Morgunblaðið - 28.09.1995, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.09.1995, Blaðsíða 22
» ■::!! liif i.lih-j-l: ,Ö: Hll•)A(.:j [ 1IMi: 22 FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Bandaríski ljósmyndarinn Lauren Piperno vinnur að þemaverkefni hér á landi íslenskar konur LAUREN PIPERNO er banda- rískur ljósmyndari sem er að vinna að þriggja mánaða þemaverkefni hér á iandi sem hún kallar „íslenskar konur“. „Ég kom hingað til íslands í fyrra", segir Laur- en, „og varð gjörsamlega heilluð af landi og þjóð. Landslagið er stórkost- legt og ég á örugglega eftir að leggja leið mína hingað aftur til að mynda það sérstaklega. Nú er ég hér á styrk frá The American/Skandinavian fandation til að mynda íslenskar kon- ur.“ Kyn Lauren hefur fengist við ýmiss konar verkefni í Ijósmyndun. Hún segist fyrst í stað hafa einbeitt sér að hlutum og fólki sem hún þekkti. „Það mætti segja sem svo að fyrst á ferlinum hafí ég myndað minn eig- in heim, heiminn eins og ég þekkti hann en smámsaman fikrað mig út úr þessu umhverfi. Verkefni mín hafa síðan orðið sértækari. Grunn- þemað í þeim öllum hafa verið kyn- in, samskipti þeirra, átök og árekstr- ar en einnig kynin sem slík.“ Þessi verkefni Laurenar hafa verið eins konar rannsóknir á nokkrum sviðum mannlífsins þar sem kynin eru á einhvern hátt áberandi. Þannig hefur hún meðal annars gert mynda- röð um fatafellur, vaxtarræktarmenn og samkvæmisdansa þar sem sam- skipti kynjanna eru í brennidepli. Lauren er svo einn af fímm myndhöf- undum bókar sem nefnist Masked Culture. The Greenwich Village Halloween Parade og lýsir í máli og myndum árlegri skrúðgöngu 500.000 manna í New York-borg á Hrekkjavöku Bandaríkjamanna. Konur á íslandi íslandsverkefni sitt segir Lauren að mætti líta á sem nokkurs konar framhald af því sem hún hafi verið að gera í Bandaríkjunum að því leyti að hún er enn að fást við kyn. „Þetta verkefni er mjög víðtækt. Ætlunin er að mynda íslenskar konur í sem víðustu samhengi. Ég einbeiti mér heldur ekki að neinum einum hópi kvenna. Það sem mér finnst sérstak- lega áhugavert er sjálfstæði ís- Ljósmynd/Lauren Pipemo EITT af verkum Laurenar fjallaði um suður-ameríska dansa þar sem samskipti kynjanna eru í brennidepli. Ljósmynd/Lauren Pipemo LAUREN Piperno er að vinna að ljósmyndaverkefni sem hún kallar íslenskar konur. ienskra kvenna og sú jafnstaða sem þær hafa við karla. íslenskar konur hafa náð mun lengra í jafnréttisbar- áttunni en bandarískar. Hér er kven- forseti og kvenborgarstjóri sem segir auðvitað sitt. Mig langar til að kanna hvað liggur hér að baki, hvort það sé eitthvað í eðli íslenskra kvenna sem veldur þessari stöðu. Mér fínnst líka mjög áhugavert að skoða hvemig gamli tíminn og nýi mætast á skemmtilegan hátt héma, bæði í fólkinu sjálfu og nátt- úranni; ísland er í stöðugri mótun. Og það er kannski einkennandi fyrir fólkið héma að þótt það hafí aðlagað sig nútímanum hratt og komið upp mikilii tæknimenningu lifír gamli tíminn í því ennþá, sagan og sagna- arfurinn." Lauren segist vinna verkefnið að nokkram hluta í sveitum landsins. „Það er göldram líkast að koma úr ysnum í New York-borg í íslenska sveitasælu. í New York er fólk sí- fellt að leita einhvers, að merkingu og tilgangi en hér hef ég hitt sveita- fóik sem lifir í fullkominni sátt við umhverfið og sig sjálft, fólk sem veit sinn stað. Allt þetta langar mig til að mynda.