Morgunblaðið - 28.09.1995, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 13
AKUREYRI
Hjólað
milli Húsa-
víkur og
Dalvíkur
KONUR í kvennadeild Slysavarna-
félags íslands á Húsavík ætla að
safna fé til framkvæmda við iokaá-
fanga við Slysavarnahúsið á staðn-
um, en það gera þær með því að
hjóla frá Húsavík til Dalvíkur, um
130 kílómetra leið. Áður ætla þær
að safna áheitum hjá húsvískum
fyrirtækjum og heimilum. Bregðist
bæjarbúar vel við er möguleiki á
að ljúka innréttingu Slysavarna-
hússins í vetur.
Kostnaður við lokafrágang hús-
næðisins er um tvær milljónir
króna, en heildarkostnaður við kaup
á húsinu, breytingar á því og fleira
er um 1.3,5 milljónir króna.
Húsið er á tveimur hæðum, um
440 fermetrar að stærð, en þar er
björgunarstöð, félags- og nám-
skeiðsaðstaða. Eigendur þess eru
Björgunarsveitin Garðar, Slysa-
varnardeild kvenna, Húsavík og
Rauðakrossdeildin á Húsavík.
KULDINN ræður ríkjum norðan heiða um hjá hrossunum, sem þurfa að krafsa snjóinn
þessar mundir og vart hefur hann farið fram ofan af grasinu.
^ j j % Morgunblaðið/Berglind H. Helgadóttir
Kraisað 1 snjomn
Gilfélagið
Hugmyndum
um Ketilhús-
ið í Grófargili
mótmælt
Á AÐALFUNDI Gilfélagsins sem
haldinn var nýlega var harðlega
mótmælt þeim hugmyndum sem
fram hafa komið um að nýta Ketil-
húsið í Grófargiii sem tómstundam-
iðstöð og rífa það þar með úr sam-
hengi við Listamiðstöðina í Grófarg-
ili, enda hafí Ketilhúsið frá upphafí
gengt lykilhlutverki í öllum ákvörð-
unum Akureyrarbæjar varðandi
Listamiðstöðina.
Þetta kemur fram í ályktun sem
samþykkt var á aðalfundinum og
einnig að fundurinn treysti því að
Akureyrarbær gangi ekki á bak orða
sinna varðandi upphafleg áform um
uppbyggingu listastarfsemi í Gróf-
argili.
Á fundinum var Þröstur Ás-
mundsson kjörinn nýr formaður Gil-
félagsins, en aðrir í stjórn eru Ragn-
heiður Ólafsdóttir, Gísli Gunnlaugs-
son, Jónas Viðar og Sölvi Ingólfsson.
Endur-
byggingu
lokið
Hönnunarkostnaður Akureyrarbæjar
Tæpar 200 imlljónir á
síðustu þremur árum
AKUREYRARBÆR hefur á síð-
ustu þremur árum greitt tæpar 200
milljónir króna í hönnunarkostnað.
Upplýsingar um greiðslu bæjarins
vegna hönnunarvinnu voru lagðar
fram á fundi framkvæmdanefndar
Akureyrarbæjar á mánudag, en
miklar umræður urðu um hönnun-
arkostnað á fundi bæjarstjórnar
Akureyrar í liðinni viku.
Eftirlit verði aukið
í máli bæjarfulltrúa kom fram
að á stundum gætti mikillar óná-
kvæmni hvað varðaði hönnunar-
vinnu og einnig væri skortur á
eftirliti á vegum bæjarins með
slíkri vinnu. Menn væru andvara-
lausir og tækju alla þá reikninga
sem að þeim væru réttir sem góða
og gilda þannig að segja mætti að
allt að því ófremdarástand ríkti í
þessum efnum. Hvöttu bæjarfull-
trúar til þess að tekið yrði á þess-
um málum af festu, m.a. með
auknu eftirliti af hálfu bæjarins.
Á fundi framkvæmdanefndar
var lagður fram listi yfir þá hönn-
unarvinnu sem unnin hefði verið
fyrir Akureyrarbæ á síðustu þrem-
ur árum en þar kemur fram að
greiddar hafa verið um 193 millj-
ónir króna í hönnunarkostnað, á
tímabilinu.
Ásta Sigurðardóttir, sem sæti á
í framkvæmdanefnd, sagði að m.a.
væri um að ræða hönnunarkostnað
vegna framhaldsskólanna,
Menntaskólans á Akureyri og
Verkmenntaskólans á Akureyri og
einnig vegna hönnunarvinnu við
Sundlaug Akureyrar sem næði
töluvert fram í tímann.
Hún sagði því ekki að leyna að
ýmsar nýlegar uppákomur, m.a.
vegna skipulagsvinnu við hafnar-
svæðið og við nýjan leikskóla,
hefðu vakið upp spurningar um
hvort ekki væri hægt að gera raun-
hæfar áætlanir varðandi hönnun
fram í tímann.
