Morgunblaðið - 28.09.1995, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.09.1995, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ ÚRVERINU Ályktun aðalfundar Samtaka fiskvinnslustöðva „Mjög brýnt að ná niður ýmsum ko stnaðarliðum ‘ ‘ AÐALFUNDUR Samtaka fisk- vinnslustöðva vil heimila takmarkaða óbeina eignaraðild útlendinga að fyr- irtækju í íslenzkum sjávarútvegi og skorar á stjórnvöld að falla frá áformum um hækkun launaskatts á sjávarútveginn. Fundurinn lýsireinn- ig áhyggjum yfir atvinnuleysi og styður stefnu stjórnvalda í deilunni við Norðmenn um veiðar í Smug- unni. Ályktun fundarins fer hér á eftir: „íslenskur sjávarútvegur hefur gengið í gegnum mikla umbrotatíma á undanförnum árum. Rúmlega helmings samdráttur í þorskafla hef- ur komið fjölda fyrirtækja í þrot og vandséð hvernig fyrirtæki sem byggja afkomu sína að miklu leyti á þorskinum komast í gegnum erfið- leikana. Ákvörðun sjávarútvegsráð- herra um þorskafla á þessu fiskveiði- ári og minni veiði á nokkrum öðrum botnfisktegundum eykur enn á vand- ann. Nýir útreikningar Þjóðhags- stofnunar um afkomu í botnfísk- vinnslu staðfesta þann gríðarlega vanda sem við er að etja. Við þessar aðstæður er mjög brýnt að ná niður ýmsum kostnaðarliðum sem snúa jafnt að fiskvinnslunni, þjónustufyr- irtækjum, sveitarfélögum og fyrir- tækjum þeirra. Aðalfundur samtaka fiskvinnslu- stöðva skorar á stjórnvöld að hraða endurskipulagningu og sameiningu fjárfestingalánasjóða atvinnuveg- anna og vinna að stofnun öflugs nýsköpunarsjóðs í samvinnu við sam- tök í sjávarútvegi og iðnaði. Samein- ing íjárfestingalánasjóða atvinnulífs- ins getur leitt til umtaisverðrar rekstrarhagræðingar og vaxtalækk- unar og jafnframt tryggt fjármögnun til nauðsynlegrar nýsköpunar í at- vinnulífínu. Háir raunvextir eru enn ráðandi hér á landi og hafa komið þungt niður á íslenskum sjávarútvegi. Gíf- urleg framlög lánastofnana í af- skriftasjóði og útlánatöp hafa aukið á vaxtamun inn- og útlána. Fyrir liggur að afskriftir vegna tapaðra útlána lánastofnana eru hvað lægst- ar í sjávarútvegi af öllum atvinnu- greinum. Lækkun vaxta skiptir sjáv- arútveginn miklu máli og afar brýnt að innlendir vextir verði sambærileg- ir og hjá okkar helstu samkeppnis- þjóðum. Takmörkuð óbein eignaraðikl útlendinga verði leyfð Lög um erlenda flárfestingu í ís- lenskum sjávarútvegi þarf að aðlaga þeim raunveruleika sem við búum við. Breyta þarf lögum á þann veg að takmörkuð óbein eignaraðild er- lendra aðila verði heimil í almenn- ingshlutafélögum í sjávarútvegi sem hafa mjög dreifða eignaraðild. Þá lýsir fundurinn yfir stuðningi við stefnu ríkisstjómar og Alþingis varðandi næstu skref í viðræðum við ESB. Fundurinn ítrekar að forgangs- verkefni stjórnvalda í þeim viðræðum verði að tryggja sem allra fyrst að samkeppnisstaða íslendinga á salt- síldarmörkuðum í Finnlandi og Sví- þjóð verði ekki verri en hún var fyr- ir inngöngu þessara ríkja í ESB. Þetta er sérstaklega mikilvægt í