Morgunblaðið - 28.09.1995, Side 20

Morgunblaðið - 28.09.1995, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT Mannréttindastóll Evrópu úrskurðar gegn Bretum F ordæmir víg á IRA- mönnum á Gíbraltar Strassborg, London. Reuter. MANNRÉTTINDADÓMSTÓLL Evrópu fordæmdi í gær víg breskra hermanna á þremur óvopnuðumjiðsmönnum írska lýðveldishersins, sem voru skotnir á Gíbraltar. Úrskurðaði dómstóllinn með tíu atkvæðum gegn níu að ekki hefði verið nauðsynlegt að skjóta fólkið, tvo karla og eina konu, og að vígin væri brot á mannréttinda- ákvæðum Evrópudómstólsins. Hins vegar hafnaði dóm- stóllinn skaðabótakröfu aðstandenda hinna látnu en fyrirskipaði breskum stjómvöldum að greiða fólkinu kostnað, sem gvaraði til 3,8 milljóna kr. Skæruliðarnir, sem skotnir voru til bana á Gíbraltar árið 1988, hétu Daniel McCann, Mairead Farrell og Sean Savage. Borgaralega klæddir meðlimir SAS-sér- sveita breska hersins skutu skæruliðana þar sem þeir töldu þá vopnaða eða að þeir hefðu komið fjarstýðri bílsprengju fyrir, að því er bresk stjórnvöld hafa full- yrt. Töldu Bretar að IRA hyggði á sprengjuárásir á breskar hersveitir á Gíbraltar. Fólkið reyndist óvopnað, ekkert sprengiefni fannst í bíl þess og það hafði ekki í frammi ógnandi tilburði er þeir voru skotnir, að því er aðstandendur mannanna segja. Fullyrða þeir að SAS-mennirnir hafi fengið fyrir- skipun um að myrða þremenningana. Vígin vöktu mikla reiði á Norður-Irlandi, ekki síst er vitni lýstu því að skotið hefði verið á fólkið þrátt fyrir að það hefði borið hendur fyrir höfuð sér og að einn þremenninganna hefði verið skotinn þar sem hann lá særður á götunni. Aðstandendur þremenninganna ákváðu að vísa málinu til mannréttindadómstólsins í Strassborg eftir að breska varnarmálaráðuneytið kom í veg fyrir málarekstur fyrir dómstól á Norður-írlandi. Bretar hafa hvarvetna beitt sér gegn því að málið verið tekið upp. Mannréttindaákvæðið sem brotið var, er til verndar réttinum til að lifa og réttinum til frelsis. Kveður það á um að aðeins sé réttlætanlegt að öryggissveitir drepi fólk, telji þær lífí óbreyttra borgara ógnað. Dómstóllinn taldi ekki að svo hefði verið en taldi hins vegar ekki sannað að sérsveitarmönnunum hefði verið fyrirskipað á æðstu stöðum að taka fólkið af lífi. Reuter DANIEL Farrell fagnar úrskurði Mannréttinda- dómstóls Evrópu um að breskir sérsveitarmenn hafi brotið mannréttindi þegar þeir myrtu dótt- ur hans á Gíbraltar. Dómur mannréttindadómstóisins stangast á við fyrri úrskurð Mannréttindanefndar Evrópu, sem taldi að mannréttindaákvæðið hefði ekki verið brotið. Talsmaður bresku stjórnarinnar sagði í gær að niður- staða dómsins „stangaðist á við almenna skynsemi". Fullyrti hann að IRA-mennirnir hefðu komið til Gíbralt- ar til að koma fyrir sprengjum og að skjótar aðgerðir SAS-sveitanna hefðu komið í veg fyrir að fjöldi manns hefði látið lífið. Norskatoll- gæslan harð- lega gagnrýnd Fékk aðstoð fjög- urra herskipa við leit að brennivíni í rússneskum togara Ósló. Morgunblaðið. FJÖGUR skip norska sjóhersins létu til skarar skríða gegn rússneskum togara úti fyrir Finnmörku sl. þriðju- dag en grunur lék á, að skipveijar ætluðu að stunda ólöglega vínsölu í Noregi. Var leitað í öllu skipinu en eftirtekjan þótti heldur rýr eða að- eins 36 lítrar. Hafa þessar aðgerðir verið harðlega gagnrýndar í Norður- Noregi. Hákon krónprins tók þátt í aðgerðunum en hann er foringi í sjóhernum. Skipin Örn, Skudd, Hauk og Gribb lágu fyrir rússneska togaranum Kokshaysk bak við nes í Mageroy- sundi en hann var þá á leið inn til Havoysunds með fisk úr Barents- hafi. Fóru 23 sjóliðar auk tollvarða um borð í togarann og fundu eftir mikla leit 36 lítra af ótolluðu