Morgunblaðið - 28.09.1995, Side 6
MORGUNBLAÐIÐ
6 FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995
FRÉTTIR
Finnlandsforseti skoðaði Nesjavelli og Vestmannaeyjar í fallegu veðri í gær
AHTISAARI skoðaði vatnsöflun Reykvíkinga
við Gvendarbrunna í Heiðmörk.
Morgunblaðið/Sigurgeir
AHTISAARI var haldin veisla í Eldfellshrauni. Rúgbrauð bakað í hrauninu var grafið upp og gest-
unum boðið að bragða á því ásamt íslensku brennivíni.
*
Gaf Islend-
ingum 3 kíló
af lerkifræi
MATTI Ahtisaari, forseti Finn-
lands, færði Islendingum þrjú kíló
af lerkifræi sem gjöf frá timbur-
iðnaðinum í Finnlandi. Af fræinu
eiga að geta vaxið 150.000 tré.
Ahtisaari skoðaði, Alþingi, Ráð-
húsið, Nesjavelli og Gvendar-
brunna í gær.
Finnlandsforseti byrjaði daginn
á því að skoða Alþingishúsið í
fylgd Ólafs G. Einarssonar, for-
seta Alþingis. Þaðan gekk hann
yfir að Ráðhúsi Reykjavíkur. Guð-
rún Agústsdóttir, forseti borgar-
stjórnar, tók á móti forsetanum.
Frá Ráðhúsinu hélt Finnlands-
forseti og fylgdarlið hans til
Nesjavalla og skoðaði orkumann-
virkin þar. Ahtisaari sýndi orku-
verinu mikinn áhuga og spurði
margs um framkvæmdirnar á
Nesjavöllum.
Gaf lerkifræ
í hádeginu snæddi Ahtisaari
hádegisverð í Perlunni í boði Dav;
íðs Oddssonar forsætisráðherra. I
ræðu sem forsetinn flutti við það
tækifæri sagði hann athyglisvert
að þau mannvirki sem hann hefði
skoðað þá um morguninn hefðu
öll verið reist að frumkvæði og
af dugnaði forsætisráðherrans
meðan hann var borgarstjóri í
Reykjavík.
Ahtisaari bar lof á dugnað Is-
lendinga við að planta tijám á
landi sínu. Hann minnti á að síð-
asta áratug hefði mest af trjá-
fræi, sem Islendingar hefðu notað,
komið frá Finnlandi. Til að sýna
áhuga Finna á að aðstoða Islend-
inga við að klæða Iandi skógi af-
henti Ahtisaari Islendingum þijú
kíió af lerkifræi.
Davíð Oddsson sagði við þetta
tækifæri að aðild Finnlands og
Svíþjóðar að ESB hefði leitt til
þess að nauðsynlegt hefði verið
að endurskoða og aðlaga norræna
samvinnu nýjum aðstæðum. Þetta
hefði tekist og samstarfið næði
nú til nýrra sviða.
Síðdegis héldu finnsku gestirnir
til Vestmannaeyja. Þar gafst Finn-
landsforseta tækifæri til að skoða
fiskvinnslu hjá Isfélagi Vest-
mannaeyja hf.
Heimsókn Finnlandsforseta lýk-
ur í dag.
„ Morgunblaðið/Þorkell
OLAFUR G. Einarsson, forseti Alþingis, tók á móti Finnlandsforseta í Alþingishúsinu og sagði stutt-
lega frá sögu þingsins og starfi þess.
Morgunblaðið/Ásdís
GUNNAR H. Kristinsson,
hitaveitustjóri tekur á móti
gestunum.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra bauð
Ahtisaari til hádegisverðar í Perlunni.
Ungir læknar mótmæla samningi Tryggingastofnunar o g LR
Fotunum kippt undan
ungum sérfræðingum
FELAGSFUNDUR Félags ungra
lækna, sem nýlega var haldinn,
mótmælir harðlega nýgerðum
samningi Tryggingastofnunar rík-
isins og Læknafélags Reykjavíkur
um sérfræðiþjónustu lækna þar
sem með honum sé komið í veg
fyrir eðlilega nýliðun sérfræði-
lækná.
í ályktun fundarins segir að
læknisþjónusta hérlendis hafi verið
í fremstu röð og öltum þegnum
landsins tryggð besta læknisþjón-
usta sem völ er á hveiju sinni, og
óskiljanlegt sé hvers vegna nýliðun
sé takmörkuð með þessum hætti,
sérstaklega í Ijósi þess að nýsam-
þykkt greiðsluþak til sérfræðinga
muni koma í veg fyrir aukinn
kostnað ríkisins.
Ungir læknar koma ekki
til Iandsins
Drifa Freysdóttir, formaður Fé-
lags ungra lækna, sagði í samtali
við Morgunblaðið að það hefði ver-
ið stefna Tryggingastofnunar rík-
isins í mörg ár að loka þeirri leið
að sérfræðingar gætu opnað
læknastofur. „Þeir hafa samþykkt
kvóta þannig að þeir borga ekki
nema ákveðinn fjölda verka á ári,
ög því á það ekki að skipta þá
neinu máli hversu margir senda
reikning. Við teljum að á meðan
það er flatur niðurskurður á
sjúkrahúsunum og starfsumhverf-
ið þar neikvætt í hæsta máta, þá
sé þarna gjörsamlega verið að
kippa fótunum undan ungum sér-
fræðingum. Það verður til þess að
þeir koma ekki til landsins, sem
leiðir til að íslendingar fá ekki að
njóta þess sem þeir hafa upp á að
bjóða,“ sagði Drífa.
Hún sagði að Félag ungra lækna
hefði átt í viðræðum um þetta mál
við Læknafélag Reykjavíkur sem
hefði haft umboð til umræddra
samninga frá Læknafélagi íslands
og einnig hefði verið rætt við for-
mann LI. Þá væri fyrirhugaður
fundur með heilbrigðisráðherra um
málið.
Morgunblaðið/Þorkell
Baráttudag-
ur heyrnar-
lausra
ALÞJÓÐLEGUR menning-
ar- og baráttudagur heyrn-
arlausra 1995, var haldinn
sunnudaginn 25. septem-
ber sl. og að þessu sinni
voru hátíðahöldin á íslandi
helguð menningu heyrnar-
lausra. Af því tilefni var
boðið upp á dagskrá sem
stóð yfir í þijá daga, frá
föstudegi til sunnudags.
Dagskráin hófst með opn-
un sýningar á verkum
heyrnarlausra myndlist-
armanna á föstudag og
lauk með messu í Áskirkju
á sunnudag. Á laugardag
var komið saman við
Kjarvalsstaði og gengið að
húsnæði Félags lieyrnar-
lausra við Laugaveg, þar
sem var opið hús.