Morgunblaðið - 28.09.1995, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KJOTVORUR
FRETTIR
I3IGMIEGA
vítamín og kalk
fæst í apótekinu
Ný deild fyrir vímuefnaneytendur
Sjúklingar geta
sótt dagdeild
án innlagnar
Blab allra landsmanna!
- kjarni málsins!
Morgunblaðið/Þorkell
PRÓFESSOR Tómas Helgason og Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra fyrir framan meðferðarheimilin við Flókagötu.
NÝ GÖNGUDEILD og sjúkraheim-
ili fyrir alkóhólista og aðra vímu-
efnaneytendur voru formlega opnuð
í gær af Ingibjörgu Pálmadóttur
heilbrigðisráðherra. Eru deildirnar
til húsa að Flókagötu 29 og 31.
L r M viét
„Með opnun þessarar nýju deildar
er brotið blað í sögu áfengis- og
fíkniefnasjúklinga," sagði Ingibjörg
við þetta tækifæri og vísaði til þess
að nú gætu þeir sem þjáðust af
ýmiss konar fíkn, s.s. áfengis-,
vímuefna-, spila- og átfíkn, fengið
tækifæri til að njóta meðferðar án
innlagnar. „Þetta er tilraun sem í
senn á að spara fjármuni og um
leið fjölga meðferðarúrræðum,"
sagði hún.
Deildin verður rekin sem hluti af
vímuefnaskor Landspítala ásamt
deild 33A og göngudeild áfengis.
Yfirlæknir er Jóhannes Bergsveins-
son en Óttar Guðmundsson sérfræð-
ingur í geðsjúkdómum hefur umsjón
með daglegum rekstri hennar.
Apspurður sagði Óttar að fram
til þessa hefðu einungis einstaka
sjúklingar með spilafíkn verið í
meðferð á Vífilstaðaspítala og í ljós
kæmi hvert framhaldið yrði. „Við
verðum að laga prógramm okkar
eftir því hveijir koma hingað og
þurfa á meðferð að halda. í ljós
hefur komið að stór hluti sjúklinga
sem leitað hafa áfengismeðferðar
glímir einnig við ýmsar aðrar misal-
varlegar geðtruflanir," sagði hann
og benti á að endurteknar meðferð-
ir fólks mætti oft rekja til þess að
þessum truflunum hefði ekki verið
nægilega sinnt.
Sérstakir hópar verða fyrir fólk
á aldrinum 16-19 ára undir stjórn
ráðgjafa sem áður störfuðu að Tind-
um. Þá verður lögð rík áhersla á
fjölskyldumeðferð á öllum stigum.
- bnr smt ptí viítl
Skriflegt samband viö stærstu fréttastofu landsins færir þér kjarna málsins
þegar þú vilt - þar sem þú vilt!
n\Atún& 4 /llneú 1
http://www.strengur.is/mbl
Opinn aögangur 28. september - 5. október
HREiNAR SNYRTIVÖRUR
- Þú færð ekkert betra -
ÞUMALÍNA
Pósthússtræti 13-S. 551 2136
Dr. Har-
aldur heið-
ursfélagi
Á AÐALFUNDI Sagnfræðinga-
félags íslands 26. september sl.
var dr. Haraldur Sigurðsson
gerður að heiðursfélaga í viður-
kenningarskyni fyrir ómetan-
legt framlag til íslenskrar sagn-
fræði. Dr. Haraldur og kona
hans, frú Sigrún Á. Sigurðar-
dóttir, gáfu Landsbókasafni ís-
lands - Háskólabókasafni kort
og bækur um kortasögu og
skyld svið þegar bókasafnið var
opnað í desember á síðasta ári.
Um er að ræða nokkur hundruð
fræðibækur. Dr. Ingi Sigurðs-
son prófessor gerði grein fyrir
fræðasjtarfi Haraldar á fund-
inum. Á myndinni tekur frú Sig-
rún við heiðursskjali úr hendi
Hrefnu Róbertsdóttur, for-
manns Sagnfræðingafélagsins.