ljósi þess að ekki hefur fengist staðfesting á því að tollur á krydd- og edikverk- uðum flökum falli niður til ESB landa eins og talið var við undirritun EES samningsins. Fundurinn skorar á stjórnvöld að falia frá öllum hugmyndum um hækkun launaskatts á sjávarútveg- inn og bendir á að þessar skattahug- myndir eru í hróplegu ósamræmi við þau fyrirheit ríkisstjórnarinnar að skattalegt umhverfi atvinnurekstrar hér á landi verði á við það sem ger- ist best í nálægum löndum. Endurskoða þarf lög um Þróunar- sjóð sjávarútvegsins á þann veg að heimildarákvæði til úreldingar fisk- vinnsluhúsa falli niður um næstu áramót. Jafnframt verði þróunar- sjóðsgjald á fiskvinnslutæki fellt nið- ur, enda nægir álagning gjaldsins á þessu ári fyrir hlut sjóðsins í úreld- ingu fiskvinnsluhúsa. Aðalfundurinn lýsir áhyggjum sín- um yfir atvinnuleysi sem virðist orð- ið viðvarandi hér á landi. Jafnframt lýsir fundurinn yfir undrun sinni að ekki skuli vera hægt að manna öll störf í fiskvinnsluhúsum víðsvegar um land með íslendingum, á sama tíma og þúsundir manna ganga um án atvinnu hér á iandi. Fundurinn tekur undir þær hugmyndir að koma beri upp skipulegri verkkennsiu fyrir atvinnulaust fólk sem óskar eftir vinnu við fískvinnslu en skortir nauð- synlega starfsreynslu. Aðalfundur Samtaka fiskvinnslu- stöðva lýsir yfir fullum stuðningi við stefnu stjórnvalda í deilunum við Norðmenn vegna fiskveiða í Smug- unni og fagnar jafnframt þeim merka áfanga sem náðst hefur í hafréttar- málum með gerð úthafsveiðisamn- ings Sameinuðu þjóðanna í síðasta mánuði. Fjölgun starfa verður ekki á ís- landi nema útflutningsatvinnuveg- irnir búi við svipuð starfsskilyrði og tækifæri til nýsköpunar og framþró- unar og tíðkast í samkeppnislöndum okkar. Aðalfundurinn hvetur stjórn- völd til að láta fara fram úttekt á þeim styrkjakerfum sem sjávarút- vegur ESB og í Noregi býr við. í framhaldi af þeirri úttekt verði sam- keppnisstaða íslensks sjávarútvegs metin. Fiskveiðasjóður lækki vexti Aðalfundurinn skorar á Fiskveiða- sjóð fslands, að lækka vexti á lánum til sjávarútvegsins. Vextir Fiskveiða- sjóðs eru óeðlilega háir í dag miðað við vexti af lánum, sem sjávarútvegs- fyrirtæki geta fengið annars staðar. Fiskveiðasjóður telur sig vera stofnlánasjóð sjávarútvegsins og fer alltaf fram á fyrsta veðrétt í þeim eignum, sem hann lánar út á og jafn- framt er endurgreiðsla tryggð í gegn um stofníjársjóð sjávarútvegsins. Því verður að telja óeðlilegt að Fiskveiþa- sjóður taki einnig hæstu vexti af lánum sjávarútvegsfyrirtækja. Fundurinn skorar jafnframt á sjávarútvegsfyrirtæki að bera vel saman þau kjör á lanamarkaði, sem þau geta fengið og jafnframt að taka ekki lán hjá þeim aðilum, sem eru með hæst kjör á hveijum tíma og reyna að borga upp lán hjá þeim aðilum. I3ICMIEGA vítamín og kalk fæst í apótekinu Námskeið sem gefa forskoí: TölvuMámskeÍ fyrir 10-16 ára Þrjú gagnleg námskeið sem veita ungmennum forskot í skólanum og búa þau undi störf á 21. öldiimi! Láttu þitt bam njóta þess nýjasta og skemmtilegasta!! 