Morgunblaðið - 28.09.1995, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.09.1995, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ *i FRÉTTIR Starfsmenn Flugleiða í Amsterdam í göngum með norðlenskum bændum ■ :I „ÉG VEIT ekki til að í nokkru öðru landi sé ferðamönnum boð- ið að fylgjast með göngum og réttum eins og hér.'Erlendir ferðamenn eiga eflaust eftir að kunna að meta þennan mögu- leika. Ég veit að minnsta kosti að ég tala fyrir munn okkar beggja þegar ég segi að við höf- um notið dagsins út i ystu æsar. Langt ferðalag yfir hafið og hingað norður var fullkomlega þess virði,“ sagði Joeri Driehuis, starfsmaður skrifstofu Flugleiða í Amsterdam, eftir að hafa að- stoðað gagnamenn að smala hrossum af Laxárdal við Blöndu- ós á laugardag. Joeri og Alexandra Lomm- erse, starfsfélagi hans, gerðu sér sérstaka ferð til íslands til að kynna sér þennan nýja mögu- leika í ferðaþjónustu. Joeri er hins vegar ekki ókunnugur land- inu og talar ágæta íslensku. „Eiginlega vaknaði áhugi minn á íslandi þegar pabbi keypti sér íslenskan hest, Perlu, fyrir um 15 árum. Eftir að hann eignaðist hestinn fór ég að lesa mér til um ísland og fékk fljótt ódrep- andi áhuga á landi og þjóð. Ekki leið heldur á löngu þar til ég fékk að fara til íslands því ég var skiptinemi á vegum AFS- skiptinemasamtakanna á íslandi 1984 til 1985,“ segir Joeri. Hann á nú sjálfur tvo íslenska hesta. Vaxandi áhugi á íslandi Tvímenningarnir segja vax- andi áhuga á Islandi í Hollandi. Joeri nefnir því til stuðnings að 30% fjölgun hafi verið á ferða- mönnum frá Hollandi á árunum 1993 og 1994 og um 7.000 Hol- lendingar hafi komið til lengri eða skemmri dvalar á íslandi í fyrra. Sú staðreynd að áhugi ferðamenn á þvi að koma til f s- lands utan háferðamannatímans sé að vaxa sé heldur ekki síður ánægjuleg. Nutu dags- ins út í ystu æsar Morgunblaðið/Anna G. Ólafsdóttir HROSSIN voru að vanda rekin i Skrapatungurétt, eina stærstu hrossarétt landsins, og var þar að vanda mikið fjör á sunnudeginum. Þó tekur Alexandra fram að „Ég hef tekið eftir því að marg- fáum oft að heyra að landið sé töluverða vinnu þurfi til að ir eru haldnir fordómum gagn- einfaldlega of fjarlægt, kalt og kynna Island fyrir útlendingum. vart því að fara til í slands. Við dýrt. Ég er alls ekki sammála því. Fiug til íslands tekur ekki nema þrjár klukkustundir og hérna er ekki kalt ef fólk er rétt klætt. Verðlagið er auðvitað' frekar hátt. Hins vegar eru ýms- ( ir möguleikar á að gera ferðina 1 ‘ ódýrari, t.d. með því að gista á bændagistingum, gistihúsum og tjalda svo ég nefni eitthvað," segir hún. Alexandra segir að þau Joeri reyni að koma því til skila til viðskiptavina sinna hvernig sé að vera á íslandi. „Við sýnum þeim myndir og veitum þeim ® upplýsingar um landið," segir hún. „Hins vegar á ég alltaf í erfiðleikum með að reyna að koma sjálfri tilfinningunni til skila. Ég á við að þó þú getir talað um hreina loftið, birtuna og náttúrufegurðina, er erfitt að lýsa því hvernig er að vera staddur úti í náttúrunni, draga ' að sér hreina loftið, og sjá hvaða áhrif birtan hefur á landslagið og breytir því í sífellu.“ Höfðar til eigenda > íslenskra hesta i I Joen segir að reynslan hafi sýnt. að Islandsfarar hafi verið ánægðir og sýni áhuga á að fara ALEXANDRA og Joeri fengu íslenskar ullarpeysur að skilnaði. Þau segja að Island hafi töluvert verið kynnt í hollenskum fjölmiðlum að undanförnu. .trsmeg ^rsmeg Ný lína í heimilistækjum Við flytjum inn vönduð heimilistæki frá Smeg og Piere Roblin. Tækin marka tímamót í hönnun, eru stílhrein og auðveld í notkun. EIRVÍK heimilistæki hf. Suðurlandsbraut 22, 108 Rvík, sími 588 0200 Morgunblaðið/Ingvar Atii Sigurðsson Law Base stöðin er aðeins lítill skúr. Rauðu kúlurn- INGVAR heilsar upp á nokkrar mörgæsir ar eru svefnaðstaða jafn margra vísindamanna. á Suðurskautinu. Suðurskautið Dýrin hafa ekki vit á að óttast mennina „AÐDRÁTTARAFL Suðurskauts- ins felst fyrst og fremst í óspilltri náttúru. Dýrin, þ.e. mörgæsir, sel- ir, sjófuglar og fleiri tegundir, hafa ekki einu sinni vit á því að óttast mennina," segir Ingvar Atli Sig- urðsson, berg- og jarðefnafræðing- ur, um vistina á Suðurskautinu. Ingvar Atli safnaði sýnum af mött- ulhnyðlingum á Suðurskautinu frá nóvember árið 1990 til janúar árið 1991. För hans er að nýju heitið á Suðurskautið í nóvember nk. Ingvar fer héðan frá íslandi 18. október og heldur af stað með fé- laga sínum í hópi leiðangursmanna frá Ástralíu til Suðurskautsins 2. nóvember. „Sjóferðin tekur um einn mánuð því að við verðum að koma við á tveimur stöðvum áður en við komumst á leiðarenda. Stöð- in okkar heitir Law Base og er um 100 km frá einni af þremur stærstu stöðvunum, Davis,“ segir Ingvar og tekur fram að á Davis búi vís- indamenn allan ársins hring. Hins vegar dveljist aðeins 2-6 vísinda- menn í Law Base yfir hásumarið eða yfir háveturinn á íslandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.