“ Sinfóníuhljómsveitin leikur suður-ameríska tonlist Þorsteinn Gauti Signrðsson Bryndís Halla Gylfadóttir Guðrún María Finnbogadóttir Alberto Merenzon sveifla, seiður Dulúð, í KVÖLD verða tónleikar í Háskóla- bíói með Sinfóníuhljómsveit íslands í ísMús-tónleikaröð Ríkisútvarpsins. Tónleikarnir eru sérstakir að því leyti að á þeim verða einungis leikin verk frá Suður- og Mið-Ameríku. Stjómandi verður Alberto Merenzon frá Argentínu en einleikarar verða Bryndís Halla Gylfadóttir seilóleik- ari, Þorsteinn Gauti Sigurðsson píanóleikari og Guðrún María Finn- bogadóttir sópransöngkona, en þau hafa öll hlotið Tónvaka-verðlaun Ríkisútvarpsins. Guðmundar Emilsson, tónlistar- ráðunautur Ríkisútvarpsins, hefur haft frumkvæði að þessum tónleik- um og sagði í samtali við biaðamann að það hafí ekki áður verið haldnir sinfónískir tónleikar meó verkum frá Suður- og Mið-Ameríku einvörðungu hér á iandi þótt leikin hafi verið ein- stök verk. „Þessi tónlist er á köflum sveiflumikil og full dulúðar og má rekja það tii þjóðlegs uppruna henn- ar, það er stutt í frumbyggjana í henni. Við erum í raun að fylla ákveðið tómarúm með þessum tón- leikum því þessari tónlist hefur Iítið verið sinnt hér og hefur jafnvel mætt dálitlum fordómum." Aðspurð- ur sagði Guðmundur að hann hafí sjálfur kynnst henni við störf sín sem hljómsveitarstjóri í Suður-og Mið- Ameríku á undanförnum áram og heillast. Guðmundur sagði að líkast til muni þessi tónlist reyna eilítið á sveifluna í sinfóníuhljómsveitinni. „Þegar ég leit inn á fyrstu æfíngu var þegar komin þónokkur sveifla og hiti í hljómsveitina. Ég hef reynd- ar orðið var við að hljómsveitarmeð- limirnir sjálfir eru mjög áhugasamir um þessa tónieika. Ég held að íslend- ingum eigi eftir að falla hinn dulúð- arfulli tónn þessarar tónlistar vel og ekki síður hin sérstaka hrynjandi hennar sem hefur seiðmagnandi áhrif.“ Tónleikamir hefjast kl. 20. Sólin í öndvegi ÍSLENSKA Iistakonan Rúrí er meðal þátttakenda á umhverfis- listarsýningunni Experimental Environment Kuopion Tienoo 1995 í borginni Kuopio í Finn- landi. Nefnist verk hennar Kuopio Observatorium. Verkið er, að sögn Rúríar, unn- ið sérstaklega fyrir Kuopio. „Þeg- ar ég kom þangað fyrst í desem- ber síðastliðnum til að kynna mér staðinn var ákaflega dimmt og drungalegt um að litast. Það varð til þess að ég ákvað að vinna með sólina í verki mínu.“ Rúrí fékk stjömufræðing í Ku- opio til liðs við sig og reiknaði hann út áttir til sólar. Því næst voru settir niður sex stólpar, steyptir í hvíta steinsteypu. Skipt- ast þeir i þijú pör. Hið fyrsta er fyrir sólarupprás og sólsetur á sumarsólstöðum, annað fyrir sól- arupprás og sólsetur á vetrarsól- stöðum og hið þriðja fyrir sólar- upprás og sólsetur á haust- og vorjafndægrum. „Ég ákvað að nota eins lítið efni og ég gat, þar sem ég vildi láta sólina og umhverfið vera ráðandi öfl. Ég hafði stólpana því eins lága og hægt var en þeir em tveir metrar á hæð. Þeir em hins vegar misjafnlega breiðir, þannig að þeir kasta misjafnlega breiðum skugg- um; breiðasti skugginn er á vetrar- sólstöðum," segir Rúrí en verkið er tæpir nítján metrar í þvermál. Sólin kemur í ljós í miðju verksins er lítill pallur en í hann era grafnar línur sem sýna höfuðáttiraar fjórar. „Þegar maður stendur á miðju þessa palls hefur maður rétta afstöðu til að horfa á sólina koma upp en hún kemur í ljós fram undan viðkom- andi stólpa,“ segir Rúrí. Verkið er staðsett f námunda við vatn og kveðst Rúrí hafa valið þann stað með hliðsjón af útsýn. „í Finnlandi er mikið um skóga en þeir eru nyög framandi fyrir íslenska listamenn. Það getur ver- ið mjög erfitt að vinna listaverk inn í slíkt umhverfi ekki síst ef skógarnir byrgja útsýn.“ Rúrí er f hópi fimm norrænna listamanna sem taka þátt í sýning- unni. Auk þess að krydda um- hverfi Kuopio var þeim boðið að sýna á aðalsýningu sumarsins í listasafni borgarinnar en þeirri sýningu lauk á dögunum. Um- hverfislistaverkin munu á hinn bóginn standa áfram. „Verkin verða þarna að minnsta kosti næsta árið og ég veit að það er áhugi fyrir því að þau standi leng- ur,“ segir Rúrí.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.