Átak í gæðastjórnun
Ásta sagði að á vegum fram-
kvæmdanefndar væri í gangi átak
í gæðastjórnun sem hefði að
markmiði að efla eftirlit með
framkvæmdum á vegum bæjarins
og fyrsta verkefnið sem unnið
væri eftir því kerfi væri bygging
stjórnunarálmu við Glerárskóla
sem þegar hefði sýnt sig að gæf-
ist vel. „Við munum í framtíðinni
fylgjast betur með áætlunum og
framkvæmdum á þessu sviði og
verði einhver misbrestur á að
kanna hvar ábyrgðin liggur,“
sagði Ásta.
FJÓRIR félagar á Akureyri, þeir
Svanbjörn Sigurðsson rafveitu-
stjóri, Benedikt Ólafsson, lög-
fræðingur og flugstjórarnir
Ragnar Ólafsson og Kolbeinn
Arason hafa endurbyggt Cessna
152 sem nú er búið að breyta í
stélhjólsvél og er hún að líkindum
sú eina sinnar tegundar á land-
inu. Vélina keyptu þeir eftir að
henni hafði verið brotlent á
Narfastaðamelum í Borgarfirði.
Á síðustu fimm árum hafa þeir
félagar unnið við endurbætur á
flugvélinni sem lauk nú fyrr í haust
og var henni þá flogið í fyrsta sinn.
Ekki vildi betur til en svo að mótor-
inn stoppaði í 3000 feta hæð yfir
Akurcyrarflugvelli, en Kolbeinn
sem stýrði af öryggi sveif inn til
lendingar. Síðan hefur allt gengið
að óskum hjá félögunum.
Gunnar Rafn sýnir
í Heklusalnum
GUNNAR Rafn Jóns-
son opnar sýningu á
málverkum í Heklusal
Gallerís AllraHanda á
Gleráreyrum á Akur-
eyri á föstudagskvöld,
29. september kl.
20.00.
Á sýningunni eru 63
myndir. Við opnun
sýningarinnar leika
þær Arnheiður Eyja
Sölvadóttir og Sigur-
veig Gunnarsdóttir á
gítar.
Gunnar Rafn er
fæddur á Akureyri árið
1948, hann nam mynd-
list á yngri árum hjá
Einari Helgasyni á Akureyri og
Arthur Harrington í Bandaríkjun-
um, en er að öðru leyti
sjálfmenntaður í mynd-
listinni. Hann hélt
einkasýningu á Húsa-
vík árið 1994 og í Söd-
erhamn í Svíþjóð 1995.
Þá tók hann þátt í sam-
sýningu á Húsavík fyrr
á þessu ári.
Gunnar Rafn er sér-
fræðingur í skurðlækn-
ingum og yfirlæknir
við Sjúkrahúsið á
Húsavík en starfar
annan hvern mánuð við
skurðlækningar í Sví-
þjóð.
Sýningin stendur til
10. október næstkom-
andi og er opin alla daga frá kl.
14 til 19.
Gunnar Rafn
Jónsson
Rokkkvöld á 1929
ROKKKVOLET verður á
skemmtistaðnum 1929 á föstu-
dagskvöld, en þá munu hljóma
lög allra helstu rokkhljómsveita
bæði fyrr og nú. Hljómsveitin
Pink Floyd verður í aðalhlut-
verki á breiðtjaldi staðarins í
kvötd, fimmtudagskvöld.
Stýrimannadeildin á Dalvík
Nýr siglinga- og fiskveiðihermir
NÝR siglinga- og fiskveiðihermir
hefur verið tekið í notkun við stýri-
mannadeild VMA-útvegssviðs á
Dalvík. Hann var keyptur frá fyrir-
tækinu Simutech Electronics í Hull
og er vél- og hugbúnaður sem líkir
eftir þeim merkjum em koma frá
siglinga- og fískleitartækjum í skip-
um.
Síðastliðið vor var gert átak til
að efla tækjakost skólans en hann
hefur lengi verið vanbúinn tækjum
og eru kaupin á herminum fyrsta
skrefið í átt að uppbyggingu tækja
við stýrimannadeild skólans.
Hermirinn skiptist í þrjá aðal-
þætti; fiskveiðihermi, siglingahermi
og stjórnstöð kennara.
Peningagjöf afhent
Hermirinn var formlega tekin í
notkun í síðustu viku í nýjum húsa-
kynnum stýrimannadeildarinnar á
Dalvík en við það tækifæri var jafn-
framt kynning á herminum og aðil-
um sem hafa styrkt kaupin á ein-
hvern hátt boðið að kynna sér tæk-
ið og hvernig það virkar uppsett í
kennslustofu.
Við þessa athöfn afhenti Ottó
Jakobsson deildinni peningagjöf,
250 þúsund krónur til tækjakaupa
frá Vélbátatryggingu Eyjafjarðar,
en í lokin var boðið upp á kaffiveit-
ingar.