24 klst námskeið, kr. 14.900,- stgr. Grunn-, framhalds- og forritunamámskeið ■ Tölvu- og verkfræðiþjónustan Tölvurðögjof • námskeiö • utgáta Grensásvegi 16 • sfmi 568 8090 hk 95096 RaBgreiOslur EuroA'lSA Ný Iseknastofa jHefopnað læknastofu í húsnæði Gigtarfélags íslands, Ármúla 5. / Tímapantanir í síma 553-0760 alla virka daga frá kl. 09.00-17.00. Magnús Guðmundsson, lœknir. Sérgrein: Lytlækningnr og gigtarsjúkdómar. | FIMET | RAFMÓTORAR Eigum til á lager alhliða rafmótora í stærbunum 1,1 - 90 KW. Útfærslur: »IP55 •meb fót og flans Sig. Sveinbjörnsson hf. Skeiöarási 14 Sími: 565-8850 Fax: 565-2860 osol Einar Fárestveit&Co.hf. Borgartúni 28 562 2901 30 ára frábær reynsla á þúsundum íslenskra heimiia • 30/50/100/120/200 eða 300 lítra • Blöndunar- og öryggisloki fylgja • 20% orkusparnaður • Hagstætt verð hitakútar úr ryðfríu stáli Eini hitakúturinn á Vrnarkaðnum úr ryðfríu stálii/ FRÉTTIR: EVRÓPA Santer vill ekki herða skilyrði vegna EMU Brussel, Frankfurt. Reuter. JACQUES Chirac Frakklandsfórseti lýsti því yfír í gær að Frakkland hygðist vera í hópi þeirra ríkja er myndi taka upp sameiginlega mynt árið 1999 og þar af leiðandi uppfylla skilyrði Maastricht-sáttmálans vegna peningalegs samruna Evrópu- ríkja (EMU). Talsmaður frönsku ríkisstjórnar- innar sagði að gripið yrði til allra nauðsynlegra aðgerða til að uppfylla skilyrðin þannig að fjárlagahalli yrði fimm prósent á yfírstandandi ári, fjögur prósent á næsta ári og þijú prósent árið 1997. Þýskir fjármálasérfræðingar hafa hins vegar látið í ljós óánægju með að Frakkar virðast ætla að draga úr hallanum með skattahækkunum fremur en aðhaldi í ríkisfjármálum og niðurskurði. Háttsettir þýskir embættismenn hafa jafnvel látið í ljós vantrú á að Frökkum takist að uppfylla skilyrðin. Rudolf Seiters, talsmaður Kristi- lega demókratafiokksins í Þýska- landi í utanríkismálum, lagði í gær mikla áherslu á að Þýskalandsstjórn myndi gera allt sem í hennar valdi stæðist til að koma á hinum peninga- lega samruna í samstarfi við FYakka. Það samstarf væri grundvöllur EMU. Talsmaður Jacques Santers, for- seta framkvæmdastjórnar ESB, sagði í gær að mikilvægt væri að aðildarríki ESB stæðu við skuldbind- ingar sínar samkvæmt Maastricht. Það yrði síðan leiðtoga Evrópuríkja að meta hverjir hefðu uppfyllt skil- yrðin þegar að því kæmi. Hann sagði að ekki ætti að herða skilyrðin enn frekar líkt og kröfur hafa verið uppi um í Þýskalandi. Síð- ast í gær kröfðust samtök þýska iðn- aðarins þess að skilyrðin yrðu hert enn frekar og að frekar ætti að fresta EMU en ráðast of snemma í peninga- legan samruna. Svíakonungur í Þýskalandsferð „Einlægur Evrópu- sinni“ lýsir skoðun sinni Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. SVIAR áttuðu sig ekki á hve mikil- vægar kosningarnar til Evrópuþings- ins voru og því varð kosningaþátttak- an jafn lítil og raun bar vitni. Þetta sagði Carl Gustav