brenni- víni. Hefur norska tollgæslan áður fengið aðstoð sjóhersins við aðgerðir af þessu tagi. Ekki í samræmi við tilefnið Talsmaður fiskvinnslunnar, sem beið eftir rússneska togaranum, og Adolf Johansen, lénsmaður í Másoy, hafa brugðist hart við þessum að- gerðum, sem þeir segja, að hafi ekki verið í neinu samræmi við tilefnið og þjóni alls ekki norskum hagsmun- um. Hefur fiskvinnslan raunar beðið vinnuveitendasamtökin að taka mál- ið upp við þá, sem heimiluðu aðgerð- irnar. „Skipstjóri rússneska togarans hélt, að dómsdagur væri upp runn- inn,“ segir Tor-Bjarne Stabell, tals- maður fiskvinnslunnar, í viðtali við dagblaðið Nordlys. „Rússarnir voru miður sín yfír atganginum enda hefði sjálfur Rambo ekki getað gert betur." Kokshaysk er með samning um að landa físki í Havoysund út árið en nú er óttast, að þeir komi ekki aftur. Andreotti fær óvænt- an liðsauka MUAMMAR Gaddafi, leiðtogi Líbýu, bauðst í gær til að greiða kostnað Giulios Andreottis, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, vegna réttarhaldanna yfír honum á Sikiley. Líbýska fréttastofan Jana skýrði frá þessu en greindi ekki frá ástæðu tilboðsins. Líbýa var eitt sinn . ítölsk nýlenda. Hæstiréttur Spánar rannsakar blóðuga herferð gegn skæruliðum Baska Vitni ber Gonzalez sökum Madrid. Reuter. HÆSTIRÉTTUR Spánar hlýddi í gær á vitn- isburð Ricardo.Garcia Damborenea, fyrrver- andi forystumanns Sósíalistaflokksins í Baskahéruðunum, sem hélt því fram Felipe Gonzalez forsætisráðherra hefði heimilað dráp öryggissveita á 27 meintum félögum aðskilnaðarhreyfingar Baska á árunum 1983-87. Damborenea er fyrsta vitnið sem hæsti- réttur Spánar yfirheyrir eftir að dómstóllinn ákvað að taka málið fyrir fyrr í mánuðinum. Lögmaður fyrrverardi lögreglustjóra, sem er sakaður um aðild að drápunum, kvað Damborenea hafa sagt að aðferðir öryggis- sveitanna - sprengjutilræði, morð og mannrán - hefðu verið ræddar á nokkrum fundum með Gonzalez á skrifstofu hans, í þinghúsinu og höfuðstöðvum Sósíalista- flokksins. Neitar sakargiftunum Stjórn Gonzalez neitar því að hafa vitað af herferðinni gegn basknesku aðskilnaðar- hreyfingunni ETA (Baskneskt heimaland og frelsi). Herferðin kostaði 27 manns lífíð og nokkur fórnarlambanna reyndust ekki félag- ar í hreyfingunni. Damborenea, sem spænskir fjölmiðlar kalla „Ramborenea“ vegna eðlis ásakan- anna, er eitt þeirra vitna sem geta valdið stjórninni mestum skaða. Meðal annarra, sem eiga eftir að bera vitni, er Juan Al- berto Perote, fyrrverandi herforingi sem stjórnaði aðgerðum leyniþjónustu hersins gegn baskneskum aðskilnaðarsinnum á þessum tíma. Hann heldur því einnig fram að Gonzalez og ráðherrum hans hafi verið fullkunnugt um herferðina. Vitnisburður Damborenea fyrir undirrétti fyrr á árinu réð úrslitum um að hæstiréttur ákvað að taka málið fyrir og skera úr um hvort ákæra bæri forsætisráðherrann. Aðrir dómstólar geta ekki rofið þinghelgi hans. Gonzalez hefur verið við völd í þrettán ár og ákvað nýlega að efna til þingkosninga í mars, ári áður en kjörtímabilinu lýkur, en hafnaði kröfu stjórnarandstæðinga og fyrrver- andi bandamanna um að segja af sér án tafar. Reuter RICARDO Garcia Damborenea, fyrr- verandi forystumaður spænska Sósíal- istaflokksins í Baskahéruðunum, ræðir við fréttamenn eftir að hafa borið vitni gegn Felipe Gonzalez, forsætisráð- herra Spánar. Nú er rétti tíminn til að spara og taka slátur. Á sláturmarkaði GOÐA, Kirkjusandi v/Laugarnesveg, færðu Borgamesslátur og Búðardalsslátur og einnig nýtt kjöt og innmat á góðu verði. Sláturmarkaður GOÐA er opinn mánudaga til föstudaga kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-14.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.