrét Magnúsdóttir og Halldór Bragason. Heimili þeirra er í Frostafold 113, Reykja- vík. Farsi STJÖRNUSPÁ cftir Frances Drake VOG Afmælisbarn dagsins: Þú ert traustur vinur vina þinna og metur fjölskyld- una mikiis. Hrútur (21. mars - 19. apríl) Þú fmnur einfalda og góða lausn á verkefni, sem hefur valdið þér áhyggjum í vinn- unni. Dómgreind þín í fjár- málum mætti vera betri. Naut (20. apríl - 20. maí) Vinur hefur tilhneigingu til að gera mikið úr eigin kost- um. Það getur verið erfitt að koma hugmyndum þínum á framfæri í dag. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Breytingar verða á fyrir- ætlunum þínum þegar óvænta gesti ber að garði. Þú þarft að sýna mislyndum starfsfélaga umburðarlyndi. Krabbi (21. júnf — 22. júlí) Gættu tungu þinnar, því van- hugsuð orð geta sært þá sem sízt skyldi. Fyrirhuguð skemmtun getur haft auka- kostnað í för með sér. Ljón (23. júlf — 22. ágúst) Þú verður fyrir sífelldum truflunum í vinnunni f dag, sem draga úr afköstunum. Þú ættir að nota kvöldið til hvíldar. Meyja (23. ágúst - 22. september) Láttu ekki smáágreining spilla góðu samstarfi í vinn- unni í dag, því mikið er í húfi. Sýndu ástvini tillitssemi í kvöld. Vog (23. sept. - 22. október) Þú verður að leggja þig fram ef þú ætlar að ná árangri í vinnunni í dag. Grunur þinn í garð starfsfélaga er ekki á rökum reistur. Sþorðdreki (23. okt. - 21. nóvember) ^ijj^ Einhver nákominn er hör- undssár í dag, og þú þarft að gæta tungu þinnar. Þú kýst heimilisfriðinn frekar en félagslífið í kvöld. Bogmaöur (22. nóv.-21. desember) Trúðu ekki orðrómi, sem þú heyrir f vinnunni í dag, og Iáttu hann ekki draga úr af- köstunum. Sinntu fjölskyld- unni í kvöld. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú þarft að kanna vel alla kostnaðarliðina áður en þú ákveður að skreppa í ferða- lag, svo ekki fari allt úr bönd- um. Vatnsberi (20.janúar- 18. febrúar) Þú verður fyrir óvæntum út- gjöldum vegna ættingja. Kynntu þér vel tilboð starfsfélaga um viðskipti áður en þú tekur ákvörðun. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) ifZL Þú. getur ekki reiknað með að aðrir lesi hugsanir þínar og þarft því að skýra mál þitt vel til að koma í veg fyrir misskilning. Stj'órnusþána á aó lesa sem dœgradvöl. Sþár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra stadreynda. Helcgar- tilboðin í Kaupgarði Suínahnakki m/beini ••••••••••••••• 651 kr./kg Blandað lantba- og nautahakk •••• kr./kg Lúxus nautapottréttur •• 669 kr/k9 íslands gæðasíld kryddsíld og marineruð 800 ml I lið kr. 119kr Maarud TorBlla Chips 200 g 1 19 kr. Myllu Qölskyldubrauft •• 99 kr Hversdags- skinka kr /kn Bacon KT./Kg 899 krVkg Fedenchi 39 kr. opdgnem ouu g »•••••••• Federichi kr. Taukörfur: kr. 389 kr Opið: Mánudaga - fimmtudaga kl. 9 -19, föstudaga kl. 9 - 20 og laugardaga kl. 10 -18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.