Svíakonungur í samtali við þýska og sænska blaða- menn í Þýskalandsheimsókn kon- ungshjónanna, sem stendur yfir þessa dagana. Þótt hlutverk konungs sé að vera sameiningartákn þjóðar- innar þá forðast hann ekki viðkvæm pólitísk mál og hann hikaði ekki við að lýsa yfir að hann væri einlægur Evrópusinni. Aðspurður sagðist konungur vera einlægur Evrópusinni og hafa verið það síðan á námsárum sínum. Evr- ópusambandsaðild fæli í sér feikilega möguleika fyrir Svía. Hins vegar hefðu Svíar ekki áttað sig á mikil- væginu og því hefði kosningaþátt- takan verið jafn lág og raun bar vitni. Konungur benti meðal annars á mik- ilvægi samstarfs á sviði umhverfis- og atvinnumála. Þegar kom að því að svara spurn- ingum um evrópska myntsambandið sagði Carl Gustav að í því máli hefði hann ekki enn gert upp hug sinn. Það væri enn of snemmt að ákveða sig í því mikilvæga máli. Svíakonungur var spurður um álit sitt á kjarnorkutilraunum Frakka. Svar hans var að þær hlytu að að hafa tvíbent áhrif og hægt væri að velta því fyrir sér hvort þær hefðu verið nauðsynlegar. Þótt hann for- dæmdi ekki tilraunirnar, voru við- Reuter SILVÍ A Svíadrottning hlustar á ræðu í borginni Wuppertal í opinberri heimsókn sænsku konungshj ónanna til Þýskalands. staddir ekki í vafa um að hann væri þeim andsnúinn. Rétt eins og Danadrottning og fleiri þjóðhöfðingjar í Evrópu hefur Svíakonungur ekki afskipti af stjórn- málum. Það hindrar hann þó ekki í að tala mun opinskáar um þau en tii dæmis Danadrottning gerir. Hann er einnig öldungis óhræddur við að tala um viðkvæm mál eins og um- mæli hans í Þýskalandi sýna.. Einnig hafa konungshjónin látið til sín taka á sviði félagsmála og meðal annars beitt sér fyrir umræðum um vaxandi ofbeldi meðal unglinga. T Q C 1 Hertar kröfur um fyrirtækjasamruna? Brussel. Rcuter. KAREL Van Miert, samkeppnis- stjóri Evrópusambandsins, boðar að aukinni hörku verði beitt í meðför- um framkvæmdastjórnarinnar á þeim málum sem til hennar er beint og varða samruna fyrirtækja. Van Miert sagði á blaðamanna- fundi að fleiri mál sem vörðuðu samruna stórra fyrirtækja bærust nú framkvæmdastjórninni en áður. Hann taldi að búast mætti við því að viðbrögð framkvæmdastjórnar- innar yrðu í samræmi við þetta. Samkeppnisstjórinn vék sérstak- lega að fjölrniðlum og gat þess að þrívegis frá árinu 1990 hefði fram- kvæmdastjórnin lagst gegn sam- runa stærri fyrirtækja. Tvö þeirra a hefðu starfað á sviði fjölmiðlunar. Van Miert sagði að á þessu ári myndi framkvæmdastjórnin beita ( oftar neitunarvaldi sínu en í fyrra en þá hefðu 95 mál verið lögð fyrir hana til samþykkis. Hann kvað greinilegt að hér væri um viðvar- andi þróun að ræða en lét þess ekki getið hversu oft leitað hefði verið umsagnar framkvæmda- stjórnarinnar á þessu ári. Hann bætti við að sú væri ekki skoðun Evrópusambandsins að stærri fyrir- & tæki hömluðu nauðsynlega sam- keppni. Líta þyrfti á hvert einstakt 4 tilfelli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.